Morgunblaðið - 16.07.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980
«»
„Islendingar geta
verið stoltir“
— sagði Tony Knapp eftir
landsleikinn
MEÐAL áhorfenda á landsleik
íslands og Noregs var Englend-
ingurinn Tony Knapp, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari íslands i
knattspyrnu. Tony Knapp þjálf-
ar eins og kunnugt er norska
liðið Viking og var hann á
landsleiknum í boði norska blaðs-
ins Verdens Gang. Fyrir lands-
leikinn birtist opnuviðtal i blað-
inu við Knapp um íslenska
knattspyrnu og starf hans á
íslandi. Eins og kunnugt er,
hefur Tony jafnan verið klókur
að auglýsa sjálfan sig og i
viðtalinu fór hann nokkuð frjáls-
lega með árangur íslenska liðsins
meðan það var undir hans stjórn.
Eftir leikinn ræddi Mbl. við
Tony Knapp og sagðist hann hafa
beðið spenntur eftir leiknum. „Ég
hef ekki séð íslenska landsliðið í
þrjú ár og þess vegna hlakkaði ég
til að sjá hvernig staðan væri.
íslendingar geta verið mjög stoltir
af liði sínu eftir þennan leik. Liðið
lék án næstum allra atvinnu-
manna sinna og er með ólíkindum
hve góðir knattspyrnumenn eru til
heima fyrir. Islenska liðið náði að
skapa sér mjög góð marktækifæri
og lið sem gerir slíkt leikur góða
knattspyrnu. Það er nú einu sinni
mesti vandinn í knattspyrnunni
að skora mörk, en þar gekk dæmið
ekki upp hjá íslenska liðinu" sagði
Tony Knapp og hélt áfram:
„Eg hef marg sinnis reynt að
útskýra fyrir fólki hér í Noregi
hvernig það er að leika knatt-
spyrnu á Islandi. Það skilur mann
ekki nokkur maður og fólk hlær
bara þegar það síðan sér liðið
leika jafn vel og það gerði gegn
Noregi." — þr.
SINDRA
STALHE
SINDRA STAL
Íþvíliggur
styrkurinn
Það sem steypt er þarf að styrkja
með stáli — Steypustyrktar stáli.
Steypustyrktarstál er ein af okkar
sérgreinum.
Við geymum stálið í húsi, sem
heldur því hreinu og gljáandi,
þannig verður það þægilegra í
vinnslu og sparar tíma. Markmið
okkar er fljót og góð sendingar-
þjónusta.
Notaðu aðeins gott steypustyrktar-
stál, í því liggur styrkurinn.
Borgartúni31 sími27222
• Jóhann Ingi
„EF ÉG hefði alltaf farið eftir þvi
sem Július Hafstein sagði, væri
staða islenska landsliðsins i
handknattleik ekki hin sama og
hún er i dag. Nú erum við i hópi
16 bestu liða heims og liðið
skipað leikmönnum undir 21 árs
náði 7. sæti á HM í fyrra. Staðan
er því góð og hún getur orðið
betri ef rétt er haldið á spilun-
um“ sagði Jóhann Ingi Gunnars-
son á blaðamannafundi i gær, en
þar tilkynnti hann formlega að
frá og með 1. september myndi
„Ef ég heföi
alltaf hlustaö
á Júlíus ...“
hann segja starfi sinu sem lands-
liðsþjálfari íslands lausu.
Jóhann Ingi hélt áfram: „Munn-
legt samkomulag um kaup, kröfur
og stefnu í landsliðsmálum náðist
milli mín og gömlu HSÍ-stjórnar-
innar. í kaupkröfunum var farið
milliveginn og samið um að ég
fengi 710.000 kr. á mánuði. (Þess
má geta, að það er mun minni
upphæð heldur en flestir 1. deildar
þjálfararnir þiggja, innsk. blm.)
Síðan fór ég til Póllands, en þegar
heim kom blasti við allt annað
viðmót frá nýkjörinni stjórn HSÍ.
Mér vour boðin 520.000 á mánuði
og einungis umsjón með A-lands-
liðinu. Ég leit svo á, að stjórnin
nýja hefði hafnað mér og þetta
væri kurteislegt uppsagnarbréf.
Leiðir hlutu að skilja, ég ræð mig
ekki í æðstu þjálfarastöðu lands-
ins á lakari kjörum en þjálfarar
lélegustu liða gera“, sagði Jóhann
Ingi að lokum. _ „„
HSÞ og Árroðinn
efst í D-riðli
UM HELGINA voru að venju
leiknir 2 leikir í báðum norður-
landsriðlum 3. deildar. í D-riðli
sigraði Magni Árroðann sem var
efstur fyrir þessa umferð, og
HSÞb og Leiftur skildu jöfn,
hvort lið skoraði eitt mark.
Magni skoraði 4 mörk gegn einu
marki Árroðans. Sigurður
Illugason skoraði þrennu fyrir
Magna, þar af 2 mörk úr vita-
spyrnum. Fjórða mark Magna
var sjálfsmark eins af varnar-
mönnum Árroðans. örn
Tryggvason skoraði mark Árroð-
ans. í leik HSÞb og Leifturs
skoraði Jónas Þór Hallgrímsson
fyrir heimamenn en Guömundur
Garðarsson skoraði fyrir Leiftur.
HSÞb og Árroðinn eru nú efst og
jöfn i riðlinum nTeð 6 stig eftir 5
leiki.
í hinum riðlinum, E-riðli, sigr-
aði Tindastóll Dagsbrún með fjór-
um mörkum gegn einu. Mörk
Tindastóls skoruðu Þórhallur
Ásmundsson, Sigurfinnur Sigur-
jónsson, Örn Ragnarsson og eitt
markanna var sjálfsmark. Einnig
léku Efling og Reynir og fór
Reynir með sigur af hólmi, Reyn-
ismenn skoruðu 4 mörk en Efling
skoraði aðeins eitt. Jens Sigurðs-
son skoraði 2 mörk fyrir Reyni,
bæði beint úr aukaspyrnum, Björn
Friðþjófsson og Guðmundur Her-
mannsson skoruðu eitt mark hvor,
Þórarinn Illugason skoraði mark
Eflingar. Tindastóll er efstur í
E-riðli með 10 stig eftir 5 leiki og
bendir allt til þess að þeir komist í
úrslit, þó allt geti að sjálfsögðu
skeð ennþá. Reynir er í öðru sæti
með átta stig eftir fimm leiki en
þeir hafa tapað fyrir Tindastól.
— sor.
’HaFið þið heyrt um hjónin sem
máluðu húsið sitt
með HRAUNl fyrir 15 árum.
03 ætla nú að endurmála það í sumat
bata til að bteyla um lit.”
Sögurnar um ágæti þessarar
sendnu akrýlmálningar,
HRAUN-málningarinnar frá
Málningu h/f magnast með
árunum, og hróður hennar
eykst með hverju árinu, sem
líður.
Nú, eftir að HRAUN hefur
staðið af sér íslenska veöráttu i
rúmlega 15 ár, er en ekki
vitað um hinn raunverulega
endingartíma þess, sé það
notað rétt í upphafi.
Þess vegna gerir þú góð kaup,
þegar þú velur HRAUN á
húsið.
HRAUN má/ning