Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
3
Fulltrúar SH ganga á íund forsœtisráðherra á mánudag. Fremstir
fara ólafur Gunnarsson, Neskaupstað, og Eyjólfur ísfeld Eyjólfs-
son, forstjóri SH. Þar næst koma Guðfinnur Einarsson, Bolung-
arvik, Gunnar Guðjónsson, stjórnarformaður SH, og Guðmundur
H. Garðarsson, blaðafulltrúi Sölumiðstóðvarinnar. Aftastur geng-
ur Einar Sigurjónsson, Vestmannaeyjum.
Rangar fréttir
Moskvuútvarpsins
SAMKVÆMT upplýsingum
áheyrenda, sem hlustuðu á út-
sendingar Moskvuútvarpsins á
ensku sólarhringana eftir að her-
stöðvaandstæðingar efndu til mót-
mæia sinna 10. maí sl. í tilefni af
því, að þá voru liðin 40 ár frá þvi
að Bretar hernámu ísland í síðari
heimsstyrjöldinni, þá sendi út-
varpsstöðin í öllum helztu
fréttatímum sínum út frétt þess
efnis, að á íslandi hefði verið efnt
til umfangsmikilla mótmælaað-
gerða gegn bandarísku herstöð-
inni á Islandi og þess krafist að
hún hyrfi úr landi.
Það vakti athygli þessara hlust-
enda, að Moskvuútvarpið minntist
aldrei á það, að mótmælin voru í
raun gegn kjarnorkuvopnum hér á
landi.
Kanna möguleika
á stof nsetningu
sykurverksmiðju
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur nú
skipað starfshóp til þess að
kanna grundvöll þess, að setja
hér á landi á fót sykurverk-
smiðju, og er þetta gert í kjölfar
álitsgerðar, sem félag áhuga-
manna um sykurverksmiðju hef-
ur sent ráðuneytinu.
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, sagði í samtali við
Mbl., að hlutverk þessa starfshóps
væri fyrst og fremst að fara
gaumgæfilega yfir þessa fyrr-
nefndu álitsgerð og skila áliti sínu
helzt fyrir haustið. Samkvæmt
álitsgerðinni, er gert ráð fyrir þvi
að reisa verksmiðjuna í Hvera-
gerði og nota þar jarðhitann til
framleiðslunnar.
í starfshópinn voru skipaðii
þeir Hörður Jónsson, Ragnar Ön-
undarson og Sigurður Sigfússon.
Fundaherferð B,S.R.B.
„Kaupránið“
nú yf ir 20%
MARGIR fundir hafa verið
haldnir að undanförnu á vegum
opinberra starfsmanna vegna
tregðu rikisstjórnarinnar og
sveitastjórna að ganga til samn-
inga við B.S.R.B.
Fundur haldinn 21. mai á
Sauðárkróki skorar á alla félags-
menn í B.S.R.B. að fylkja liði og
sýna samstöðu i þeim aðgerðum
sem stjórn og samninganefnd
B.S.R.B. telja nauðsynlegar til
þess að fylgja kröfunum eftir.
Á bæjarstarfsmannaráðstefnu
sem haldin var 28. og 29. maí var
því harðlega mótmælt, að næst
stærstu launþegasamtök landsins
séu hunsuð af sveitastjórnum og
ríkisvaldi með því að þessir aðilar
neiti raunhæfum samningavið-
ræðum.
Minnt er á að þrátt fyrir að
hagvöxtur hafi verið hér meiri en
í flestum öðrum ríkjum á Vestur-
löndum sl. 10 ár rýrni kaupmáttur
launa með degi hverjum miðað við
samningana 1977. Segir í ályktun
frá bæjarstarfsmannaráðstefn-
unni að kaupránið sé nú yfir 20%
og skattheimta ríkis og sveitarfé-
laga vaxi stöðugt.
Hvetur því ráðstefnan alla opin-
bera starfsmenn til þess að búa
sig undir það, að hvenær sem er
þurfi samtökin að beita öllum
samtakamætti sínum í yfirstand-
andi kjaradeilu.
Fiskverðsákvörðun:
Enn hefur ekkert gerzt
sem í frásögur er færandi
- segir Jón Sigurðsson formaður
yfirnefndar Verðlagsráðs
„ÞAÐ er ekkert af fiskverði að
frétta fyrr en til úrslita er
komið og enn hefur ekkert
gerzt, sem í frásögu er fær-
andi,“ sagði Jón Sigurðsson,
oddamaður yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, er
Mbl. spurði hann i gærkvöldi
um fiskverðsákvörðun. Mbl.
spurði Jón þá, hvort að hans
mati væri stutt eða langt i það
að til úrslita drægi. „Ég vona að
það verði ekki langt úr þessu,“
svaraði hann. „Við hittumst
aftur á morgun.“
„NEI. Ríkisstjórnin er ekkert
farin til þess. Málið er í höndum
verðlagsráðsins og fyrst er að
sjá, hvað út úr störfum þess og
yfirnefndar kemur," sagði Gunn-
ar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, er Mbl. spurði hann á
mánudagskvöld, hvort ríkis-
stjórnin væri farin að undirbúa
einhverjar aðgerðir í sambandi
við fiskverðsákvörðun. Forsætis-
ráðherra skýrði ríkisstjórninni í
gærmorgun frá viðræðum full-
trúa Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna við fulltrúa ríkisstjórn-
arinnar á mánudag. Mbl. spurði í
gær Ingvar Gíslason, mennta-
málaráðherra, sem nú fer með
embætti sjávarútvegsráðherra,
hvort fiskverðið hefði verið rætt
á fundi ríkisstjórnarinnar. „Það
gerðist ekkert í málinu. Ríkis-
stjórnin fylgist með störfum
yfirnefndar Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins og bíður tillögu
hennar," sagði Ingvar.
Fulltrúar Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna gengu á
mánudag á fund forsætisráð-
herra. Mbl. spurði Gunnar
Thoroddsen um þennan fund.
Hann svaraði: „Fulltrúar SH
óskuðu eftir þessum fundi og
hann hófst klukkan þrjú og stóð
í eina og hálfa klukkustund.
Fundinn sátu einnig Ingvar
Gíslason, menntamálaráðherra,
sem nú fer með embætti sjávar-
útvegsráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, iðnaðarráðherra,
og Jón Sigurðsson, forstöðu-
maður Þjóðhagsstofnunar.
Fulltrúar Sölumiðstöðvarinn-
ar gerðu grein fyrir stöðu frysti-
iðnaðarins og málin voru rædd
ítarlega, eins og fundartíminn
bendir til. Ég vil ekki rekja efni
þessara viðræðna hér, en flest af
því er kunnugt af fréttum frá
aðalfundi SH.“
oMIiKxvdUaUR
Margir litir M*f " “ wæm
Stæróir: 105-140 cm denim og flauels
Austurstræti 10
sími: 27211