Morgunblaðið - 13.08.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980
Þetta gerðist
13. ágúst
1978 — 150—200 farast í spreng-
ingu í palestínskri byggingu í
Beirút.
1974 — Bardagar milli Tyrkja og
Kýpurhersveita eftir misheppnað-
ar viðræður í Genf um frið á
Kýpur.
1968 — Sprengja springur nálægt
bifreið Georgs Papadopoulosar,
forsætisráðherra Grikkja, sem
sakar ekki.
1%1 — Austur-Þjóðverjar loka
Brandenborgarhliðinu og landa-
mærum til að stöðva straum
flóttamanna frá A-Þýzkalandi.
1960 — Mið-Afríku-lýðveldið fær
sjálfstæði.
1945 — Heimsþing zíonista krefst
flutninga á einni milljón Gyðinga
til Palestínu.
1932 — Adolf Hitler hafnar
beiðni Hindenburgs forseta um að
vera varakanzlari Franz von Pap-
en.
1898 — Bandarískt herlið Wesley
Merritts á Filippseyjum tekur
Manila af Spánverjum.
1814 — Höfðanýlenda í Suður-
Afríku verður brezk nýlenda.
1792 — Franskir byltingarmenn
fangelsa frönsku konungsfjöl-
skyiduna.
1704 — Orrustan um Blenheim
(Marlborough og bandamenn
Breta sigra Frakka).
1624 — Loðvík XIII skipar Rich-
elieu kardinála forsætisráðherra í
Frakklandi.
1521 — Hernando Cortez tekur
Mexíkóborg eftir viðureign við
Azteca.
Afmæli — Albert Sorel, franskur
sagnfræðingur (1824—1906) —
Fidel Castro, leiðtogi Kúbu
(1926—) — Alfred Hitchcock,
brezkættaður kvikmyndaleikstjóri
(1899—1980) — John Ireland,
brezkt tónskáld (1879-1962).
Andlát — 1863 d. Eugene Dela-
croix, listmálari — 1910 d. Flor-
ence Nightingale, brautryðjandi í
hjúkrunarmálum — 1912 d. Jules
Massenet, tónskáld — 1946 d. H.G.
Wells, rithöfundur.
Innlent — 1875 d. Bólu-Hjálmar
— 1912 Kristján Jónsson skipaður
dómstjóri — 1939 d. Björn Krist-
jánsson ráðherra — 1950 400 ára
minningarhátíð Jóns bps Arason-
ar á Hólum — 1957 Kekkonen
forseti kemur í heimsókn — 1974
Ólafi Jóhannessyni falið að kanna
stjórnarmyndun.
Orð dagsins — Fréttir fjalla
annað hvort um slys sem dynja
yfir eða vofa yfir — Dr. Samuel
Johnson, enskur orðabókarhöf-
undur (1709—1784).
Veður
víða um heim
Akureyri 10 skýjaó
Amsterdsm 20 skýjaó
Aþens 33 heióskírt
Bsrcelona 26 alskýjaó
Berlín 19 rigning
BrOseel 21 skýjað
Chicsgo 25 skýjaó
Feneyjar 28 þokumóóa
Frankfurt 27 skýjaó
Færeyjar 12 rigníng
Genf 22 skýjað
Helsinki 28 skýjaó
Jerúsalem 29 heiðskírt
Jóhannesarborg 17 heiðskirt
Kaupmannahöfn 19 skýjaö
Las Palmas 25 iéttskýjaó
Lissabon 28 heióskírt
London 20 skýjaó
Los Angeles 34 heióskírt
Madrid 35 heióskírt
Malaga 27 heióskírt
Mallorca 29 skýjað
Miami 30 rigning
Moskva 18 rigning
New York 34 rigning
Osló 21 skýjað
París 23 skýjaó
Reykjavík 14 léttskýjaó
Rio de Janeiro 32 skýjaó
Róm 29 heióskírt
San Fransisco 15 heióskírt
Stokkhólmur 17 skýjaó
Tel Aviv 30 heióskírt
Tókýó 30 heióskírt
Vancouver 30 heióskírt
Vínarborg 23 skýjaó
Jimmy Carter fram-
bjóðandi demókrata
Það hefur gengið á ýmsu hjá Jimmy Carter undanfarin fjögur ár
og hann ekki alltaf átt sjö dagana sæla. Hann hefur þó engan
áhuga á að skipta um starf eða flytja búferlum og stefnir hraðbyri
út í ólgandi kosningabaráttu i von um að halda forsetatitii
Bandarikjanna í f jögur ár til viðbótar.
Carter hefur ekki tekið fullan
þátt í kosningabaráttunni það
sem af er. Hann sigraði Edward
Kennedy, öldungardeildarþing-
mann frá Massachusetts, í 24
forkosningum af 34 úr Hvíta
húsinu, þar sem hann vann að
lausn vandamála þjóðarinnar,
en sérstaklega þó gíslanna í
Teheran. Hann margneitaði að
eiga kappræður við Kennedy, og
óvissa ríkir því um, hvaða stefnu
hann mun taka í baráttunni, sem
í hönd fer.
Carter gerði mikið úr reynslu-
og sambandsleysi sínu í Was-
hington í kosningunum 1976.
Hann var gagnrýndur fyrir að
gera ekki góða grein fyrir málef-
nalegri stefnu sinni. Hann lýsti
yfirgripsmiklum áætlunum í
orkumálum, um heilbrigðis-
tryggingar og um lausn á vanda-
málum stórborga og sagði, að
Bandaríkin ættu að beita sér
fyrir auknum mannréttindum og
vopnaeftirliti í heiminum. Hann
lét hjá liggja, hvernig hann
ætlaði að koma þessu í kring, en
talaði um opna og hreinskilna
ríkisstjórn.
Það var rétt hjá Carter, að
hann og starfsmenn hans voru
utan að komandi í Washington
1976. Enda tók það þá nokkurn
tíma að læra á kerfið. Carter
náði kjöri upp a eigin spýtur og
skuldaði engum neitt þegar hann
tók við embætti. Þingmenn og
aðrir valdamenn í flokknum
stóðu heldur ekki í þakkarskuld
við hann. Samstarf Hvíta húss-
ins og þingsins var því brösótt í
byrjun kjörtímabilsins og Carter
reyndist erfitt að fá tillögur
sínar samþykktar í þinginu.
Hann hefur þó komið í gegn
mestum hluta orkustefnu sinn-
ar, og þingið samþykkti eftir
harða baráttu samninga stjórn-
ar hans um Panamaskurðinn,
sem létu skurðinn í hendur
Panamabúum. Heilbrigðistrygg-
inamál hafa setið á hakanum.
Carter er á öndverðum meiði við
Kennedy varðandi þau. Hann
vill koma sjúkrasamlagi á smátt
og smátt, en Kennedy vill gera
það í einum áfanga. Stuðn-
ingsmenn Carters vona, að
hann láti málið til sín taka á
næsta kjörtímabili, þegar hann
þarf ekki lengur að óttast bar-
áttu við Kennedy. Carter hefur
átt gott samstarf við flesta
borgarstjóra í landinu. Ástandið
í stórborgum hefur þó lítið
batnað í stjórnartíð hans. Efna-
hagskreppan í landinu nú kemur
einna verst niður á þeim og gæti
leitt til óeirða, ef illa fer.
Efnahagsmál munu væntan-
lega valda Carter mestum erfið-
leikum í kosningabaráttunni.
Hann kenndi Gerald Ford í
baráttunni 1976 um atvinnuleys-
ið í landinu. Eftir kosningarnar
tókst honum að vinna bug á
því,en við tók mikil verðbólga.
Nú hefur hann náð tökum á
henni með harðri stefnu í pen-
inga- og vaxtamálum, en at-
vinnuleysi hefur að nýju rokið
upp úr öllu valdi. Carter kennir
utan að komandi aðstæðum um
efnahagsvandann — fyrst og
fremst miklum verðhækkunum á
olíu á síðustu árum — en
Slappað af með Kosalynn.
fer 1 iw. *
r
vafasamt er, að andstæðingar
hans láti því ómótmælt.
Utanríkismál munu einnig
verða til umræðu í kosningabar-
áttunni og valda Carter erfið-
leikum. Bandarísku gíslarnir eru
enn í haldi í Teheran. Carter er
stoltur af, að enginn Bandaríkj-
amaður hefur látið lífið í orrustu
í stjórnartíð hans, en dauði átta
hermanna í misheppnaðri til-
raun stjórnarinnar til að frelsa
gíslana með valdi varpar skugga
á stolt hans. Camp David sam-
ningur ísraelsmanna og Egypta,
sem Anwar Sadat og Menachem
Begin undirrituðu 1978 fyrir
tilstilli Carters, er rós í hnappa-
gat Carters, en hún hefur fölnað,
því litið hefur orðið úr loforðum
um frekari samninga þjóðanna.
Carter skrifaði undir samn-
inga um takmörkun kjarnorku-
vopna (SALT II) ásamt Leonid
Brezhnev, leiðtoga Sovétríkj-
anna, í Vín fyrir ári, en banda-
ríska þingið hefur enn ekki
samþykkt þá og vafi leikur á,
hvort Carter mun reyna að koma
þeim í gegnum þingið. Innrás
Sovétríkjanna í Afganistan í
desember sl., kenndi Carter lexíu
um stjórnarherrana í Kreml,
eins og hann sagði sjálfur. Af-
staða hans í utanríkis- og varn-
armálum hefur harnað til muna
síðan. í stað þess að beita sér
fyrir samdrætti í fjárútlátum til
öryggismála, eins og hann gerði
fyrir fjórum árum, vill hann nú
efla hernaðarstöðu Bandaríkj-
anna og hefur í þeim tilgangi
komið aftur á herkvaðningu
ungra manna, svo hægt verði að
grípa til þeirra, ef í harðbakk-
ann slær.
Flestir gagnrýnendur Carters
fallast á, að hann vilji vel, en
hann skorti hæfni og dómgreind
til að stjórna landinu sem skyldi.
Enginn sakar hann þó um
heimsku. Sagt er, að hann hafi
látið stjórnazt af atburðarásinni
i stað þess að stjórna henni —
eða verið ótrúlega óheppinn.
Siðasta dæmið er Billy-
hneykslið. Það gaus upp á þeim
tíma, þegar Carter hefði átt að
vinna að sættum meðal demó-
krata fyrir landsþingið, en þurfti
í þess stað að fjölyrða um
samskipti bróður síns við Líbýu,
sem höfðu varað í tvö ár.
Carter hefur átt láni að fanga
í óláni. í október sl. sýndu
skoðanakannanir, að Kennedy
myndi sigra hann auðveldlega í
forkosningabaráttunni. Það
snerist við, þegar gíslarnir voru
teknir í íran og Rússar réðust
inn í Afganistan. (Sumir spyrja:
Hverjir stjórna Bandaríkjunum,
kjósendur eða Brezhnev og
Ayatollah Khomeini?) Fjaðra-
fokið út af Billy virðist hafa
verið út af litlu, og fólk hefur
fundið til samúðar með Carter
og fjölskyldu hans og andúðar á
æsing fréttamanna.
Enginn annar forseti hefur átt
jafn litlu fylgi að fagna í skoð-
anakönnunum, eins og Jimmy
Carter fyrr í sumar. Það segir þó
lítið um, hvernig honum muni
farnast í kosningunum í nóv-
ember. Carter er þrautseigur
stjórnmálamaður og stendur sig
bezt í gervi frambjóðanda. Hann
var kjörinn forseti í nóvember
1976, jafnvel þótt fjöldi kjosenda
hefði spurt „Hvaða Jimmy?"
aðeins nokkrum mánuðum fyrr.
Carter hefur nú vald forseta-
embættisins í hendi sér. Þótt það
geti komið honum í koll á
stundum, þykir líklegra, að hann
beiti því sér í hag í kosningabar-
áttunni og láti ekki bola áer
auðveldlega úr embætti.
ab
Sadat, Carter og Begin i Camp David 1978. Samningarnir voru rós
i hnappagat Carters en hún hefur fölnað.