Morgunblaðið - 13.08.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980
5
6 mánaða afmæli ríkisstjórnarinnar:
„Gengissig meira en
reiknað hafði verið með“
Frá blaðamannaiundi for-
sætisráðherra í gær í til-
efni af 6 mánaða afmæli
ríkisstjórnarinnar. Frá
vinstri: Guðmundur Bene-
diktsson ráðuneytisstjóri,
dr. Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra og Jón
Ormur Ilalldórsson að-
stoðarmaður ráðherra.
Ljósmynd Mbl. Kristinn.
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem dr. Gunnar Thoroddsen íorsætisráðherra
boAaði til i gær i tilefni af 6 mánaða afmæli rikisstjórnarinnar spurði
blaðamaður Mbl. ráðherrann að þvi hvort afrek rikisstjórnarinnar væru
slik að ástæða væri til að halda upp á sex mánaða afmæli, sérstaklega
með tilliti til þess að i stærstu málum á vettvangi ríkisstjórnarinnar væri
staðan sú að 19% gengisfelling hefði orðið á G mánaða ferli stjórnarinnar
og gjaldeyrir kostaði nú 23% meira. að skattaálögur hafa sennilega
aldrei verið meiri á fólki í landinu og verðbólgan 56%.
Forsætisráðherra svaraði því til
að ekki hefði staðið til að fjalla
sérstaklega um afrekin, fremur
veita upplýsingar um það sem gert
hefði verið og væri að gerast, um
afrekin yrði fjallað á ársafmælinu
og þá yrði boðið upp á tertu. Kvað
dr. Gunnar forsendur Þjóðhags-
stofnunar í sambandi við verðbólgu-
spá miðast við það sem gert hefði
verið en ekki það sem ætti að gera,
en ráðherran kvað útlit fyrir það að
verðbólgan yrði undir 50% í árslok.
Þá kvað ráðherrann gengissig hafa
orðið meira en ríkisstjórnin hefði
reiknað með.
í upphafi blaðamannafundarins
fjallaði forsætisráðherra um mál-
efnasamning ríkisstjórnarinnar þar
sem kveðið væri svo á um að berjast
ætti við verðbólguna og beita ýmis-
konar aðhaldsaðgerðum. Kvað ráð-
herrann þetta hafa verið gert á
undanförnum mánuðum og hefðu
margir kvartað, ríkisfyrirtæki,
einkafyrirtæki og verzlunaraðilar
m.a. Þá kvað ráðherra stefnt að
hallalausum rikisbúskap og skuld
ríkissjóðs við Seðlabankann væri nú
7,5 milljarðar króna miðað við 12
milljarða á sama tíma sl. ár.
Ráðherran sagði að fiskvinnslan
ætti nú við vanda að glíma sem
rekja mætti til seinni hluta árs
1979. Kvað ráðherrann að haldið
yrði áfram að greiða úr vanda
frystihúsanna og stefnt að stöðugu
gengi og minni tilkostnaði innan-
lands.
Blaðamaður spurði dr. Gunnar að
því hvort hann væri ánægður með
niðurstöðu skattheimtunnar?
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
koma á fót nefnd allra flokka til
þess að kanna hvað gera skuli til
úrbóta í skattamálum," svaraði dr.
Gunnar, „hér er um að ræða lög frá
1978, sem að vísu hefur verið breytt
verulega þannig að það leiðir til
hækkana á gjöldum hjá ýmsum
aðilum, en hins vegar eru atriði eins
og sérsköttun hjóna sem þýða upp-
haflega verulega hækkun skatta og
skrifast ekki á núverandi ríkis-
stjórn. Eftir að skattar hafa nú í
fyrsta sinn verið lagðir á samkvæmt
þessum lögum verður málið kannað."
„En hvað finnst þér sem þing-
manni Reykvíkinga að skattahækk-
un hjá þeim milli ára er yfir 60% og
mun vera meiri en víðast hvar á
landinu."
„Ég tel að beinir skattar séu of
háir hér og það ber að stefna að því
að lækka beina skatta."
Dr. Gunnar var spurður að því
hvort hann yrði í framboði til
formannskjörs í Sjálfstæðisflokkn-
um á næsta Landsfundi flokksins.
„Ég hef lýst því yfir að ég telji að
Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að
skipta um formann. Æskilegast
væri að það gæti orðið með sam-
komulagi, en ég tel það mesta
misskilning að kosning formanns í
stjórnmálaflokki þurfi að vera ævi-
ráðning. Ég sækist ekki eftir for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum, en
hef sagt að ef meirihluti landsfund-
armanna óskar eftir slíku mun ég
ekki skorast undan því. Ég tel að
þeir tveir sem eru á öndverðum
meiði í þessu máli eigi að reyna að
komast að samkomulagi um nýjan
mann.“
En þá var dr. Gunnar spurður
hvort slíkar ákvarðanir væru ekki í
höndum Landsfundar.
„Landsfundur myndi að sjálf-
sögðu hafa úrslitavald," svaraði
ráðherrann. Síðan var forsætisráð-
herra spurður hvort hann teldi enga
áhættu fylgja því að veiða 400 þús.
tonn af þorski á árinu?
„Það er ákaflega mikið vanda-
mál,“ svaraði dr. Gunnar „að ákveða
þessa tölu, en við reynum að taka
tillit bæði til sjónarmiða fiskifræð-
inga og reyndra fiskimanna, en ég
nefni ekki hvað ég tel æskilegast í
þessum efnurn."
Auk þess komu fram á blm.fund-
inum eftirtaldar spurningar og svör:
„Hvernig telur þú að afgreiða eigi
mál sovézka flóttamannsins hjá
íslenzkum stjórnvöldum, á að veita
honum landvistarleyfi?"
„Málið er í gagngerðri skoðun og
könnun hjá dómsmálaráðuneytinu."
„En hvert er þitt álit?“
„Mér dettur ekki í hug að tala um
það.“
„Menn velta því fyrir sér hvort of
mikið af starfsorku þinni hafi farið
í karp við þína eigin flokksmenn og
að af þeim sökum hafir þú ekki beitt
þér sem skyldi í stjórnun landsins?"
„Það hefur lítil orka farið í að
þrátta við mína eigin flokksmenn
þótt Morgunblaðið hafi beint óþægi-
legum skeytum til mín á þessu ári,
þá hef ég ekki svarað slíku og beint
orku minni að öðrum atriðum og
betri."
„í síðustu kosningum boðaðir þú
og aðrir sjálfstæðismenn að afnema
skyldi alla vinstristjórnar skattana,
en nú veitir þú forstöðu ríkisstjórn
sem hefur fleytt þeim sköttum
áfram og að auki bætt við öðrum
nýjum.“
„í samstarfi flokka er ekki hægt
að ná öllu fram, en varðandi þessa
yfirlýsingu sjálfstæðismanna má
benda á, að þegar formaður Sjálf-
stæðisflokksins lagði fram sitt
fræga plagg í stjórnarmyndunar-
tilraun sinni í ársbyrjun, þá var
ekkert minnst á þessi atriði."
„Er hugsanlegt að bráðabirgðalög
Ekki nægar birgðir...!
MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því í
gærdag, að Félag matvörukaup-
manna hygðist krefjast opinberr-
ar rannsóknar á þeim mikla
kjötskorti, sem nú er í verzlunum.
I síðustu málsgrein slæddist
meinleg villa inn. Þar var haft
eftir Jónasi Gunnarssyni for-
manni félagsins, að ef það sannað-
ist, að birgðir væru til nægar í
landinu væri um fjársvikamái að
ræða, því viðkomandi aðilar
þyrftu ekki að greiða af afurða-
lánum meðan birgðir ekki seldust.
Hið rétta er, að standa átti, að ef
það sannaðist, að ekki væru til
nægar birgðir í landinu væri um
fjársvikamál að ræða. Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AlGLVSINIiA
SIMINN ÉK:
22480
verði sett varðandi vísitölumál
þannig að gengisbreyting hafi ekki
áhrif á vísitöluna?"
„Það er ekki hægt að svara þessu
á þessari stundu, en þetta hefur ekki
verið rætt í ríkisstjórninni og ekki í
efnahagsmálanefndinni."
„Er gert ráð fyrir því að vextir
lækki á árinu eins og sagt var í
upphafi stjórnar þinnar og hvað
mikið þá?“
„Vextir lækka miðað við það sem
verðbólgan lækkar."
Þá var ráðherra spurður að því
hvort hann væri sammála því eins
og haldið hefði verið fram hjá
andstæðingum Sjálfstæðisflokksins
að auglýsa þyrfti eftir stjórnar-
andstöðunni?
„Stjórnarandstaðan fannst vestur
í Bolungarvík," svaraði dr. Gunnar,
„þegar auglýst var, en ég legg engan
dóm á stjórnarandstöðuna, hún ger-
ir sitt bezta."
„Er það rétt að það vanti 14
milljarða til þess að útflutningsupp-
bótadæmi bænda gangi upp, 8 millj-
arða til sauðfjárræktunar og 6
milljarða til mjólkurframleiðslu?"
„Eg hef ekki séð neinar tölur um
útflutningsuppbætur til bænda.“
„Er stefnt að því nú að falla frá
kvótakerfinu í landbúnaði?"
„Það er ekkert hægt að segja um
þaö, það eru margir vankantar á
framkvæmd kvótakerfisins."
„Telur þú að 86 þús. kr. í dagpen-
inga til ráðherra og greiddur hótel-
kostnaður að auki sé við hæfi?“
„Ég get engan dóm lagt á það.“
„Mikitl hallarekstur hefur verið í
ýmsum greinum útflutningsiðnað-
arins eins og t.d. ullar- og skinna-
iðnaði. Hver telur forsætisráðherra
að þessi staða sé miðað við fyrri
ár?“
„Erfiðleikar í ullar- og skinnaiðn-
aði stafa fyrst og fremst af innlendu
verðbólgunni og ráðstafanir til bóta
hljóta að fylgja aðgerðum til þess að
draga úr verðbólgu.“
„Olafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra og Ólafur Ragnar Gríms-
son alþingismaður, hafa deilt um
það að undanförnu hver hafi umboð
til þess að afgreiða mál varðandi
eldsneytisgeyma við Keflavíkur-
flugvöll?”
„Málið heyrir undir utanríkisráð-
herra, en ég hef sagt að þar sem um
fjárfrekt mál sé að ræða sé eðlilegt
að fjallað sé um það í ríkisstjórn-
inni, en þessi framkvæmd verður
ekki tengd lánsfjáráætlun næsta
árs.“
„Hvað verður með niðurgreiðslur
eftir 1. sept. n.k.?“
„Nokkur viðbótarhækkun hefur
verið ákveðin fyrir 1. sept. eða um
300 millj. kr. samkvæmt viðmiðun-
arreglu frá sl. ári.“
„Hefur ríkisstjórnin ákveðið að-
gerðir í sambandi við hinn mikla
vanda Útvegsbanka íslands sem
tengist ýmsum byggðarlögum
landsins þannig að þau búa við
ástand sem er svipað og í vanþróuð-
um ríkjum?“
„Vandamál Útvegsbanka íslands
hefur verið rætt í ríkisstjórninni og
það er verið að kanna hvaða leiðir
henta. Könnunin liggur fyrir."
„Hvenær verður málið afgreitt til
framkvæmdar?"
„Það er ekkert hægt að segja um
það, en það er aðkallandi."
SUMMA
RABSKÁPM
Útkoman
kemurá ðvart!
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOO HE
LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK. SÍMI 25870