Morgunblaðið - 16.07.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.07.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1980 11 Fjármálaráðherra tek- ur 14.5 milljarða lán fyrir ríkið erlendis FJÁRMÁLARÁÐHERRA. Ragn ar Arnalds. undirritaði 23. júni sl. i London fyrir hönd islenzka rikisins samninK um töku láns að upphæð 30 milljónir Bandarikja- dollara. eða um 14,5 milljarðar islenzkra króna. við sjö erlenda banka. Lánið er tekið til að fjármagna ýmsar framkvæmdir á vegum ríkisins í samræmi við heimildir í lánsfjárlögum fyrir þetta ár og er meðal annars ætlað til vegagerð- ar, landshafna og raforku- og hitaveituframkvæmda. Lánið er til fimm ára með Bræðurnir ómar og Jón Ragnarssynir urðu sigurvegararnir i bilþeysu Húsavikur. Á myndinni sést Ómar við bil þeirra bræðra. Renault 5 Alpine. breytilegum vöxtum, sem eru % prósenti yfir millibankavöxtum í London fyrstu tvö árin, en 'h% síðustu árin. Lánið verður greitt upp í einu lagi að lánstíma liðnum. Lán þetta er veltilán, þannig að heimilt er að endurgreiða það að hluta til eða í heilu lagi áður en upphaflegur lánstími er liðinn og draga síðan á það að nýju þyki það henta. Þetta fyrirkomulag veitir aukinn sveigj- anleika, sem gerir lántaka kleift að hagnýta breyttar aðstæður á lánamörkuðum. Einnig er heimilt að draga á lánið í fleiri en einum gjaldmiðli. Lánskjör þau, sem um hefur verið samið í þessari lán- töku eru í samræmi við það sem nú gerist bezt á erlendum lána- mörkuðum. Af hálfu lánveitenda hafa Mid- land Bank 'Limited, Den Norske Kreditbank og Christania Bank og Kreditkasse haft forystu um lánið, en aðrir bankar sem aðild eiga að láninu eru Gulf International Bank, PK-Banken, Credit Suisse og Midland Bank International. Seðlabanki íslands annaðist und- irbúning lántökunnar fyrir hönd fjármálaráðuneytisins. Austfjarðaþokan Vegna mikils staóviðris að undanförnu á Austfjörðum hefur þoka legið þar yfir svo dögum og jafnvel vikum skiptir á sumum stöðum. Þessi mynd er tekin úr Oddskarði í s.l. yiku. Ljósmynd Mbl. Kristinn. Norræna húsið: Erindi um handrit- in á „Opnu húsi“ AÐ VENJU hefur Norræna húsið Opið hús fimmtudags- kvöldið 17. júlí. Þá flytur prófessor Jónas Kristjáns- son erindi með litskyggnum um íslensku handritin. Hefst það kl. 20:30 og verður flutt á dönsku. Síðan verða sýndar tvær kvikmyndir, teknar af Ósvaldi Knudsen. Eru það myndirnar Heyrið vella á heiðum hveri, sem hefur hlotið fjölda verðlauna, og Eldur í Öskju 1961. Kaffi- stofa og bókasafn hússins verða opin. Aðgangur að Opnu húsi er ókeypis og allir eru velkomnir. Bílþeysukeppnin á Húsavík: Ómar og Jón fyrstir Bifreiðaíþróttaklúbbur Húsa- víkur og Hótel Húsavík stóðu fyrir bílaþeysu á laugardaginn. Þeysan hófst á Húsavik kl. 6 árdegis. Var haldið austur yfir Reykjaheiði, austur Keldu- hverfi, um Axarfjarðarheiði, Melrakkasléttu upp Hólasand og ekin Grjótagjárleið um Mý- vatnssveit. Þar var áð á Hótel Reynihlíð. Siðan var farið norð- an við Vatn að Máskoti, niður á Laxárdal að Laxárvirkjun, yfir Hvammsheiði og komið niður við Mýrakvísl. Siðan var farið upp hjá Einarsstöðum i Reykja- hverfi og um Reykjaheiði til Húsavikur. Leiðin er alls 471 km, þar af 210 km í sérleiðum. Keppnin fór þannig fram að leiðinni var skipt í 20 áfanga. Á hvern áfanga var settur ákveðinn timi og voru öll frávik frá þeim tíma reiknuð sem refsistig. Síðan voru refsist- ig lögð saman og hlaut sá sigur sem fæst hafði refsistig. Meðal- hraði í keppni af þessu tagi er mjög misjafn, — mun hærri á sérleiðum en ferjuleiðum, þ.e. þjóðvegum. 19 keppendur tóku þátt í keppninni en 14 komust á leiðar- enda. Fjöldi fólks fylgdist með keppninni enda veður mjög gott um daginn. Úrslit keppninnar urðu þau að bræðurnir Omar Þ. Ragnarsson og Jón R. Ragnarsson urðu í efsta sæti á 8.30 mín. og óku þeir síðustu 5 km á sprungnu aftur- dekki. í öðru sæti voru Ha- fsteinn Hauksson og Kári Gunn- arsson á 10:15 mín. í þriðja sæti voru Úlfar Hinriksson og Sig- urður Sigurðsson á 12:48 mín. Eftir keppnina var haldið þeysuball í Félagsheimili Húsa- víkur og voru verðlaun afhent um kvöldið. Vill keppnisstjómin koma á framfæri þakklæti til allra sem störfuðu að keppninni eða stuðluðu að því á annan hátt að hún gæti farið fram. Áformað er að halda þarna svipaða keppni að ári. Ilafsteinn Hauksson og Kári Gunnarsson voru I öðru sæti. Hér standa þeir við bílinn sem þeir kepptu á, Datsun 160 j. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU BOLIRFRA *USA* einlitir- myndskreyttir mikiö úrval mynda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.