Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 Pólland: „Sósíalismann þarf að vernda“ - segir fréttastofa Austur-Þýskalands Ikrljn ok I'aris. 2S. avcust. — AP. FRÉTTASTOFA Austur-hýskalands sagði í dag írá vaxandi áhyKKjum í Póllandi vexna vöruskorts sem komið heíurí kjölfar verkfallsins ok hættu á vaxandi „and-sósíalískum“ áhrifum í landinu. í stuttri fréttasendingu frá Varsjá var vitnað í pólsku fréttastofuna sem segir að efna- hagslegir erfiðleikar af völdum verkfallanna hafi valdið íbúum Póllands miklum erfiðleikum. í fréttinni sagði að sósíalismi væri lífsspursmál fyrir Pólverja og því þyrfti að vernda hann. Veður víða um heim Akureyri 10 hólfskýjaó Amsterdam 22 skýjaó Aþena 32 heióskírt Barcelona 27 léttskýjaó Berlín 25 heióskírt BrUssel 24 skýjaó Chicago 28 skýjað Denpasar 29 heióskírt Dublin 18 heióskírt Feneyjar 26 þokumóóa Frankfurt 24 skýjaó Fsereyjar 8 alskýjaó Genf 23 skýjaó Helsinki 18 skýjað Hong Kong 32 skýjaó Jerúsalem 30 skýjaó Jóhannesarborg 20 heióskírt Kaupmannahöfn 18 skýjaó Las Palmas 25 lóttskýjað Lissabon 26 heióskírt London 22 skýjaó Los Angeles 28 heióskírt Mexicoborg 23 skýjaó Madrid 30 heióskírt Malaga 27 léttskýjaö Mafiorca 29 léttskýjaó Miami 31 skýjaó Moskva 13 heióskírt Nýja Delhi 33 skýjaó New York 36 r 1 1 Oslo 16 skýjað París 24 heióskírt Rio de Janeiro 24 skýjaó Reykjavík 10 léttskýjaó Rómaborg 24 skýjaó San F^ancisco 17 heióskírt Stokkhólmur 18 skýjaó Tel Aviv 30 skýjað Tókýó 26 skýjað Vancouver 19 skýjaó Vínarborg 22 heióskírt í fréttinni var sagt frá því að verkföllin væru í Szczecin, Gdansk og Elblag. Ekkert var minnst á fjölda verkfallsmanna eða samn- ingaviðræður. I annarri frétt fréttastofunnar var sagt frá auknum undirbúningi heræfinga Varsjárbandalagsins sem fram fara í Austur-Þýska- landi á næstunni. Viðbrögð .kommúnista á Vestur- löndum við ástandinu í Póllandi eru mismunandi. Italski kommúnistaflokkurinn, sá stærsti í Evrópu, er hróðugur yfir því að verkföllin í Póllandi sanni kenningar flokksins um að sósíalisma megi aðeins byggja á lýðræði. Spánski kommúnistaflokkurinn vonar að atburðirnir í Gdansk þýði meira lýðræði fyrir þjóðir Austur-Evrópu. En franski kommúnistaflokkur- inn er á öðru máli. Þeir taka ekki afstöðu sem stríðir á móti Sovét- mönnum. Ritstjóri blaðs franska kommúnistaflokksins L’Humanite hefur fullvissað lesendur sína um að „þeir standi með verkamönnun- um og pólsku kommúnistunum í að leiðrétta villur og ófullkom- leika, til að vernda og þróa sósíalískt stjórnkerfi“. Frétta- skýrendur segja flokkinn ekki vera heilhuga með verkamönnum í Póllandi heldur fremur á bandi Sovétmanna. Myndin er tekin rétt í þann mund, að sprengjan i spilavítinu í Stateline í Nevada, sprakk í fyrrakvöld. Sprengjan í Nevada: Sprakk eftir að kröfur höf ðu verið samþykktar Statrlino. Nevada. 28. áxúst. AP. SPRENGJAN, sem komið var fyrir í spilaviti einu í borginni Stateline í Nevada sl. þriðjudag, sprakk í gærkvöldi. Stuttu áður hafði eigandi spilavitisins gengið að kröfu þeirra sem komu sprengjunni fyrir og tilkynnt þeim það símleiðis. Miklar skemmdir urðu á byggingunni og hús í nágrenninu titruðu. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast. Tveir menn komu sprengjunni fyrir í stórum kassa í spilavítinu sl. þriðjudag. Skildu þeir eftir bréf þar sem þeir kröfðust þriggja milljóna dollara og þyrlu að auki. Kváðu þeir sprengjuna innihalda 1.000 hólka af dýnamíti og 450 kíló af TNT sprengiefni og myndi hún springa ef óvarlega yrði komið að henni. Lögreglan staflaði 260.000 sandpokum umhverfis kassann og íbúar nærliggjandi húsa voru fluttir á brott. Sérfræðingar voru kallaðir á staðinn og reyndu þeir að gera sprengjuna óvirka úr fjarlægð. Ein slík tilraun var einmitt í gangi er sprengjan sprakk. Þá hafði þyrla með 3 milljónum dollara verið á sveimi í u.þ.b. hálfan klukkutíma og beðið eftir frekari fyrirskipun frá þeim sem komu sprengjunni fyrir. Sú skipun kom aldrei og var peningunum skilað aftur til eiganda spilavítis- „Frjáls verkalýðsfélög ... það getum við ekki leyft“ Gdansk. 28. ágúst. AP. TRYBUNA Ludu, hið opinbera málgagn pólska komm- únistaflokksins, skýrði frá því í dag, að á nóvember- þingi verkalýðssambandsins yrði væntanlega sam- þykkt, að leyfðar skyldu frjálsar, leynilegar kosningar innan sambandsins. Blaðið sagði ennfremur: „Kröfurn- ar um frjáls verkalýðsfélög stefna að því að rjúfa einingu pólskra verkamanna og ýta undir innbyrðis togstreitu. bað getum við ekki leyft.“ Fréttir hafa borist um, að verk- föll haldi enn áfram að breiðast út í Poznan, Krakow, Lods, Torun og Wroclaw og verkamenn gefa út yfirlýsingar um samstöðu með verkfallsmönnum á Eystra- saltsströndinni. Miklar biðraðir eru við matvöruverslanir og sam- göngur liggja víða niðri. Mieczyslaw Jagielski, varafor- sætisráðherra, átti í morgun fund með verkfallsmönnum í Lenín- skipasmíðastöðinni í Gdansk og gagnrýndi þá harðlega fyrir að leyfa vestrænum fréttamönnum að vera viðstöddum. Á fundinum var ekki fjallað um þá helstu kröfu verkfallsmanna, að leyfð skuli frjáls og óháð verkalýðsfé- lög. Jagielski hefur margoft tekið fram, að kommúnistaflokkurinn sætti sig aldrei við, að úr völdum hans yrði dregið. Slíkt væri fá- heyrt í fylgiríki Sovétríkjanna. I viðræðum verkfallsmanna í Gdansk og Jagielskis varaforsæt- isráðherra, kröfðust verkamenn þess, að endir yrði bundinn á ritskoðun í landinu. Jagielski svaraði því til, að pólska stjórn- arskráin tryggði fullt tjáningar- og trúfrelsi. „Hvernig má það vera, með tilliti til þessarar fal- legu stjórnarskrár, að stöðugt er úrbóta þörf,“ spurðu verkfalls- menn. „Áður treystum við ykkur. Nú hafið þið brugðist trausti okkar." Tass-fréttastofan rússneska réðst í gær harkalega á „andsósí- ölsk“ öfl í Póllandi, sem reru að því öllum árum að ýta bandalags- ríki Sovétríkjanna út af „braut sósíalismans". Engin merki sáust hins vegar um, að Rússar hygðust hlutast til um málefni Pólverja, þó að 40.000 hermenn Varsjárbanda- lagsríkjanna væru við heræfingar handan landamæranna í Austur- Þýskalandi. Hryðjuverkið í Bologna: Verkfallið í Frakklandi: Samningaviðræð- ur hafnar á ný ítalska lögreglan að komast á sporið Róm. 28. ágúst. AP. ÍTALSKA lögreglan lét í morgun til skarar skríða í ýmsum borg- um á Ítalíu og var tilgangurinn sá að taka höndum 28 hægrisinn- aða öfgamenn vegna sprenging- arinnar á járnhrautarstöðinni í Bologna þar sem 83 manns létu lífið. Snemma dags höfðu 12 menn verið handteknir og var hinna enn leitað. Þeim er gefið að sök að hafa staðið að baki hryðjuverkinu í Bologna, sem er það mesta frá lokum heimsstyrjaldarinnar síð- ari. „Handtökuskipanirnar ná að- eins til ítalskra borgara," sagði Luigi Persico, aðstoðarríkissak- sóknari, á blaðamannafundi í Bol- ogna í dag. „Uppbygging þessara hægrisamtaka er nýfasísk og ný- nasísk og við erum að grafast fyrir um fortíð þeirra og fyrri hryðju- verk.“ Samtök hægri öfgamanna á Ítalíu hafa haft þann háttinn á að koma fyrir sprengjum á fjölförn- um stöðum en vinstri öfgamenn, eins og Rauða herdeildin, hafa hins vegar leitast við að ráða af dögum einstaklinga, sem þeir telja til andstæðinga sinna. París ok London, 28. ágúst. — AP. UMFERÐ var eðlileg um flestar hafnir í Frakklandi í dag eftir að samningaviðræður hófust á ný milli fiskimanna og fulltrúa fiskiðnaðarins. Ennþá lokuðu reiðir fiskimenn þó nokkrum höfnum um allt landið. Forsvarsmenn breskra skipa- félaga sögðu í dag að umferð ferja milli Englands og Frakk- lands væri nú aftur með cðli- legum hætti nema hvað höfninni i Boulogne er ennþá haldið lokaði. í Boulogne loka fiskimenn fyrir umferð bæði um höfnina og götur borgarinnar. Hafa þeir sett báta sína fyrir hafnarmynnið og stillt bílum sínum þvert yfir götur. Boulogne hefur verið miðstöð verkfallsmanna frá því verkfallið hófst fyrir u.þ.b. mánuði. Forseti Frakklands, Valery Giscard d’Estaing, hefur hingað til neitað að skipta sér af verkfall- inu og sagt það vera vandamál iðnaðarins. Stjórnin Jiefur þrisvar sent herskip á flota fiskimanna. Allar samningaviðræður hafa hingað til farið út um þúfur. Nú hafa samningamenn hafið viðræð- ur í þriðja skipti. Megin kröfur fiskimanna eru hærra fiskverð og lægra olíuverð. ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.