Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.08.1980, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiöslunni er 83033 afiWtí# a,l fttMC0iiiitI»(gifcU> Síminn á ritstjórn og skrifstofu: 10100 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980 Fékk 160 tonn á 80 klukkutímum MJÖG góð aflahröjíð hafa verið undanfarnar vikur og er þá sama hvort togararnir hafa verið á þorskveiðum eða svokölluðu „skrapfiski- ríi“. Sem dæmi um góðan afla má nefna, að i gær var byrjað að landa úr ftgra í Reykjavík, en hann kom inn i fyrrakvöld með 330—340 tonn af þorski eftir 10 daga veiðiferð. Stálvik kom inn til Siglufjarðar á sunnudag með um 160 tonna afia, sem skipið fékk á aðeins 80 klukkustundum. Loks má nefna að Dagrún frá Bolungarvik fékk um 70 tonn af ufsa á rúmum tveimur sóiarhringum. Morgunblaðið ræddi í gær við Sigurjón Stefánsson hjá Togara- afgreiðslunni í Reykjavík og sagði hann að mjög gott fiskirí hefði verið undanfarið og ætti það við um togara víðs vegar að af landinu. Hann sagði að skipin hefðu yfirleitt fyllt sig á viku, en karfa hefðu þau einkum fengið við Reykjaneshrygginn og í Jökul- tungunni, en þorsk fyrir norðan og vestan. Hann nefndi sem dæmi, að skipin hefðu fengið allt upp í 50 tonn af ágætum þorski í hali í flottroll í þessari hrotu. Sigurjón var skipstjóri á togur- um í um 25 ár og sagði, að jafnvel þegar mest var af þorskinum, hefði ekki verið svona góð þorsk- veiði um þetta leyti árs. — Þessi tími var karfatími fram í sept- ember, en síðustu ár hefur þetta breyst og þá komið miklar þorsk- hrotur á þessum tíma. Ég held að ástæðan fyrir þessu sé sú, að straumar og hitaskil við landið hafi breyst, en ýmislegt annað hefur trúlega einnig áhrif, sagði Sigurjón. 20th Century Fox dreg- ur sig út úr myndinni 12. ágÚHt 1980. Frá fréttaritara Mbl. 1 Loh Angele8 í Kaliforniu. BANDARÍSKI kvikmyndahring- urinn 20th Century Fox hefur ákveðið að hætta við að fjár- magna stórmyndina Quest of Fire, Leit að eldi. sem taka á að Berin ennþá óþroskuð StaAarbakki. 12.08.'80. TÍÐIN hefur verið ákaflega góð i júlí, sprettan ágæt og heyskapur gengið vel. Svo snerist tiðarfarið við i ágúst, og það sem nú er af mánuðinum liðið hefur verið einkar votviðrasamt. Þó voru margir komnir langt á veg með heyskap- inn. Berin eru ekki orðin nægilega þroskuð ennþá, þó lítur þetta ágæt- lega út og von er á góðri berja- sprettu. Ferðamannastraumur hefur verið þó nokkur, en hann fór minnk- andi eftir verzlunarmannahelgina. — Fréttaritari. hluta tii hér á landi i haust. Blaðið Los Angeles Times birti fréttir þessa efnis á mánudag, og í gær sagði Michael Gruskoff framleiðandi myndarinnar að fréttin væri rétt. Jafnframt sagði hann i samtali við Morgunblaðið, að unnið væri að þvi að fá annað kvikmyndafélag til að taka að sér verkefnið. Kvaðst hann í gær hafa góðar vonir um að það mætti takast. Ástæður þess að 20th Century Fox hætta við gerð myndarinnar er langvinnt verkfall leikara í kvikmyndaiðnaði í Bandarikjun- um. Hafa mörg kvikmyndagerð- arfélög orðið að draga saman seglin af þessum sökum, og hefur jafnvel verið hætt við gerð mynda sem unnið hefur verið að árum saman. Morgunblaðinu tókst ekki að ná í Gísla Gestsson kvikmyndagerð- armann og umboðsmann hins bandaríska fyrirtækis hér á landi í gærkvöldi. Sjá bls. 2. Byrjað var að landa úr skuttogaranum ögra i Reykjavik i gær, en skipið kom inn i fyrrakvöld með 330 — 340 tonn af þorski eftir um 10 daga veiðiferð. Ljósm. Emiiia. Fylla kvótann í dag FÆREYINGAR munu að öllum líkindum fylla þann kvóta er þeim er heimilað að veiða innan íslensku fiskveiðilögsögunnar á þessu ári í dag, að því er Guðmundur Kjærnested skipherra í stjórnarstöð Landhelgisgæslunnar sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gærkvöldi. Alls var Færeyingum heimilað að veiða 17 þúsund lestir fiskjar á þessu ári. Dagsveiði færeyskra skipa innan íslensku 200 mílnanna hefur að undanförnu verið um 100 tonn. I fyrradag voru rösklega 100 tonn eftir af kvótanum, svo líklegt er að þeir fylli hann í dag. Undanfarið hafa 14 fær- eyskir færabátar verið að veiðum hér við land, 2 togar- ar og 2 línubátar, samtals 18 skip. Undanfarið hefur þorskur verið meginuppi- staðan í aflanum. Samningar BSRB: Drög að samkomu- lagi send til f élaga „ÉG ER hvorki bjartsýnn né svartsýnn,“ sagði Kristján Thor- lacius, formaður BSRB, þegar Morgunblaðið spurði hann um horfur á samningum, i þann mund er fundur aðalsamninga- nefndar BSRB var að hefjast um fjögurleytið í gær. „Við munum leggja fyrir samn- inganefndina niðurstöður þeirrar vinnu, sem undirnefndin hefur verið að vinna að undanförnu ásamt samninganefnd ríkisins. Um þær niðurstöður vil ég ekki tjá Ný bók frá Halldóri Laxness í haust: Fjórða og síðasta bíndi miiuiingabókar „ÞESSI bók endar, þegar ég er 20 ára og lengur skrifa ég ekki um mína æfi. Fyrsta bindið byrjaði á mér nýfæddum og ég held áfram í þessu fjórða bindi til 20 ára aldurs, sem er lokapunkturinn aftan við þessa bók,“ sagði Halldór Laxness, rithöfundur, er Mbl. spurði hann um nýja bók hans, sem skáldið kvaðst gera ráð fyrir að farið verði að setja eftir nokkra daga og komi út einhvern tíman með haustinu, „því það er ekki siður að gefa út bækur um sláttinn hérna.“ Mbl. spurði Halldór, hvers vegna hann hygðist ekki skrifa fleiri bindi í þessari bók. „Það er alltaf gaman að skrifa um sína daga, þegar maður er ungur og til tvítugs," sagði skáldið. „En svo fer að koma svo mikill veruleiki og alls konar umstang inn í líf manna, að það verður svo flókið, að það verður ekki hægt að skrifa um það svo vel sé. Starfsemin og hugurinn greinast í svo margar áttir, það kemur svo margt fyrir mann, að það er óvinnandi verk. Það verður úr því bara kaos og þvæla svo það er um að gera að hætta skrifun- um, þegar æskudögunum lýkur.“ Um þessar minningar sínar sagði Halldór Laxness:„Ég hef á undanförnum fjórum árum verið að skrifa bók, sem er svona nokkurn veginn samhangandi, ef hún væri tínd saman. Það má að vissu leyti segja að hún sé skáldsaga, en hún er meira en skáldsaga. Er svona nokkurs konar ritgerð í skáldsöguformi og endurminningar líka í skáld- söguformi. Það er nefnilega að þessir bókmenntaflokkar eru dregnir saman í eitt og gerðir að skáldskap. Ritgerðin þykist vera ritgerð. Skáldsagan þykist vera skáldsaga. Og ævisagan þykist vera ævisaga. Það er ekkert alveg rétt en ekki heldur alveg vitlaust. Þetta, sem nú kemur, er fjórða bindið af þessari bók, sem eru að vissu leyti minningabæk- ur, en að vissu leyti lygabækur og fantasíubækur." Þá spurði Mbl. Halldór, hvaða nafn hann hefði valið þessari nýju bók. „Það er tæplegast að ég þori að fara með það,“ svaraði Halldór Laxness hann. „Nafnið gæti breytzt svo af varúðarsökum þá þori ég ekki að segja það nafn sem mér er efst í huga eins og er.“ Loks spurði Mbl. Halldór, hvaða verk tæki nú við hjá honum. „Ég hef alltaf nóg að gera að hugsa um það, sem ég er að basla við í þann svipinn. En ég er ekkert farinn að hugsa um það,“ svaraði Halldór Laxness. mig núna, en að loknum fundi í kvöld geri ég ráð fyrir að fundi verði frestað í tvo daga og samn- inganefndarmenn kynni málið í sínum félögum og annar fundur verði boðaður á föstudaginn," sagði Kristján að lokum. Þau samningsdrög, sem nú eru til umræðu innan BSRB, munu meðal annars fela í sér 12—14 þúsund kr. kauphækkun á lægstu laun. Kauphækkunin fer síðan stigminnkandi þar til hún hverfur við 20. launaflokk. Ennfremur vísitölugólf, sem miðað er við laun á bilinu 340—350 þúsund. 95-ára reglan svokallaða, sem felur í sér heimild til eftirlauna þegar menn hafa náð samanlögðum starfsaldri og lífaldri 95 ár. Énnfremur mun vera í drögunum rýmkun samn- ingsréttarákvæða, s.s. lengd samn- ingstímans. Breytt kjördæmaskipan: Tillögur lagðar fyrir þingflokka Á BLAÐAMANNAFUNDI með forsætisráðherra í gær sagði dr. Gunnar Thoroddsen, að stjórn- arskrárnefnd hefði í síðustu viku lokið við skýrslu og tillögur um breytingar varðandi kjördæma- skipun og kosningaframkvæmd. Dr. Gunnar sagði, að skýrsla stjórnarskrárnefndar yrði nú lögð fyrir þingflokkana til umfjöllunar. Hann vildi ekki greina frá efni tillagnanna í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.