Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 5 Augljóst að afkoma mun f ara versnandi - segir Björn Dagbjartsson um fiskimjölsiðnaðinn í NÝÚTKOMNU tölublaði ekki tilefni til að Ægis, rits Fiskifélags ís- lands, fjallar Björn Dag- bjartsson, forstjóri Rann- sóknastofnunar fiskiðnað- arins, um fiskimjöls- og lýsisiðnaðinn. í niðurlagi greinar sinnar segir Björn, að því miður virðist vera mjög bjartsýnn á afkomu fiskimjölsiðnaðarins í nán- ustu framtíð. Björn segir, að í ár sé búizt við metuppskeru á kornmeti og fóðri og því sé ekkert, sem bendi til þess að hækkun á fiskimjöli sé væntanleg á erlendum mörkuðum í nánustu fram- tíð, þó svo að alvarlegt verðhrun sé e.t.v. ekki á næstu grösum. Hann bend- ir á, að miklar sveiflur í hráefnisframboði hafi þó löngum verið enn alvar- legri heldur en ytri skilyrði verðlagsþróunar og nú bendi flest til minnkandi hráefnisframboðs. Þá segir Björn ennfremur að vinnslukostnaður, einkum orkuverð, muni eflaust halda áfram að hækka. Að þessum forsendum gefnum sé augljóst að af- koma iðngreinarinnar muni í heild fara versn- andi. Til að bæta hag ið- naðarins þurfi verulegra fjárfestinga við, sem miði að orkusparnaði, bættri nýtingu og auknum afurð- agæðum. ísland og heims- valdastefnan VEGNA fréttar Mbl. í gær um útkomu viðtalsbókar við Einar Olgeirsson hafði útgáfustjóri Máls og menningar samband við blaðið til að upplýsa að bókin er ekki ævisaga í venjulegum skilningi eins og greint hafði verið frá í fréttinni, heldur er þar um að ræða pólitíska úttekt og verða ævisöguþættir felldir inn í frá- sögnina. Bókin á að heita Ísland og heimsvaldastefnan. Útsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Eplið Akranesi — Eplið ísafirði Álthóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði — Eyjabær Vestmannaeyjum Hafnaði í Liverpool á leið til Fleetwood og strand- aði síðan SÍÐUSTU vikur hafa mörg íslenzk fiskiskip landað afla sínum erlendis og hefur ekki frétzt af áföllum skipanna i þessum siglingum. Ein und- antekning er þó á. en frá því sagði nýlega í brezkum blöð- um. að islenzka skipið Hlein hefði orðið fyrir því á dögun- um að hafna i Liverpoo! þegar förinni var heitið til Fleetwood. Ekki var þó lengi staðið við í Liverpool. en stefnan sett á Fleetwood. Sú ferð gekk þó ekki með öllu áfallalaust. þvi skipið strand- aði á leiðinni þangað. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fékk skip- stjórinn á Hlein hafnsögu mann um borð í Liverpool, en þrátt fyrir það tókst ekki betur til en fyrr er greint frá. Nú er unnið að viðgerð á skipinu í Englandi, en smá- vægilegar skemmdir urðu á stýri og skrúfublöðum þess. Hlein ÁR 18 hét áður Ófeigur II, en var seld til Þorlákshafn- ar í vetur og síðan aftur til Vestmannaeyja fyrir nokkru. SG-330 TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR MAGNARI 2x20 WOTT R.M.S. ÚTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR. FM FW, STERIO LW. MW. SW PLÖTUSPILARI: HÁLF- SJÁLFVIRKUR, S-ARM- UR, MAGNETIC PICKUP. SEGULBAND: MEÐ SJÁLFLEITARA. HÁTALARAR: 2 STK. 40 WÖTT. /^r---- » VERÐ MED HÁTÖLURUM: kr. 469.000.- sem lyf tir pilsum. Á tívolísvæðinu er sannkallað tívolí andrúmsloft. Ballerínan þeytir fólki upp og niður hring eftir hring. í tvisternum rang- hvolfir það augunum og skrækir af ánægju. Allir fá útrás fyrir bíladelluna í bílabrautinni. í flugvéla- og dýrahringekjunni skemmtir smáfólkið sér konunglega. Lokkandi hróp og köll heyrast frá lukkuhjólunum. Hér er víst alveg eins gott að gæta buddunnar. - Eða eru freistingarnar bara til þess að falla fyrir? Munið að inngangur á tívolí svæðið er innifalinn í aðgangseyri sýningarinnar. Verð miða í einstök tæki er 300 - 1500 krónur. 1700 krónur kostar þó í hvern bíl, en það gildir fyrir tvo. Opiðer kl. 3-10 virkadagaog 1-10 laugardaga og sunnudaga. Svæðinu er lokað alla daga kl. 11. Heimilið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.