Morgunblaðið - 13.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 13. ÁGÚST 1980 3
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Öryggismálanefnd:
Störf nefndarinnar eru í
hættu vegna útúrsnúninga
UNDIRRITAÐIR fulltrúar Sjálf
stæðisflokksins i Örygífismála-
nefnd mótmæla málatilbúnaði
Ólafs Ragnars Grimssonar, for-
manns þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, sem hann segir byggðan
á greinargerð nefndarinnar
vegna umræðu og skrifa um
kjarnorkuvopn á íslandi og samin
var að tilmælum utanríkisráð-
herra.
í viðtali við Þjóðviljann, sem
birtist 12. ágúst, endurtekur Ólaf-
ur Ragnar Grímsson staðhæfingar,
er hann fyrst kynnti í fréttatíma
útvarpsins, og segir byggðar á
greinargerð Öryggismálanefndar,
sem sé, að tveir fyrrverandi banda-
rískir hershöfðingjar fullyrði, að
hér séu geymd kjarnorkuvopn. Með
þessu afflytur Ólafur Ragnar
Grímsson greinargerð nefndarinn-
ar og það, sem þar segir.
í fyrsta lagi lætur hann ekki
getið núverandi starfa þessara
manna, sem hér um ræðir en þeir
eru Gene La Rocque, fyrrum flota-
foringi, forstjóri stofnunarinnar
Center for Defense Information í
Washington, og B.K. Gorwitz, fyrr-
um hershöfðingi, aðstoðarforstjóri
stofnunarinnar. í öðru lagi lætur
— gagnrýna fram-
komu formanns
þingflokks
Alþýðubandalags
hann þess ekki getið, að til þessar-
ar stofnunar einnar er unnt að
rekja allar fullyrðingar erlendra
aðila um að hér á landi kunni að
vera kjarnorkuvopn. í þriðja lagi
lætur hann þess ekki getið, að
rannsóknarstarfsmenn þessarar
stofnunar töldu heimildir hennar
fyrir þessum fullyrðingum, sem
fyrst birtust 1975, ekki nægilega
áreiðanlegar en forstjóri stofnun-
arinnar tók málið úr þeirra hönd-
um og ákvað útgáfu. I fjórða lagi
lætur hann þess ekki getið, að
Gene La Rocque segist ekki vera
100% öruggur um að staðhæfing
sín um kjarnorkuvopn á íslandi sé
rétt. í fimmta lagi lætur hann þess
ekki getið, að Gene La Rocque
sagði, þegar hann var beðinn um
heimildir fyrir niðurstöðunni frá
1975, að stofnun sin hefði með 156
ríki í heiminum að gera og hefði
ekki tíma til að fara ofan í mál,
sem væri orðið fimm ára gamalt. í
sjötta lagi lætur hann þess ógetið,
að með greinargerð Öryggismála-
nefndar fylgi sem fylgiskjal yfir-
lýsing Center for Defense Inform
ation, sem fyrst var birt opinber-
lega hér á landi í Morgunblaðinu
31. maí. Er það eina staðfesta
opinbera yfirlýsing stofnunarinnar
um þetta mál og þar er kveðið svo
að orði: „NATO flotastöðin á ís-
landi er einn þeirra staða, þar sem
ýmislegt bendir til, að finna megi
kjarnorkuvopn.” Og í sjöunda lagi
lætur Ólafur Ragnar Grímsson
þess ógetið, að umræddir fyrrver-
andi yfirmenn í Bandaríkjaher
hafa aldrei gegnt neinum skyldu-
störfum í beinum tengslum við
ísland.
Við teljum það dæmi um mikinn
einfeldningshátt að byggja alfarið
á yfirlýsingu þessara tveggja for-
stöðumanna Center for Defense
Information og neita á þeim
grunni alfarið að viðurkenna gildi
allra þeirra staðfestu yfirlýsinga,
sem fyrir liggja, um að hér á landi
séu alls ekki kjarnorkuvopn. Verða
menn að efast um vilja þeirra, sem
þannig láta til að leggja hlutlægt
mat á hagsmuni íslands í utanrík-
is- og varnarmálum. í greinargerð
Öryggismálanefndar er leitað
fanga hjá fjölmörgum öðrum aðil-
um, sem ekki telja líklegt, að hér sé
að finna kjarnorkuvopn.
í Þjóðviljanum 12. ágúst 1980
segir Ólafur Ragnar Grímsson:
„öryggismálanefndin hefur aflað
sér upplýsinga um það hvernig
öryggisgæslu kjarnorkuvopna sé
háttað erlendis, og er sú lýsing
óhugnanlega lík þeirri öryggis-'
gæslu sem nú fer fram á Patter-
sonflugvelli í Keflavík."
Hér er mjög hallað réttu máli. I
greinargerð Öryggismálanefndar
er stuttlega lýst gerð kjarnorku-
vopnageymslna og öryggisgæslu
við þær. Nefndin hefur ekki gert
neinn samanburð á þeim upplýs-
ingum og ráðstöfunum á vegum
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Á það var bent í umræðum
nefndarinnar um þetta mál af
okkur fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins, að komi í ljós eftir að frekari
gagna hefur verið aflað, að búnað-
ur varnarliðsins sé á einhvern hátt
svipaður því og er við kjarnorku-
vopnageymslur erlendis, felist
hvorki í því að hér séu kjarnorku-
vopn né þau séu hér ekki. Viðbún-
aður hers er miðaður við verstu
hugsanlegu aðstæður og í honum
kann að felast að nauðsynlegt sé að
taka á móti kjarnorkuvopnum á
íslandi á hættustundu eða í neyð-
artilvikum. Þann möguleika hafa
hvorki íslensk stjórnvöld né erlend
útilokað, en til þess þarf samþykki
íslensku ríkisstjórnarinnar.
Við höfum litið svo á, að með
Öryggismálanefnd ætti að stuðla
að skynsamlegri umræðum um
öryggi lands og þjóðar og byggja í
því efni á haldgóðum upplýsingum.
Hafa störf okkar í nefndinni við
það miðast. Ekki virðist hið sama
vaka fyrir Ólafi Ragnari Gríms-
syni eins og hér hefur verið lýst.
Hefur hann tileinkað sér hefð-
bundin vinnubrögð andstæðinga
þeirrar stefnu, sem hefur reynst
þjóðinni farsæl í öryggismálum í
rúm 30 ár. Eigi að leiða Öryggis-
málanefnd inn á braut útúrsnún-
inganna, teljum við heppilegast, að
nefndin verði strax lögð niður.
12. ágúst 1980.
Matthias Á. Mathiesen.
Björn Bjarnason.
SIÐASTATÆKIFÆRI!
TUTTUGU T0MMU TÆKIN ERU UPPSELD
ÖRFÁ26” C0L0RAMA TÆKI EFTIR
TVÖHUNDRUÐ ÚT 0G 722.222*
ÁFIMMMÁNUÐUM
Philips gædi
Litasjónvarpstœkin frá Philips eru
viðurkennd fyrir topp-gæði, - bæði hér-
lendis og erlendis.
Philips kann tökin á tækninni, enda
hafa fjölmargir framleiðendur annarra
tækja valið Philips tæknibúnað og
myndlampa í framleiðslu sína.
Philips Colorama er 26 tommu sér-
hönnun frá Eindhoven, eitt besta sem
Philips hefur framleitt.
Colorama er Philips vara. Það eitt
tryggir gæðin.
Sérstökkjör
Fyrir þá, sem vilja eignast fullkomið
Philips Colorama litasjónvarpstæki
með afborgunarskilmálum; getum við
boðið þau með 200.000 króna útborgun
og eftirstöðvamar á fimm mánuðum.
Þessi kjör eru einungis bundin við
Philips Colorama tækin á meðan
birgðir endast.
Það er ósennilegt að við getum boðið
sambærilegt verð og kjör á öðrum
tækjum seinna meir.
Adeinsein scnding
Við hjá Heimilistækjum hf. vorum svo
ljónheppin að komast að sérstöku sam-
komulagi um eina sendingu af hinum
þekktu Philips Colorama litasjónvarps-
tækjum. Þetta þýðir það, að við getum
boðið tækin úr þessari einu sendingu
fyrir aðeins 922.222 krónur.
Þeir, sem staðgreiða tækin fá jafnframt
5% afslátt.
Þvi miður getum við aðeins bundið
þetta tilboð við Colorama tækin - og
sennilega aðeins úr þessari einu
sendingu.
Hafðu samband
Söludeild okkar i Hafnarstræti 3 og
verslunin að Sætúni 8 mun sýna og
selja Philips Colorama næstu daga.
Komdu og skoðaðu myndgæðin.
Þvi miður getum við ekki tekið tæki frá
fyrir þig. Þú verður að koma niðureftir
ef þú vilt tryggja þér tæki.
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.