Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 31 STANGARSTÖKKVARAR eru ekki til stóræðanna með mölbrotnar og ónýtar stangir. Þessi mynd af Sigurði T. Sigurðssyni íslandsmet- hafa í stangarstökki var tekin á Laugardalsvelli um helgina er hann varð fyrir því óláni að stöngin brotnaði er hún ienti á járnbúkkanum á stangarstökksuppistöðunum í fyrsta stökki Sigurðar i Kalottkeppn- inni. Sigurður lét þó ekki deigan siga, fékk aðra stöng og sigraði og setti nýtt íslandsmet. En það er dýrt spaug að brjóta stöng þar sem hver þeirra kostar hátt á annað hundrað þúsund króna og ekki fást þær bættar. Stangarstökksaðstaðan á Laugardalsvelli hefur verið mjög umdeild og skiptast sjónarmið vallarstjóra og íþróttamanna þar algjörlega í tvö horn. íþróttamennirnir segja aðstæðurnar nánast lífshættulegar og að margar stanganna brotni á þessum lélegu uppistöðum. Vallarstjóri segir stangarstökksaðstöðuna á Laugardals- velli þá beztu sem völ er á í heiminum. en það voru erlendir íþróttamenn sem hingað komu vegna Kalottkeppninnar honum ekki sammála um. Rekja margir stangarstökkvara meiðsl sín til þess sem þeir kalla lélegrar aðstöðu við stangarstökk á Laugardvalsvelli, og sagt er að Valbjörn Þorláksson hafi varla þorað að beita sér í stangarstökkskeppni í tvo áratugi af hræðslu við að slasa sig. LjÓ8m. Mbl. JE. • Leikmenn Fram mæta FH i 4 liða úrslitum i bikarkeppni KSÍ á fimmtudag á Kaplakrikavelli i Hafnarfirði og hefst leikurinn kl. 19.00. Fram er núverandi bikarmeistari, og spurning hvort þeim tekst að verja titil sinn. Bikarkeppni KSÍ FJÖGURA liða úrslit í bikark- kl. 19.00. Á morgun fimmtudag eppni KSÍ hefjast i kvöld. Þá leika á Kaplakrikavelli FH og mætast Breiðablik og ÍBV á Fram. Sá leikur hefst kl. 19.00. Kópavogsvelli og hefst leikurinn Tvísýn keppni í Bikar- keppni FRI, 2. deild „Við Borgfirðingar vonum að heimavöllurinn komi okkur til góða, en engu að síður má búast við mjög tvisýnni og spennandi keppni a.m.k. fjögurra liða um sigurinn i 2. deild Bikarkeppni FRÍ,“ sagði Ingimundur Ingi- mundarson þjálfari UMSB i spjalli við Mbl., en um helgina fer fram keppni i 2. deild Bikar keppni FRÍ i Borgarnesi á sama tima og keppt verður til úrslita i 1. deild i Reykjavik. í Borgarnesi leiða saman hesta sína frjálsíþróttamenn frá UMSB, HSK, UMSE, UMSS, HSÞ og UÍA og keppa um sæti í 1. deild að ári. UMSB varð í öðru sæti í 2. deild í fyrra, HSK í þriðja, UMSE í fjórða og UMSS í fimmta. HSÞ féll ú 1. deild í fyrra og UÍA sigraði í 3. deild. A.m.k. átta keppendur úr Kalottliði íslands verða með í Borgarnesi og fleiri af fremstu frjálsíþróttamönnum landsins, þ.á m. keppa Jón Dið- riksson, Einar Vilhjálmsson, Iris Grönfeldt og Ágúst Þorsteinsson í liði UMSB, Stefán Hallgrímsson, Unnar Vilhjálmsson, Stefán Frið- leifsson og Helga Unnarsdóttir í liði UÍA, Kári Jónsson og Elín Unnarsdóttir í HSK, svo að eitt- hvað sé nefnt. „Það er mikill áhugi á þessari keppni hér í héraðinu og nú er bara að vona að veðrið leiki við okkur, því þá fjölmenna sveitung- ar okkar vafalaust á völlinn og hvetja sitt fólk“ sagði Ingimund- ur. Hann sagði að lokum að á laugardaginn, en þá hefst keppni kl. 14, og á sunnudaginn, en þá hefst keppni kl. 11, mundu mætast í keppni margir þeirra er líklegir þykja til verðlauna á næsta lands- móti UMFÍ, er háð verður á Akureyri að ári. — ágás. Víkingar misstu niður tveggja marka forskot LIÐ Víkings og KR gerðu jafn- tefli 2—2, í miklum baráttuleik á Laugardalsvellinum i gærkvöldi. Lið Vikings byrjaði leikinn af miklum krafti og náði tveggja marka forystu í fyrri hálfleik, en gáfu svo eftir og tókst KR-ingum þá að jafna metin. Voru þetta sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins. Leikurinn var nokkuð þófkenndur en á köflum brá fyrir sæmilegri knattspyrnu en þó alltof sjaldan. Víkingar hófu þegar í upphafi leiksins mikla sókn að marki KR og strax á 3. mínútu ver Stefán vel gott skot sem Hinrik átti að marki KR. Víkingar náðu góðum samleik fyrstu mínúturnar enda voru ekki liðnar nema sjö mínútur af leikn- um þegar þeir náðu forystu 1—0. Þórður Marelsson brunaði inn í vítateig, lék laglega á einn varn- armann KR og alveg upp að endamörkum, gaf boltann svo vel fyrir markið á Lárus Guðmunds- son sem var vel staðsettur inn í markteig og skoraði með föstu skoti. Alveg fram að 22. mínútu leiks- ins áttu Víkingar frumkvæðið í leiknum og þá náðu þeir að skora sitt annað mark. Lárus Guð- mundsson gaf laglega á Helga Helgason sem var rétt utan víta- teigs. Helgi tók vel á móti boltan- um og skaut viðstöðulaust föstu skoti í bláhorn marksins alveg út við stöngina neðst í markhornið. Glæsilegt mark. Fram að þessu höfðu KR-ingar átt fá tækifæri og gert meira af því að verjast en sækja. En nú snerist dæmið við. Leikurinn jafn- aðist og var engu líkara en leikmenn Víkings héldu að sigur- inn væri í höfn. Þeir voru ekki nægilega ákveðnir í leik sínum og KR-liðið fór að sækja og ná tökum á miðju vallarins. Á 36. mínútu leiksins skorar Sæbjörn Guðmundsson með skalla, eftir góða fyrirgjöf frá Jóni Staðaní 1. deild Víkingur -KR Oddssyni. Þarna var vörn Víkings illa á verði. KR-liðið kom svo ákveðið til leiks í síðari hálfleik og á 55. mínútu tekst þeim að jafna leik- inn. Jón Oddsson tekur innkast, kastar langt inn og boltinn berst inn í vítateig. Þar myndast þvaga og boltinn berst út að vítateigslínu til Hálfdáns Örlygssonar sem skoraði með þrumuskoti. Diðrik náði að vísu að verja boltann en svo fast var skotið að hann hélt ekki boltanum og í netið rúllaði hann alveg út við stöngina. Það sem eftir lifði leiksins var hart barist og bæði liðin áttu ágætis sóknir en tókst þó ekki að skora fleiri mörk. Lið Víkings átti að þessu sinni góða leikkafla en þess á milli gekk leikmönnum afar illa að ná sam- an. Bestu menn Víkings í leiknum voru varnarmennirnir Gunnar Gunnarsson og Jóhannes Bárðar- son. Leikmenn KR sýndu mikla baráttu í leiknum og syndu mik- inn keppnisvilja með því að vinna upp tveggja marka forskot. í liði KR átti Sæbjörn góðan leik svo og varnarmennirnir. í stuttu máli. íslandsmótið 1. deild. Laugardals- völlur. Víkingur—KR 2—2 (2—1) Mörk Víkings: Hinrik Þórhallsson á 7. mínútu og Helgi Helgason á 22. mínútu. Mörk KR: Sæbjörn Guðmundsson á 36. mínútu og Hálfdán Örlygs- son á 55. mínútu. Gult spjald. Ragnar Gíslason Vík- ing. Áhorfendur: 942 Dómari: Eysteinn Guðmundsson og dæmdi hann ágætlega. ÞR. fslandsmötlð 1. delld I • Lárus Guðmundsson fagnar marki sínu, en hann skoraði strax á 7. minútu leiksins. Ljósm. Ragnar Axelsson. Einkunnagjöfln Valur 13 8 2 3 32- -12 18 Vikingur 13 5 6 2 17- -12 16 Fram 13 7 2 4 15- -18 16 Akranes 13 5 4 4 19- -16 14 Breiðablik 13 6 1 6 20- -16 13 KR 13 5 3 5 13- -17 13 ÍBV 12 4 3 5 19- -21 11 Keflavík 13 3 5 5 13- -18 11 FH 13 3 3 7 17- -28 9 Þróttur 12 2 i: 1 í r 8- -14 7 Fram sigraði UBK 33-7 ÞRÍR leikir fóru fram í útimót- inu i handknattleik i gærkvöldi. Haukar sigruðu Þrótt i mfl. karla 23—20. í mfl. kvenna sigraði lið Fram Breiðablik með miklum yfirburðum 33—7. FH-stúlkurnar sigruðu svó Hauka, 25—10. - Þr. Lið Vals: Sigurður Haraldsson 7 Grimur Sæmundssen 7 Óttar Sveinsson 6 Dýri Guðmundsson 7 Sævar Jónsson 6 Magnús Bergs 7 Guðmundur Þorbjörnsson 8 Albert Guðmundsson 7 Matthias Hallgrimsson 7 Jón Einarsson 7 Magni Pétursson 6 Lið Fram: Guðmundur Baldursson 6 Trausti Haraldsson 7 Gunnar Guðmundsson 4 Marteinn Geirsson 7 Kristinn Atlason 5 Kristinn Jörundsson (vm) 4 Pétur Ormslev 7 Guðmundur Steinsson (vm) 4 Baldvin Eliasson 6 Gústaf Björnsson 6 Guðmundur Torfason 6 Jón Pétursson 6 Simon Kristjánsson 5 Dómari Magnús Pétursson 6 Lið Vikings. Diðrik Ólafsson Gunnar Gunnarsson Ragnar Gislason Magnús Þorvaldsson Þórður Marelsson Jóhannes Bárðarson Helgi Helgason ómar Torfason Lárus Guðmundsson Hinrik Þórhallsson Heimir Karlsson Gunnar Örn Kristjánsson (vm) Lið KR. Stefán Jóhannsson Guðjón Hilmarsson Sigurður Pétursson Ottó Guðmundsson Börkur Ingvarsson Jósteinn Einarsson Jón Oddsson Ilálfdán örlygsson Sæbjörn Guðmundsson Ágúst Jónsson Elias Guðmundsson Dómari Eysteinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.