Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
25
Grímar Jónsson
- Minningarorð
Fæddur 11. október 1913.
Dáinn 27. maí 1980.
Grímar Jónsson var fæddur að
Helgadal í Mosfellssveit. Foreldr-
ar hans voru hjónin Jón Jónsson
bóndi og Ingibjörg Jónsdóttir.
Hann missti föður sinn 5 ára
gamall og ólst upp hjá Halldóri
dóttur að Varmá í sömu sveit.
Hann byrjaði ungur að starfa með
fóstra sínum við verslunina
Varmá í Reykjavík, og tók við
þeirri verslun að honum látnum
og rak hana meðan kraftar entust.
Grímar kvæntist 17. nóvember
1945 Guðríði Guðjónsdóttur, ætt-
aðri úr Rangárþingi.
Hér er genginn góður drengur
kom okkur fyrst í hug, er okkur
var tilkynnt lát Grímars vinar
okkar, því að þótt við vissum að
hverju stefndi, þá höldum við öll í
vonina þar til veruleikinn blasir
við.
Grímar Jónsson og kona hans
hafa verið okkur ómetanlegir vinir
um áratuga skeið. Við hjónin
munum minnast með þökk allra
glöðu góðu stundanna sem við
áttum saman bæði á ferðalögum
og á heimili þeirra á Kleppsvegi 4.
Grímar var sífellt opinn og vin-
samlegur umhverfi sínu, félags-
lyndur og víðsýnn. Hann var
víðlesinn og hafði mikla yfirsýn,
rökvís og fastur fyrir og lagði
öllum góðum málum lið. Hann átti
við langvarandi líkamlega van-
heilsu að stríða, en var einn hinn
traustasti og heilbrigðasti
persónuleiki sem við höfum
kynnst, og munum við ávallt
minnast hans með þökk og virð-
ingu.
Eiginkonu hans, systkinum og
venslafólki vottum við dýpstu
samúð.
Gyða og Ingvar.
Vinir mínir fara fjóld
feigöin þesai heimtar köld,
ég kem eftlr kannske i kvöld.
meö klöfinn hjálm og rifinn skjöld.
brynju slitna. sundraö sverö ux syndagjöld.
H.J. frá Bólu.
Einn af gömlu félögunum af
Hverfisgötunni er genginn til áa
sinna. Enn megum við sem eftir
lifum bíða um stund, þar til kallið
kemur, og sem kemur áður en
varir.
Grímar Jónsson fæddist 11.
október 1913 og ólst upp í Mos-
fellssveit í stórum systkinahópi,
en var ungur tekinn í fóstur af
Halldóri Jónssyni, verksmiðju-
stjóra á Alafossi, síðar bónda á
Varmá og að lokum kaupmanni
hér í bæ. Þeir fóstrar voru báðir æ
síðan kenndir við jörð sína í
Mosfellssveit — Halldór og
Grímar í Varmá.
Strax á þroskaárunum var
Grímur allra drengja frískastur,
drenglyndur, hjálpsamur og um-
burðarlyndur, og allt voru þetta
eiginleikar sem nýttust honum vel
sem unglingaleiðtoga Vals og mót-
aði starf okkar Valsmanna um
árabil. Er óhætt að segja að störf
Grímars á þessum vettvangi hafi
haft áhrif á allt æskulýðsstarf hér
í bæ allt fram til þessa dags. Saga
íþróttafélaga frá kreppuárunum
er mjög áhugaverð og raunar
kapítuli út af fyrir sig en verður
ekki rakin hér. En um leið og við
félagarnir kveðjum Grímar, ber
okkur að minnast Frímanns
Helgasonar, formanns Vals í mörg
ár og frumherja í félagsmálum, en
þeir vinirnir og félagarnir Grímar
og Frímann mótuðu manna mest
æskulýðsstarf þessara ára.
Grímar var sérstakt prúðmenni
í allri framkomu og gjörðum, og
eins og áður segir bjó í honum
umburðarlyndi heimsborgarans,
þótt hann héldi vel á sínum
skoðunum.
Aldrei heyrði ég Grímar kvarta
eða kveinka sér öll þau ár sem
hann lifði, þótt hann væri oft
sársjúkur og hefði verið allt frá
æskuárunum, og hann hélt reisn
sinni og prúðmennsku til hinsta
dags. Hann sýndi það þá sem oftar
hversu harður hann var af sér,
enda minnist ég ekki harðari og
betri keppnismanns frá þessum
árum, þrátt fyrir drenglyndið.
Við töluðum saman fyrir rösk-
um mánuði síðan. Þá var Grímar í
Varmá hlýr og hjartahreinn eins
og í þá gömlu góðu daga sem
aldrei koma aftur.
Hans verður sárt saknað af
okkur sem þekktum hann eilítið
og nutum félagsskapar hans um
50—60 ára skeið. Blessuð sé minn-
ing hans.
Sigurpáll Jónsson.
Skáldjöfurinn Einar Bene-
diktsson segir í einu snjallasta og
fegursta ljóði íslenskrar tungu:
„Til moldar oss vígði hið mikla
vald, hvert mannslíf, sem jörðin
elur.“
I dag er til moldar vígður
góðvinur minn og félagi Grímar
Helgi Jónsson. Hann fæddist 11.
október 1913 að Helgadal í Mos-
fellssveit. Foreldrar hans voru
hjónin Jón Jónsson bóndi og kona
hans Ingibjörg Jónsdóttir. Þau
dóu bæði í spönsku veikinni 1918
frá stórum hópi mannvænlegra
barna. Börnunum var þá komið í
fóstur hjá bændum og búaliði í
sveitinni. Grímar fluttist til hjón-
anna Halldórs Jónssonar að
Varmá og konu hans Gunnfríðar
Guðlaugsdóttur. Dvaldist hann
þar við ást og umhyggju fósturfor-
eldra sinna til hinstu stundar
beggja.
A árunum 1927 til 1929 átti
hann við mjög erfið veikindi að
stríða og var að mestu rúmliggj-
andi. Með einlægri trú og von á
bata tókst honum að yfirstíga
veikindi sín og verða það frískur
að hann gat tekið þátt í leik og
gleði sinna jafnaldra.
Ungur að árum heillaðist Grím-
ar að knattspyrnu og öðrum
íþróttum. Síðan hefur hann unnið
henni mikið og heilladrjúgt starf
um langan tíma, eða allt frá því að
hann gerðist félagi í Knattspyrnu-
félaginu Val til hinstu stundar.
Störf hans og framlag til Vals alla
tíð var mikið og farsælt. Hann
kom víða við í starfi félagsins, sem
of langt yrði allt upp að telja nú.
M.a. sem ekki er hægt að sleppa
má nefna, að hann var mjög snjall
leikmaður bæði í knattspyrnu og
handknattleik enda margfaldur
meistari í báðum þeim greinum.
Þá var hann góður frjálsíþrótta-
maður og átti m.a. unglingamet í
hástökki. Þjálfarastörf Grímars
voru frábær, sér í lagi unglinga-
starfið, þar sem þekking hans á
æskunni, hugsun hennar og vilja
til starfs og afreka, var ótrúlega
mikil. Hann kunni að umgangast
unglingana sem vinur og leiðbein-
andi, mildur og ákveðinn stjórn-
andi og félagi þeirra um leið.
Grímar átti lengi sæti í aðal-
stjórn Vals og var þar sem
annarsstaðar farsæll og lifandi
stjórnandi. Grímar var einn
þeirra er fylgdi Hlíðarendakaup-
um félagsins fram af festu og
einurð. man ég að hann lagði fram
tillögu um að á félagssvæðinu yrði
gerður lítill en fagur garður, með
trjárunnum og fögrum blómum.
Vildi hann kalla þann garð Ólafs-
lund eftir þeim félaga okkar er
barðist mest og best fyrir fram-
gangi og kaupum á Hlíðarenda,
Olafi Sigurðssyni.
Um leið og við nú kveðjum
okkar látna vin og félaga, þökkum
við honum af einlægni, vináttu
hans og hans miklu störf fyrir
félag okkar. Við vottum eftirlif-
andi eiginkonu hans frú Guðríði
Guðjónsdóttur okkar innilegustu
samúð á sorgarstund og biðjum
henni Guðs blessunar.
„Sá sem kunni að skilja kjarn-
ann frá hisminu sagði: Þú trúi og
dyggi þjónn, gakk inn til fagnaðar
herra þíns.“
Traustur félagi er horfinn úr
hópnum, drengur góður, ljúfur og
hjálpsamur. Er ég heyri góðs
manns getið, minnist ég Grímars
heitins.
í Guðs friði. 2
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg geng í háskóla. þar sem alls konar reglur gilda. Þetta
er kristilegur skóli, og eg neita því ekki, að eg læri þarna
ýmislegt, sem eg mundi ekki læra í öðrum skóla. En ættu
þeir, sem stjórna slikum skóla ekki að gera sér ljóst, að
ungt fólk á þessum aldri er það vel viti borið og þroskað,
að það er fært um það sjálft að taka ákvarðanir?
í öllum aðstæðum lífsins verðum við að meta, hvort
kostirnir vega meira en ókostirnir. Stundum kemur það
sér vel, já, er jafnvel nauðsynlegt, þar sem mikill fjöldi
nemenda sækir skóla, að þar séu vissar grundvallar-
reglur.
Nú er meginmarkmiðið með að sækja háskóla, að
menn læri. Reglurnar, sem settar eru — og þér finnst
óþarfar — hindra ekki, að fólk geti lært.
I litlum skóla í suðurhluta lands okkar gerðist það
fyrir skömmu, að hópur nemenda vakti rektor klukkan
eitt um nóttina og hrópaði: „Við viljum bjór!" í
skólanum voru reglur, sem bönnuðu neyzlu áfengra
drykkja, enda var þetta kristilegur skóli. Á næstu
guðræknisstund í kapellu skólans sagði rektor nemend-
um, að þessari reglu yrði ekki breytt. Hann benti þeim
á, að þeir, sem væru óánægðir, gætu farið í marga aðra
skóla, sem hefðu ekki slíkar reglur. Mér finnst, að hann
hafi farið rétt að.
Sérhver stofnun, sem setur sér ekki reglur, stefnir í
upplausn. Ef þér fellur ekki við reglurnar, getur þú gert
annað hvort, sætt þig við þær og einbeitt þér að náminu
— eða farið í annan skóla.
Sigurjón Sigvaldason
Urriðaá — Minning
Fæddur 18. september 1907.
Dáinn 18. apríl 1980.
Laugardaginn 26. apríl sl. var til
moldar borinn Sigurjón Sigvalda-
son, bóndi að Urriðaá í V. Húna-
vatnssýslu. Hann lést á sjúkra-
húsinu á Hvammstanga eftir
stutta legu, en svo hafði virst að
Sigurjón ætlaði að yfirvinna þann
sjúkdóm sem svo fáum hlífir en þá
var hann tekinn burtu af þeim er
öllu ræður.
Líffsaga Sigurjóns var eins og
maðurinn sjálfur stórbrotinn,
saga dugnaðar og eljusemi, saga
framkvæmdamannsins og bónd-
ans en þó fyrst og fremst saga
óvenju góðs manns.
Sigurjón var fæddur 18. sept-
ember 1907 í Stóru-Ávík Árnes-
hreppi Strandasýslu, sonur hjón-
anna Sigurlínu Jónsdóttur og Sig-
valda Jónssonar bónda, var hann
næst elstur þeirra barna en þau
eru Guðrún húsfreyja að Mosfelli í
Svínadal A. Húnavatnssýslu,
Ólína húsfreyja í Reykjavík og ína
Jensen húsfrú í Reykjavík. Árið
1911 lést Sigvaldi faðir hans eftir
stutta sjúkdómslegu og má fara
nærri um á þeim árum hver vandi
ekkjunnar hefur verið með barna-
hópinn sinn. Baráttunni varð að
halda áfram, það var ekki nú-
tímabarátta fyrir auknum
lífsþægindum heldur einföld bar-
átta fyrir lífinu, barátta fyrir
brauði og tilveru. Það þarf ekki að
fara í grafgötur um að þessi
barátta hefur sett sitt mark á
drenginn unga sem svo snemma
varð að gerast stoð og stytta
móður sinnar. Tveimur yngri
systrunum var komið í fóstur á
ágætustu heimilum þar í sveit en
Sigurlína var með Guðrúnu og
Sigurjón lengst af á Seljanesi hjá
Guðjóni föðurbróður Sigurjóns
eða þar til leiðir lágu til A.
Húnavatnssýslu en þá mun Sigur-
jón hafa verið um 8—9 ára gamall.
Þessu duglega fólki vegnaði vel
þar í sveit og minntist Sigurjón
jafnan þeirra ára með gleði, enda
eignaðist hann þar marga ágæt-
ustu vini og ekki síst að telja, að
þar fann hann sinn lífsförunaut.
Hugur Sigurjóns mun snemma
hafa staðið til búskapar og
draumurinn var að sjálfsögðu sá
að eignast sína eigin jörð. Fyrir
efnalítinn ungan mann, þótt af-
bragðsduglegur væri, var ekki í
lítið ráðist.
19. ágúst 1945 kvæntist Sigurjón
sinni ágætu konu, Margréti Jónas-
dóttur og hófu þau sinn búskap á
eigin jörð Urriðaá í V.-Húna-
vatnssýslu. Ég hef eftir kunnugum
að ekki hafi verið almennt álit, að
þessi jörð byði upp á mikla
möguleika, en Sigurjón og Megga
voru á öðru máli og það stórátak í
uppbyggingu og ræktun er verðug-
ur minnisvarði um framsýni og
dugnað. Ég var í sveit hjá Sigur-
jóni og Margréti frá 6 ára aldri til
14 ára og átti því láni að fagna að
kynnast þessu ágæta fólki og
eignast það að vinum, tel ég það
alltaf með minni meiri gæfu.
Sigurjón var álitinn hraustur
maður á yngri árum og eftirsóttur
í vinnu en nokkuð slitnaði hann
fljótt enda aldrei af sér dregið
hvort sem unnið var fyrir sjálfan
sig eða aðra.
Mér er minnistætt er einu sinni
var stórbóndi úr Astursýslunni í
heimsókn. Sigurjón sagði við hann
að þegar hann lyki við að rækta
upp spildu nokkra sem hann
tilgreindi, þá myndi hann snúa sér
að ræktun melanna neðan við
bæinn, ég var staddur nálægt og
heyrði þennan mæta mann tuldra
í barm sér: „Melana, það er ekki
hægt“, en síðar er við gengum
heim virtist hann hafa hugsað
málið nokkuð betur og sagði
stundar hátt: „Melana, það er þá
ekki hægt ef hann Sigurjón getur
það ekki.“
Þær eru margar minningarnar,
sem koma í hug á kveðjustundu,
flestum mun verða minnistæð
hjálpsemi við þá sem minna máttu
sín eða höfðu orðið fyrir áföllum,
einstök ræktarsemi við vini, kunn-
ingja og venslafólk svo ekki sé
minnst á rausnar og myndarskap,
en í því voru þau hjón samhent
svo sem í öðru. Það var ekki stórt
húsrýmið á Urriðaá því uppbygg-
ing jarárinnar var í fyrirrúmi, en
hjartarúmið var stórt og margir
munu minnast ánægjulegrar dval-
ar um lengri eða skemmri tíma á
þessu rausnarheimili. Af túninu á
Urriðaá mátti ef vel viðraði sjá
Strandafjöllin í fjarska, kannske
var það táknrænt að það skyldi
verða hlutskipti föðurlausa
drengsins úr nyrstu byggð
Strandasýslu að byggja upp þessa
jörð í ystu sjónmörkum frá sínum
fæðingarstað. Sigurjón var gæfu-
maður í sínu einkalífi, þau hjón
voru samhuga um flest, hamingj-
an færði þeim soninn Sigvalda
búfræðing, sem hefur ásamt konu
sinni reist sér bú á föðurleifð sinni
og heldur uppi merki föður síns.
Elsku Magga, ég þakka þér og
Sigurjóni fyrir þann tíma er ég
fekk að njóta samvista við ykkur
og bið góðan Guð að styrkja þ'ig
um alla framtíð.
Pétur Sigurðsson.
27 nýir leiðsögumenn
ÞANN 12. maí sl. lauk leiðsögu-
námskeiði því, sem Ferðamála-
ráð íslands hélt s.l. vetur fyrir
verðandi leiðsögumenn ferða-
manna. Er þetta þriðja leiðsögu-
námskeiðið, sem Ferðamálaráð
heldur samkvæmt lögum um
ferðamál frá 1976.
Námskeiðin standa yfir allan
veturinn, frá hausti til vors. Fyrir
áramót voru fyrirlestrar haldnir
um ýmsa almenna málaflokka s.s.
jarðfræði íslands, dýralíf, gróður
náttúruvernd, sögu, atvinnuvegi,
listir og ýmsa þætti félagsmála.
Voru fengnir til þess viðurkenndir
fyrirlesarar sem eru sérfræðingar
hver á sínu sviði. Eftir áramót var
haldið námskeið í skyndihjálp í
samvinnu við Rauða kross íslands
og síðan voru reyndir leiðsögu-
menn fengnir til að fræða um hin
ýmsu landssvæði og helstu ferða-
mannastaði sem erlendir ferða-
menn heimsækja hérlendis. Farn-
ar voru náms- og prófferðir í
nágrenni Reykjavíkur og nám-
skeiðinu lauk með munnlegum og
skriflegum prófum.
Þeir sem standast próf nám-
skeiðsins fá inngöngu í Félag
leiðsögumanna og þar með for-
gangsrétt til leiðsögustarfa. Að
þessu sinni stóðust 27 þátttakend-
ur próf námskeiðsins og bætast í
hóp þeirra sem annast leiðsögu
erlendra ferðamanna hér á landi á
sumrin.