Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
Landsþing J.C.:
„Frjálst viðskiptalíf -
vagga velmegunar“
LANDSÞING Junior Chamher á
fslandi var haldið á Hótel Loft-
leiðum da^ana 14. til 17. maí sl.
Þingið sóttu á 4. hundrað manns,
allt fólk á aldrinum 18—40 ára.
RúmleKa 1200 manns eru í J.C.-
hreyfingunni i 27 aðildarfé-
löKum.
A þinginu voru rædd málefni
hreyfingarinnar og stefna hennar
á næstu árum. A síðasta lands-
þingi í Bifröst í maí 1979 var
samþykkt að vinna að landsverk-
efninu „Leggjum óryrkjum lið“, á
starfsárinu 1980—1981. Mikið
undirbúningsstarf var unnið af
hálfu landstjórnarembættis-
manna með því að safna saman
upplýsingum og gögnum um mál-
efni fatlaðs fólks. M.a. var haft
samráð við ALFA nefndina
(stjórnskipuð nefnd vegna Alþjóða
árs fatlaðra 1981). Á þessu lands-
þingi var ákveðið að framlengja
þetta verkefni, og vinna að því allt
til vorsins 1982. Á þingfundi flutti
Árni Gunnarsson alþ.m. erindi um
kjör fatlaðs fólks, og hvað hægt er
að gera.
Kjörorð þingsins að þessu sinni
var „Frjálst viðskiptalíf — vagga
velmegunar“. í tilefni af því voru
pallborðsumræður um kjörorðið.
Þar komu fram Guðmundur H.
Garðarsson, blaðafulltrúi Sölu-
miðstöðvar Hraðfrystihúsanna,
Einar Birnir, formaður Fél. ísl.
Stórkaupmanna, Gunnar Snorra-
son, form. Kaupmannasamtaka
íslands, Örn Johnsen fram-
kvæmdastjóri og Gísli Blöndal
formaður Kaupmannafélags Aust-
urlands. Stjórnandi umræðnanna
var Sverrir V. Bernhöft.
í stjórn J.C. Islandi fyrir starfs-
árið 1980— 1981 eru: Andrés B.
Sigurðsson landsforseti, Þórhildur
Gunnarsdóttir landsritari, Örn
Guðmundsson landsgjaldkeri,
Árni Þór Árnason varalandsfor-
seti, Eggert J. Levy varalandsfor-
seti og Hlynur Árnason vara-
landsforseti.
Frá landsþingi J.C. hreyfingarinnar.
Gunnar Guðjónsson end-
urkjörinn formaður SH
30. maí sl. í Reykjavík. Á
síðari degi aðalfundarins
urðu ítarlegar umræður um
framleiðslu- og markaðsmál
og starfsgrundvöll hrað-
frystiiðnaðarins.
í stjórn S.H. fyrir starfsárið
1980—1981 voru kjörnir:
Gunnar Guðjónsson, formað-
ur, Reykjavík, Ágúst Flygen-
ring, varaformaður, Hafnar-
firði, Guðfinnur Einarsson,
ritari, Bolungarvík, Einar Sig-
urjónsson, Vestmannaeyjum,
Gísli Konráðsson. Akureyri,
Ásgrímur Pálsson, Stokkseyri,
Ólafur Gunnarsson, Neskaup-
stað, Ólafur B. Ólafsson, Sand-
gerði, Rögnvaldur Ólafsson,
Hellissandi.
GHG
INNLENT
Piltarnir lagfæra skemmdir, sem jepparnir höfðu valdið.
! -
r/1
!■ i
Þórsmörk:
Lögreglan lét ökumennina lagfæra
gróðurskemmdir eftir jeppana
UM hvítasunnuhelgina voru
unnin spjöll á gróðri i Þórs-
mörk eða nánar tiltekið í Bás-
um á Goðalandi. Lögreglan á
Hvolsvelli, sem annast Iöggæslu
í Þórsmörk. fékk vitneskju um
að þarna hefðu verið á ferðinni
tilteknir tveir jeppar en við leit
að þeim fundust ökumennirnir
ekki. Lögreglan ákvað þvi að
sitja fyrir þeim, þegar þeir
kæmu niður úr Þórsmörk og
tók lögreglan ökumennina þar.
Gengust þeir undir að fara
næsta laugardag aftur inn i
Þórsmörk í fylgd með lögregl-
unni og laga það, sem aflaga
hafði farið.
Á laugardag fór Valgeir Guð-
mundsson, lögreglumaður á
Hvolsvelli, inn í Þórsmörk með
þremur piltum úr hópnum, sem
þarna hafði verið á ferðinni.
Höfðu piltarnir með sér áburð,
fræ, garðhrífur og skóflur og
lagfærðu öll sár eftir jeppana.
Einnig hreinsuðu þeir til í Bás-
um.
„Þetta er aðeins enn eitt
tilfellið, þar sem fólk, því miður,
gætir þess ekki að aka aðeins
eftir troðnum slóðum og vegum,"
sagði Valgeir Guðmundsson og
sagðist vilja koma þeirri ósk á
framfæri við fólk, að það æki
ekki utan vegar á þessum slóð-
um.
„Gróður í Þórsmörk og reynd-
ar á öðrum óbyggðum svæðum
er svo viðkvæmur að hann þolir
ekki bílaumferð utan vegar. Við
munum hafa mjög strangar gæt-
ur á því, að fólk aki ekki utan
vegar og munum ekki einasta
láta viðkomandi lagfæra þær
skemmdir, sem þeir hafa valdið,
heldur getur vel komið til þess
að við verðum að meina þeim,
sem gerast sekir um alvarleg
brot af þessu tagi, aðgang að
Þórsmörkinni, sagði Valgeir.
Sáð i sárin. Piltarnir höfðu bæði meðferðis áhurð Viðvörunarskilti og óskir til ferðafólks virðast því
og fræ og sáðu í svæðin, sem þeir höfðu skemmt. Á miður oft ekki vera virtar. eins og þessi mynd ber
myndinni sést glöggt, hvernig ekið hefur verið með sér en á skiltinu stendur: „Ferðafólk! Gangið
utan við vegarslóðann. snyrtilega um Básana“.
Björgvin Halldórsson er meðal leikenda i kvikmyndinni „Óðal feðranna". og sér hann m.a. um allan söng. Hér er
hann í hlutverki sínu í myndinni en þeir leikarar sem hér sjást eru, talið frá vinstri: Guðjón Valgarðsson, Jóhann
Sigurðsson. Björgvin, Jakob Þór Einarsson og Birgir Rafnsson.
„Óðal feðranna44
frumsýnd í júní
KVIKMYNDIN „Óðal feðranna“
verður frumsýnd i Reykjavik í lok
júni en fer siðan út á land. Þá
verður myndin einnig frumsýnd i
Stokkhólmi 1 haust en sænska
kvikmyndafyrirtækið Viking Film
hefur keypt sýningarréttinn að
myndinni i Svíþjóð og mun sjá um
dreifingu myndarinnar i Evrópu.
„Óðal feðranna" er eftir Hrafn
Gunnlaugsson sem er jafnframt
leikstjóri. Kvikmyndatöku stjórnaði
Snorri Þórisson og Jón Þór Hannes-
son sá um hljómstjórn. Leikmynd er
eftir Gunnar Baldursson og bún-
ingar eftir Guðrúnu Sigríði Haralds-
dóttur.
Væntanleg er á hljómplötu tón-v
listin úr myndinni en hún er samin
af þeim Gunnari Þórðarsyni og
Magnúsi Eiríkssyni en sungin af
Björgvini Halldórssyni.
Myndin var kvikmynduð í Borg-
arnesi, Borgarfirði, Hafnarfirði og
Reykjavík á tímabilinu júní 1979 til
mars 1980. Leikarar eru margir
hverjir bændafólk og íbúar Borgar-
ness en auk þeirra má í myndinni sjá
ýmis þekkt andlit.
„Óðal feðranna" hlaut samtals 9
milljónir í styrk en áætlaður kostn-
aður við gerð myndarinnar var 65
milljónir króna.