Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. „Litli Stalín" og stóri Stalín Vegna þess að 10. maí sl. voru 40 ár liðin frá því að Bretar hernámu ísland í síðari heimsstyrjöldinni efndu herstöðva- andstæðingar til mótmæla gegn kjarnorkuvopnum á íslandi. Gengu þeir grímuklæddir í hringi fyrir framan byggingu utanríkisráðuneytisins og afhentu síðan einarðleg mótmæli sín gegn tilvist kjarnorkuvopna á íslandi í bandaríska sendiráðinu. Allt var þetta með hefðbundnu sniði. Fréttastofa útvarpsins skýrði skilmerkilega frá öllu saman og las allt yfir landslýðnum, sem henni barst frá herstöðvaandstæðingum. Og fréttastofan gerði meira, hún tók sér fyrir hendur sjálfstæða rannsóknastarfsemi. 21. maí var útvarpað fréttaþættinum Víðsjá og þar var haft svo mikið við, að hringt var í stofnun í Washington, Center for Defense Information, og starfsmaður hennar skýrði frá athugun sinni, fyrir tilmæli útvarpsins, á því, hvort hér á landi væru kjarnorkuvopn. Kom þá í ljós, að hér var um 5 ára gamla „frétt" að ræða. Að loknum þessum útvarpsþætti tóku hjólin að snúast. Aðrir aðilar en fréttastofan og herstöðvaandstæðingar hófu gagnaöflun um málið og áróðurinn í kringum það. Fréttastofan neitaði hins vegar að svara fyrirspurnum útvarpsráðs um vinnubrögð sín. Fljótlega kom í ljós, að heimildamaður fréttastofu útvarpsins var ekki „kjarnorkusérfræðingur" eins og hann hafði verið kynntur. Hinn 30. maí gaf Center for Defense Information út yfirlýsingu, þar sem fram kemur, að hún hefur engar sannanir fyrir tilvist kjarnorkuvopna á íslandi og leiðir aðeins fram líkur og vangaveltur um hernaðarlega áætlanagerð. Hinn 3. júní flytur fréttastofa útvarpsins nýjan Víðsjár-þátt. Þar gerir hún hreint fyrir sínum dyrum og leiðir fram innlenda og erlenda aðila, er fullyrða að hér séu ekki kjarnorkuvopn. Þá var einnig upplýst á öðrum vettvangi, að öll skrif útlendinga um að kjarnorkuvopn kynnu að vera á Islandi mætti rekja til greinarinnar, sem birt var á vegum Center for Defense Information 1975. Ekki var þó látið staðar numið. í viðtali við Morgunblaðið hafði forstöðumaður Center for Defense Information sagt, að ekki væri að marka yfirlýsingar frá bandaríska utanríkisráðuneytinu nema þær væru skriflegar. Taldi Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, þá óhjákvæmilegt að fá skriflega yfirlýsingu frá Bandaríkjastjórn. Fréttastofa útvarpsins beindi fyrirspurn um það efni til Ólafs Jóhannessonar, utanríkisráðherra, 3. júní og sagðist hann mundu leita eftir skriflegu svari. Þetta svar var síðan birt hinn 11. ágúst. Á blaðamannafundi þann dag sagði Ólafur Jóhannesson um viðbrögð Bandaríkjamanna: „Yfirlýsingin útilokar algjörlega staðsetningu kjarnorkuvopna hér á landi." Morgunblaðið hefur oftar en einu sinni vakið máls á því í umræðum um þetta mál að undanförnu, að alls ekki væri líklegt, að Alþýðubandalagið tæki nokkurt mark á Ólafi Jóhannessyni, þótt hann hefði í höndunum skriflega yfirlýsingu frá Bandaríkjastjórn. Komið hefur á daginn, að Ólafur Ragnar Grímsson telur málið ekkert skýrara eftir gagnaöflun utanríkisráðherra. Hefur frétta- stofa útvarpsins gefið Olafi Ragnari áberandi langan tíma til að útlista viðhorf sín til starfa utanríkisráðherra og nefnir hann Ólaf Jóhannesson nú „litla Stalín" í útvarpsfréttum. Ólafur Ragnar heldur fast við, að hér séu kjarnorkuvopn og ber nú fyrir sig „tvo fyrrverandi bandaríska hershöfðingja", eins og hann kallar þá, en þar er í raun um að ræða forstjóra og aðstoðarforstjóra Center for Defense Information. Aldrei hefur erlend stofnun haft jafn ötulan blaðafulltrúa í þjónustu sinni hér á landi með jafn greiðan aðgang að fréttastofu útvarpsins. I stuttu máli hafa hér verið rakin höfuðatriði kjarnorku- uppákomunnar anno 1980. Hún hefur snúist um brölt eins manns í valdaaðstöðu með góðan tíma í útvarpsfréttum. Enn einu sinni, og nú með skýrari hætti en oft áður, hefur verið staðfest, að hér á landi séu ekki kjarnorkuvopn. Engu að síður heldur Ólafur Ragnar Grímsson hinu gagnstæða fram. Hvers vegna? Ekki til að hafa það sem sannara reynist, það er víst. í brölti hans felst tilraun til að grafa undan trausti manna á þeim, sem gæta hagsmuna landsins út á við. Reynt er að slá ryki í augu herstöðvaandstæðinga um leið og komið er höggi á pólitískan andstæðing, Ólaf Jóhannesson, sem þó er utanríkisráðherra í stjórn með árásaraðilanum. Kannski ráðherrann sé kallaður „litli Stalín“ til að gleðja herstöðvaand- stæðinga og aðra kommúnista! Ríkisstjórnin ber í heild ábyrgð á stefnunni í kjarnorkumálum. Þetta pólitíska sjónarspil er ekki hættulegt nema að einu leyti: Með því er alið á grunsemdum hjá Varsjárbandalaginu um að hér kunni eftir allt að leynast kjarnorkuvopn. Og þar með verður þessi leiðigjarna iðja þjóðhættuleg. Fischer teflir ald l’m an expert, sagöi hann þessi. Honum þótti vænt um ísland. Þessi tefflir á f; Aftur er hann kominn, maöurinn í hjólastólnum, sem teflir skák. John Coll- ins heitir hann, maöurinn sem kenndi Fischer, og viö þekkjum frá einvígi Fisch- ers og Spasskys. Collins rekur skákskóla í New York ríki og þaðan hefur útskrifast margur efni- legur pilturinn. Á vegum Collins er nú hór á landi 40 manna liö skákkappa, aö- stoöarmanna og velgerö- armanna hópsins. Mr. Collins John Collins er alúðlegur maður í allri samræðu. —Þetta er þriðja heimsókn mín hér, segir hann. Ég dvaldi hér tíu vikur meðan á einvígi Fischers og Spas- skys stóð. Nei, ég get ekkert sagt þér af Fischer. Við höfum ekki talað saman í rúmt ár. Nei, í þessum hópi er enginn nýr Fischer. Fischerar koma ekki nema einu sinni á öld. Þaö eru svo margir ólíkir hlutir, sem þurfa að koma saman til að úr verði Fischer. — Mér er tjáð að þér viljið halda aldri yðar leynd- um? Og nú hló John Collins af öllum sínum innileik. Hver segir yöur þvílíkt? Það hefur þó ekki verið hann Lombardy? Mér finnst ald- ur manna nokkuö sem eng- an varöar um, nema mann- inn sjálfan, líkt og tekjur hans og það, hvað hann hefur átt margar vinstúlkur um ævina. Ég segi stundum þegar ég er spurður að þessu: I am as old as the hills, and younger than the springtime. Mér finnst það lýsa mér vel. Collins setztur í kennarasætiö. Hér segir hann Thomas R Thomas Martin er forstööumaöur upplýsingaþjónustu E Presturinn Lombardy og fleiri fylgjast meö. Presturinn — Þér komið aftur og aftur séra Lombardy, hvað gengur yður til? Jú, sjáið þér, ég er masókisti, og presturinn hló? Mér líkar hreint ekki viö mig hér, samt hef ég komiö hingaö tólf sinnum. Fyrst 1957, þá tefldi ég á heimsmóti ungl- inga. Síðan hef ég komið bæði í einkaerindum og til aö tefla. Ég tefldi síöast á móti í Mexico núna í apríl, varð þriðji ásamt Roman- ishin. Ribly sigraöi og Vag- anjan varö annar. Nei, við Fischer hef ég ekki talað í tvö ár. Hann teflir aldrei meir, ekki opin- berlega. Það situr í honum, meöferðin sem hann hlaut af alþjóöa skáksamband- inu. Það er hart, að allt það sem Fischer krafðist og honum var neitað um, taliö fráleitt að ganga að kröfum hans, það tók sovézka skáksambandið upp á sína arma og gerði að kröfum Karpovs, og þá þótti ekki tiltökumál aö ganga aö þeim. — Nú er Friðrik Ólafsson orðinn forseti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.