Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 3 Ero Helme formaður finnska skáksambandsins: Virðist rökrétt að ekki sé hægt að skipta svona um mann á miðju kjörtimabilinu - íslenzkt deilumál, sem íslendingar verða sjálfir að leysa „LÖG Norræna skáksambands- ins segja vissulega að viðkom- andi skáksamhand velji stjórn- arformanninn. en hann er svo entfu að síður kosinn á aðal- fundi Norræna sambandsins til tveKKja ára. Og það virðist rökrétt af því sem segir í þriðju grein laganna um mannaskipti i embættinu. að viðkomandi skáksamband geti ekki skipt um mann á miðju kjörtimabili. nema þá viðkomandi dragi sig sjálfur í hlé eða forfallist, þar sem formennska í norræna sam- bandinu fylgir ekki endilega formennsku i viðkomandi skák- sambandi. eða setu i stjórn þess,“ sagði Ero Helme, formað- ur finnska skáksambandsins og stjórnarmaður í Norræna skák- sambandinu. er Mbl. raddi við hann i gær um deilu þá, sem nú er upp komin milli stjórnar Skáksambands íslands og Ein- ars S. Einarssonar um stjórn- arformennskuna í Norræna skáksambandinu. „Um þetta síðastnefnda get ég nefnt þau dæmi, að þegar ég var formaður stjórnar Norræna skáksambandsins, var ég einnig formaður finnska skáksam- bandsins, en í annað skipti, sem við áttum stjórnarformann Norræna sambandsins, völdum við til þess embættis mann, sem átti alls ekki sæti í stjórn finnska skáksambandsins," sagði Helme.' „Annars hefur svona deilumál ekki komið til fyrr og mér sýnist í fljótu bragði, að þetta sé séríslenzkt mál. Ég hygg, að það verði ekki auðvelt að kveðja saman fund í stjórn Norræna skáksambands- ins út af þessu einu. Það kostar líka peninga að ferðast milli Norðurlandanna. Hins vegar væri hugsanlegt að standa í bréfaskiptum, en mér sýnist rétt að þetta sé mál, sem komi til kasta næsta þings eftir 10 mán- uði, ef menn á íslandi geta ekki komið sér saman. í mínum augum er þetta ekki stórmál." Mbl. spurði Helme, hvort hann teldi þessar deilur geta haft skaðleg áhrif á störf Norræna skáksambandsins og þá einkum og sérílagi undirbúning þingsins og Norðurlandamótsins hér á landi á næsta ári. „Sannast sagna liggur ekki það mikið fyrir fyrr en þingið verður haldið, að ég á bágt með að sjá að þessar deilur geti beinlínis haft skaðleg áhrif, nema mönnum sé þá bara svo heitt í hamsi, að þeir láti það gerast," svaraði hann. „Fram- kvæmd skákmótsins sjálfs er verkefni Skáksambands Islands og það er á hreinu, að þingið og mótið eiga að vera á íslandi. Ef svo færi, að íslendingar vildu það ekki, þá er komið upp vandamál. En ég á bágt með að trúa því, að menn setji persónu- legt stríð ofar þeirri skyldu að halda skákmótið og jafnframt halda uppi eðlilegri starfsemi. Þannig vil ég telja, að þetta sé vandamál Islendinga sjálfra, sem þeir verði sjálfir að leysa." Birgðastöð innflutningsdeildar Samhandsins við Sundahöfn. Þar skammt frá mun nú risa skrifstofustór- hýsi Sambandsins. á 11 þúsund fermetra gólffleti. Sambandið fær lóð við Sundahofn: Reisir skrifstofuhús á 11 þúsund fermetra gólffleti IIAFNARSTJÓRNIN í Reykja- vik hefur úthlutað Sambandi islenskra samvinnufélaga lóð undir stórhýsi við Sundahöfn, að þvi er Björgvin Guðmundsson. formaður hafnarstjórnar. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. Færeyingar á loðnuveiðum við Grænland FÆREYINGAR hafa undanfarið verið á loðnuveiðum á Jan Mayen- svæðinu, en þó Grænlandsmegin. Veiðarnar munu hafa gengið vel hjá þeim 5 skipum, sem þær stunduðu, en í gær voru 3 þeirra á heimleið til Fuglafjarðar með fullfermi. Ekki er vitað hvort þeir halda þessum veið- um áfram. Loðnan, sem Færey- ingarnir hafa veitt er úr íslenzka loðnustofninum, en um veiðar úr þessum stofni var ekki samið við Færeyinga er íslendingar og Norð- menn gerðu sitt samkomulag í sumar. Björgvin sagði formlega lóðar- veitingu og ákvörðun gatnagerð- argjalda fara fram siðar. Hið nýja stórhýsi Sambandsins, sem rísa mun i nágrenni Holtagarða. verður fyrst og frcmst skrifstofu- bygging. á 11 þúsund fermetra gólffleti. Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að ekki væri enn búið að teikna húsið, og ekki lægju fyrir nema mjög grófar línur um bygginguna. Húsið kvað hann verða notað fyrir framtíðar- skrifstofur Sambandsins, sem nú eru á sex stöðum víðs vegar um Reykjavíkurborg. Núverandi aðal- skrifstofuhúsnæði við Sölvhóls- götu sagði Erlendur verða selt, og kvaðst hann búast við að upp yrðu teknar samningaviðræður við rík- ið um kaup á húsinu innan skamms. Sagði hann fjármála- ráðuneytið þegar hafa falazt eftir húsnæðinu fyrir hönd Stjórnar- ráðsins, en samningaviðræður hefðu legið niðri undanfarið vegna óvissu um hvort og hvenær ný lóð fengist. Erlendur kvað enn ekki ákveðið hvenær hafizt yrði handa um bygginguna, ekki væri heldur Ijóst hvernig húsið yrði byggt eða hve hratt, og ekki væri ljóst hvenær það yrði tekið í notkun. — Það yrði þó varla í ár eða á því næsta. Björgvin Guðmundsson sagði, að umsókn SIS um lóð við Sunda- höfn hefði verið til meðferðar í borgarkerfinu næstum allt þetta ár. SIS hefði lagt mikla áherzlu á að fá aðstöðu fyrir starfsemi sína á einum stað, en birgðaskemmur þess eru nú í Holtagörðum. Björgvin sagði, að SÍS hygðist flytja höfuðstöðvar sínar í nýja stórhýsið og hefði hafnarstjórn getað fallizt á það, þar sem SÍS rekur innflutnings- og útflutn- ingsverzlun, svo og umfangsmikla skipadeild. Þá væri það mikilvægt, að höfuðstöðvar SÍS yrðu áfram í Reykjavík með þeim miklu um- svifum sem þeim fylgja, en SÍS hefði látið að því liggja að starf- semin yrði flutt í nágrannabyggð- ir, ef ekki fengist viðunandi lausn á aðstöðu í höfuðborginni. „Ég hélt nú þegar ég varð 70 ára í fyrra. að þeir þyrftu ekki meira á mér að halda við síldarsöltun,“ sagði beykir gömlu síldaráranna. Benedikt Þorbergur Jónsson, við ljósmyndarana. „en þeir ungu kunna þetta ekki.“ Síld til Húsavíkur eftir langa bið: Matsmaðurinn 76 ára — beykirinn sjötugur SALTAÐ var af kappi á Ilúsavík i gær en þar hefur ekki verið söltuð síld síðan á síldarárunum um og fyrir 1960. — Flestir þeir sem starfa við síldarsöltunina nú voru í síldinni í gamla daga og er það mál manna að þeir hafi yngst um mörg ár, sagði fréttaritari okkar á Húsavík í samtali í gær. Yngra fólkið kann lítt til verka við síldarsöltunina og því eru þeir eldri kallaðir til. Matsmaðurinn Þór Pétursson er t.d. 76 ára og beykirinn Benedikt Þ. Jónsson er 70 ára. Síldarstúlk- urnar lærðu flestar til verka á gömlu síldarárunum. Nýju peningarnir að koma: Nær 12000 milljónir ný- króna í fyrstu pöntun FYRSTA sendingin af nýju myntinni, nýkrónunni, kom til landsins fyrir skömmu og fyrstu seðlarnir eru væntan- legir innan skamms. að því er Stefán Þórarinsson rekstrar- stjóri Seðlahanka íslands hefur tjáð Morgunblaðinu. Hin nýja mynt mun sem kunnugt er taka gildi um næstu áramót. Samkvæmt upplýsingum Stef- áns var fyrsta pöntun 45 milljón stykki af mynt að upphæð 23 milljónir nýkróna og 15 milljón stykki af seðlum, að upphæð 1170 milljónir nýkróna. Þessi pöntun á að duga allt árið 1981 og fram á árið 1982. Myntin er slegin í Royal Mint í London, sem slegið hefur íslenzka pen- inga síðan 1940 en seðlarnir eru frá Bradbury, Wilkinson og Co, sem prentað hefur íslenzka seðla síðan árið 1933. Það fyrirtæki er einnig í London. Seðlabankinn mun verða með 23 birgðastöðvar víðs vegar um landið, sem bankar og sparisjóð- ir geta snúið sér til og skipt á nýrri mynt og gamalli. Lögð verður áhersla á að ný mynt verði til staðar í öllum af- greiðslustofnunum á fyrsta "af- greiðsludegi ársins 1981. Stefán sagði að áhersla yrði lögð á að skiptin tækju sem skemmstan tíma enda væri það til hagræðis fyrir alla. Þegar slík skipti fóru fram í Finnlandi um áramótin 1962—’63 var reynslan sú að þriðjungur gömlu seðlanna hafði borizt finnska seðlabankanum 8. janúar og helmingur 15. janúar. Innan skamms verður hleypt af stokkunum kynningarherferð á myntbreytingunni. M.a. verður kynningarbæklingur sendur inn á hvert heimili. Dollar í fyrsta sinn yfir 500 kr. SÖLUGENGI Bandaríkjadollars er nú i fyrsta sinn i sögunni komið yfir 500 krónur, eða nú kostar hver Bandarikjadollar 500,60 krónur. Kaupgengi er hins vegar 499,50 krónur. Hækkun sölugengis Bandaríkja- dollars frá því ríkisstjórnin felldi gengi íslenzku krónunnar31. marz sl. er um 15,96%, en þá kostaði hver Bandaríkjadollar 431,70 krónur. Breytingar á sölugengi annarra gjaldmiðla hafa hins vegar orðið mun meiri. í dag kostar hvert sterlingspund 1195,90 krónur, en kostaði 923,00 krónur eftir gengis- fellingu. Hefur það því hækkað um 29,57%. Hækkun á verði vestur-þýzka marksins er ögn minni, eða 28,31%, en hvert vestur-þýzkt mark kostaði eftir gengisfellingu 218,67 krónur, en kostar í dag 279,97 krónur. Hver dönsk króna hefur hækkað um 28,04% í verði á þessu tímabili, kostaði 70,46 krón- ur, en kostar í dag 90,41 krónu. Frá síðustu áramótum hefur gengi Bandaríkjadollars hækkað um 26,61%, en þá kostaði hver dollar 395,40 krónur, en kostar í dag eins og áður sagði 500,60 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.