Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MANUDEGI • Hornsteinninn 0661-1605 skriíar: Kæri Velvakandi Lítil hugleiðing. Ég hef verið að hugsa um andúð kristinna manna (til eru undantekningar) á þeim söfnuðum sem þeir tilheyra ekki. Þeir líta hver á annan og segja. Þessi fer í Fíladelfíu og hinn fer í Hjálpræð- isherinn og annar í þjóðkirkjuna og margir á samkomu hjá Sam- hjálp á Hverfisgötu 44 þar sem hvatt er til að menn og konur beini sjónum sínum til Jesú, hornsteinsins sem lagður hefur verið mönnum til hjálpræðis og er bjargið sem byggja má á. • Þar sem Kristur er upphafinn Margur maðurinn þekkir ekki og byggir þess vegna á ótraustum grundvelli sem skolast burt þegar stórsjóirnir koma yfir okkur í allskonar myndum. Grundvöllur- inn Kristur bregst ekki, það vita þeir sem beina sjónum sínum til Jesú Krists sem er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Og þar sem Kristur er upphafinn þar er gott að vera. í Ritningunni er ritað: hver sem á hann trúir mun ekki til skammar verða, því að með hjart- anu er trúað til réttlætis en með munninum játað til hjálpræðis. • Margir herrar Öll eigum við okkur herra, það hafa verið margir herrar í mínu lífi um dagana, til dæmis bakkus og fleiri, en þeim fækkar og fækkar og þökk sé Jesú Kristi sem býður fólki að beina sjónum sínum til sín og segir: Komið til mín, ég er Vegurinn, Sannleikur- inn og Lífið. Ég þakka fyrirfram birtinguna og bið þess að kærleikur Krists búi áfram ríkulega í hjörtum ykkar. Sæl að sinni." 0661-1605 Ásgeir Eggertsson. Þessir hringdu ‘him^ yic Cg- • Hvað varð um fánalitina? H.M. hringdi og spurðist fyrir um fánalitina, sem ein- kenndu skip Skipaútgerðar ríkis- ins. — Ég sé ekki betur en búið sé að mála yfir fánalitina og klessa einhverju forljótu merki á skipin í staðinn, á víst að vera R sýnist mér. Hvað í ósköpunum veldur þessari breytingu? Hver hefur verið að ráðskast þarna með viðkvæma hluti? • Talið íslensku, gott fólk Erlendur i útlöndum hringdi og sagðist vera í fríi heima á Fróni, sig hefði oft langað til að láta frá sér heyra um lítilræði er hann hefði komið heim í frí og nú léti hann verða af því. — Þegar ágætir landar mínir, sem reka mikilvæg erindi í landinu sem ég bý í, eru teknir tali af þarlendu sjónvarpsfólki, bregst það ekki, að landinn svarar á „sænsku", „norsku", „dönsku“ eða „skandi- SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Sovétríkjunum í fyrra kom þessi staða upp í viðureign meistaranna Vitolins, sem hafði hvítt og átti leik, og Jurtajev. 23. Re6+! (23. ... fxe6 er hægt að svara með 27. Bg5+) Kg8, 24. Hd8+ — Hxd8, 25. Rxd8. Nú hótar hvítur illilega 26. Bf6 og 26. ... Bg7 yrði svarað með 26. Ha8. Svartur reyndi Kg7 og gafst upp um leið, því svar hvíts verður auðvitað 27. Re6+! navísku", og oft er alls ekkert hægt að setja út á málakunnáttu viðkomandi. En hins vegar má geta þess, að með myndinni í sjónvarpinu kemur ávallt texti á skjáinn, svo að allt komist nú til skila. Mér leiðist það alltaf þegar starfsfélagar og kunningjar koma til mín og segja: Nei, hvað íslensk- an er lík okkar máli, maður skildi svo til hvert orð. Má ég biðja ykkur, ágætu land- ar í mikilvægum erindrekstri er- lendis að tala ástkæra ylhýra málið, þegar sjónvarpsmenn taka ykkur tali; það mun samt komast til fólksins hvað þið eruð að segja. • Svartar kartöflur Ilulda Gunnarsdóttir hringdi og bað um að þeirri fyrirspurn yrði komið á framfæri, hvers vegna nýjar kartöflur litu ekki út eins og nýjar kartöflur; með þunnu og ljósu hýði, sem hægt væri að strjúka af með fingrinum, en best að borða með kartöflunum. — Nú fær maður ekki annað en sótsvarta drjóla með svellþykku hýði, og ekki er viðlit að borða það með, allt verður að skræla. Og svo finnst mér skrýtið að geta ekki valið um stærðarflokka, ég veit að það er víða mögulegt erlendis. & SlGeA V/GGA í “í/LVEgAW fflT::*’? % 'f '"VI í« -V Á ferðÍ^trugfsOmanð 1980 Leikir, gatur, þrautir og sögur an gli Umsión Rún* Gísladóinr og Þórlr S Guöbergsson Góðir siðir Það þykir góður siður að venja börn á að fara til kirkju. Víða í kirkjum landsins eru sérstakar helgistundir eða sunnudagaskól- ar fyrir börn. Stundum eru haldnar svokallaðar fjölskyldu- guðsþjónustur, sem eru sniðnar fyrir alla fjölskylduna og þá stundum í styttra lagi vegna þeirra sem yngstir eru og eiga erfitt með að sitja lengi og skilja takmarkað af því sem fram fer. Stundum segja foreldrar eitt- hvað á þessa leið: Á ég að fara með börn mín í kirkju, þegar ég veit ekki einu sinni sjálf(ur) hvort ég trúi eð aekki? Þá er aftur unnt að svara annarri spurningu: Teljum við að börn okkar hljóti gott vega- nesti í kirkjum landsins ...? L n a. A B 0 E Gettu betur Virtu vandlega fyrir þér skuggamyndirnar til hægri á myndinni. Reyndu síðan að ákveða i huganum. hvar þær eiga heima á aðalmyndinni með Mexíkananum. Ekki gefast upp. Reyndu aftur og leggðu þrautina fyrir aðra. Lausn (á hvolfi): Reitur nr. 1 pasar við reit nr. 4 B, nr. 2 við 6 E, nr. 3 við 3 F, nr. 4 við 1 C, nr. 5 við reit nr. 6 B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.