Morgunblaðið - 13.08.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980
15
Fórnarlömb Allen
fleiri en talið var
Port au Prince, Haiti, 12. ágúat. AP.
TALA þeirra sem fórust í felli-
bylnum Allen. þegar hann gekk
yfir Uaiti, kann að fara nokkuð
yfir 200, að sögn bandarisks
embættismanns i dag. Fellibylur-
inn fór yfir suðurhluta Ilaiti
fyrir réttri viku og var vind-
styrkurinn um 170 milur á klst.
Fulltrúar bandarískra hjálpar-
stofnana á Haiti segja, að næg
matvæli berist nú til þeirra hér-
aða sem verst urðu úti í veður-
hamnum enda séu vegir allir opnir
og lítil flóð hafi orðið.
í fréttum frá Corpus Christi í
Texas sagði, að tveir hafi látist i
fellibylnum, hundruð þúsunda
hafi orðið að flýja heimili sín og
tjónið muni líklega verða meira en
200 millj. dala. Jimmy Carter
Bandaríkjaforseti lýsti yfir neyð-
arástandi í sex héruðum Suður-
Texas í gær og hét íbúunum ýmiss
konar aðstoð yfirvaldanna.
Svo mjög hefur dregið úr Allen
að hann er nú aðeins taiinn til
venjulegra lægða en veldur þó enn
miklum rigningum og flóðum í
Mið- og Suðvestur-Texas.
17.000 menn
til æf inga
Bonn, 12. ágúnt. AP.
RÚMLEGA 17.000 bandariskir
hermenn og flugmenn fara til
Evrópu að taka þátt i árlegum
heræfingum i ágúst og september
að sögn bandarisku herstjórnar-
innar i Stuttgart i dag.
Þrjú þúsund þeirra hermanna,
sem taka þátt í æfingunum „Ref-
orger", verða úr varahernum,
fleiri en dæmi eru til áður.
Rúmlega 900 menn og 48 F-4E
Phantom II þotur taka þátt í
æfingum flughersins, „Crested
Cap“. Flugvélarnar og mennirnir
koma frá Johnson-flugstöðinni í
Norður-Karólínu.
Rúmlega 900 fallhlífahermenn
frá 82. herfylkingu í Fort Bragg,
N.K., fara til Evrópu og munu
stökkva beint á æfingasvæðið, sem
hefur ekki verið gert áður. Megin-
liðssveitin í æfingunum verður 1.
brynvædda herfylkið í Fort Hood,
Texas.
Þetta verða 12. „Reforger" æf-
ingarnar. Vestur-Þjóðverjar munu
taka þátt í þeim og notaðir verða
flugveilir í Englandi, Belgíu, Hol-
landi og Luxemborg auk Vestur-
Þýzkalands.
Fréttir í stuttu máli
Jarðskjálftar í
Grikklandi
Aþi'nu. 12. áifÚHt.
GRÍSKA jarðskjáiftastofnunin
sagði í dag, að tveir meðalsterkir
skjálftar hefðu orðið í Austur-
Grikklandi í dag. Engar fréttir
eru um manntjón eða skemmdir
á mannvirkjum. Stofnunin sagði
að síðasta sólarhring hefðu orðið
15 skjálftar á þessum slóðum
sem væru meira en 3 á Richter-
kvarða að styrkleika.
Barist í
Thailandi
BanKkok. 12. áKÚHt. AP.
THAILENSKIR fótgönguliðar
með sprengjuvörpur og stór-
skotavopn voru sendir til aðstoð-
ar landamæravörðum í Norð-
ur-Thailandi eftir að kommún-
ískir skæruliðar höfðu skotið
niður þyrlu frá thailenska hern-
um. Talið er að skæruliðar
kommúnista hafi goldið mikið
afhroð í þessum átökum.
Stökk úr 275 m hæð
Toronto, 12. ágúst. AP
AMERÍSKUR ofurhugi, Dar
Robinson að nafni, stökk í dag
ofan úr 275 m háum turni í
Toronto, en turninn er ein hæsta
bygging í heimi. Þetta er í annað
sinn sem Robinson leikur þenn-
an leik. Hann féll 214 m til
jarðar en var þá stöðvaður af
kapli sem hann var festur við. í
fyrra sinnið opnaði hann fallhlíf
undir það síðasta og lét sig svífa
til jarðar.
Skógareldar í
Kanada
Úranium-borg. Kanada. 12. ágúst. AP.
TALSMAÐUR kanadísku ridd-
aralögreglunnar sagði í dag, að
skógareldar, sem hefðu lagt í
auðn meira en 1000 hektara
skóglendis, hefðu valdið því að
um 700 manns hefðu orðið að
flýja heimili sín. Eldarnir geisa
ennþá en vonir standa til að
unnt verði að hefta útbreiðslu
þeirra.
700 farast
í flóðum
Nýju-Dclhi. 12. ágúst. AP.
MIKLAR monsúnrigningar og
flóð herja enn á Norður-Indlandi
og er hermt í fréttum í dag, að
tala látinna sé komin í 700.
Flestír hafa farist í Utaar Pra-
desh, 430 manns. Gangesfljót
sem er heilagt í augum hindúa,
hefur flætt yfir bakka sína og
eru akrar og mörg hundruð
þorpa undir vatni. Þúsundir
manna hafa flúið heimili sín.
Hryðjuverkið í Bologna:
Fyrrv. lögregluforingi
handtekinn
Parts, 12. ágúst. AP.
FRANSKUR lögregluforingi,
sem vikið hafði verið úr starfi
fyrir að taka þátt i samtökum
hægri öfgamanna. hefur játað að
hafa farið til Bologna og annarra
italskra borga í júli til að hafa
samband við skoðanabræður sina
þar. Hann neitar þvi þó að vera
viðriðinn sprenginguna á járn-
brautarstöðinni f Bologna 2. ág-
úst sl„ að því er segir i franska
blaðinu Quotidien de Paris i dag.
Franska lögreglan sem hefur
samstarf við þá ítölsku við rann-
Frakklandi
sókn sprengingarinnar, yfirheyrði
lögreglumanninn fyrrv. í gær að
ósk þeirra síðarnefndu. Franska
blaðið sagði að lögreglumaðurinn,
Paul-Louis Durand að nafni, hefði
sagst hafa verið í Bologna sem
hver annar ferðamaður og enn-
fremur hitt vini sína að máli.
86 ára gamall maður frá Bol-
ogna dó í dag af sárum sem hann
hlaut í sprengingunni á járnbraut-
arstöðinni og er fjöldi látinna þá
kominn upp í 81. Fimm manns
liggja enn á milli heims og helju á
sjúkrahúsum í Bologna.
ÓVEÐUR í CORPUS CHRISTI. Hjólreiðamennirnir í Corpus Christi í Texas bjóða hér vatni og vindi
byrginn sl. laugardagskvöld þegar fellibylurinn Allen var i þann veginn að koma inn yfir
Texasstrendur.
Stuðningsaðgerðir
við S-Kóreustjórn
Seoul, 12. ágúst. AP.
FJÖLDAFUNDIR til stuðnings
„hreinsunarherferð“ stjórnvalda
í Suður-Kóreu eru nú haldnir
viða þar i landi og koma þeir i
kjölfar frétta um að Bandarikja-
menn muni styðja Chun Doo-
Hwan, yfirmann hersins og nú-
verandi ráðamann, ef hann gæti
sýnt fram á að hann hefði stuðn-
ing kóresks almennings.
Fjöldafundirnir til stuðnings
stjórnvöldum hófust í borginni
Suwon sl. laugardag og voru
þátttakendurnir þar 30.000. Síðan
hafa verið haldnir fundir í Pusan
og öðrum borgum og í dag voru
þeir í Seoul og Kwangju, þar sem
óeirðirnar urðu hvað mestar í maí
sl.
Yfirmaður Bandaríkjahers í
S-Kóreu, John Wickman hershöfð-
ingi, sagði í viðtali við AP, að „ef
Chun hershöfðingi kemst til valda
á löglegan hátt og sýnir að hann
hefur stuðning almennings, mun-
um við styðja hann.“ Wickman
sagðist taka undir það með sum-
um öðrum að stjórnin hefði áunn-
ið sér virðingu almennings með
hreinsunarherferðinni á hendur
spilltum embættismönnum.
I fréttum frá Washington segir
að Bandaríkjastjórn sé ekki sam-
mála yfirlýsingum Wickmans og
sagði talsmaður innanríkisráðu-
neytisins, að „enginn háttsettur
bandarískur hershöfðingi í
S-Kóreu gæti gefið slíkar yfirlýs-
ingar. Sá sem þær gaf mælti ekki
fyrir munn bandarísku stjórnar-
innar.“
S-Kóreski andófsmaðurinn Kim
Dae-Jung, sem bíður þess nú í
fangelsi að verða dreginn fyrir
herrétt, fékk í dag í fyrsta sinn
heimsókn konu sinnar og lögfræð-
ings. Hann var handtekinn þann
17. maí sl. Kona Kims sagði í
símaviðtali, að maður sinn hefði
Genf 12. ájtúst. AP.
FULLTRÚAR Perú létu að því
liggja i dag á ráðstefnu i Genf
þar sem fjallað er um endurskoð-
un samningsins um bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna. að
svo kynni að fara að fulltrúar
þróunarríkjanna neituðu að und-
irrita hann að nýju. 10 ár eru
liðin frá þvi að samningurinn
gekk i gildi.
í ræðu sem fulltrúi Perúmanna
hélt þar sem hann gagnrýndi
ekki beðið um viðkomandi lög-
fræðing enda gengi hann erinda
stjórnarinnar.
Kim verður eins og fyrr segir
dreginn fyrir herrétt og sakaður
um að hafa ýtt undir óeirðirnar í
maí sl. Hann á yfir höfði sér
dauðadóm ef hann verður sekur
fundinn. Bandarískir embættis-
menn segja, að þeir hafi beðið um
að lifi hans yrði þyrmt en s-kóresk
yfirvöld segjast ekki hafa fengið
neinar beiðnir þar að lútandi.
kjarnorkuveldin harðlega, sagði
hann, að ef ráðstefnunni lyki án
þess að aðildarríkjum samnings-
ins, einkum þróunarríkjunum,
yrðu gefin nægileg trygging fyrir
því að hann yrði haldinn, gæti svo
farið að samningnum yrði hafnað.
114 þjóðir hafa undirritað
samninginn um bann við út-
breiðslu kjarnorkuvopna og af
þeim hafalll ekki slík vopn undir
höndum. I samningnum er kveðið
á um að stefnt skuli að því að
kjarnorkuvopnakapphlaupinu
skuli hætt og í kjölfar þess komi
algjör afvopnum. Fulltrúi Perú-
manna gagnrýni það einnig að það
vantaði í samninginn að kjarn-
orkuveldin hétu því að beita ekki
þessum vopnum gegn þeim þjóð-
um sem ekki hefðu þau. „Við erum
að selja tilveruréttinn fyrir
baunadisk," sagði hann.
Charles N. van Doren, varafor-
maður bandarísku sendinefndar-
innar, vildi ekki gera of mikið úr
orðum Perúmanna og taldi að
ólíklegt væri að nokkurt aðildar-
ríkjanna endurnýjaði ekki undir-
ritun sína.
Enn jafntefli
Abano Terme, Italiu. 12. ágúst. AP.
SJÖTTA skák þeirra Ro-
berts Htibners frá
V-Þýskalandi og Lajos
Portisch frá Ungverjalandi
í áskorendaeinvíginu lauk í
dag með jafntefli. Einvígið
er nú hálfnað og hefur
öllum skákunum lokið með
jafntefli. Sjöunda skákin
verður tefld á miðvikudag.
Dregur sig í hlé
bíði hann ósigur
Rosemont, Illinois, 12. ágúst. AP.
JOHN B. Anderson, sem ætlar
að bjóða sig utan flokka í
forsetakosningunum i Banda-
rikjunum á hausti komanda,
sagði i dag, að ef hann byði
ósigur í kosningunum „muni
hann líklega hætta stjórnmála-
afskiptum“.
í viðtali við fréttamann sagði
Anderson, að hann ætlaði ekki
að ganga aftur í Repúblikana-
flokkinn. „Það væru svik við
óháða afstöðu mína,“ sagði
hann. Anderson sagði, að ef
hann yrði kosinn forseti hygðist
hann koma á fót samsteypu-
stjórn repúblikana og demó-
krata. Hann sagði, að hann og
stuðningsmenn hefðu nú upp-
fyllt ákveðin skilyrði fyrir fram-
boði í 32 ríkjum og í höfuðborg-
inni og væru bjartsýnir á að það
tækist einnig í öðrum ríkjum.
John B. Anderson
Perú gagnrýnir
kjarnorkuveldin