Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 Hvað vitum við um andófsmenn ? FRELSISBARÁTTAN í RÁÐ- STJÓRNARRÍKJUNUM. Ilannes H. Gissurarson sá um útgáfuna ok samdi eftirmála. Almenna bokafclat;iö, íslenzka andófsnefndin 1980. í Frelsisbaráttunni í Ráð- stjórnarríkjunum eru ræður eft- ir þá Alexander Solsénitsín og Vladimír Búkofskí og ritgerð eftir Andrei Sakharof. Efnið er vandi andófsmanna í Sovétríkj- unum og afstaða Vesturlanda- manna til þeirra. Ræður eiga yfirleitt ekki heima í bókum, en fara ágætlega í stuttum endursögnum í dag- blöðum. Þannig er einnig um ræður þeirra oslsénitsíns og Búkofskís. Öðru máli gegnir um greinargerð Sakharofs: Hvers vegna varð ég andófsmaður? Hún er einmitt af því tagi sem gott er að hafa aðgang að í bók, merkileg heimild um mann sem talar rödd samviskunnar. Bðkmennlir eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Eins og kunnugt er var Sak- harof einn þeirra vísindamanna sem áttu þátt í að gera Sovétrík- in að því kjarnorkuveldi sem þau eru nú. Hann lét stjórnmál lengi afskiptalaus, en eftir lát Stalíns og hið sögufræga tuttugasta flokksþing fann hann til ábyrgð- ar og jafnframt skelfingar vegna þeirrar hættu sem heimsfriðn- um stafaði af eyðingarvopnum. Hann aðvaraði valdamenn með þeim árangri að Krústjoff gaf þá yfírlýsingu að hann væri góður vísindamaður, en hefði ekki vit á stjórnmálum. Eftir að Solsénits- ín var fluttur úr landi hefur Sakharof orðið kunnasti andófs- maður Sovétríkjanna heima fyrir. í ritgerðinni Hvers vegna varð ég andófsmaður? lýsir hann ofsóknum sem hann, fjölskylda hans og vinir hafa orðið fyrir. Það er ljót saga. Engu að síður skrifar Sakharof: „Ég er ekki að öllu leyti neikvæður jragnrýnandi lífshátt- ar okkar. Ég sé margt gott með þjóð okkar og landi — sem ég ann. Ég hef neyðzt til að ein- skorða mig við hið neikvæða, því að hin opinbera áróðursvél þegir um það, og af því stafar mesta hættan. Éger ekki andstæðingur bættra samskipta, viðskipta eða afvopnunar. Öðru nær: I mörg- um rita minna hef ég beðið slíks. Það er einmitt á þennan hátt einan, sem unnt er að bjarga mannkyni...“ Athyglisverð eru orð Sakhar- ofs um misskilning vestrænna menntamanna. Hann telur af og frá að halda að ráðamenn í Andrei Sakharof sameignarríkjum stefni að framförum. Ekki síst leggur Sakharof áherslu á að sovéskir andófsmenn líti öðrum augum á vinstristefnu en félagar þeirra á Vesturlöndum. Það gerir söguleg reynsla sem hefur fælt Sakharof og fleiri frá vinstristefnu. Viðvörun til Vesturlanda- manna er ræða sem Alexander Solsénitsín flutti á fundi banda- rísku verkalýðssamtakanna 1975, einkennileg blanda af lofi og níði um Bandaríkin. Hann talar við bandarísku verkamenn- ina eins og þeir séu börn og hvetur þá til að vera á verði gegn Sovétríkjunum og gerast virkari í afstöðu sinni. Solsénitsín er rökvís og sannfærandi í ádrepu sinni, enda getur hann trútt um talað, en spurningin er sú hvort heimurinn myndi ekki loga væri farið að ráðum hans. Enn harðari er Vladimír Bú- kofskí í ræðu sinni yfir Varð- bergsmönnum í Reykjavík 1979. Búkofskí sýnir fram á galla slökunarstefnu, détente, enda getur varla verið réttlætanlegt að aðhyllast slíka stefnu gagn- vart glæpamönnum eins og hann kallar ráðamenn í Kreml. Solsénitsín og Búkofskí minn- ast báðir á minnihlutahópa í Sovétríkjunum, þjóðir innan þeirra sem markvisst hefur verið reynt að útrýma. Þetta hefur eflt þjóðernishreyfingar í Sovétríkj- unum og án efa munu þær eiga eftir að rísa upp gegn ofbeldinu. Sama er að segja um trúarsöfn- uði sem ekki geta sætt sig við kerfið og ekki er unnt að kveða alveg niður. Eins og Sakharof bendir á vitum við í raun lítið um það sem er að gerast í Sovétríkjun- um og enn minna vita Sovét- menn um Vesturlönd. Margir sovéskir andófsmenn hafa því miður reynt það á Vesturlöndum að þau eru ekki sú paradís sem Hannes H. Gissurarson gerir þau að í eftirmála Frelsisbarátt- unnar í Ráðstjórnarríkjunum. Áttræður í dag: Bergþór Magnússon frá Mosfelli og Viðey Áttræður er í dag einn þeirra manna sem settu svip sinn á samfélag bernsku minnar. Mér fer því svo, þegar ég sendi bóndanum, lækninum og söngvaranum Berg- þóri Magnússyni kveðjur mínar og fjölskyldunnar, þá renna bernsku- dagarnir mér fyrir hugskotssjónir því hann og kona hans, Ragna Björnsdóttir, voru fastir punktar í tilverunni. Það kemur oft fyrir, þegar líða tekur á sumar og ilmur nýrrar töðu berst að vitum mér, að ég minnist þess er við börnin í Viðey lékum okkur æslafull í heysátun- um hans Bergþórs. I þá daga var heyjað á Vestureynni og heyið flutt með báti frá Kattarnefinu við Eyðið að hafskipabryggjunni á Stöðinni og sett inn í eitt af gömlu fiskverkunarhúsunum sem þar stóðu tóm og vitnuðu um stórveld- isdaga Milljóna- og Kárafélagsins. Það var ætíð tilhlökkunarefni að mega leika sér í sátunum, finna þar ótal göng og felustaði, og eitt var víst, ekki þurfti að óttast að sá er heyið átti myndi amast við okkur börnunum. Þar sló skiln- ingsríkt hjarta. Mér verður það æ ljósara með árunum hversu mik- ilsverður hlekkur Bergþór var í því litia samfélagi er átti sér ból í eynni. Okkur börnunum var hann ætíð hlýr og ráðhollur, spaugsam- ur og glettinn, og auðfundið að hann hafði gaman af börnum, átti það til að taka þátt í leikjum þeirra með smitandi kátínu og var um leið hvetjandi í drengilegum leik. Það gat hvesst hjá Bergþóri ef svo bar undir og hann veitti okkur föðurlega áminningu með þeim hætti að eftir sat og varð til umhugsunar en ekki sárinda. Þeim sem eldri voru og höfðu forsjá heimila á herðum sínum var nærvera Bergþórs ekki minna virði. Hann var góður læknir, jafnt manna sem dýra, hafði læknishendur eins og gamla fólkið sagði, og ætíð reiðubúinn að hlaupa undir bagga ef með þurfti. Virtist raunar finna það á sér hvar þörfin var mest hverju sinni. Söngmaður var Bergþór í sér- flokki, eins og hann átti kyn til. Ég hefi einhvers staðar minnst þess áður hve stórar þær stundir eru í minningu minni, þegar Bergþór og Þórður heitinn Jó- hannesson og bræður þeirra beggja, leiddu sönginn í Viðeyj- arkirkju eða við messu í skólahús- inu. Mér hefur hlotnast það um dagana að ganga um mörg þekkt- ustu trúarmusteri veraldar, en verð að viðurkenna að hvergi hefur lotning mín né trúarleg innlifun orðið meiri en á þeim stundum er ég áður nefndi með þeim söngbræðrum. Það er víst siðvenja að rekja ættir manna á stundum sem þessari, en ég bið forláts á því hversu lítt ég er til þess fær, þegar frá er talin sú alkunna staðreynd að Bergþór er sonur séra Magnús- ar á Mosfelli. Ættfræði hefir aldrei verið mín sterka hlið. Hitt skiptir mig meira máli hvernig maðurinn reynist, heldur en hverra hann er, enda hefir mér ekki virst það algild ávísun um manngildi. Ég bið þessar fáu línur fyrir kveðjur til Bergþórs og þakkir fyrir árin í eynni og árna honum og fólki hans öllu allra heilla í tiíefni tírnamótanna. Bergþór dvelst nú á heimili Ragnhildar dóttur sinnar og tengdasonarins Atla Elíassonar. Þar mun hann taka á móti gestum frá klukkan sjö í kvöld. Þangað munu margir koma eða senda hlýjar hugsanir. Örlygur Ilálfdanarson. Svona er búið að öldruðum í Keflavik. Bæjarprýði í Keflavík KEFLAVÍKURBÆR hefur veitt viðurkenningar fyrir það sem þykir horfa til bæjarprýði. Fegursti blómgarður var val- inn reitur Sigriðar Marelsdóttur og Sigríðar Steindórsdóttur að Hringbraut 87. Þau hjón hófu ræktun garðs síns árið 1973 og þykir dómnefnd hann fjölbreyti- legasti blómgarður í Keflavík. íbúar við götuna Langholt hlutu viðurkenningu fyrir „sam- ræmda heildarmynd götu“. Þess má geta að íbúarnir tóku sig saman og steyptu sjálfir gang- stéttir á eigin kostnað. Hjónin Ragnheiður Lúðvíks- dóttir og Hallur Þórmundsson hlutu viðurkenningu fyrir endur- bætur og viðhald á eldra húsi, að Túngötu 23 (Kristínarbúð), sem var reist rétt eftir aldamótin og stendur í miðjum gamla bænum, sem Keflvíkingar kalla. Ennfremur var hjónunum Magnúsíu Guðmundsdóttur og Jóni Eysteinssyni veitt viður- kenning fyrir garð sinn að Bald- ursgarði 2 fyrir „fallega samræm- ingu á lóðamörkum milli gatn- anna Baldursgarðs og Fagra- garðs", eins og dómnefnd segir. Loks var veitt viðurkenning fyrir „frágang og umhverfi á nýbyggðu húsi“. Það var við hús aldraðra við Suðurgötu, sem búið var að „snyrta og ganga frá öllu utanhúss á mjög svo smekklegan hátt“ þegar fyrstu íbúar fluttu inn. Fegursti blómgarður Keflavikur 1980. Kristínarbúð þykir dæmu um vel heppnaðar „endurbætur og viðhald á eldra húsi“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.