Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 28

Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 Jakob Björnsson orkumálastjóri: V irkjunarkost- ir til aldamóta Inngangur Ætlunin er að greina hér frá samanburði sem Orkustofnun hef- ur látið vinna að á mismunandi leiðum til að sjá fyrir raforkuþörf- um landsmanna til næstu alda- móta, eins og þær eru áætlaðar í raforkuspá Orkuspárnefndar 1978-2000. Sú spurning sem mest aðkall- andi er að svara í virkjunarmálum er þessi: Hvaða vatnsaflsvirkjun á að koma næst á eftir Hrauneyja- fossi? Það er tilgangur athugunar þeirrar sem hér um ræðir að leiða í ljós einn meginþáttinn i svarinu við þeirri spurningu, þ.e. kostnað við vinnslu og flutning raforku; leiða hann í ljós með heildstæðum hætti, þar sem tekið er tillit til væntanlegs orkumarkaðar; mögu- legra virkjana og flutningskerfis, og litið lengra en til næstu virkj- unar einnar. Verk þetta hefur tekið nokkuð langan tíma; lengri en ætlað var í fyrstu, enda er það býsna umfangsmikið. Eftir því sem ég vest veit er þetta fyrsta eiginlega langtímakönnunin í virkjuriarmálum hérlendis. Samanburði þessum er nú langt til lokið, en eftir er að ganga frá nokkrum atriðum og semja loka- skýrslu. Að því er orkuþörf varðar eru tekin til athugunar eftirtalin til- vik: 1. Orkuþörf almenna markaðar- ins skv. orkuspá A og þess orkufreka iðnaðar, sem samið hefur verið um orkusölu til. 2. Orkuspá A að viðbættum nýj- um orkufrekum iðnaði er kæmi í þremur 50MW áföngum 1986, 1988 og 1990. Síðara tilvikið felur ekki í sér neitt mat á því, hvort líklegt sé að um slíka orkusölu til nýrrar stór- iðju verði að ræða, eða hvort hún sé æskileg, heldur er tilgangurinn sá einn að leiða í ljós áhrif slíkrar orkusölu á virkjunarleiðir. Þar eð meginflutningskerfið er með í athuguninni skiptir stað- setning nýrrar orkufrekrar iðju máli. Þrjú tilvik voru skoðuð: 1. Grundartangi. (Úttak úr lands- kerfi á Brennimel). 2. Eyjafjörður. (Úttak úr lands- kerfi á Akureyri). 3. Reyðarfjörður. (Úttak úr lands- kerfi á Hryggstekk). Við mat á aflþörf skv. orkuspá A var tekið tillit til þess, að unnt er að létta rafhitunarálagi af raforkukerfinu á þeim stöðum þar sem fjarvarmaveitur verða gerð- ar. Samanburðurinn er í því fólginn að bera saman núgildi heildar- kostnaðarins, sem þjóðin hefur af því að sjá fyrir þessari raforku- þörf, eftir mismunandi virkjunar- leiðum. Við reikning á núgildi eru notaðir 8% raunvextir. Af fjár- magnskostnaði mannvirkja er ein- ungis tekinn með sá hluti, sem til fellur hérna megin aldamóta, þeg- ar stofnkostnaði þeirra er dreift jafnt yfir hæfilegan afskriftar- tíma. Breytilegur kostnaður, svo sem eldsneytiskostnaður varma- aflsstöðva, er reiknaður hvert ár fyrir sig. Viðhaldskostnaður er að sjálfsögðu einnig tekinn með. Tek- ið er tillit til áfangaskiptingar hverrar virkjunar um sig, sem leitast er við að hafa á þann veg að hún falli sem best að þróun markaðarins. Einnig er tekið með í reikninginn að meginflutnings- kerfið og skipting þess í áfanga verður með mismunandi hætti eftir því hvaða leið er valin. Það er því ekki nægjanlegt að hafa áætl- anir um einstakar virkjanir, held- ur þarf einnig að gera sér grein fyrir áfangaskiptingu þeirra. Virkjanastærðir miðast við áætl- aða orkuvinnslugetu og þann nýt- ingartíma, sem ræðst af þörfum markaðarins, að viðbættri hæfi- legri hlutdeild hverrar virkjunar um sig í varaafli. Einnig þarf að áætla meginflutningskerfið og áfangaskiptingu þess. Virkjunar- áætlanir þær, sem stuðst er við hafa Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen,' verkfræðistofan Hönnun og Almenna verkfræði- stofan gert, en Verkfræðistofa Helga Sigvaldasonar og Verk- fræðistofa Gunnars Ámundasonar hafa annast vinnuna við saman- burðinn, og síðarnefnda stofan áætlað kostnað við flutningskerf- ið. Um verk þetta hefur tekist samvinna milli Orkustofnunar, Landsvirkjunar og Rafmagns- veitna ríkisins, og hafa fulltrúar tveggja síðastnefndu aðilanna fylgst náið með gangi verksins og hafa látið í té mikilsverðar upp- lýsingar. Virkjanir, sem athugaðar voru Eftirtalin virkjunarmannvirki voru tekin með í samanburðinn. Yfirlit yfir miðlunarstærðir, stofnkostnað, uppsett afl og áfangaskiptingu er að finna í töflu 1. Kostnaðartölur eru taldar á verðlagi í júlí 1979, og núgildi kostnaðar miðast við þann tíma. Mikil vinna hefur verið lögð í að gera áætlanirnar um einstök mannvirki sambærilegar. Tekið hefur verið tillit til staðbundinna sérstæðna og áhrif þeirra á kostn- að metin eftir því sem unnt er. Eftir stendur þó, að áætlanirnar um einstakar virkjanir byggja á mismunandi rannsóknargögnum. Blönduvirkjun er best rannsökuð, en Fljótsdalsvirkjun og Stórasjáv- armiðlun minnst. Þetta verður að hafa í huga þegar niðurstöður eru skoðaðar. Virkjunarmannvirkin eru: Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkjun, Sultartangavirkjun (Tangavirkj- un), Búrfellsvirkjun II, Miðlun- arvirki í Stórasjó í Tungnaá. í öllum tilvikum er reiknað með því að áður en ráðist er í næstu vatnsaflsvirkjun verði gerð lág stífla við Sultartanga í því skyni að draga úr vatnsnotkun til að skola ís framhjá Búrfelli og bæta þar með vatnsnýtingu Búrfells- virkjunar. Auk þess að tryggja rekstur hennar eykur slík ráðstöf- un orkuvinnslugetu núverandi kerfis og skapar þannig meira svigrúm til að undirbúa næstu vatnsaflsvirkjun. Ofangreindum virkjunum er síðan raðað í mismunandi tíma- raðir sem hér segir: Röð I: Blönduvirkjun, Tangavirkjun, Fljótsdalsvirkjun, Stórasjávar- virkjun, Búrfellsvirkjun II. Röð II: Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkj- un, Stórasjávarmiðlun, Búrfells- virkjun II, Tangavirkjun. Röð III: Tangavirkjun, Blönduvirkjun, Fljótsdalsvirkjun, Stórasjávar- miðlun, Búrfellsvirkjun II. Röð IV: Fljótsdalsvirkjun, Blönduvirkj- un, Stórasjávarmiðlun, Búrfells- virkjun II, Tangavirkjun. Röð V: (án Kröflu einungis). Tangavirkjun, Stórasjávarmiðl- un, Búrfellsvirkjun II, Blöndu- virkjun, Fljótsdalsvirkjun. Röð VI: (fyrir eitt markaðstil- vik). Bessastaðaárvirkjun (pípuvirkj- un), Blönduvirkjun, Tangavirkjun, Jakob Björnsson Orkustofnun Tafla 1. Virkjanir og stofnkostnaöur þeirra. Verölag í júlí 1979 1980 05 05 Verkfræöistofa Helga Sigvaldasonar. SJ. Vlrkjun Miölun Afl Stofnkostn. ÍGI) (MW) (Mkr.) Blönduvirkjun 1. áf. (fyrir alm. markaö) 120 90 30.330* 2. áf. " " " 315 90 11.130* Samtals 435 180 41.460* Blöndvirkjun (fyrir alm. markað + stóriðju) 435 154 38.110* F1jctsdalsvirkjun 1. áf. (fyrir alm. markað) 160 82,5 33.370* " 2. áf. 100 82,5 25.550* " 3. áf. 480 82,5 13.490* " 4. áf. " " 0 82,5 8.960* Samtals 740 330 81.370* F1jctsdalsvirkjun 1. áf. (fyrir alm. markað + 150 95 41.300* stóriðju) " 2. áf. 460 95 14.110* " 3. áf. 130 95 22.250* Samtals 740 285 77.660* Sultartangavirkjun (fyrir alm. markað) Ai 0 120 37.700 Stóriajór + Búrfeilsvirkjun II (fyrir alm. mArkað) 800 155 39.390 Búrf'jllnvl rk jun II (fyrir alm. rohrkað) 0 120 21.440 B'jssastaðaárvi rk jun (fyrir alm. markað) 130 64 27.600* DÍsílstAð (svartolía) 15 2.550 *: 3% ái/i'| á vl rk junarkostnað (vegna aukins kostnaðar vl nnijaðHt ððu og vrvjna óhagstæðra veðurskilyrða) . við sköpun Afskr 11» nrt íinl : 40 Ar, riema disilstöð 20 ár. Reksl.rarkoHtn. í 1 stófnkostn: 1% á ári; nema dísliatðð 2% á ári. Stórasjávarmiðlun, Búfellsvirkjun II. Með Bessastaðaárvirkjun er í röð VI átt við svonefnt Hólsaf- brigði þeirrar virkjunar, sem er ofanjarðarstöð (pípuvirkjun) og getur ekki verið upphafsáfangi Fljótsdalsvirkjunar. Það getur aftur á móti annað afbrigði Bessa- staðaárvirkjunar verið, svonefnd Hvammsvirkjun, sem er neðan- jarðarstöð. Hún var tekin til athugunar sem fyrsti áfangi en í ljós kom, að annarskonar áfanga- skipting Fljótsdalsvirkjunar var hagkvæmari, og var hún notuð í samanburðinum (sjá töflu 1). Hver um sig af röðunum I til og með IV voru athugaðar fyrir eftirfarandi fjögur tilvik varðandi orkumarkað: 1. Engin ný stóriðja. 2. Ný stóriðja á Grundartanga. 3. Ný stóriðja í Eyjafirði. 4. Ný stóriðja í Reyðarfirði. Öll þessi dæmi voru síðan reikn- uð með og án Kröfluvirkjunar, þ.e. annarsvegar út frá þeirri forsendu að hætt sé alveg við Kröfluvirkj- un, og hins vegar þeirri að Krafla nái fullum afköstum 1986. Tilvist Kröflu hefur bæði áhrif á gerð meginflutningskerfisins og á tímasetningu virkjana og lína. Að sjálfsögðu er vel hugsanlegt að Krafla skili nokkru afli, en ekki fullum afköstum. Áhrif þess má þá meta út frá niðurstöðum jað- art’lvikanna tveggja — engin af- köst; full afköst. Niðurstöður Töflur 2 og 3 gefa yfirlit yfir niðurstöður. Tölurnar sýna nú- gildi kostnaðar við raforkuöflun og flutning fram til aldamóta við mismunandi virkjunarraðir um- fram núgildi kostnaðar við þá röð, sem ódýrust er ef engin ný stóriðja kemur til. Sú viðmiðun er í töflunum sett = 0. Viðmiðunin eða núllpunkturinn, er ekki hinn sami með og án Kröflu. Núllpunktur án Kröflu (röð I). Núgildi 46.810 Mkr. Núllpunktur með Kröflu (röð II). Núgildi 25.430 Mkr. Mismunur þessara talna, 21 380 Mkr., að frádregnu núgildi kostn- aðarins við að koma Kröfluvirkjun í full afköst, og að frádregnu núgildi rekstrar- og viðhalds- kostnaðar virkjunarinnar fram til aldamóta, sýnir ávinninginn af því að halda framkvæmdum við Kröfiu *áfram. Þessi ávinningur hefur enn ekki verið metinn, en áformað er að gera það. Fyrri athug"r: »;an. 1979), sem ekki náði, eins langt fram í tímann og þesd bentu til að ávinningurinn væri verulegur. Sem kunnugt er hafa Færey- ingar látið í ljós ósk um viðræður við íslensk stjórnvöld um kaup á raforku frá íslandi um sæstreng. Þær viðræður munu að vísu ekki enn hafnar, en fram t>pfur komið að þeir eru að hugsa um i forku- kaup sem í fyrstu gætu nu :ð 20 MW og 100 GWh/ári, en yk, st í 60 MW og 300 GWh/ári á 1( .rum. Kannað hefur verið lauslega hver áhrif slíkur útflutningur hefði á samanburðinn milli virkjanarað- anna. ítarlegur samanburður er erfiður meðan ekki er vitað hvaða kröfur Færeyingar gera um öryggi orkuafhendingar við línuhilanir á íslandi (við bilun á strengnum rofnar afhendingin að sjálfsögðu). En sé gengið út frá sömu örygg- iskröfum og fyrir i tendur á íslandi, þ.e. að unnt : að halda sölunni til Færeyja ós ertri þótt einn hlekkur í megi.iflutnings- kerfinu á íslandi slitni (þ.e. n-1 reglunni) virðist sem Færeyjasal- an muni lækka muninn á röð IV (sem hefst á Fljótsdalsvirkjun) og röð I um nálægt 1500 Mkr. frá því sem töflur 2 og 3 sýna, en áhrifin á aðrar raðir eru hverfandi. Er þá reiknað með að útflutningur byrji samtímis því að næsta vatnsafls- virkjun tekur til starfa. Borið saman við,ofangreindar núllpunkts- eða viðmiðunartölur er mismunur á virkjunarleiðunum í töflunum ekki mjög mikill. En slíkan samanburð má þó ekki nota er meta skal að hve miklu leyti sé um marktækan mun á röðunum að ræða vegna þess hve mörg kostn- aðaratriði eru sameiginleg þeim öllum. Raunhæfari mælikvarði í því efni er hversu mikið áætlanir um einstakar virkjanir megi rask- ast innbyrðis án þess að þurrka út muninn á útkomunum í töflunum. Unnið er að því að meta þetta og er ráðgert að um það verði fjallað í lokaskýrslu sem út kemur í sumar. Sem fyrr segir standa virkjanir þær, sem teknar eru með í athug- un þessa á mismunandi stigi rannsóknarlega, og áætlanir um þær eru því ekki fyllilega sambærilegar ennþá. Ég tel, að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.