Morgunblaðið - 16.07.1980, Side 29

Morgunblaðið - 16.07.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 29 1 . r? V ~ - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13—14 FRÁ MÁNUDEGI US'M 1L • Kirkjusöngur Á virkilega að fara að inn- leiða gregoriskan söng við guðs- þjónustur landsins? Á að færa okkur aldir aftur, til að upplifa ömurlegasta tímabil íslands, útburðarvæl og helvítis- kenninguna? Við, sem komin erum um og yfir miðjan aldur, munum enn frá- sagnir gamla fólksins, hræðslu og ótta við kenningar kirkju þeirra tíma. Óttann við að deyja, óttann við eldinn í helvíti, biðjandi guð um grið. Gregoriskur söngur minnir um of á þetta tímabil, og það er stór þögli meirihlutinn í landinu í dag, sem man þessar horfnu kynslóðir. Kirkjusöngur landsins undan- farin ár hefur hljómað yndislega og veitt sálum okkar fögnuð. Hrekið okkur ekki úr íslensku Þjóðkirkjunni gott fólk, þið sem viljið breyta sálmasögn í kirkjum okkar. Eg vona, að þeir sem unna fögrum kirkjusöng láti í sér heyra um þetta mál. Að lokum sendi ég Ljóðakórnum hjartans þakkir fyrir undurfagran söng. Kristín Bjarnadóttir. Innleiðum ekki „fornaldarsöng“ í kirkjunum Hér með heiti ég á söfnuði landsins og kirkjukóra að berjast á móti — ef ekki með góðu, þá kjafti og klóm, að uppvakningur frá miðöldum komi aldrei í stað hátíðarsvara Bjarna Thorsteins- sonar! Það sýnishorn af gregoriskum messusöng, sem ég heyrði í fréttatíma útvarpsins í gær, sunnudaginn 13. júlí, og á að þvinga uppá þá fáu safnaðarmeð- limi, sem enn stunda kirkjusókn í hvaða veðri sem er, og oft á tíðum sitja undir ádeiluræðum prest- anna, líkt og skylduræknir kór- meðlimir vandfýsinna söngstjóra, sem orðnir eru eins og mý á mykjuskán, og alltaf skamma þá sem mæta fyrir hina sem ekki mæta, að ég minnist ekki á okkur söngfólkið sem árum saman þurf- um að syngja bæði langa sálma og leiðinlega, gerði það að verkum að við lá að blóðið frysi í æðum manns. Það er ekki meiri tónstígandi eða fegurri bæn í þessum fornald- arsöng, er minnir á galdrabrenn- urnar, og einhver stúderaður mús- ikhópur ætlar að reisa sér með bautastein, óverðskuldað, en til dæmis í sumarsvörunum okkar eftir Sigfús Einarsson. Guð er andi — og þeir sem tilbiðja hann — eiga að tilbiðja hann í anda og sannleika! Nær væri að taka til handar- gagns lög og ljóð okkar ástsælu þjóðskálda — Eitt örstutt spor — Nú andar suðrið — og svo fram- vegis — eða lífga uppá hljóðfæra- skipan kirkjunnar með harmo- nikku jafnvel, en leiða okkur á næturfund steindauðra klerka og preláta í Galdra-Lofti Jóhanns Sigurjónssonar. Með þökk fyrir birtinguna. Guðrún Jacobsen. Þessir hringdu . . . • Gos er ekkert gleðiefni! höfn segir að orsökin hafi að öllum líkindum verið lekir bens- íntankar. Ef geymarnir í Kletta- görðum spryngju, yrði lítið eftir af Kleppsholtinu. Er því ekki mál að hyggja að þessu áður en illa fer? • „Hvar er þessi hræódýra olía?“ Barnakerling fyrir austan hringdi: Við vorum að velta því fyrir okkur nokkrar konur, hvar þessa „hræódýru olíu“ sem „Mörður Hrappsson" talar um í bréfi sínu 13. þ.m. er að finna. Ég borga u.þ.b. 75—80 þús. kr. á mánuði og bý í 120 fermetra húsnæði. Það væri ekki ónýtt að geta komið hitunarkostnaðinum niður í að vera á ári það sem hann er nú á mánuði. Svo ef „dr. Mörður" getur komið mér í samband við þessa markaði, sem hann virðist vita af, væri það vel þegið. Listakonan, Unnur Ólafsdóttir, lcngst til vinstri. ásamt stjórn Kvenfélags Landakirkju: Anna Erlendsdóttir. Katrin Þorlindsdóttir. Fjóla Jensdóttir. Mary Gunnarsdóttir. Ragnheiður Jónsdóttir. Dóra Úlfarsdóttir og Disa Jóclsdóttir. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir. 200 ára afmæli Landakirkju: Gáfu hátíðarhökul og altarisklæði Kvenfélag Landakirkju í Vest- mannaeyjum hefur í tilefni af 200 ára afmæli Landakirkju látið gera altarisklæði og hvítan hátíðahök- ul sem félagið gaf kirkjunni. Bæði klæðin gerði Unnur Ólafsdóttir. Kirkjunni bárust fleiri gjafir í tilefni afmælisins og hefur verið sagt frá þeim í Mbl. Sitthvað er gert í Eyjum til þess að minnast afmælis kirkjunnar og m.a. hélt Kirkjukór Landakirkju sérstaka hátíðartónleika í vor þar sem flutt var hátíðarmessa eftir Haydn. Þá sótti biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson kirkjuna heim og predikaði þar. Séra Kjartan Örn Sigurbjörns- son í nýja höklinum sem kvenfé- lagið gaf. Þóra hringdi og vildi taka undir orð Ásgerðar Jónsdóttur í Velvakanda 15. þ.m. um gosið í Kröflu og viðbrögð manna við því. Sagðist Þóra aldrei hafa vitað til þess að náttúruhamfarir væru neitt gleðiefni og því líkaði sér ekki orðbragð það sem þeir er, um gosið fjölluðu, viðhefðu um það. • Lítum okkur nær Langholtsbúi hringdi: Er ég heyrði fréttina um sprenginguna miklu í Kaup- mannahöfn í morgun, varð mér strax hugsað til kósangasgeym- anna tveggja, gríðarstórra, sem eru í Klettagörðum. Hræddur er ég um að öryggisráðstafanir séu þar af skornum skammti, en í fréttum af slysinu í Kaupmanna- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Trsten- ik í Júgóslavíu í fyrra kom þessi staða upp í viðureign heimamanna Ciric. sem hafði hvítt og átti leik, og Popvic. 21. Hxg7+! - Rxg7, 22. Hg3 - f5 (eða 22.... Kf8, 23. Dxg7+ - Ke8, 24. Dh8+ - Ke7, 25. Df6+ og mátar) 23. exf6 og svartur gafst upp. HÖGNI HREKKVÍSI ..tei VAÖ 1.« SV& 'A KMAe&AHOMr Kubbahús af stærri gerðinni Trésmíðaverkstæði Erlendar Péturssonar í Vestmannaeyjum er um þessar mundir að byggja hús úr steyptum stórum einingum, en eins og sjá á þessum myndum Guðlaugs Sigurgeirssonar í Vestmannaeyjum er hinum stóru einingum raðað á ótrúlega skömmum tíma með stórum krana. Er húsið sett saman eins og pússluspil. S2F SIGGA V/öGA £ ^LVtRAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.