Morgunblaðið - 16.07.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980
Sjötugsafmæli:
Sigurður Þ. Tómas-
son stórkaupmaður
Allir þeir sem eitthvað þekkja
til Sigurðar Þ. Tómassonar hljóta
að játa, að þar eigi kiwanishug-
sjónin á Islandi sérstaklega góðan
og einlægan skjólstæðing. Sigurð-
ur hefir haft gífurlega góð og holl
áhrif á Kiwanisklúbbinn Kötlu.
Allt líf hans síðustu árin hefir
verið helgað Kötlu í tómstundum
frá erli dagsins. Sigurður er einn
fyrrv. forseta Kötlu. Hann er lífið
og sálin í þessum félagsskap.
Kiwanisklúbburinn Katla á líf sitt
að þakka ekki sízt, dæmafárri elju
og dugnaði Sigurðar Þ. Tómasson-
ar, ásamt óvenjulega skarpri til-
högunargáfu.
Forsetatíð Sigurðar Tómasson-
ar í Kiwanisklúbbnum Kötlu ein-
kenndist af óvenjumikilli reisn og
tíguleik þeirra hjóna, sérstökum
virðuleikablæ, er aldrei mun
gleymast.
Þeir eru fáir innan Kötlu í dag,
Sjávarútvegsraðuneytið
heíur ákveðið að síðasti
veiðidagur á yfirstandandi
humarvertíð verði miðviku-
dagurinn 30. júlí n.k.
Þann 14. júlí sl. var humar-
sem eins og Sigurður Tómasson
hafa kunnað að tala til Kötlu-
aflinn orðinn 1900 lestir en
heildarkvótinn á þessari ver-
tíð var ákveðinn 2500 lestir og
má ætla að aflinn nái því
marki um næstu mánaðamót.
(Frá sjávarútvetfsráOunrytinu.)
bræðra. Fáir eins og hann hafa
getað haldið fastri athygli tilheyr-
enda sinna.
Sigurður Tómasson er glæsi-
menni hið mesta. Því fylgir, að
hann er frábær smekkmaður í
klæðaburði og öðru. Framkoma og
útlit bera vott um þá snyrti-
mennsku í hvívetna, sem honum
er samgróin. Persóna hans dregur
að sér athygli hvar sem hann er.
Sigurður er sérstakur höfðingi á
mannfundum. Já, glæsimennskan,
krafturinn, fjörið og mælskan —
allt þetta er óvanalegt. Sigurður
er gleðimaður, gamansamur, víð-
lesinn og sérstaklega skemmtinn í
viðræðum. Forysta er honum eðli-
leg. Sigurður Tómasson er tryggur
vinur. Sigurður er stórkostlegur
höfðingi heim að sækja og heimil-
ið mjög fágað og smekklegt.
Sigurður er kvæntur Maggý
Flóventsdóttur.
Frú Maggý er annáluð fyrir
frábæran myndarskap, drengskap
og hjálpsemi. Hún er hin ástrík-
asta móðir, tengdamóðir og
amma. Börn þeirra hjóna: Edda
Guðrún, gift dómprófasti, séra
Ólafi Skúlasyni, eiga þau hjón 3
börn. Tómas verkfræðingur f.
1938, d. 17. jan. 1975 ókv. bl.
Sigurður og frú Maggý báru sorg
sína vegna missis Tómasar með
þeim andlega styrkleika, sem þeim
er eiginlegur.
Persónulega vil ég þakka frú
Maggý og Sigurði, hina miklu og
hlýju umhyggju, er þau hafa
auðsýnt mér frá fyrstu kynnum,
en síðan eru liðin 33 ár, fáir
óvandabundnir hafa reynst mér
betur, hvorki fyrr né síðar.
Sigurður, hugheilar hamingju-
óskir í tilefni dagsins.
Ilelgi Vigfússon.
Humarveiðum lýkur 30. júlí
sölumet,
fleiri litir
Góðir litir gleðja augað. Falleg
áferð og frábær ending Hrauns,
húsamálningarinnar frá Málningu
h.f., hefur stuðlað að vinsældum
hennar. Enda margfaldaðist salan
á s.l. ári.
Hraun hefur sýnt og sannað fram-
úrskarandi eiginleika; — við höf-
um dæmi um rúmlega 10 ára end-
ingu. Hraun er sendin akrýlplast-
málning, sem sparar vinnu: Betri
ending og færri umferðir. Ein um-
ferð af Hrauni jafngildir þrem um-
ferðum af venjulegri piastmáln-
ingu.
Nú bjóðum við ennþá meira litaúr-
val í Hrauni en áður. Lítið á lita-
kortið og fáið allar upplýsingar hjá
umboðsmönnum okkar.
I
HRAUN
SENDIN AKRÝLPLASTMÁLNING
má/ningh/f
Ferðalög til útlanda:
Slæm veðrátta í
Evrópu virðist ekki
hafa teljandi áhrif
SLÆM veðrátta hefur verið víða um Evrópu það sem af er sumri og
hefur hún haft þau áhrif að Norður Evrópubúar hafa flykkzt suður á
bóginn, þar sem veðráttan hefur verið skárri. Ekki virðist þetta þó
hafa áhrif á ferðalög tslendinga, því að þegar Morgunblaöið hafði
samband við nokkrar ferðaskrifstofur virtust allir sammála um að
tslendingar skipulegðu ferðalög sín yfirleitt með góðum fyrirvara og
hefði slæm veðrátta þvi ekki teljandi áhrif á ferðalög landans. Það
kom ennfremur fram hjá forsvarsmönnum ferðaskrifstofanna að
áberandi væri að fólk leitaði að nýjum stöðum og vildi greinilega
vikka sjóndeildarhringinn. ferðamannastraumurinn væri farinn að
dreifast á fleiri staði.
Hjá Ferðamiðstöðinni fengust
þær upplýsingar að ferðamanna-
straumurinn hjá þeim væri svip-
aður og í fyrra og er nú allt
uppbókað í Spánarferðir. Töluverð
aukning varð á Ameríkuferðum í
vor, en aðsóknin dettur niður,
þegar líða fer á sumarið.
Eysteinn Helgason hjá Sam-
vinnuferðum sagði að í heildina
væri veruleg aukning í starfsemi
þeirra frá síðasta ári. Þeir hefðu
nú lagt áherzlu á, að auka framboð
og fjölbreytni ferða sinna. Vinsæl
nýbreytni væru sumarbústaða-
ferðir til Danmerkur og væri
eftirspurnin meiri en hægt hefði
verið að anna. Eftir töluverða
byrjunarörðugleika, sem við var
að etja á Rimini, gengur allt vel
þar núna og kvað Eysteinn fólk
róma staðinn. Tveggja daga ferðir
frá Rimini til Rómar væru líka
vinsælar. Júgóslavía er alltaf jafn
vinsæl og ferðast sama fólkið
þangað ár eftir ár.
Að sögn Steins Lárussonar hjá
Úrvali hefur starfsemin gengið
mjög vel og er svipuð og í fyrra.
Að vísu væri örlítið minni umferð
úr landinu en verið hefði, en
sætanýtingin væri ekki lakari og
eru allar sólarlandaferöir uppbók-
aöar til hausts. Ameríkuferðir
urðu fljótlega vinsælar, en ekki
hefur verið eins mikill straumur
þangað eins og búizt hafði verið
við. Fólk hefði greinilega minni
fjárráð en oft áður og kæmi það
fram í því, að fólk sækti gjarnan í
styttri ferðir. Úrval er með umboð
fyrir farþegaskipið Smyril og
sagði Steinn að ferðalög útlend-
inga hingað hefðu aukizt, en aftur
á móti hefði dregið úr ferðum
íslendinga meö skipinu. Nætur-
flug Flugleiða hefði greinilega
haft áhrif bæði á þær ferðir og
sólarlandaferðir.
Ingólfur Guðbrandsson kvað
starfsemina hjá Útsýn ganga
mjög vel. Eftirspurn eftir ferðum
hefði verið óstöðvandi frá því sala
hófst og gilti það sama um alla
staði. Costa del Sol væri alltaf
jafnvinsæl og þar hefði í allt
sumar verið langbezta veðráttan á
Spáni. Aðstaða Útsýnar þar hefði
aldrei verið betri, vegna þess að í
heildina hafi ferðalög til Spánar
dregizt saman og Útsýn nyti góðra
samninga við Spánverja. Allar
ferðir til Spánar fram á haust
væru uppseldar og aukaferðir
hefðu verið farnar. Sömu sögu
væri að segja um Ítalíu, Lignano
væri alltaf jafnvinsæll og hefði
ekki reynzt unnt að útvega viðbót-
arhúsnæði til að anna eftirspurn-
inni. Þátttakan í Júgóslavíuferð-
unum var að sögn Ingólfs heldur
dræm um síðustu mánaðamót, en
nú væri svo komið að allar ferðir
væru uppseldar.
Brottfór
, hvern
laugardag
Í3javil<naferðir
til Miami Beach,
Florida
FLUGLEIDIR fS