Morgunblaðið - 28.05.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
41
fclk í
fréttum
+ Á BLAÐAMANNAFUNDI. — Fyrir nokkru var forseti Alþjóða ólympíunefndar-
innar (til v.) Lord Killanin í Hvíta húsinu í Washington. Fór þangað til að ræða við
Carter Bandaríkjaforseta um Ólympíuleikana í Moskvu og þá ákvörðun Bandaríkja-
manna að senda ekkert lið til leikanna. — Á eftir mættu þeir á blaðamannafundi
Killanin og formaður ólympíunefndar Bandaríkjanna, Lloyd Cutler (til h.) Ekkert
hafði Killanin orðið ágengt við að fá Bandaríkjaforseta til að endurskoða afstöðu
stjórnvalda í landinu til þátttökunnar í leikunum vegna innrásar Sovétríkjanna í
Afganistan.
+ Alfred Hitchcock var því-
líkur persónuleiki og lista-
maður að hann er nú þegar,
svo skömmu eftir fráfall sitt,
orðinn rannsóknarefni sér-
fræðinga. Það er þegar farið að
tala um Hitchcock-sérfræð-
inga. Og þeir hafa haldið fund
í Róm fyrir skömmu til þess að
fjalla um leiðir til þess að
koma frá sér kvikmynd, sem
Hitchcock var að gera, er
dauða hans bar að höndum.
Sérfræðingarnir komu frá
Bretlandi, Bandaríkjunum,
Frakklandi og Ítalíu. Meðal
þeirra er höfundur ævisögu
Alfreds Hitchcocks, sem heitir
Donald Spoto. Það var rætt um
það á fundinum, að allt yrði
gert til þess að takast mætti að
halda anda gamla mannsins í
þessari nýju kvikmynd.
Þessi mynd hér að ofan var
tekin af Hitchcock þegar verið
var að kvikmynda eitt hinna
síðari verka hans: „Fuglarnir".
+ Borgarstjórinn í Róm,
Petroselli (til v.) afhendir
ítalskri blaðakonu, Liettu
Tornabuoni, gullplötu í
tilefni af 2733. afmælis-
degi Rómaborgar. Fór sú
athöfn fram á Capitol-
hæðinni. Það ku vera mik-
ill heiður að fá gullplöt-
una frá borgarstjórn
Rómaborgar.
+ Þetta reifabarn, í fangi
móður sinnar, er fyrsta
Kambódíubarnið, sem
fæðist á Ítalíu. Litla barn-
ið, sem er telpa, var skírð
Cham-Sara. Hún fæddist á
fæðingardeild í sjúkrahúsi
í Florenz. Móðirin heitir
Mborm-Tring og var hún
meðal flóttamanna frá
Kambódíu, sem ítalir hafa
skotið skjólshúsi yfir.
George
Raft
+ Ameríski kvik-
myndaleikarinn og
hjartaknúsarinn
George Raft, sem
kunnur var bíógestum
hér um langt árabil, er
nú orðinn aldraður
maður og á við van-
heilsu að stríða. Hann
lék í 125 kvikmyndum
og voru glæpamyndir
sérgrein hans. Lék
hann yfirleitt hörku-
töffara með vatnsgreitt
hár, sem sýndu því
meiri stillingu og æðru-
leysi sem spenningur
var meiri. Nú hefur
George Raft verið á
sjúkrahúsi um skeið í
Los Angeles. Þessi
gamli hnefaleikakappi,
dansari og hornabolta-
leikari er nú 84 ára að
aldri.
ÞAÐ SEM KOMA SKAL.
( stað þess að múra húsið að
utan, bera á það þéttiefni og
mála það síðan 2-3 sinnum,
getur húsbyggjandi unnið sjálfur, eða
fengið aðra til að kústa, sprauta eða rúlla
THOROSEAL á veggina, utan sem innan,
ofan jarðar sem neðan. Og er hann þá í
senn, búinn að vatnsþétta, múrhúða og lita.
THOROSEAL endist eins lengi og steinniinn, sem það er sett á,
það flagnar ekki, er áferðarfallegt og ,,andar“án þess aðhleypa
vatni í gegn, sem sagt varanlegt efni.
Og það sem er ekki minna um vert, það stórlækkar byggingakostnaö.
Leitið nánari upplýsinga.
IS steinprýði
v/Stórhöfða sími 83340.
Æfingagallar
á mjög hagstæöu verði
íþróttafélög — skólar — fyrirtæki — ein-
staklingar. Viö merkjum búningana aö ósk
hvers og eins.
Verö kr.
13.900
Litir:
Blátt með 2 hvítum röndum.
Rautt meö 2 hvítum röndum.
Svart meö 2 hvítum röndum.
Rautt með 2 svörtum röndum