Morgunblaðið - 13.08.1980, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1980
vltP
MORöJKc.'v
MTtlNU ''
í’ v -'Z___________ __
GRANI GÖSLARI
©PIB
unnmi
261"?
Ég skil ekki hvernig á því stendur aft hann er þrjár vikur á
eftir áætlun með verk sitt, þegar hann hefur afteins unnið
hér i tvær vikur?
ást er...
... ferskur
morgunkoss.
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Tvimenninfrskeppni, sem
kennd eru við Philip Morris
tóbaksfirmað, er orðin fastur
mánaðariegur liður i bridgelifi
meginlands Evrópu. Keppni þessi
er haldin viðs vegar um álfuna og
spilið i dag kom fyrir i einni
þeirra i Hollandi.
Suður gaf.
Norður
S. 986
H. G7632
T. KG76
L. Á
Suður
S. ÁD4
H. ÁD1098
T. 832
L. 53
COSPER
© Pl B
Hún hafði engan til að leika sér við úti i skóginum.
Keflvísk leik-
list 95 ára
Skúli Magnússon skrifar:
„Fyrstu öruggu heimildirnar
um uppfærslu á leikriti í Keflavík
eru frá 1885. Þá var leikin Nýárs:
nóttin eftir Indriða Einarsson. í
ár eru því liðin 95 ár frá þeim
atburði. Á þessum árum er kunn-
ugt um 99 leikverk, stór og smá,
sem flutt hafa verið af Keflvíking-
um heima og heiman. Eru þá
meðtalin verk sem börn og ungl-
ingar hafa flutt á skemmtunum í
barnastúku og skólum. Ljóst er þó,
að mun fleiri verk hafa verið sýnd
hér en sökum gloppóttra heimilda
verður harla lítið um margar
sýningar vitað.
• Góðtemplarar
og Freyja
Benda má á, að góðtemplara-
reglan hélt hér uppi mjög öflugu
félags- og menningarlífi frá því
fyrir aldamót, og er eiginlega
brautryðjandi leiksýninga í bæn-
um. Fleiri félög hafa og leikið
mikið, t.d. kvenfélagið Freyja, sem
starfaði af miklum dugnaði á fyrri
hluta þessarar aldar. En lítið er
vitað um félag þetta og sama sem
ekkert um leiksýningar þess.
Þannig hefur margt farið forgörð-
um sem aldrei hefur á bók komist.
En eftir að blaðaútgáfa efldist
geymdist margt sem ella hefði
tapast með öllu. Þar koma bæði
staðarblöð og dagblöð til.
Samkvæmt samantekinni skrá
skiptast hin 99 leikverk þannig
eftir árum:
Fram til 1900: 3 verk ársett. 1
óársett.
1901 — 1910: Heimildir vantar um
sýningar.
1911—1920: 1 árfærð uppfærsla.
1921—1930: 1 árfærð uppfærsla.
1931—1940: 11 ársettar uppfærsl-
ur. 10 óársettar 1929 til 1935.
1941—1950: 13 ársettar uppfærsl-
ur. 17 óársettar 1936—1950.
1951—1960: 13 ársettar uppfærsl-
ur.
1961—1970: 9 ársettar uppfærslur.
1971—1980: 14 ársettar uppfærsl-
ur.
Alls er ársett 71 uppfærsla, en
óársettar 28.
• Blómaskeið
1929-50
Ljóst er, að leiksýningarnar
eiga sinn blómatíma við stofnun
Ungmennafélags Keflavíkur 1929.
Er svo fram yfir 1950, en þá
hættir félagið að sinna leiklist.
Afleiðingin af því var stofnun
áhugamannaleikfélags 1961, sem
hét Stakkur.
Arið 1967 fær félagið nýtt nafn
og hefur verið kennt við Keflavík
síðan. Síðustu árin hefur félagið
starfað af þrótti þrátt fyrir marg-
víslega erfiðleika, sérstaklega
vöntunar á húsi.
Keflavík, 10. ágúst 1980.“
Ferðafélag íslands:
Ferð á slóðir
Reynistaðabræðra
Við næstum öll borðin í keppn-
inni opnaði suður á 1 hjarta, sem
vestur doblaði. Norður hækkaði þá
í 4 hjörtu og varð það lokasögnin.
Ut kom laufkóngur og suður-
spilararnir fóru eftir líkunum
þegar hjarta var svínað svo vestur
fékk á kónginn blankan.
í reynd skiptir þá litlu máli
hverju vestur spilar. En margir
skiptu í lágan tígul. Gosi blinds sá
um þann slaginn og um leið má
segja, að vinningur hafi verið
öruggur. Sér þú hvernig?
Þegar Svíinn Hans Lind var
með spil suðurs spilaði hann
trompi á ásinn og svo tígli með
blindum. Vestur tók með ás og
spilaði tíguldrottningu, sem tekin
var með kóng. Lind spilaði sig
heim á hendina á tromp og
trompaði laufið. Því næst spilaði
hann fjórða tíglinum frá blindum
og lét spaða af hendinni í stað þess
að trompa.
Þetta var hinn sígildi leikur að
láta tapslag í gefinn slag og um
leið var vestur endaspilaður. Hann
gat engu spilað án þess að rétta
sagnhafa tiunda slaginn svo að
svíningin í spaðanum var óþörf.
Snyrtilega unnið úr spili.
NÚ í haust eru liðin 200 ár
siðan bræðurnir frá Reynistað I
Skagafirði, þeir Bjarni og Eln-
ar, synir Halldórs Bjarnasonar,
sýslumanns og klausturhaldara
og Ragnheiðar Einarsdóttur
konu hans, urðu úti ásamt
þremur förunautum sinum, er
þeir voru á leið yfir Kjðl með
um 200 fjár og 16 hesta. Þeir
höfðu keypt þetta fé á Suður-
landi og hugðust reka það
norður yfir Kjöl heim til Skaga-
fjarðar.
Vorið eftir fundust lík tveggja
förunauta þeirra bræðra, dautt
fé og dauðir hestar í hrauninu
skammt fyrir norðan Kjalfell, en
lík bræðranna og Jóns Aust-
manns, foringja fararinnar, voru
hvergi sýnileg. Öll atvik varð-
andi þetta slys þóttu hin undar-
legustu og opinber rannsókn var
hafin að frumkvæði þeirra
Reynistaðahjóna og eru endalok
þeirra málaferla mörgum kunn.
Til að minnast þess atburðar,
efnir Ferðafélag íslands til ferð-
ar á Kjöl um næstu helgi,
15.—17. ágúst. Verður farið frá
Reykjavík n.k. föstudagskvöld
kl. 20 og ekið að Hveravöllum og
gist þar í húsi. Á laugardag
verður gengið eftir gömlu göt-
inni suður yfir hraunið að Bein-
hól þeim stað, sem slysið varð.
Þar mun Haraldur Matthiasson
menntaskólakennari á Laugar-
vatni greina frá helztu atvikum í
sambandi við slysið. Gist verður
á Hveravöllum næstu nótt, en
komið heim á sunnudag.
í síðasta mánuði var reist nýtt
hús á Hveravöllum.
Fréttatilkynning.