Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 2

Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980 Æðarfugl með unga- Erro fær Prins Eugen- orðuna SVÍAKONUNGUR hefur sæmt myndlistarmanninn Guðmund Guðmundsson, Erro, Prins Eug- en-orðunni. Honum var afhent heiðursmerkið af sendiherra Svia i París 12. maí sl. Heiðursmerki þetta er ætlað sænskum eða öðrum norrænum listamönnum, sem fram úr skara á Norðurlöndum eða í heiminum og hefur það áður verið veitt tveimur Islendingum, þeim Einari Jóns- syni og Jóhannesi Kjarval. Búvörnhækkunin veldur um IV2 % hækkun framfærsluvísitölu Auknar niðurgreiðslur kosta rikissjóð 690 millj. kr. BÚVÖRUIIÆKKUN sú, sem til framkvæmda kom 1. júní sl., veldur um IWX, hækkun framfærsluvísi- tölu og þar af vegur hlutur hækk- unar á neyslumjólk mest eða um 0,73% að sögn Guómundar Sigþórs- sonar deildarstjóra í landbúnaðar- ráðuneytinu. Þessa hækkun fram- færsluvísitölu fá launþegar ekki bætta í hækkuðum launum fyrr en 1. september n.k. að óbreyttu vísi- tölukerfi. nema að því er til launa- liðar bc'mdans tekur sem ekki reikn- ast inn i kaupgjaldsvisitöluna. í tengslum við búvöruhækkunina um mánaðamntin voru niðurgreiðslur auknar á fimm tegundum búvara og hafa þessar auknu niðurgreiðsl- ur í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð að upphæð 690 milljónir Útvarpsráð: Fréttastofumenn mæta ekki til fundar -MENN létu í Ijósi itrekaðar óskir sinar um að fulltrúi fréttastofu útvarpsins mætti til viðræðna við ráðið, m.a. til þess að svara ýmsum fyrirspurnum, sem fréttaflutningur fréttastofunnar um kjarnorku- vopnamálið og aðgerðir herstöðva- andstæðinga hafa vakið upp. en frá henni mætti enginn, þrátt fyrir að um aðra tilraun væri að ræða.“ sagði Markús Örn Antonsson, einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, i út- varpsráði er Mbl. innti hann tiðinda af fundi ráðsins í gærkvöldi. „Það fór mikill tími í að ræða þá miklu tregðu, sem greinilega er á því, að fulltrúar fréttastofunnar komi og skiptist á skoðunum við útvarps- ráðsmenn um þessi mál. Menn voru búnir að undirbúa sig undir að spyrja margvíslegra spurninga út frá þeim gögnum sem fram hafa verið lögð, þ.e. handritum af fréttum og sér- stakri greinargerð, sem Hallgrímur Thorsteinsson, fréttamaður, hefur tekið saman fyrir útvarpsstjóra. Það kom ennfremur fram hjá okkur, sem sérstaklega hafa verið nefndir vegna þessa máls í útvarps- ráði, að í upplýsingum frá fréttastof- unni hefur komið fram grófleg mis- túlkun og í samþykkt Blaðamannafé- lags íslands er jafnvel látið að því liggja að við séum að sýna einhverjar tilhneigingar til ritskoðunar með því að taka þessi mál upp í ráðinu. Þessu fer auðvitað víðs fjarri. Ég persónulega hef til dæmis ekki haft minnsta samband við frétta- stofu útvarpsins og ég geri ekki ráð fyrir því að útvarpsráðsmenn aðrir hafi gert, þannig að það er síður en svo að verið sé að hefta athafnafrelsi fréttamanna útvarpsins. Okkur finnst það hins vegar vera hlutverk okkar vegna þeirrar gagn- rýni sem upp hefur komið vegna þessa fréttaflutnings, að útvarpsráð fái skýringar við ýmsum spurningum og kannað sé hvort brotnar hafi verið þær reglur sem fréttastofunni eru settar af útvarpsstjóra," sagði Mark- ús Örn að síðustu. króna það sem eftir er ársins. Þessar auknu niðurgreiðslur svara, að sögn Guðmundar. til 0,4% lækk- unar á framfærsluvísitölu. Niðurgreiðslur voru auknar um 10 krónur á nýmjólk eða úr 99 krónum í 109 krónur en mjólkurlítrinn kostar eftir hækkunina 359 krónur í smá- sölu. A smjöri voru niðurgreiðslur auknar úr 1949 krónum í 2180 krónur á kíló en hvert kíló af smjöri kostar nú í smásölu 3.666 krónur. Á skyri voru niðurgreiðslur hækkaðar úr 139 krónum í 151 krónu á kíló og á hverjum lítra af rjóma úr 325 krónum í 344 krónur. Niðurgreiðslur á ull voru auknar um 174 krónur á hverju kílói eða úr 689 krónum í 863 krónur en meðalheildsöluverð á ull er nú um 1800 krónur kílóið. Þess má geta að af þeim 690 milljónum, sem þessar auknu niðurgreiðslur kosta ríkissjóð það sem eftir er ársins, eru 168 milljónir vegna niðurgreiðslna á ull. Ágreiningur varð í sexmanna- nefnd milli fulltrúa framleiðenda og neytenda um verðlagningu á ull og gærum. Fulltrúar neytenda vildu að þessar afurðir tækju sömu hlut- fallshækkun og kindakjöt en fuil- trúar bænda bentu hins vegar á að til lítils væri að hækka verð á gærum, þar sem engar gærur væru eftir óseldar í landinu frá sláturstíð- inni síðastliðið haust. Ríkisstjórnin samþykkti að auka niðurgreiðslur á ull og gærum og varð þá samkomu- lag í sexmannanefndinni að verð á gærum yrði óbreytt en ullin hækk- aði, sem næmi sömu hlutfallshækk- un og varð á kjöti auk þeirrar hækkunar, sem átti að verða á gærum. Vinnslu- og dreifingarkostnaður búvara hækkaði einnig um þessi mánaðamót. Mjólkurbúin höfðu far- ið fram á 44% hækkun á vinnslu- og dreifingakostnaði en sexmanna- nefnd var sammála um að heimila þeim 18,52% hækkun á þessum kostnaðarliðum. Vinnslu- og heild- sölukostnaður á hverjum lítra nýmjólkur er nú 83,56 krónur. Eyjaskip lönd- uðu í Englandi TVÖ fiskiskip frá Vestmannaeyj- um lönduðu afla sínum í Bret- landi i gær. Ölduljón seldi 48.9 tonn í Hull fyrir 22.7 milljónir króna, meðal- verð 464 krónur. Suðurey seldi 63.9 tonn í Fleetwood fyrir 27.5 millj- ónir, meðalverð 429 krónur. Róleg sala í spari- skírteinum ríkisins SPARISKÍRTEINI ríkissjóðs fyrir liðlega fjóra milljarða seld- ust fyrir 1. júní sl„ en þá hækkuðu þau um tæplega 5%. Á markað voru sett skírteini fyrir fimm milljarða og verður sölu þeirra haldið áfram að sögn Jóns Friðsteinssonar hjá Seðlabanka íslands. Jón sagðist eiga von á því að salan fram til næstu mánaðamóta yrði frekar róleg, en þá kæmi væntanlega fjörkippur í söluna aftur áður en skírteinin hækkuðu enn á ný. Samkvæmt lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinar er ráðgert að selja spariskírteini ríkissjóðs fyrir sjö milljarða króna á þessu ári. Rauða f jöðrin: Árneskórinn legg- ur land undir fót 70 millj. til styrkt- ar heyrnardaufum ^ GeldinKaholti. 3. júni. ÁRNESKÓRINN, sem er biand- aður kór úr þremur sveitum í Árnessýslu, er í þann veginn að ljúka níunda starfsári sínu. Kór- félagar hyggja á söngför til Norðurlands um næstu helgi og ætla að syngja á Biönduósi á föstudagskvöld. Á laugardag verður skemmtun á Sauðárkróki og í Miðgarði um kvöldið. I kvöld heldur svo kórinn tón- leika í Árnesi. Söngskrá er mjög fjölbreytt, á henni eru bæði inn- lénd og erlend lög. Þá koma fram bæði kvenna- og karlakór. Söng- stjóri frá upphafi hefur verið Loftur S. Loftsson. Loftur mun sjá um píanóundirleik og Grétar Gestsson leikur á harmoniku. Ein- söngvarar með kórnum eru Gestur Jónsson og Ólafur Jóhannsson. Þá má geta þess að innan tíðar kemur á markað hljómplata sem kórinn hefur sungið inn á. — Jón. SAMKVÆMT bráðahirgðaupp- gjöri, sem lagt var fram á þingi Lionsmanna í Grindavik fyrir hvitasunnuna, nam sala rauðu fjaðranna dagana 18,—22. apríl kr. 70.300 þúsund Fé þessu verður varið til styrkt- ar heyrnardaufum í landinu og verða m.a. keypt tæki til háls-, nef- og eyrnadeildarinnar í Borg- arspítalanum og önnur tæki sem staðsett verða víðs vegar um landið. Fénu, sem safnaðist, verður ráðstafað í samráði við lækna- nefnd sem skipuð er dr. Stefáni Skaftasyni, yfirlækni háls-, nef- og eyrnadeildarinnar í Borg- arspítalanum, Einari Sindrasyni lækni, og Ótafi Bjarnasyni lækni. Á þinginu í Grindavík gerði Ólafur grein fyrir hvernig hugsað væri að söfnunarfénu yrði varið. Ungir íslenzkir bridge-spilarar lögðu heimsmeistarann að velli Sjónvarp vegna forsetakosninganna: Þættir á hverju föstu- dagskvöldi til kosninga auk kosningasjónvarps FJÓRIR ungir íslenzkir bridge-spilarar stóðu sig með miklum ágætum á alþjóðlegu bridgemóti í Portoroz í Júgóslavíu um síðustu helgi. Urðu þeir í öðru sæti bæði í sveita- keppni og tvímennings- keppni og hlutu rúmlega 400 þúsund krónur í verð- laun auk veglegra bikara. Bridge-spilararnir Guðmundur Arnarsson, Sverrir Ármannsson, Guðmundur Hermannsson og Jón Baldursson tóku þátt í þessu móti. í sveitakeppninni hlutu þeir 92 stig, aðeins einu stigi minna en sigurvegararnir, eftir að hafa ver- ið í forystu allt mótið. Meðal annars unnu þeir sveit frægasta bridge-spilara heimsins, ítalans Belladonna, með 19 stigum gegn einu. í tvímenningskeppninni tóku þátt 130 pör og urðu þeir Sverrir og Guðmundur Arnarsson í 2. sæti en Jón og Guðmundur Hermanns- son í 31. sæti. Margir frægir bridge-spilarar tóku þátt í þessu móti en Belladonna var þeirra frægastur, en hann er margfaldur heimsmeistari í greininni. AÐ sögn Emils Björnssonar, frétta- stjóra sjónvarpsins, verða þrír sér- stakir þættir á dagskrá sjónvarps- ins á næstu vikum vegna komandi forsetakosninga, auk þess sem tek- in hefur verið ákvörðun um sér- stakt kosningasjónvarp. Fyrsti þátturinn verður föstudag- inn 13. júní n.k. og munu stjórnlaga- fræðingarnir dr. Gunnar G. Schram og Þór Vilhjálmsson þá fjalla um forsetaembættið og skyldur þess undir stjórn Helga E. Helgasonar, fréttamanns. Annar þátturinn verður svo á dagskrá föstudaginn 20. júní. Þá munu forsetaframbjóðendurnir sitja fyrir svörum tveggja frétta- manna sjónvarpsins í beinni útsend- ingu. ÞriðjP þátturinn verður síðan á dagskrá 27. júní. Þá munu forseta- frambjóðendurnir flytja ávörp, 10—15 mínútur hver. Síðan verður kosningasjónvarp fram eftir nóttu eftir atvikum. Þar er vonast til þess að frambjóðend- urnir komi og tjái sig um fyrstu tölur og fleira.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.