Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
19
Þing sérfræðinga
i taugasjúkdóma-
fræði 9.-14. júní
DAGANA 9.—14. júní n.k. halda
norrænir sérfræðingar i tauiía-
sjúkdómafræði (neurologiu) 23.
þing sitt að Hótel Loftleiðum i
Reykjavík. Dagana 9. og 10. júní
verður námskeið í taugaónæmis-
fræði og verða þar fluttir 20
fyrirlestrar af 14 fyrirlesurum,
sem koma frá Norðurlöndunum.
en að auki frá Bretlandi, Skot-
landi og Bandarikjunum. í hópi
fyrirlesara er m.a. próf. Barry
W.G. Árnason frá Chicago, sem
er af islenzku bergi brotinn.
Ráðstefnan sjálf hefst 11. júní
og iýkur 14. júní. Til hennar munu
koma á þriðja hundrað manns,
langflestir frá Norðurlöndum, en
auk þess koma þátttakendur frá
Bretlandi ojf Bandaríkjunum. Alls
verða fluttir um 150 fyrirlestrar.
Aðalviðfangsefni þingsins verður
sársauki, sýkingar i taugakerfi,
nýjungar í rannsóknum og með-
ferð vefrænna taugasjúkdóma og
efnaskipti og starfsemi heilans.
Meðal fyrirlesara eru prófessor-
arnir Louis Sokoloff frá Bethzeda
í Bandaríkjunum, Lindsay Symon
Fundur um
stöðu kon-
unnar í HÍ
FÉLAG vinstri manna í Háskóla
íslands hefur ákveðið að gangast
fyrir umræðufundi í hliðarsal Fé-
lagsstofnunar stúdenta um jafn-
réttismál og stöðu konunnar í
Háskóla íslands. Fundurinn, sem
verður öllum opinn verður haldinn
5. júní og hefst klukkan 20.30.
Hvalvertíð hófst
á sunnudaginn:
Sjö hvalir
veiddir
HVALVERTÍÐ er hafin og komu
fyrstu hátarnir inn til Hvalfjarð-
ar í gær. Allir fjórir hvalbátarnir
fengu hvali i fyrrakvöld og gær-
morgun og hafa alls veiðst sjö
hvalir. Veiddust þeir suðvestur af
Garðskaga.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
jáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf,
héldu hvalbátarnir til veiða á sunnu-
dagskvöld en það er orðin hefð að
hvalvertíðin hefjist á sunnudögum.
Alls vinna um 220 manns við hval-
veiðarnar í sumar, 100 manns vinna
í Hvalstöðinni, 60 manns á hvalbát-
unum og 60 manns í hraðfrystihúsi
fyrirtækisins í Hafnarfirði. Er þetta
svipaður fjöldi og hefur unnið við
hvalveiðarnar undanfarin ár.
og Ian McDonald frá Queen
Square í Lundúnum og Brian
Matthews frá Oxford. í hópi
fyrirlesara eru að vonum einnig
fremstu sérfræðingar á Norður-
löndum í taugasjúkdómafræði.
íslendingar munu leggja til 11
fyrirlestra á ráðstefnunni.
Á ráðstefnunni verður einnig
fjallað sérstaklega um sjúkdóma
eins og flogaveiki, Parkinsons-
veiki, æðasjúkdóma í taugakerfi
og sjúkdóminn heila- og mænu-
sigg (multiple sclerosis).
Þetta er í fyrsta sinn sem þing
norrænna taugasjúkdómasérfræð-
inga er haldið á íslandi. Forseti
samtakanna sl. 2 ár hefur verið
Sverrir Bergmann, læknir, sem
jafnframt er aðalritari þessarar
ráðstefnu en ráðstefnan er skipu-
lögð af Félagi íslenzkra tauga-
sjúkdómasérfræðinga.
DREGIÐ hefur verið úr aðKöngumiðum að sýningunni
Sumarið ’80, en henni er nú lokið. Aðalvinningur var
tjaldvagn og kom hann upp á miða nr. 10989. Á myndinjú
er ung stúlka að draga úr seldum miðum.
Aðrir vinningar í gestahappdrætti sýningarinnar voru:
Cardinal veiðihjól nr. 1215, vöruúttekt fyrir 25 þúsund
krónur nr. 250, 1396, 1595, 3294, 12915, 2020 og 7025,
Fiesta grill nr. 1827, jóganámskeið nr. 4651, helgarferð
með Útivist nr. 6902.
(Birt án ábyncAar).
og bólstrumjj
húsgögn. Got
af áklæðum
BÓLSTRUI\I(
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807.
Hjúkrunarfélag
íslands:
Styðjum kröf-
ur B.S.R.B.
BORIST hefur eftirfarandi
fréttatilkynning frá Hjúkrunar-
félagi íslands:
„Almennur fundur í Hjúkrunar-
félagi íslands 21. maí 1980 mótmælir
harðlega tregðu ríkisstjórnarinnar
að ganga til samninga við B.S.R.B.
Fundurinn lýsir fullum stuðningi
við kröfur samtakanna og skorar á
alla félagsmenn B.S.R.B. að fylkja
liði og sýna fyllstu samstöðu í þeim
aðgerðum, sem stjórn og samninga-
nefnd B.S.R.B. telja nauðsynlegar til
að fylgja kröfunum eftir.“
ÁTTU VQN AIÁNI?
Það kemur sér alltaf vel að hafa sýnt fyrirhyggju í fjármálunum.
Óvænt fjölgun í fjölskyldunni er flestum gleðiefni en hefur
þó í för með sér margs konar fjárútlát sem koma illa við budduna.
Þá er gott að eiga von á Safnláni sem leggur til það sem upp á vantar.
Það er aldrei of seint að vera með í Safnlánakerfi Verzlunarbankans.
Prófið sjálf t. d. í 9 mánuði.
UíRZLUNflRBHNKINN
BANKASTRÆTI 5. LAUGAVEGI 172, ARNARBAKKA 2, UMFERÐARMIÐSTÖÐ,
GRENSASVEGI 13 og VATNSNESVEGI 14, KEFL.
43.31