Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 A ferö um Eyjafjörö: Texti. Hjörtur Gíslason Ljósmyndir: Kristinn ÓLafsson Steinhólaskáli er veitinga- staður innarlexa í Eyjafirði og búa þar hjónin Helga Her- mannsdóttir ok Kristján Óskarsson ásamt yngstu dótt- ur sinni Kristjönu. bau reka þarna greiðasölu allan ársins hring ok hafa Kert i fimm ár, en áður hjuggu þau á Grænu- hlíð í Eyjafirði. Er blaðamað- ur Mbl. var þar á ferðinni þáði hann veitintfar hjá þeim ok rabbaði lítillcKa við þau. „Okkur finnst gaman að þessu“ Við opnuðum þennan stað fyrir rétt rúmum fimm árum og fórum þá smátt af stað, en síðan hefur þetta undið smám saman upp á sig. Áður bjuggum við hér á næsta bæ, Grænuhlíð, en urðum bæði sjúklingar og gátum ekki búið lengur. í stað þess að leggja upp laupana, ákváðum við að reyna þetta. Þó staðsetningin sé ekki upp á það bezta, við erum jú ekki við hringveginn, hefur þetta gengið Hjónin i Steinhólaskála. Helga Hermannsdóttir og Kristján Óskarsson ásamt Krist- jönu dóttur sinni. hafi ekki búizt við því í upphafi, að hann yrði langlífur. Helga bakar allt brauð, sem við erum með hér og fólki hefur líkað það vel. Við höfum lítið auglýst, en einu sinni auglýst- um við í útvarpinu, „kosninga- lummur með kaffinu" og það yfirfylltist allt hjá okkur, svo það virðist, sem staðurinn sé að verða nokkuð þekktur. Þyrftum helzt að slappa af í miðri viku eftir helgar- ösina Það sem háir okkur nokkuð mikið, er að um helgar er alltaf Hjónin á Steinhólaskála: Höfum ævinlega verið talin ævintýrafólk, vel. Akureyringar og aðrir Ey- firðingar koma hér mikið um helgar og reykvísk hjón sögðu okkur, að þetta væri eins konar Hveragerði Akureyringa. Við höfðum gaman af að heyra þetta, það kitlaði svolítið hé- gómagirnd okkar. Vegurinn úr Eyjafirðinum upp á hálendið liggur hér hjá og þeir, sem um hann fara, koma venjulega við hjá okkur. Ef þessi vegur yrði lagaður vænkaðist hagur okkar verulega. Við höfum ævin- lega verið talin bjartsýnisfólk Við höfum ævinlega verið talin bjartsýnisfólk, og ef svo væri ekki, hefðum við heldur aldrei lagt út í þetta, við erum því einnig bjartsýn á framtíð- ina. Við höfum heyrt út undan okkur að fólk sé ánægt með staðinn og sveitafólkið vill ógjarnan missa hann, þó það eða eitthvað svolítið klikkuð yfirfullt, en daufara í miðri viku. í fyrra þurfti Helga helzt að slappa af alla virku dagana til að jafna sig eftir ösina um helgina og undirbúa þá næstu. Það hefur verið heldur minna um ferðamenn í ár en í fyrra, en Akureyringarnir hafa engan bilbug látið á sér finna, þeir spara heldur bílana í bænum og fara síðan út að aka um helgar. Höfum kannski aldrei dansað á rósum, en alltaf gengið vel Við höfum ævinlega verið talin ævintýrafólk, eða eitthvað svolítið klikkuð og það þótti til dæmis ekki sérlega gáfulegt, þegar við keyptum Grænuhlíð, sem hafði verið í eyði í fjórtán ár og var nær alveg húsalaus og túnið gaf aðeins af sér eitt og hálft kýrfóður, en það tókst nú samt og nú gengur þessi „vit- leysan" bara vel. Við höfum kannski aldrei beinlínis dansað á rósum, en alltaf komizt vel af. Það er gaman að .vera bóndi og eiga jörð hér í Eyjafirði, eða hvar sem er. Bóndastarfið er ábyggilega skemmtilegasta starf, sem hægt er að hugsa sér. Við héldum, þegar við byrjuð- um hér, að nú gætum við átt rólega daga í ellinni, en það var nú eitthvað annað. Þetta er miklu erilsamara en búskap- urinn og auk þess meira bind- andi, en okkur finnst þetta skemmtilegt engu að síður. Hér kemur skemmti- legt og kurteist fólk Steinhólaskáii, eini veitingastaður landsins þar sem gestir fara venjulega úr skónum? Hingað kemur gott og kurt- eist fólk og hér hafa aldrei orðið nein læti. Okkur er einnig sagt, að þetta sé eini veitinga- staðurinn, þar sem fólk fer venjulega úr skónum, áður en það kemur inn. Á veturna höfum við einnig opið, þá er alltaf dálítill reitingur og okkur hefur ekki fundizt, að við höfum getað brugðið okkur frá, en einu sinni fórum við frá einn seinnipart til að vera við brúð- kaup yngsta sonar okkar og fengum ákúrur fyrir hjá við- skiptavinum okkar. Yngsta dóttir okkar er hér hjá okkur og hefur verið okkur mikil stoð og stytta. Við erum einnig hér með olíu- og benzínsölu fyrir OLÍS og þeir segja okkur að við seljum næst mest hér í Eyja- firðinum. Hér koma menn einnig á allskonar farartækjum og einn maður kemur oft hér á flugvél frá Akureyri og lendir þá á túninu hjá okkur og einu sinni voru hér tvær flugvélar í hlaðinu. Bandarískur ísbrjótur í heimsókn MIÐVIKUDAGINN 13. ágúst kemur hingað til lands isbrjótur- inn Northwind, sem er eitt af skipum bandarísku strandgæsl- unnar. Mun skipið dvelja hér i þrjá daga i Sundahöfn i Reykja- vík. Alla dagana verður opið hús fyrir almenning um borð, milli klukkan eitt og fjögur siðdegis dagana 13., 14., og 15. ágúst, og er áhugafólk velkomið um borð til að skoða skipið. Northwind var hleypt af stokk- unum skömmu fyrir lok síðari heimsstyrjaldar. Það er af svo- nefndri Wind-gerð ísbrjóta og er eitt af þrem slíkum sem enn eru í þjónustu. Skipið er áttatíu og tveggja metra langt, 19,4 metra breitt og djúprista þess er 8.8 metrar. Það er 3.500 tonn og er rafmagnsdieseldrifið og hefur 10.000 öxulhestafla orku. Northwind komst fyrst á blöð sögunnar árið 1947, þegar það fylgdi Richard Byrd, aðmírál, á ferð hans á Suður-heimsskauts- svæðið. Við þær erfiðu aðstæður er þar mættu flota hans, sannaði skipið ágæti sitt svo ekki varð um villst. Síðan þá hefur Northwind margt afrekað, meðal annars að vera annar tveggja ísbrjóta sem fylgdu ísbrjótnum og risaolíuskip- inu Manhattan á leið þess gegn um Norð-vestur sundið árið 1969. Þá kannaði Manhattan möguleika til þess að nota þá leið til olíuflutninga frá lindum á land- grunninu við Norður-Alaska. Fréttatilkynning. Fjölmenni á skagfirzk- um ættar- mótum llær i Skagafiröi. 11. ágúat. MÖRG eru nú ættarmót hald- in og fer það mjög í vöxt að ættingjar minnist þeirra sem fallnir eru. Ein fjögur skag- firsk mót hafa verið haldin nú að undanförnu og á laug- ardag þ. 9. ágúst var á Laugarvatni efnt til ættar- móts Sigurlínu Gísladóttur sem hefði orðið 100 ára 1. ágúst, ef hún hefði lifað. Hún var systir Sigurbjörns Á. Gíslasonar elliheimilinu Grund og var maður hennar Kristinn Erlendsson kennari og smiður frá Miðhúsum í Óslandshlíð. Þau lifðu sinn starfsaldur í Skagafirði, en frá þeim er kominn mikill fjöldi afkomenda. Á þessu móti voru taldir 192 gestir, en fjölmenni vantaði þó af nánum ættingj- um, sem ekki gátu komist til þessa móts. Þessi mót eru til þess fallin að auka samheldni og kynni ættmenna, sem dreifast jafn- vel um allt landið og þekkjast ekki nema af afspurn. Á Laug- arvatni var yngsti gesturinn þriggja mánaða en sá elzti nær áttræðu. Þess má geta, að fyrir 12 árum, er Sigurlína Gísladóttir andaðist átti hún 136 afkomendur. Nú geri ég ráð fyrir, að erfitt sé að ná réttri tölu á niðjum þessara merku hjóna. Björn í Bæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.