Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
31
Stórleikur í kvöld
Tekst vörn Fram að
halda markinu hreinu?
I KVÖLD kl. 20.00 fer fram
stórleikur í íslandsmótinu í
knattspyrnu er lið Fram og Vals
mætast á Laugardaisvellinum.
Bæði liðin eru taplaus til þessa,
hafa hlotið þrjú stig. Valsmenn
hafa skorað 10 mörk en fengið á
sig tvö, en lið Fram hefur aðeins
skorað fjögur en hefur hinsvegar
tekist að halda marki sinu
hreinu, og er eina liðið í 1.
deildinni sem ekki hefur fengið á
sig mark. Leikur þessi er afar
mikilvægur fyrir bæði liðin og
búast má við hörkuviðureign.
Enda hafa leikir Vals og Fram
alitaf boðið upp á mikla og góða
skemmtun. Lið Vals hefur skorað
10 mörk til þessa og verður
fróðlegt að sjá hvort framherjum
þeirra tekst að gera hinum
sterku varnarleikmönnum Fram
lífið leitt og skora hjá þeim.
Annar leikur i 1. deildinni fer
fram í Vestmannaeyjum þar sem
heimamenn mæta Þrótturum kl.
20.00. Ekki er gott að spá fyrir
úrslit í þeim leik en lið ÍBV er þó
öllu sigurstranglegra enda á
heimavelli.
Eftirtaldir leikir fara fram i
ísiandsmótinu i knattspyrnu i
kvöld:
Miðvikudagur 4. júni
1. deild Laugardalsvollur kl. 20.00 Fram — Valur
1. deild Vestmannaeyjavöllur kl. 20.00 ÍBV - bróttur
2. fl. A KR-völlur kl. 20.00 KR — Stjarnan
2. fl. A KA-völlur kl. 20.00 KA - Þór
2. fl. A 2. fl. A Selfossvöllur kl. kl. 20.00 20.00 Haukar — Leiknir Selfoss — VíkinKur
2. fl.C ísafjarÖarvöllur kl. 20.00 ÍBÍ — Grótta
2. fl. C Þorlákshafnarvöllur kl. 20.00 Þór - ÍR
2. fl. C Armannsvöllur kl. 20.00 Ármann — Fylkir
2. fl. C Ileiöarvöllur kl. 20.00 ÍK - KS
3. fl. B Stjörnuvöllur kl. 20.00 Stjarnan — Haukar
Staðan i íslandsmótinu 1. deild
er nú þessi: Valur 3 3 0 0 10:2 6
Fram 3 3 0 0 4:0 6
Akranes 3 2 0 1 3:3 4
Keflavik 3 111 3:3 3
Breiðablik 3 10 2 4:5 2
ÍBV 3 10 2 2:3 2
Þróttur 3 10 2 1:2 2
KR 3 10 2 1:4 2
Víkingur 3 0 12 3:4 1
Staðan i 2. deild er þessi:
ÍBÍ 2 2 0 0 7:4 4
Völsungur 2 2 0 0 2:0 4
KA 1 1 0 0 4:0 2
Fylkir 2 1 0 1 3:3 2
Haukar 2 1 0 1 5:6 2
Ármann 2 0 1 1 3:4 1
Selfoss 2 0 1 1 3:4 1
Austri 1 0 0 1 0:1 0
Þróttur 2 0 0 2 2:7 0
Þór 0 0 0 0 0:0 0
Markhæstir:
Matthias Ilallgrímss. Val
Pétur Ormslev Fram
Ingólfur Ingólfss. Brbl. 2
6 Sigurður Grétarss. Breiðabl. 2
2 ólafur Danivalss. 2
Leikum til sigurs
- segir fyrirliði Valsmanna
ÉG er dauðþreyttur eftir lands-
leikinn. en verð vonandi orðinn
hress á morgun sagði fyrirliði
Valsmanna Guðmundur
Þorbjörnsson er Mbl. ræddi við
hann í gær. — Ég er bjartsýnn á
að við vinnum sigur í leiknum,
hann leggst vel i mig. Okkur i
Val hefur gengið vel fram að
þessu og ég sé ekki hvers vegna I
ætti að verða iát á því. Frammar-
ar eru hinsvegar ávallt erfiðir
mótherjar við að eiga og okkur
hefur ekki gengið of vel með
Fram í gegn um árin. Leikirnir
hafa oftast endað með jafntefli en
ég hef fulla trú á að við skorum
hjá þeim á morgun. Við komum
til með að leika til sigurs sagði
Guðmundur, sem ekki vildi spá
um úrslit leiksins.
— þr.
• Marteinn Geirsson. hinn nýji landsliðsfyrirliði. er aðalmaður einu
varnarinnar í 1. deild, sem enn hefur ekki fengið á sig mark.
Höldum markinu hreinu
- segir Marteinn
FYRIRLIÐI Fram. Marteinn
Geirsson, sagðist vera þreyttur
eftir landsleikinn á móti Wales
en þrátt fyrir það legðist leikur-
inn á móti Val vel í sig. —
Valsmenn eru sterkir núna og við
þurfum að leika vel til þess að
leggja þá að velli. Við erum með
nokkra menn á sjúkralista og ég
vonast til að þeir verði orðnir
góðir fyrir leikinn. Pétur er að
ná sér, það yrði missir að hafa
hann ekki með. Miðvallarspil
okkar í Fram er ekki nægilega
sterkt ennþá og þess vegna leggj-
um við áherslu á sterkan varnar-
leik, sagði Marteinn. — Ég tel að
• Guðmundur Þorbjörnsson hef-
ur verið lykilmaður I velgengni
Vals það sem af er keppnistima-
bilinu. Hann á áreiðanlega eftir
að gera hinni sterku vörn Fram
skráveifu.
Valsmenn verði okkar erfiðustu
mótherjar í íslandsmótinu og því
er mikið i húfi í kvöld. Byrjun
okkar lofar góðu og vona ég að
við höldum okkar striki. Ég spái
þvi að leikurinn endi með jafn-
tcfli 0-0. - þr.
Einkunnagjöfin
VEGNA þrengsla í blaðinu hefur
ekki reynst unnt að birta ein-
kunnagjöfina frá leik ÍBV og
UBK á föstudagskvöldið fyrr en
nú.
LIÐ ÍBV:
Páll Pálmason 6
Sveinn Sveinsson 6
Viðar Eliasson 6
Þórður Ilaligrimsson 6
Gústaf Baldvinsson 6
Snorri Rútsson 7
Jóhann Georgsson 5
Óskar Valtýsson 6
Ómar Jóhannsson 6
Tómas Pálsson 5
Sigurlás Þorleifsson 8
Einir Ingólfsson (vm) 5
LIÐ UBK:
Guðmundur Ásgeirsson 7
Helgi Helgason 5
Einar Þórhallsson 7
Valdemar Valdemarsson 6
Benedikt Guðmundsson 6
Vignir Baldursson 6
Sigurjón Rannversson 5
Þór Hreiðarsson 5
Sigurður Grétarsson 6
Helgi Bentsson 7
Ingólfur Ingólfsson 5
Sigurjón Kristjánsson (vm) 5
Hákon Gunnarsson (vm) 5
Dómari: Guðm. Haraldsson 8
Hörð siglingakeppni
Úrslit fengust ekki fyrr
en á síðustu mínútum
Á sjómannadaginn var haldin
siglingakcppni á Fossvogi i
bliðskaparveðri. Keppni var
mjög hörð i öllum flokkum og
fengust úrslit ckki ráðin fyrr en
á siðustu minútum.
í Fireball-flokk var keppnin
um fyrsta sætið mjög hörð milli
Gunnars og Gunnlaugs annars
vegar og Páls og ólafs hins
vegar. Páli og ólafi gekk illa í
upphafi, en komust þó fram úr
Gunnari og Gunnlaugi, en þeir
fylgdu fast á eftir og var ekki
ljóst hvor myndi sigra fyrr en
komið var i mark.
Um Mirror-flokkinn er lítið
annað að segja en það að Baldvin
og Óttar urðu óumdeildir sigur-
vegarar annað árið í röð.
I Optimist-flokki áttu í harðri
keppni Úlfar og Sævar Már. Úlfar
vann þessa keppni í fyrra og
einnig nú og sannaði að hann er
einn af okkar bestu Optimist-
siglurum sem komið hafa fram að
Sævari og öðrum ólöstuðum.
í opna flokknum, þar sem keppt
er með forgjafarfyrirkomulagi,
má segja að keppnin hafi verið
einna skemmtilegust, enda flestir
bátar í þeim flokki. Rúnar tók
forustu strax í upphafi og hélt
henni til enda, en Ári og Baldvin á
Wayfarer og Bjarni og Hannes,
einnig á Wayfarer, söxuðu á for-
skotið undir lok keppninnar og
urðu rétt á eftir honum í mark, en
það nægði Ara og Baldvini ekki til
sigurs á forgjöf þannig að þeir
höfnuðu í öðru sæti en Bjarni og
Kjartan urðu að láta sér nægja
þriðja sætið.
Laugardaginn 31. maí var hald-
in keppni á kjölbátum sem eru
stærri seglbátar með föstum kili
og var siglt frá Fossvogi, fyrir
Gróttu til Reykjavíkur og aftur til
baka.
Þrír bátar hófu keppni, en einn
varð að hætta af óviðráðanlegum
orsökum. Skýjaborg sem er 24 feta
bátur, smíðaður hér á landi, tók
fljótlega forustu en það dugði
henni ekki til sigurs. Auðbjörg, 27
feta, var skammt undan og endaði
sem sigurvegari á forgjöf eins og
oft áður undir stjórn Jóhanns
Níelssonar. Áhöfn Skýjaborgar
skipuðu Hlynur Ingimarsson,
Margrét Magnúsdóttir, Jón Ara-
son, og Auðbjörg sigldu Jóhann
Níelsson, ísleifur Friðriksson og
Páll Hreinsson.
Úrslit í kjölbátakeppni:
1. Auðbjörg, umreiknaður tími 3
klst. 17 mínútur.
2. Skýjaborg, umreiknaður tími
3 klst. 20 mínútur.
Úrslit á sjómannadag:
Fireball-flokkur.
1. Páll Hreinsson, Ólafur
Bjarnason.
2. Gunnlaugur Jónasson, Gunnar
Guðmundsson.
Mirror-flokkur.
1. Baldvin Björgvinsson, Óttar
Hrafnkelsson.
Optimist-flokkur.
1. Úlfar Ormarsson.
2. Sævar Már.
Opinn flokkur.
1. Rúnar Steinsen, Laser.
2. Ari Bergmann og Baldvin Ein-
arsson, Wayfarer.
Greenwood velur
Landsliðseinvaldur Englands.
Ron Greenwood, valdi i gær alla
þá leikmenn sem hann ætlar sér
að hafa með til ítaliu. að einum
undanskildum. Etlar Greenwood
að biða i lengstu lög með að
tilkynna hvort það verður Garry
Birtles, Laurie Cunningham eða
Peter Barnes sem verður leik-
maður númcr 22. En þeir leik-
menn sem valdir hafa verið, eru
eftirfarandi.
Markverðir: Ray Clemence (Liv-
erpool), Peter Shilton (Forest) og
Joe Corrigan (Man. City).
Varnarmenn: Phil Neal ( Liver-
pool), Viv Anderson (Forest), Mick
Mills (Ipswich), Phil Thomson
(Liverpool), Dave Watson (South-
ampton), Emlyn Hughes (Wolves),
Trevor Cherry (Leeds) og Ken
Sanson (Palace).
Miðvallarmenn: Ray Wilkins
(Man. Utd), Steve Coppell (Man.
Útd), Trevor Brokking (West
Ham), Glenn Hoddle (Tottenham),
Ray Kennedy (Liverpool), Terry
McDermott (Liverpool) og Kevin
Keegan (Southampton).
Framherjar: David Johnson
(Liverpool, Paul Mariner (Ips-
wich), Tony Woodcock (Köln).
Síðan annaðhvort Birtles, Cunn-
ingham eða Barnes. í fljótu bragði
virðist sem þurrð sé í framherjum
í enska hópnum, en því er til að
svara, að ef í hart fer, þá má nota
bæði Keegan og Coppell sem
framherja með góðum árangri.
Skallamet
MIKAEL Palmquist. 20 ára
gamall Svíi frá Stokkhólmi,
setti nýtt heimsmet í að
halda knetti á lofti. Hér var
um skallamet að ræða og
skallaði Palmquist knöttinn
20.100 sinnum áður en hann
missti hann niður á jörðina.
Palmquist átti gamla metið,
16.073 skipti.
Álafosshlaupið
ÁLAFOSSHLAUPIÐ fer
fram á lokadegi Íþrótta-
hátiðar Í.S.Í. og hefst hjá
Álafossi í Mosfellssveit kl.
19.45, sunnudaginn 29. júní
og lýkur á Laugardalsvelli.
Æskilegt er að þátttöku-
tilkynningar berist sem
fyrst til skrifstofu F.R.Í.
íþróttamiðstöðinni eða
pósthólf 1099, ásamt fæð-
ingardegi og ári.
Endanlegur skráningar-
frestur hefur ekki verið
ákveðinn, en mun renna út
stuttu fyrir hlaupið og verð-
ur nánar auglýstur siðar.
Dunlop- og
Vella-golfmót
um helgina
OPNA Dunlop-keppnin í
golfi verður haldin á Hval-
eyrarvcllinum og er hún
fyrir drengi og unglinga.
Fer hún fram á laugardag-
inn og hefst klukkan 13.00.
Á sunnudeginum hefst
keppnin síðan á nýjan leik
klukkan 10.00.
Á sunnudaginn klukkan
14.00 hefst siðan Vella-
golfmótið og er það kvenna-
keppni. Fer það einnig fram
á Hvaleyrarvelli.
SPORT - nýtt
tímarit
ÚT ER komið nýtt timarit
um iþróttir og heitir það
Timaritið Sport. Aðstand-
endur eru m.a. iþrótta-
fréttamenn af Dagblaðinu.
Sigurður Sverrisson og
Morgunblaðinu, Guðmundur
Guðjónsson. Fyrsta tölublað
kom út á mánudaginn og að
sögn útgefenda mun það
koma út mánaðarlega.
Efni fyrsta tölublaðs er
ákaflega fjölbreytilegt og
ekki síður skrifað um ferða-
lög, hestamennsku, veiðiskap
og bifreiðaíþróttir, en keppn-
isíþróttirnar hefðbundnu.
Tímaritið Sport kostar innan
við þúsund krónur og fæst á
flestum blaðsölustöðum, auk
þess sem það verður sent út á
landsbyggðina.
Skotar enn
í kennslu
SKOTAR riðu ekki feitum
hesti frá landsleik sínum í
knattspyrnu gegn Ungverj-
um i Budapest á laugardag-
inn. Þetta var annar leikur
skoska landsliðsins i Aust-
ur-Evrópuferð sinni. í þeim
fyrri tapaði skoska liðið
0—1 fyrir Pólverjum, en var
i raun sundurleikið. Nú tóku
Ungverjar Skotana i
kennslustund og sigruðu
3—1, eftir að staðan 1 hálf-
leik hafði verið 1—0 fyrir
Ungverja.
Ándras Toroschik skoráði
tvö af mörkum Ungverja og
Kereki það þriðja. en Ken
Dalglish skoraði eina mark
Skota á 70. minútu leiksins
og var staðan þá orðin 3—0.
Aðeins mjög góð markvarsla
Alans Rough i marki Skota
bjargaði skoska liðinu frá
enn verri útreið.