Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980 Kennedy ætlar að halda bar- áttunni áfram FRÁ ÖNNU Bjarnadóttur fréttamanni Mb). i Los Angeles i K»*r: Ronald Reagan og Edward Kennedy riðu enda- hnút á forkosningabaráttu sína í Kaliforníu í gær. Síðustu forkosningar banda- risku stjórnmálaflokkanna verða haldnar í 8 rikjum í dag. Reagan er þegar ör- uggur um útnefningu Repú- blikanafiokksins en Kenne- dy er enn ekki tilbúinn til að játa að hann á litla sem enga von um útnefningu demókrata. Jimmy Carter þarf aðeins að hljóta um 20 fulltrúa í kosningunum í dag til að vera öruggur um útnefninguna en alls verða 696 fulltrúar kjörnir á landsþing flokksins í dag. Barátta Carters og Kenne- dy hefur verið bitur á köfl- um. Carter hefur látið í ljós ósk um samstöðu innan flokksins fyrir og á lands- þinginu og hefur stungið upp á viðræðum hans og Kenne- dys eftir kosningarnar í dag. Kennedy hefur ekki viljað taka í þá sáttahönd og segist enn ætla sér að verða for- setaframbjóðandi flokksins í nóvember. Hann hefur ekki viljað segja að hann muni kjósa Carter frekar en Reag- an eða John Anderson. Carter hefur neitað að eiga kappræður við Kennedy alla kosningabaráttuna og hefur nú neitað að eiga kappræður við Reagan ef Anderson verður þátttakandi í kapp- ræðunum. Skoðanakannanir sýna að 53% þjóðarinnar er óánægð með þessa ákvörðun Carters. Mikill áhugi og forvitni er meðal kjósenda á Anderson en hann er talinn geta hlotið þó nokkurt fylgi í kosningun- um í nóvember og þá helst á kostnað Carters. Reagan hélt sína síðustu ræðu í þessum hluta kosn- ingabaráttunnar í Los Ang- eles á mánudag. Þar markaði hann stefnuna, að því er virtist, í baráttu sinni gegn Carter næstu mánuðina. Hann gagnrýndi stefnu Cart- ers í utanríkis- og innanrík- ismálum og sagði: „Þessi maður sagðist fyrir þremur og hálfu ári ætla að gera eitthvað við verðbólgu, vöxt- um og atvinnuleysi. Honum hefur svo sannarlega tekist það, allt hefur stigið í stjórn- artíð hans.“ Forkosningarnar í Ohio, New Jersey og Kaliforníu eru mikilvægastar í dag. Carter hefur lagt mesta áherslu á Ohio og er spáð sigri þar. Kennedy vonast til að vinna í New Jersey og Kaliforníu. Kalifornía er stærsta og fjölmennasta ríki Bandaríkj- anna. Lítill áhugi er þar á forkosningum flokkanna þar sem Reagan og Carter eru þegar sigurvegarar flokka sinna. Þó er búist við mjög góðri þátttöku í kosningun- um. Það gera þrjár tillögur sem eru á atkvæðaseðlinum og varða buddur kjósenda. Fyrir tveimur árum ákváðu Kaliforníubúar að lækka fasteignaskatta í ríkinu verulega. Sami maður og stóð fyrir þeirri baráttu, Howard Jervis, hefur nú lagt til að tekjuskattar verði lækkaðir um 50%. Ekki er búist við að tillaga hans, sem er nr. 9 á atkvæðaseðlinum, verði samþykkt að þessu sinni. Tillaga nr. 10 varðar húsaleigukostnað og nr. 11 hækkun skatta á ágóða stórra olíufyrirtækja. Um- ræður fyrir kosningarnar hafa fyrst og fremst snúist um þessar tillögur í Kali- forníu og áhugi á þeim, frekar en á Carter, Regan og Kennedy, mun fá Kaliforníu- búa til að fara á kjörstað í dag. Reagan Kennedy Carter Kúbanskir flóttamenn nú yfir 100 þúsund Key West, 3. júní. AP. TALA kúbanskra flóttamanna. sem hafa flúið til Bandarikjanna, fór i dag yfir 100 þúsund. í dag komu 847 flóttamenn með flutn- ingaskipinu Red Diamond. Þegar skipið kom til Key West var skipstjóri þess svo og eigandi settir í varðhald. Skipið fór frá Mariel á mánudag og tilkynnti að það héldi áleiðis til Bahamaeyja, eftir að bandarísk yfirvöld tilkynntu að koma skipsins til Bandaríkjanna bryti í bága við landslög. Skipið breytti nokkrum sinnum um stefnu á leiðinni áður en það tók að lokum stefnuna til Key West á Flórídaskaga. Bandarísk yfirvöld hafa áhyggjur af því, að kúbanskir Bandaríkjamenn hafa tekið á leigu erlend skip til að flytja flóttafólk frá Kúbu og þannig farið í kringum bann stjórnvalda við smábátaferð- um frá Kúbu til Bandaríkjanna. Olíuskip og ferja rekast á Stokkhólmur, 3. júni. AP. UM 500 tonn af olíu láku í sjóinn á Eyrarsundi milli Helsingjaborgar og Helsingjaeyrar þegar dönsk ferja rakst á 600 tonna sænskt olíuskip. Engin slys urðu á mönnum og ferjan gat haldið áfram til Helsingjaeyrar eftir áreksturinn. Þrjú skip frá sænsku landhelgis- gæslunni unnu í dag að því að eyða olíunni. Orsakir slyssins voru ekki ljósar strax en mikil þoka var. ^ToshUm TOSHIBA SM-2850 Stereo-samstMdan Verö ca. kr. 438.800.- með hótölurum. Stórlallagt hljómflutningttnki á einataklaga góöu varöi Allt í einu tnki. Stereo-útvarp. Cassettusegulband, plötu- spilari og 2 stórir hátalarar. Magnarinn er ** wött. Tvefr hátalarar eru í hvorum kassa. Stór renndur 30 sm piötu- diskur. útvarpiö er meö langbyigju. mlö- bytgju og FM stereo FtcO seiktor Komiö og skoöiö þetta stórfaliega taakl og sannlærist um SM 2850 Toshiba-tnkiö er ekki aöelns afburöa stílhreint ( útlHi heldur líka hljómgott SM 2850 gefur yöur mest fyrtr penlngana. S-laga armur Magnetísk hljóðdós EINAR FARESTVEIT & CO. HF Bergstaðas’rnti 10 A Simi 1-69 95 — Reykjavlk Útsölustaölr: Akranes: Bjarg hf. Borgarnes: Kaupf. Borgf. Bdungarvík: Verzl. E.G. ísafjðrOur: Straumur s.f. Hvammstangl: Verzl. S.P. Slönduós: Kaupf. Húnvetnlnga SauOárkrókur: Kaupf. Skagflrölnga Akureyrl: Vðruhús KEA Hljómver h.f. Húsavík: Kaupf. Þingeyinga Egilsstaöir: Kaupf. Héraösbúa Ólafsfjöröur: Verzl. Valberg Siglufjöröur: Gestur Fanndal Hornafjöröur: KASK Hvolsvöllur: Kaupf. Rangælnga Vestmannaeyjar: KJarni h.f. Keflavík: Duus. Askan frá St. Helens umhverfis iörðina Vancouver, 3. júní. AP. ASKA frá upphafi gossins í St. Helens þann 17. maí hefur farið umhverfis jörðina og er nú aftur yfir Ameríku, að því er veðurfræðingar skýrðu frá í dag. Ösku hefur orðið vart í allt upp í 12 kílómetra hæð. Veðurfræðingar sögðu að hún sæist ekki berum augum en hana mætti mæla. 1979 — John Vorster, forsætisráð- herra Suður-Afríku, segir af sér vegna ásökunar um yfirhylmingu í hneykslismáli. 1970 — Tonga fær sjálfstæði. 1%1 —Fundur John F. Kennedy og Nikita Krúsjeff t Vín. 1946 — Embættistaka Juan Peron forseta í Argentínu. 1944 — Bandamenn sækja inn í Róm. 1942 — Fyrsti afgerandi sipir bandarískra herskipa á Japönum í orrustunni um Midway. 1936 — Leon Blum myndar al- þýðufylkingarstjórn í Frakklandi. 1878 — Leynisamningur Breta og Tyrkja gegn Rússum; Bretar fá Kýpur. 1859 — Orrustan um Magenta; Frakkar sigra Austurríkismenn og taka Mílanó. 1831 — Lepold af Sachen-Coburg kosinn forseti Belgíu. 1815 — Danir láta Pommern og Rúgen af hendi við Prússa og fá hluta Lauenburg. 1813 — Vopnahlé Prússa og Frakka í Poschwitz. 1805 — Bandaríkin semja frið við Tripoli. 1800 — Genúa gefst upp fyrir liðsafla Frakka. 1647 — Herinn tekur Karl I af Englandi í gislingu. Afmæli. Georg III Bretakonungur (1738—1820) — Harriet Beecher Stowe, bandarískur rithöfundur (1811—1896) — Garriet Wolsey, brezkur hermaður (1833—1913) — Carl Gustaf von Mannerheim, finnskur hermaður & forseti (1867—1951) — Rosalind Russel, bandarísk leikkona (1912—1976) Andlát.1792 John Burgoyne, her- maður — 1796 Casanova, ævin- týramaður. Innlent. 1832 Islandi boðin þátt- taka í þingi Eydana — 1879 Jón Þorkelsson og Vilhjálmur Finsen heiðursdoktorar við Hafnarhá- skóla — 1903 Hornsteinn lagður að Cagnfræðaskóla Akureyrar — 1910 Meirihluti Alþingis krefst aukaþings út af bankamálinu. — 1926 40 manna þýzk hljómsveit heldur hljómleika í Reykjavík — 1928 Fyrsta flug Flugfélags íslands h.e. frá Reykjavík til Akur- eyrar — 1955 Almenna bókafélagið stofnað - 1970 Verkföll - 1979 Kínverskur ráðherra í heimsókn. Orð dagsins. Bjartsýnismaðurinn segir að heimurinn geti ekki verið betri og bölsýnismaðurinn óttast að það sé satt. — J.B. Cabell bandarískur rithöfundur (1879— 1958).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.