Morgunblaðið - 16.07.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 16.07.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 2 1 Sveinn Jónsson, löggiltur endurskoðandi: Núverandi viðhorf í ávöxtun- armálum innlánsstofnana Hér íer á eítir síðari hluti erindis Sveins Jónssonar á aðal- fundi Sambands isl. sparisjóða: Nú viljið þið kannski segja sem svo, að flestir þeir sem til skamms tíma börðust hatrammlega gegn því að peningalegum sparnaði innan innlánsstofnana væru sköp- uð eðlileg vaxtarskilyrði, hafi nú skipt um skoðun í þessu efni og betri tímar fari nú í hönd fyrir innlánseigendur og innlánsstofn- anir. Til marks um það, að hið pólitíska vald hafi snúið af villu síns vegar, sé sá óræki vitnisburð- ur, að Alþingi hafi á síðasta ári lögfest fyrirmæli um það, að fyrir árslok 1980 skuli vera búið að koma ávöxtunarkjörum sparifjár í það horf, að allt sparifé, sem bundið er til þriggja mánaða eða lengur, verði tryggt gegn verð- rýrnun af völdum verðbólgunnar. Þessi lagasetning var vissulega stórtíðindi í ávöxtunarmálum og mun ég enda þetta spjall mitt á því að fara nokkrum orðum um þau viðhorf, sem nú blasa við í þessu efni. En áður en að því kemur vil ég víkja stuttlega að annarri nýrri lagasetningu, sem varðar ávöxtunarmálin, en það eru hin nýju lög um tekjuskatt og eignarskatt. Ég hef orðið þess var, að ýmsir átta sig ekki til fulls á því hvert stefnt er með skatt- skyldu sparifjár samkvæmt lögun- um. Þá hafa ný ákvæði um fortakslausa framtalsskyldu sparifjár verið mjög til umræðu. Að því er skattskylduna varðar kann það að villa mönnum sýn að einhverju leyti, að veruleg nýmæli um skattalega meðferð vaxtat- ekna og vaxtagjalda einstaklinga utan atvinnurekstrar ganga ekki gildi fyrr en við skattlagningu í árinu 1981. Sama gildir um eign- arskattskyldu innstæðna sem ein- staklingar utan atvinnurekstrar eiga í bönkum og sparisjóðum. Við álagningu á þessu ári gilda svipuð ákvæði á þessu sviði og í fyrri lögum og tel ég ekki ástæðu til að rekja þau hér. Hin nýju ákvæði sem ganga í gildi við álagningu á árinu 1981 fela hins vegar í sér miklar breytingar frá fyrri ákvæðum. Þessar breytingar varða fyrst og fremst meðferð til tekjuskatts en reglur um eignar- skatt verða svipaðar og áður. Meginefni breytinganna er í fyrsta lagi það, að allar vaxtatekj- ur, verðbætur afföll og gengis- hagnaður, sem falla í hlut ein- staklinga utan atvinnurekstrar verða nú skattfrjálsar tekjur. Að vísu er gert ráð fyrir því að þessar tekjur verði allar færðar inn á skattframtal, en síðan verði öll upphæðin færð til baka aftur sem frádráttur á framtalinu, þannig að enginn tekjuskattsstofn mynd- ist að þessu leyti. Hér er því verið að pátvíkka skattfrelsi sparifjár frá því sem verið hefur, en jafn- framt eru ávöxtunartekjur ýmissa annarra hliðstæðra eigna gerðar skattfrjálsar. í öðru lagi verður svo sú mikil- væga breyting á næsta ári, að fjármagnsgjöld (þ.e. vextir, verð- bætur, afföll og gengistap) sem einstaklingar utan atvinnurekstr- ar eiga að greiða, verða yfirleitt ekki frádráttarbær til skatts. Gerð er viss undantekning að þessu leyti varðandi vaxtagjöld af lánum, sem stofnað er til vegna kaupa eða nýbyggingar ibúðar- húsnæðis til eigin afnota. Vaxta- tekjur skerða almennt þessa frá- dráttarbærni vaxta af íbúðarlán- um, en vaxtatekjur af innstæðum í innlánsstofnunum valda ekki slíkri skerðingu. Hin nýju lög leysa því einstakl- inga utan atvinnurekstrar undan öllum skattakvöðum af tekjum, sem þeir hafa af innstæðum í innlánsstofnunum og hlýtur það að gleðja okkur sem hér erum saman komnir. En hvað er þá að segja um tekjur sem hlutafélög, sameign- arfélög og önnur skattskyld félög hafa af innstæðum i innlánsstofn- unum og hvað um slikar tekjur ef þær falla undir atvinnurekstur einstaklinga? I fljótu bragði séð virðist hér vera um skattalega íþyngingu að ræða frá fyrri lögum. Vextir af innstæðum í innlánsstofnunum, sem fallið hafa undir atvinnu- starfsemi, hafa hingað til verið skattfrjálsir að því marki sem innstæðurnar voru meiri en heild- arskuldir viðkomandi aðila. Nú verða vextirnir í öllum tilvikum skattskyldir. En hér kemur fleira til en blasir við sjónum við fyrstu skoðun. I hinum nýju skattalögum felast nefnilega almennt séð ger- breyttar reglur um skattalega meðferð á atvinnurekstri. Það yrði alltof langt mál að fara eitthvað að gagni útí þessar nýju reglur hér og skal því látið nægja að taka fram, að sé ávöxtun innstæðna atvinnufyrirtækja í innlánsstofn- unum undir verðbólgustiginu, munu fyrirtækin að jafnaði fara betur út úr hinum nýju reglum skattalega en áður var. Hér ber því að sama brunni og áður gerði um einstaklinga utan atvinnu- rekstrar. Að því er varðar meðferð til tekjuskatts gleðja hin nýju lög hjörtu þeirra, sem vilja stuðla að auknum peningalegum sparnaði fyrir milligöngu innlánsstofnana. En hvað þá um framtalsskyld- una? Er þar ekki á ferðinni óþörf og óeðlileg kvöð? Gefur sú breyt- ing ef til vill tóninn um yfirvof- andi eignakönnun og kannski aukna skattheimtu á sparifé síð- ar? Þótt ég eigi yfirleitt von á illu einu frá því opinbera, þegar skattamál eru annars vegar, held ég að engin ástæða sé til að mála skrattann á vegginn varðandi þetta atriði. Ég held að fram- talsskyldan sé fyrst og fremst til komin í þeim tilgangi að gera skattyfirvöldum auðveldara um vik að stemma framtölin af og fylgjast með lífeyri manna. Segja má sem svo, að slík afstemming sé óþarfa tortryggni og hnýsni af Síðari hluti hálfu skattyfirvalda, en eru þetta samt ekki smámunir í samanburði við margt annað sem á okkur er lagt af hálfu hins opinbera í skattamálum? Ég skil vel, að framtalsskylda sparifjár er við- kvæmt mál, og það kannski frekar í strjálbýlinu en í þéttbýli lands- ins. Ég sé hins vegar ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en kannski vill einhver taka þetta atriði upp til frekari umræðu hér á eftir. Meira ætla ég ekki að segja um skattahliðina á ávöxtunarmálun- um en skal nú víkja nokkrum orðum að því, sem er að gerast þessa dagana á þessu sviði og því sem framundan virðist vera. Vissulega var það mjög ánægju- legt, og ég vil einnig segja óvænt, að í lögum um stjórn efnahags- mála o.fl., sem nú eru rúmlega ársgömul, skyldu vera þau skýru fyrirmæli um raunhæfa ávöxtun bundins sparifjár, sem ég minnt- ist á áðan. Eftir setningu laganna stillti Seðlabankinn kompásinn þegar í stað og markaði þá áfanga, sem skila áttu okkur að settu marki í árslok 1980. Fyrstu áfang- arnir voru framkvæmdir af mynd- arskap, en svo kom babb í bátinn, þegar kom að áfanganum 1. marz síðastliðinn. Fresturinn sem þá var ákveðinn samkvæmt ósk nýrr- ar ríkisstjórnar rýrði vissulega trú manna á það, að sá sigur væri unninn, sem lögin um stjórn efnahagsmála gáfu fyrirheit um. Þráðurinn var svo tekinn upp að nýju í byrjun þessa mánaðar, en það sem meginmáli skipti í þeirri vaxtaákvörðun, sem þá var gefin út, var það, að innlánsstofnunum var heimilað, þegar tæknilegum undirbúningi væri lokið, að taka við innlánum með þeim skilmálum að höfuðstóll miðist að fullu við lánskjaravísitölu, eins og það er orðað í vaxtatilkynningunni. Af hálfu Seðlabankans var tekið fram, að í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar hafi verið gert ráð fyrir því, að slíkir fullverðtryggðir reikningar yrðu teknir upp. Segja má þó, að aðdragandi þessa máls hafi falist í heimild sem innláns- stofnanir fengu 1. júní 1979 til að opna útlánaflokk með fullri verð- tryggingu og 2% vöxtum. Þið vitið sennilega betur en ég hvernig þessi mál standa á þessu augna- bliki en mér skilst að samstaða hafi nú tekist um tæknilegar hliðar málsins og í dag mátti lesa í blöðum, að hinir nýju reikningar yrðu teknir upp um 1. júlí næst- komandi. Þessir reikningar skapa ger- breytt viðhorf í starfsemi inn- lánsstofnana. Þeir geta, ef vel tekst til, skipt sköpum um þróun hins frjálsa peningalega sparnað- ar hér á landi. Vissulega hefur margoft verið á það bent, að föst vísitölubinding sé mjög erfið í framkvæmd hjá innlansstofnun- um, en það breytir því ekki að við hljótum að fagna þessum nýju reglum heils hugar og treystum því að vel takist til með fram- kvæmdina. Mig langar til að draga að lokum saman í örstuttu máli þau meginatriði og viðfangsefni, sem mér finnst að nú blasi við í ávöxtunarmálum. í fyrsta lagi er ljóst, að takist framkvæmd hinna verðtryggðu innlána eins og vonast er til, hljóta þau fyrr en varir að leysa vaxtaaukainnlánin af hólmi sem megininnlánaflokkur bundins sparifjár. í öðru lagi verður að leggja í TILEFNI 100 ára afmælis skólahalds á Akranesi, hefur verið gefinn út á vegum Akra- neskaupstaðar, veggskjöldur með teikningum eftir lista- manninn Tómas Tómasson. Neðst er húsið, sem barna- skólinn byrjaði í fyrir 100 árum. T.v. hús barnaskólans, sem var tekið í notkun árið 1912 og lengi var aðsetur Iðnskóla Akraness. áherzlu á, að samtímis því að verðtryggðu innlánin festa sig í sessi, þarf að marka skýra stefnu varðandi innlánaform og ávöxtun- arkjör óverðtryggðra innlána. Ljóst er að núverandi 12 mánaða vaxtaaukareikningar eiga sér ekki lífsvon við hlið hinna verðtryggðu reikninga. En hver á framtíð 3ja mánaða vaxtaaukareikninganna að vera? Á t.d. að halda til streitu lagafyrirmælum um að ávöxtun- arkjör þeirra verði komin upp í verðbólgustigið í lok þessa árs? Hvernig á svo að aðlaga ávöxtun- arkjör almennra bóka og veltiinn- lána hinum nýju viðhorfum? í þriðja lagi þarf einnig að marka skýra stefnu á útlánahlið- inni, bæði varðandi þá útlána- flokka, sem þar verða leyfðir og ávöxtunarkjör þeirra. Eðlilegt samband þarf að vera milli láns- tíma, annarra lánsskilmála og áhættu annars vegar og vaxta og annars fjármagnskostnaðar hins vegar. Ég held að óhætt sé að segja að núverandi ástand í þessu efni sé ekki til neinnar frambúðar. Síðast en ekki sízt verðum við svo að átta okkur á því, að framundan er áframhaldandi bar- átta fyrir því að skapa og treysta þau skilyrði, sem nauðsyðsynleg eru til að peningalegur sparnaður geti þrifist hér á landi. Þótt byrlegar virðist blása í þessu efni nú í bili en verið hefur um mjög langt skeið, geta ýmsar ástæður valdið því að það slái í bakseglið fyrr en varir. Og jafnvel þótt óskabyr haldist um sinn, þarf kunnáttu og dugnað til að nýta hann til fulls. Ég veit, að forráða- menn sparisjóðanna gera sér skýra grein fyrir þessum stað- reyndum og að þeir líta á það sem frumskyldu sína að berjast fyrir því að peningalegur sparnaður hafi sem best vaxtarskilyrði í landi okkar. Með þrotlausri við- leitni á þessu sviði er ekki aðeins stefnt að traustari rekstri og aukinni þjónustu sparisjóða og annarra innlánsstofnana, heldur er jafnframt verið að leggja grundvöll að auknu réttlæti og stórstígari efnahagslegum fram- förum á þessu landi. T.h. núverandi hús barnaskól- ans, sem upphaflega gekk undir nafninu Brekkubæjarskóli og efst er fjölbrautaskólinn á Akranesi, en á þessu skólaári útskrifuðust einmitt fyrstu stúdentarnir frá honum. Veggskjöldurinn verður seld- ur á bæjarskrifstofunni á Akra- nesi. Akranes: Veggskjöldur gef- inn út í tilefni 100 ára skólahalds smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Bing & Gröndal Oanskur .Mæöradagsplalti" 1969 óskast keyptur. Gjöriö svo vel og hrlngiö í síma 13203. þjónusta a aA a A A A . Veröbréf Fyrirgreiösluskrifstofan Vesturgötu 17, síml 16223. 3ja herb. íbúö óskast til leigu. Uppl. hjá starfs- mannahaldi í síma 29302. St. Jósepsspítalinn Reykjavík. Hafnarfjöröur 4ra—5 herb. íbúö óskast á leigu í sept. Uppl. í S. 51446. íbúö óskast strax. Tveir í heimlll. Algjör reglusemi. Uppl. í síma 43689 og 27912. Hörgshlíö 12 Samkoma í kvöld kl. 8. Kristniboöasambandiö Sambænastund veröur í kristni- boöshúsinu Betanía, Laufásvegi 13, í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Fíladelfía Tjaldsamkomurnar viö Lauga- lækjaskóla halda áfram í kvöld og næstu kvöld kl. 20.30. Kunnir prédikarar tala. Fjölbreyttur söngur. UTIVISTARFERÐIR Miöv.d. 16.7. kl. 20. Selin á Almenningi, létt kvöld- ganga sunnan Hafnarfjaröar. Verö 3000 kr. frítt f. börn m. fullorönum. Fariö frá B.S.Í. benz- ínsölu (í Hafnarf. v. kirkjugarö- inn). Feröir um næstu helgi: 1. Þóremörk, gist i tjöldum. 2. Hrafntinnusker, gist í tjöldum eöa húsi. 3. Landmannalaugar, einsdags- ferö á sunnudag. Farseölar i þessar feröir á skrifst., Lækjarg. 6a. Hornatrandir, vika, 25.7. Laugar-Þóramörk, gönguterö. 24 —27. júlí. Noröur-Noregur i ágústbyrjun. írland, allt innifaliö. i ágústlok. Utiviat, s. 14606. 18 —20 júlí. Farö út í bláinn. Uppl. á skrifstofunni Laufásvegi 41. sími 24950. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. 16. júlí kl. 20: Óttarstaöir — Lónakot (kvöldferö). Farlö frá Umferöarmiöstööinni aö austanveröu Farmiöar seldir viö bílinn. Verö kr. 3.000 - FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 18.—20. júlí: 1. Hungurfit — Tindatjallaiökull Gist i tjöldum 2. Hveravellir — bjófadalir (grasaferö). Gist í skála. 3. Landmannalaugar — Eldgjá. Gist í skála 4. Þórsmörk. Gist í skála. 5. Álftavatn á Fjallabaksveg syöri. Fyrsta feröin í sumar Gist í skála. Leitiö upplýsinga á skrifstotunni Öldugötu 3.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.