Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
13
Kaupsýslumanna-
félag Suðurnesja
hefur verið stofnað
STOFNFUNDUR Félags kaup-
sýslumanna Suðurnesja var hald-
inn i samkomuhúsinu Bersás í
Keflavik hinn 29. mai siðastlið-
inn. Með þvi má segja að búið sé
að loka hringnum kringum land-
ið, þar sem nú eru starfandi
kaupmannaféiög i öllum lands-
fjórðungum. Samtals eru sér-
greina- og kaupmannafélög inn-
an Kaupmannasamtaka fslands
nú 24 að tölu með á áttunda
hundrað félagsmenn. Kom þetta
fram i máli formanns Kaup-
mannasamtaka íslands á fundin-
um, Gunnars Snorrasonar.
Með stofnun þessa félags, er lagt
niður Kaupmannafélag Keflavíkur.
Á fundinum voru auk Gunnars
Snorrasonar, eftirtaldir fulltrúar
Kaupmannjsamtakanna:Þorvaldur
Guðmundsson varaformaður, Guð-
ni Þorgeirsson, fulltrúi og Jón I.
Bjarnason blaðafulltrúi. Formaður
gamla félagsins, Magni Sigur-
hansson setti fundinn og bauð
fulltrúa K.í. velkomna. Hjörtur
Vilhelmsson var skipaður fundar-
stjóri og Guðmundur Sigurðsson
fundarritari.
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka íslands, flutti
yfirlitserindi um uppbyggingu og
starfsemi K.í. Hann ræddi sér-
staklega nokkur hagsmunamál
smásöluverzlunarinnar sem efst
eru á baugi í dag og Kaupmanna-
samtökin vinna að, og þakkaði gott
undirbúningsstarf að stofnfundi
Félags kaupsýslumanna Suður-
nesja.
Magni Sigurhansson mælti fyrir
stofnun félagsins og hvatti kaup-
menn á Suðurnesjum til samstöðu
um hagsmunamál sín. Guðjón Óm-
ar Hauksson talaði og tók mjög í
sama streng. Fundarstjóri, Hjörtur
Vilhelmsson bar fram tillögu um
stofnun félagsins og var hún sam-
þykkt samhljóða. Nokkrar umræð-
ur urðu um lög félagsins, en þau
voru samþykkt samhljóða, eftir að
fundurinn hafði gert nokkrar
breytingar á lagafrumvarpi því
sem fyrir fundinum lá.
Félagssvæðið eru Suðurnes
sunnan Straums, eða sama félags-
svæði og Verzlunarmannafélags
Suðurnesja.
í stjórn Félags kaupsýslumanna
Suðurnesja voru kjörin: Magni
Sigurhansson, Keflavík, formaður;
Guðmundur Sigurðsson, Vogum;
Hjörtur Vilhelmsson, Keflavík;
Guðjón Ómar Hauksson, Keflavík;
Björn Haraldsson, Grindavík;
Margrét Guðjónsdóttir, Keflavík
og Bárður Guðmundsson , Sand-
gerði. Endurskoðendur voru kjörn-
ir þeir Kristinn Guðmundsson og
Hákon Kristinsson. Guðjón Ómar
Hauksson var kjörinn fulltrúi í
fuiltrúaráð Kaupmannasamtaka
íslands og Guðmundur Sigurðsson
varamaður hans.
Nýkjörinn formaður, Magni Sig-
urhansson þakkaði það traust sem
honum var sýnt, með formanns-
kjörinu og lagði áherzlu á að aldrei
hefði verið jafn góð samstaða
meðal kaupmanna á Suðurnesjum
sem nú, enda næði félagið til allra
Suðurnesja. Skilningur fyrir sam-
stöðu og sameiginlegu átaki í
hverju málefni væri nú fyrir hendi.
Hann þakkaði að lokum Kaup-
mannasamtökum tslands fyrir for-
göngu í hagsmunamálum smásölu-
verzlunarinnar og fulltrúum þeirra
fyrir komuna á fundinn.
Stjórn Kaupsýslumannafélags Suðurnesja. talið frá vinstri: Guðmund-
ur Sigurðsson. Vogum; Hjörtur Vilhelmsson, Keflavík; Margrét
Guðjónsdóttir, Keflavik; Björn Haraldsson, Grindavik og Bárður
Guðmundsson, Sandgerði.
„Eðlilegt að menn fái
tækifæri til þess að
endurnýja skip sín“
- segir Kristján Ragnarsson, formaður LIU, um beiðni Aðalsteins
Jónssonar á Eskifirði að selja Hólmatind og fá nýrra skip í staðinn
Morgunblaðið hafði samband
við þá Kristján Ragnarsson,
Svavar Gestsson og Lúðvik Jós-
epsson vegna afgreiðslu stjórn-
ar Fiskveiðasjóðs á beiðni Aðal-
steins Jónssonar, Eskifirði.
Eins og greint hefur verið frá
hér í blaðinu, synjaði stjórnin
erindinu, sem fólst i þvi að selja
skuttogarann Hólmatind úr
landi og fá nýrra skip i staðinn.
Lúðvik Jósepsson fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra
sagði; „Ég tel það algjört
hneyksli og afturhald af verstu
gerð að heimila ekki Aðalsteini
Jónssyni þessa endurnýjun.
Hólmatindur er þrettán ára
gamalt skip og einn af fyrstu
skuttogurum landsins og ná-
kvæmlega sams konar skip og
gamli Barði. sem skipt var um í
fyrra.
Hér er um það að ræða, að
útgerðarmenn fái að losa sig
við skip, sem fullnægja ekki
lengur þeim kröfum. sem gerð-
ar eru og eru orðin óhagkvæm í
rekstri. Ég skil ekki með
nokkru móti þá stefnu að
hindra útgerðarmenn í að betr-
umbæta sin skip. Ég vil ekki
trúa öðru, en að þessu verði
kippt i lag og þetta verði ekki
endanleg afgreiðsla. Það verður
ýtt á, að Aðalsteinn fái sama
rétt og samskonar leyfi og aðrir
hafa fengið,“ sagði Lúðvik að
lokum.
Eðlilegt að menn fái
að endurnýja
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði, að fulltrúi útgerðar-
manna í stjórninni hefði verið
samþykkur því, að þessi skipa-
skipti færu fram.
„Útvegsmenn telja eðlilegt, að
menn fái tækifæri til að endur-
nýja skip, eins og um er að ræða í
þessu tilviki. Þarna átti að selja
úr landi gamalt skip og fá nýtt
hliðstætt skip til landsins í stað-
inn. Hins vegar eru útgerðar-
menn andvígir aukningu flotans
á sama tíma og unnið er að
veiðitakmörkunum. Erfitt er að
sjá samhengi í þessari afgreiðslu
stjórnar Fiskveiðasjóðs, sem með
atkvæðum bankastjóranna, stuðl-
ar að aukningu flotans og hafnar
því erindi, þar sem hrein endur-
nýjun átti að eiga sér stað,“ sagði
Kristján Ragnarsson.
Óbreytt af-
staða Svavars
Svavar Gestsson, var viðskipta-
ráðherra á síöasta ári, þegar
samþykkt var heimild til skipa-
skipta vegna Barða, Neskaupstað.
Svavar taldi sig ekki geta sagt
neitt um þessa afgreiðslu stjórn-
ar Fiskveiðasjóðs, þar sem hann
vissi ekki um forsendur hennar.
Málið væri formlega séð í hönd-
um sjávarútvegs- og viðskipta-
ráðherra og þar sem þeir hefðu
ekki tekið þetta mál upp í ríkis-
stjórninni hefði það ekki verið
rætt þar.
Á hinn bóginn sagði Svavar að
hans afstaða hefði legið fyrir,
þegar umsókn Barða var af-
greidd, að hann taldi að þegar um
væri að ræða eins gamalt skip og
raun var, þá væri eðlilegt að
heimila skipti, þar sem þau hefðu
ekki í för með sér aukinn sókn-
arþunga og skipin sambærileg.
Afstaða hans væri óbreytt.
Hlíðarendi — Nýr
íslenskur veitingastaður
EINHVERN næstu daga verð-
ur opnaður nýr veitinga-
staður hér i borginni, Hlíðar-
endi — Brautarholti 22. Eig-
endur staðarins eru ólafur
Ingi Reynisson og Haukur
Ilermannsson. Þeir eru báðir
reyndir í ýmiss konar veit-
ingarekstri, ólafur rak Hótel
Borg í Borgarnesi um
tveggja ára skeið og hefur
verið forstöðumaður Mötu-
neytis Reykjavíkurborgar.
Haukur mun hafa yfirumsjón
með eldhúsi staðarins, hann
sá áður um veitingabúð Hótel
Loftleiða og fékk nýlega silf-
urverðlaun i keppni milli
yfirmatreiðslumanna á Norð-
urlöndum.
Veitingastaðurinn Hlíðarendi
tekur u.þ.b. 80 manns í sæti. í
veitingasalnum er lítið dansgólf
og aðstaða fyrir skemmtikrafta.
Guðmundur Kr. Guðmundsson,
arkitekt, hefur séð um útlit inn-
réttinga og skreytinga með aðstoð
Steinþórs Sigurðssonar, listmál-
ara, og miðað allt útlit staðarins
við að hann fengi forníslenzkt
yfirbragð.
Við rekstur veitingastaðarins er
einnig ætlunin að leggja áherzlu á
að kynna íslenzka rétti, fiskrétti
fyrst og fremst en einnig býður
staðurinn upp á kjötrétti og rétti
sem eru að öllu leyti úr grænmeti.
Hlíðarendi verður opinn frá kl.
11.30—23. Sú nýbreytni er höfð að
svip veitingastaðarins er breytt í
hádeginu, er þá notuð önnur
lýsing og starfsfólk er öðruvísi
klætt en það sem eftir er dags.
Þannig er reynt að skapa annað
andrúmsloft í hádeginu og ekki
ætlast til að gestir séu sérstaklega
uppábúnir. Á öðrum tímum er
hins vegar gert ráð fyrir snyrti-
legum klæðnaði.
Vínveitingar verða á Hlíðar-
enda.
Verð á veitingum í hádeginu
verður mun lægra en á öðrum
tímum dags og þá lítið dýrara en á
almennum veitingastöðum. Eftir
hádegið gildir hærri verðskrá en
samt er verðið alltaf mun lægra
en á sambærilegum veitinga-
stöðum, að sögn eigendanna.
Vert er að geta þess að gert
hefur verið ráð fyrir hjólastólum
við hönnun veitingastaðarins og
auðveldlega er hægt að komast
inn í veitingasalinn í hjólastól.
Eigendur Hliðarenda ásamt eiginkonum sinum. F.v. Haukur Her-
mannsson, yfirmatreiðslumaður, Margrét Fredrigsen. Guðbjörg
Guðjónsdóttir og ólafur Ingi Reynisson, framkvæmdastjóri.
PÉTUR J. THORSTEINSSON
— eykur stoðugt fylgi sitt — vinnur hug og hjörtu fólksins
— fleiri og fleiri velja reynslu hans og þekkingu —