Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 1
123. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Idi Amin
langar til
Uganda
London. 3. júní. AP.
IDI Amin. íyrrverandi ein-
ræðisherra í ÍJganda. sagði i
dag í fyrsta sjónvarpsviðtal-
inu síðan hann hrökklaðist úr
landi fyrir 14 mánuðum: „Ég
get bjargpð Úganda ... Ég
vil bjarga Ugandamönnum.“
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í London getur
verið að Amin búi nú í Alsír
eftir nokkurra mánaða dvöl í
Líbýu, en aðrar fréttir herma
að hann sé í Saudi-Arabíu.
Bryan Barron, sem tók við-
talið við Amin í ónefndri
arabískri borg á sunnudaginn,
neitar að segja hvar hann hitti
Amin.
„Mig langar til að fara aftur
til Úganda," sagði Amin í
viðtalinu. „Ef þjóðin vill mig,
sný ég aftur."
„Ég er ekki valdaþyrstur.
Ég vil reyna að hjálpa fátæk-
um Úgandamönnum ...“
Amin neitaði að upplýsa
hvernig hann komst frá Úg-
anda og lagði áherzlu á að
hann hefði orðið að lúta í
lægra haldi fyrir innrásarliði
sem hefði verið sex sinnum
öflugra en það lið sem hann
réð yfir.
Reglur um
veiðar við
Jan Mayen
Frá fréttaritara Mbl. í Ósló i gær.
NORSKA sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið
bráðabirgðareglur um veið-
ar útlendinga í hinni nýju
fiskveiðilögsögu Norð-
manna við Jan Mayen.
Frá og með deginum í dag
að telja munu norsk yfirvöld
aðeins leyfa að fiskiskip sem
hafa gert samninga við Nor-
eg um veiðar á Jan Mayen-
svæðinu fái að veiða þar og
að þau geti fyrst um sinn
veitt eins mikið magn og
áður.
Almennt bann hefur verið
lagt við loðnuveiði erlendra
sjómanna. Það bann nær þó
ekki til íslendinga sem geta
veitt á Jan Mayen-svæðinu
þegar loðnukvóti hefur verið
ákveðinn í samræmi við
samning þann sem Norð-
menn og íslendingar hafa
gert.
Erlendir sjómenn verða að
tilkynna norskum yfirvöld-
um afla sinn vikulega.
Veiðar útlendinga eftir
árslok 1980 verða ræddar við
hlutaðeigandi ríkisstjórnir í
sambandi við hinar tvíhliða
kvótasamningaviðræður
1981.
— Lauré.
Vegfarendur virða fyrir sér flak bifreiðar sem tíu kílóum af sprengiefni hafði verið komið fyrir í framan við lögreglustöðina í
Milanó. Nokkrir kyrrstæðir bílar eyðilögðust í sprengingunni og gluggarúður brotnuðu í nálægum byggingum.
Sjá frétt á SÍÖU 15 _________________________________________________________________ Stmiiynd AP.
Símamynd AP.
Ramsey Clark fyrrverandi
dómsmálaráðherra talar á
alþjóðlegri ráðstefnu um
afskipti Bandaríkjanna í
íran. Hann gagnrýndi
bandaríska utanríkis-
stefnu harðlega. en í lok
ræðu sinnar fordæmdi
hann gíslatökuna. Honum
var klappað lof í lófa í lok
ræðunnar.
Clark býður skipti
á sér og einum gísl
Teheran, 3. júní. AP.
RAMSEY Clark, fyrrverandi
dómsmálaráðherra Bandarikj
anna. sagði i dag á ráðstefnu um
afskipti Bandarikjanna i íran að
hann væri fús að fallast á að höfð
yrðu skipti á sér og einhverjum
hinna 53 bandarisku gisla ef það
mætti verða til þess að leysa
gisladeiluna.
Hann hvatti einnig til réttar-
halda gegn fyrrverandi íranskeis-
ara og gagnrýndi harðlega aðgerð-
ir fyrri ríkisstjórna Bandaríkj-
anna í íran og nokkrum öðrum
löndum. Hann kvað gíslana
„ranga fólkið" til að refsa fyrir
fyrri aðgerðir Bandaríkjanna.
Clark sagði fréttamönnum að sú
ákvörðun hans og níu annarra
Bandaríkjamanna að sækja ráð-
stefnuna hefði verið nauðsynleg
til að stuðla að sambandi milli
írönsku þjóðarinnar og þeirrar
bandarísku og spáði því að hún
mundi leiða til þess að gíslarnir
yrðu látnir lausir.
Blað í Teheran sagði í dag að
yfirmaður íranska flughersins,
Amir Bagheri hershöfðingi, hefði
beðizt lausnar. Hann var harðlega
gagnrýndur fyrir að fyrirskipa
eyðileggingu þyrlnanna sem
Bandaríkjamenn notuðu í hinum
misheppnaða björgunarleiðangri
sínum.
Teheran-útvarpið sagði að ír-
anskir hermenn héfðu fellt 122
írakska hermenn og sært marga
fleiri í landamæraátökum siðustu
daga.
Tyrkneskt blað sagði að íranskir
stjórnarhermenn hefðu fellt
minnst 200 menn í tveggja daga
loftárásum á stöðvar uppreisn-
armanna Kúrda. En íranska
fréttastofan sagði að „vopnaðir
málaliðar", líklega Kúrdar, hefðu
lokað járnbrautarlínunni milli
írans og Evrópu.
Teheran-útvarpið sagði að fimm
heróínsalar í viðbót hefðu verið
líflátnir.
Geimfarar snúa
aftur til
Mohkvu. 3. júnt. AP.
UNGVERSKI geimfarinn Bertalan
Farkas og hinn sovézki yfirmaður
hans, Valery Kubasov. lentu í
Kazakstan i Mið-Asiu i kvöld eftir
fimmtu „Intercosmos“-ferðina að
sögn Tass.
Farkas og Kubasov var skotið 26.
maí með Soyuz 36 og þeir tengdu far
sitt við Salyut 6 geimrannsókna-
stöðina þar sem þeir hittu fyrir
geimfarana Leonid Popov og Valery
Ryumin sem höfðu verið í geimnum
síðan 9. apríl.
„Eg svaf næstum því ekkert allan
jarðar
tímann" sagði Farkas brosandi
skömmu eftir lendinguna. Kubasov,
sem er reyndur geimfari, sagði að
þeim hefði gengið vel að aðlagast
þyngdarleysinu. Kubasov sagði að
Farkas hefði verið „spenntur og
áhyggjufullur“ í byrjun en verið
fljótur að jafna sig.
Stjórnstöðin sagði, að allt sem
hefði verið ráðgert að gera í ferðinni
hefði verið gert. Vestrænir sérfræð-
ingar telja að Popov og Ryumin
verði um kyrrt á braut að minnsta
kosti þangað til Ólympíuleikunum í
Moskvu lýkur snemma í ágúst.
Nýtízkuleg hergögn til
afganskra skæruliða
Nýju Delhi. 3. júní. AP.
NÝTÍZKU hergögn eru farin að
berast uppreisnarmönnum i Afg-
anistan frá gefendum erlendis að
sögn ferðamanns frá Kabul i dag.
Verið getur að meðal hergagn-
anna séu stórskotaliðsvopn til að
skjóta niður fallbyssuþyrlur
Rússa er uppreisnarmenn kalla
„fljúgandi skriðdreka" að sögn
ferðamannsins sem vill halda
nafni sinu leyndu.
Ferðamaður vitnar í ýmsar op-
inberar og diplómatískar heimild-
ir og segir að nokkur svæði sem
eru á valdi uppreisnarmanna séu
talin ónæm fyrir þyrluárásum.
Bandaríkjamenn, Kínverjar og
Pakistanar hafa neitað ásökunum
Rússa um beina aðstoð við upp-
reisnarmenn, en á föstudaginn
sagði bandarískur embættismaður
að Bandaríkjastjórn reyndi að
hjálpa uppreisnarmönnum „á alla
lund“.
Fulltrúar uppreisnarmanna
héldu fund fyrir hálfum mánuði í
Charikar, höfuðborg Parwan-
fylkis, að sögn ferðamannsins og
ákváðu að taka sér til fyrirmyndar
árangursríkar aðgerðir uppreisn-
armanna í Panjsher-dalnum norð-
vestan við Kabul. Þar felldu
skæruliðar rúmlega 100 sovézka
hermenn í apríl og þeir hafa
haldið yfirráðum sínum yfir daln-
um sem ógnar flugstöð Rússa í
Bagram.
Fréttir hafa borizt um harða
bardaga nálægt Bagram-stöðinni.
Ferðamenn segja líka að borgin
Herat virðist vera á valdi upp-
reisnarmanna þótt sovézkar sveit-
ir séu enn í úthverfunum.