Morgunblaðið - 13.08.1980, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980
+
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir, amma og
systlr,
SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegj 39,
andaöist aöfaranótt 12. ágúst.
Þórir Sigtryggsson,
Sigrún Þórisdóttir, Svainn Þórisson,
Sigfríöur Þórisdóttir, Grétar Guómundsson,
Erla Sigríóur Grétarsdóttir,
Svava Jóhannesdóttir, Björg Jóhannesdóttir.
+
Móöir okkar,
SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Reykjavík 10. ágúst.
Sigþór Þórarinsson,
Jón G. Þórarinsson,
Gyóa Þórarinsdóttir,
Kristbjörn Þórarinsson.
+
Maöurinn minn og faöir okkar,
SIGUROUR GUNNARSSON,
prentari,
fró Selalæk,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 14. ágúst kl.
4 30 Sigríóur Ólafsdóttir,
Sigríóur Siguröardóttir,
Ólafur Sigurðsson.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
GUDMUNDUR JÓNSSON,
bifreiöaviögeröarmaöur,
Bólstaöarhlíó 64,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. ágúst kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Sigríöur Hannesdóttir
og synir.
+
Utför,
ELÍASAR KRISTJÁNSSONAR,
er fannst látinn þann 7. ágúst sl. fer fram frá Fossvogskirkju 15.
ágúst n.k. kl. 10.30 árdegis.
Blóm og kransar afbeönir, en þeim sem vildu minnast hans er
vinsamlega bent á Slysavarnafélag tslands og félagiö Geöhjálp,
gírónúmer 19080-2.
börn, systkini og aörir vandamenn.
+
Móöir min, tengdamóöir og amma,
ANNA LILJA STEINÞÓRSDÓTTIR,
fré Vík í Héöinsfiröi,
Hringbraut 115, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Neskirkju, fimmtudaginn 14. ágúst kl. 13.30.
Kristjana Heiöberg Guómundsdóttir,
Snorri Ásgeirsson,
Björgvin Gylfi Snorrason,
Asgeir Valur Snorrason.
+ Faðir okkar og tengdafaöir,
KARL LEIFUR GUÐMUNDSSON,
vélstjóri,
fró Stakkadal í Aðalvík,
sem andaöist 7. ágúst verður jarösunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 7. ágúst kl. 10.30.
Guörún Karlsdóttir, Hugo Andreassen,
Astríöur Karlsdóttir, Rögnvaldur Þorleifsson,
Guömundur Karlsson, Oddbjörg Kristjónsdóttir,
Jónas Karlsson, Hrönn Þóröardóttir.
+
GUOBJORG EINARSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarifiröi,
sem lést í St. Jósepsspítala 9. ágúst veröur jarösungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 15. ágúst kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Fríkirkjuna í Hafnarfiröi
eða líknarstofnanir.
Helgi Þórarinsson,
Erla Guömundsdóttir, Stefén V. Þorsteinsson,
Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson.
Guðmundur Samúels-
son Minningarorð
Minning:
Fæddur 27. nóvember 1916
Dáinn 2. ágúst 1980
Guðmundur Samúelsson var
fæddur í Sauðeyjum á Breiðafirði
27. nóvember 1916. Hann fluttist 5
ára gamall ásamt fjölskyldu sinni
að Kirkjubóli við Kerlingafjörð.
Foreldrar hans voru Árndís Árna-
dóttir og Samúel Guðmundsson.
Samúel er látinn fyrir allmörgum
árum en Árndís er enn vel ern 92
ára gömul, nú búsett hjá dóttur
sinni á Bíldudal.
Rúmlega tvítugur að aldri flutt-
ist Guðmundur til Reykjavíkur og
hóf nám í húsgagnasmíði hjá
Snæbirni G. Jónssyni móðurbróð-
ur sínum. Hann lauk námi 1943 og
starfaði óslitið við iðn sína til
æviloka. Um eins árs skeið vann
hann á verkstæði í Danmörku, sér
til frekari þekkingarauka.
Kynni okkar Guðmundar hófust
er ég kom til náms hjá Snæbirni
1943. Ég átti þess vegna því láni
að fagna að njóta tilsagnar hans
og framúrskarandi hæfileika, því
óhætt er að fullyrða að Guðmund-
ur var sérlega hagur og hagsýnn.
Síðar unnum við mikið saman að
félagsmálum innan Sveinafélags
húsgagnasmiða, en Gumundur var
í stjórn þess og alllengi ritari
félagsins. Skulu honum færðar
hér þakkir fyrir góð störf fyrir
Sveinafélagið.
Það er margs að minnast frá
þessum árum og allar þær minn-
ingar mjög kærar.
Guðmundur var mikill bóka-
maður og víðlesinn. Því var hann
einnig á því sviði mjög góður
miðlari fáfróðum samstarfs-
manni. Mikil bókaeign leiddi til
þess að hann lærði undirstöðuat-
riði í bókbandi í Handíðaskólan-
um og batt því flestar sínar bækur
sjálfur. Þar mun hafa gætt sömu
smekkvísi og í öðrum hans verk-
um. Guðmundur var einnig að-
dáandi annarra lista svo sem
hljómlistar og átti allgott safn
sígildra platna.
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn' látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
+
Hjartkær faöir okkar, tengdafaöir, afi, langafi og bróöir.
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON,
vélstjóri,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 14. ágúst.
Jarösett veröur í Hafnarfjaröarkirkjugaröi.
Arnfriöur Mathiesen, Ásgeir Gíslason,
Nína S. Mathíesen, Magnús Th. Guömundsson,
Matthías M. Guömundsson, Kolbrún Úlfarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn,
Óskar Sigurösson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginmanns míns og fööur,
ÁRNA G. EYLANDS.
Fyrir hönd ættingja.
Margit Eylands,
Eirfk Eylands.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu vlö andlát og útför
eiginmanns míns,
BERGS EIRÍKSSONAR,
Fossi Síöu.
Fyrir mína hönd og annarra aöstandenda.
Kristbjörg Guöjónsdóttir.
Hin síðari ár ferðaðist Guð-
mundur allmikið, sér í lagi um
öræfi íslands og naut þess í ríkum
mæli, eins og raunar allir, sem á
annað borð vilja skoða og njóta
dásemda islenskrar náttúru. Og
það var einmitt í slíkri ferð, sem
hann varð bráðkvaddur 2. ágúst sl.
Guðmundur kvæntist ekki og
bjó alla tíð einn eftir að hann
fluttist til Reykjavíkur. Hann bjó
sér ákaflega snyrtilegar og
skemmtilegar vistaverur, mjög
ólíkar því sem oft er um einstakl-
inga.
Guðmundur var meðal þeirra,
sem ekki hafði oft vistaskipti, en
síðastliðin 13 ár vann hann á
Trésmíðavinnustofu pósts og síma
á Jörfa. Veit ég að þar féll honum
vistin vel.
Nú þegar Guðmundur Sam-
úelsson er allur og litið er um
farinn veg, er efst í huga mínum
þakklæti til hans fyrir samfylgd-
ina.
Að lokum votta ég aldraðri
móður hans, systkinum og öðrum
vandamönnum, mína dýpstu sam-
úð.
Bolli A. Ólafsson.
Með þessum fáu orðum langar
mig að minnast starfsbróður
míns, Guðmundar Samúelssonar,
Kvisthaga 25, Reykjavík.
Hann lést í öræfaferð laugar-
daginn 2. ágúst síðastliðinn. Dán-
arfregn hans kom mér mjög á
óvart, þar sem hann var nýfarinn
frá vinnu kátur og hress.
Guðmundur var fæddur 27. nóv-
ember 1916 og var því aðeins 64
ára.
Leiðir okkar lágu fyrst saman á
fundum og í félagsstarfi hjá
Sveinafélagi Húsgagnasmiða,
Reykjavík. Seinna hóf hann að
starfa á Trésmíðaverkstæði Pósts
og síma eða þriðjudaginn 14.
febrúar. 1967 og vann þar til
dauðadags.
Húsgagnasmiður var Guðmund-
ur mjög góður, faglega fær,
ástundunarsamur og áhugasamur
til starfa svo af bar.
Ég vil þakka Guðmundi fyrir
hans vel unnu störf, ánægjulegar
samverustundir og vináttu liðinna
ára.
Að lokum vil ég votta aldraðri
móður hans, systkinum og öðrum
aðstandendum samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Halldór G. Stefónsson.
Leiðrétting
í ÖÐRU erindi í afmælisvísu til sr.
Magnúsar Guðmundssonar frá
Ólafsvík, í minningarorðum um
hann í blaðinu í gær, eftir Sigur-
karl Stefánsson, varð misritun,
sem leiðrétta þarf. Vísan á að vera
svona:
Þú átt trúar Ktyrkan staf
í starfinu aldrei hálfur
leirtarstjornu leiddur af
leidarstjarna sjálfur.
ÞU AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\l l.n SIV, \
SI\1IN\ ER:
2218«