Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980 ÁLAFOSS. nýtt fjolskip Eimskipaíélagsins, kom til hafnar í Krykjavik sl. miAvikudag. eins on skýrt hefur verið frá. Ljósmyndari Mbl., RAX, tók þessa mynd í brú skipsins af þeim Herði SÍKurtfestssyni. forstjóra félaRsins, t.v., Hreini Eyjólfssyni, yfirvél- stjóra. Jóni I>. Karlssyni, 1. stýrimanni og Alan Thorsland, skipstjóra, sem er danskur. Norræn leiklistar- hátíð í Finnlandi í FRÉTTATILKYNNINGU frá Bandalagi islenzkra leikfélaga seKÍr, að Norra*n leiklistarhátíð áhugamanna verði haldin í Aho í Finnlandi dagana 29,—-31. áKÚst. Ilátíðin er haldin að tilstuðlan Nordisk Amator Teaterrád. en Finnar tóku að Leiðrétting NAFN skipstjórans á Selá misrit- aðist í gær. Hann heitir Rögnvald- ur Bergsveinsson. Er hann beðinn velvirðingar á mistökunum. Góss í óskilum hjá Selfoss- lögreglunni HJÁ lögreglunni á Selfossi eru í óskilum nokkrir svefnpokar, ferðasegulbandstæki, ferðaút- varpstæki, lítil myndavél og lítið flass, sem stolið var í Þjórsárdal og félagsheimilinu Árnesi um sl. verzlunarmannahelgi. Þeim, sem tapað hafa siíkum munum á þess- um stöðum, er bent á að hafa samband við Hergeir á lögreglu- stöðinni á Selfossi, sími 99-1154 virka daga kl. 9—17. sér framkvæmd hennar. Hátíð- in. sem er hin fyrsta af þessu tagi, er að hluta til kostuð af Norræna menningarmálasjóðn- um og' finnska menntamála- ráðuneytinu, auk þess sem borgaryfirvöld í Abo hafa styrkt hana. Einum leikhópi frá hverju landi var gefinn kostur á þátt- töku. Til að velja íslenzka hópinn var kosin dómnefnd tveggja manna, þeirra Péturs Einarsson- ar, skólastjóra Leiklistarskóla Islands, og Stefáns Baldurssonar leikstjóra. Fyrir valinu varð sýn- ing Leikfélags Sauðárkróks á leikriti Kjartans Ragnarssonar, Týndu teskeiðinni, undir leik- stjórn Ásdísar Skúladóttur. Hátíðin^ fer fram á tveimur stöðum í Ábo, Sænska leikhúsinu og Stúdentaleikhúsinu og verður Týnda teskeiðin opnunarsýning hátíðarinnar í því fyrrnefnda. Ennfremur hefur íslenzka leik- hópnum verið boðið að sýna í Esbo, sem er vinabær Sauðár- króks, og í Helsinki. Núverandi formaður Nordisk Amater Teaterrád er Helgi Hjörvar, framkvæmdastjóri Bandalags íslenzkra leikfélaga, en fulltrúi Islands í stjórn þess er Einar Njálsson. (Fréttatilkynning) Pétur Pétursson þulur: Verkf allsrétturinn og gamla heyið '177 pí&a.-tkf. i<m Björn Arnórsson, hagfræðing- ur BSRB er greinileg þeirrar skoðunar að hann sé ráðinn til þess að verja hag forystumanna, en eigi að loka augum fyrir kjaraskerðingu ef hún er framin af örvhentum og megi veitast að óbreyttum félögum með stóryrð- um. Björn ásakar mig í Morgun- blaðinu, dylgjar og dróttkveður •og segist aldrei hafa reiknað fyrir mig sáttatillöguna frá 1977. Síðan segir hann að hann „trúi því ekki fyrr en á reyni, að ekki sé unnt að ræða við Pétur Pétursson án þess að hafa vitni til staðar". Svo vel vill til að vitni var til staðar og skal það nú leitt fram. Vitnið er Björn Arnórsson sjálf- ur. Skal nú birtur útreikningur Björns, sá er hann gerði að beiðni minni. Til Guðslukku geymdi ég miðann með útreikn- ingi hans og athugasemdum er hann skráði sjálfur neðanmáls. Rithönd Björns sjálfs er á tölum og athugasemd. Þar stendur skráð hans eigin orðum: Kaup- máttur sáttatillögu 1977 miðað við framfærsluvísitölu. Nú er ljóst að forysta BSRB hefir sett þumalskrúfur á Björn og lesið honum pistilinn fyrir að þeir skyldu ekki vera vitni sjálfir að því er hann reiknaði. Þá hefði nú dæmið snúist við. í réttar- farsreglum þeirra er alls ekki farið eftir bók próf. Ólafs Jó- hannessonar „Lög og réttur“. Þeir BSRB menn hafa allt aðra atriðisorðaskrá. Þar er sekur = Geir. Sýkn = Ólafur. Sé grein Björns lesin kemur í ljós að hann hefir allt aðra afstöðu til kjaraskerðingar er verður í tíð seinni ríkisstjórna. Hann er alls ekki til viðræðu um samanburð á gildi launa fyrr og nú. Grein hans er lýsandi dæmi um það hvernig forystumenn launamannasamtaka hafa hörf- að skref fyrir skref og afsalað sér margháttuðum réttindum, en kaupa önnur dýru verði og telja til kjarabóta. Eru vaxta- aukalánin í biðstöðu? Hver segir að launavinnu beri að setja skör neðar en fé og fjármagn? Var ekki sagt: Verður er verkamað- urinn launanna? Er búið að breyta? Á nú bara að segja. Verð er krónan vaxt- anna? Björn hagfræðingur má hræra í sinni Hagkaupspakka- súpu fyrir mér. Hann þarf ekki að halda að hann sannfæri nokkurn mann um að samningur þeirra félaga sé sá ávinningur að annar jafngóður og betri hefði ekki náðst. Það þarf kokhreysti til þess að hrósa sér af styttra samningstímabili þegar samn- ingaþjark hefir tekið hátt á annað ár. Samtals verður samn- ingstímabilið því lengra en áður var. Það sem er kjarni málsins er hvort forystumönnum stéttar- samtaka á að líðast að leggja upp með kjarakröfur er þeir segja reiknaðar eftir bestu sam- visliu meðan andstæð ríkisstjórn situr, en stinga kröfunum undir pottinn og elda pakkasúpu handa fjórum er þeirra eigin dúsbræður sitja á valdastólum. Til hvers átti að kaupa rýmk- aðan verkfallsrétt í fyrra? Er verið að safna fyrningum af verkfallsrétti eins og bændur safna heyi? En ganga síðan í kring um verkfallsréttinn eins og Brandur gekk marga hringi um gamla heyið. Svo á að kalla: Kibba, kibba, komið þið greyin, kibba kibba græn eru heyin, kibba kibba gemsar og gamalær og golsóttur sauðarpeyinn. En það vilja þeir ekki gera, háttvirtir forystumenn, nema það henti í flokkspólitískri refskák og valdatafli. Alþýðu varðar lítt hvort ranglætið var framið á dögum Geirs góða eða Ólafs helga. Pétur Pétursson þulur. Skúli A. Steinsson forstjóri - Minning Fæddur 7. desember 1924. Dáinn 19. ágúst 1980. í dag er til moldar borinn Skúli Steinsson forstjóri, Heiðargerði 19. Hann er búinn að heyja langt sjúkdómsstríð við erfiðan sjúk- dóm. Glíman var ströng og virtist aldrei verða hlé á, svo geist tók þessi vágestur hann. Þrekið var svo mikið að það tók rúmt ár að leggja hann að velli. Hann tók þessu með hetjulund og stillingu. „Mér verður tregt tungu að hræra" er ég minnist vinar míns og svila, Skúla Steinssonar, sem lést svo langt um aldur fram. Skúli var fæddur 7. 12. 1924 að Litla Hvammi í Miðfirði. Hann missti móður sína á fjórða aldurs- ári. Hún dó frá stórum barnahópi, 13 börnum, og var hann yngstur þeirra. Það má geta þess nærri hvert reiðarslag þetta var fyrir heimilisföðurinn og börnin, sem flest voru ung, eða drenginn á svo viðkvæmum aldri. Ég undirritað- ur man vel eftir því þegar andláts- fregnin barst til okkar að Fossi, hvað móðir mín var sorgmædd við þessi tíðindi, enda þekktust þær vel, Valgerður og Sigríður móðir mín. Foreldrar Skúla voru sæmdar- hjónin Valgerður Jónasdóttir og Steinn Ásmundsson. Foreldrar Valgerðar, Kristín Guðmunds- dóttir og Jónas Eiríksson bjuggu á Óspaksstöðum og síðar á Þórodds- stöðum í Hrútafirði. En Steinn, sem var frá Mýrum í Miðfirði, var sonur Guðlaugar Gestsdóttur og Ásmundar Einarssonar, sem lengi bjuggu þar. Að Skúla stóðu því traustar bændaættir úr Húna- þingi. Stuttu eftir fráfall móðurinnar leystist heimilið upp. Var hann þá á vegum föður síns á nokkrum bæjum í Miðfirði, uns hann fer að Tjarnarkoti. Þar er hann fram að skólaaldri, er faðir hans, sem þá er fluttur til Reykjavíkur, tekur hann til sín. Skúli fer þó jafnan norður að Tjarnarkoti á sumrum, en eftir fermingu verður hann þar ársmaður. Á átjánda ári flyst hann svo til Reykjavíkur. Ræðst hann þá til Korkiðjunnar og starfar þar í rúm 20 ár. Þá tekur hann við rekstri Sandsölunnar sf. í nokkur ár, uns hann stofnar sitt eigið fyrirtæki árið 1970. Árið 1946 kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni Gyðu Brynjólfs- dóttur frá Ormstöðum í Breiðdal, dóttur þeirra sæmdarhjóna Guð- laugar Eiríksdóttur og Brynjólfs Guðmundssonar. Hún er mesta myndar og dugnaðar kona, sem bjó manni sínum hlýlegt og gott heimili. Þar áttu allir góðu að mæta og var því oft gestkvæmt á heimili þeirra. Dvöldu þar oft frændur og vinir utan.af landi ef þeir voru hér á ferð til lækninga eða annarra erinda. Gyða hefur sýnt aðdáunarverðan dugnað og hetjuskap meðan þetta langa stríð stóð yfir. Þeim hjónum varð fimm barna auðið og eru þau þessi: Bryndís Skúladóttir kennari f. 10.3. ’45, gift Páli Árnasyni Verksmiðju- stjóra. Gunnsteinn Viðar Skúla- son framkvæmdastjóri f. 31.1. ’47, kvæntur Sigrúnu Gunnarsdóttur. Guðlaug Skúladóttir f. 14.1. ’55, gift Vilberg Skúlasyni kjötiðnað- armanni. Sigrún Skúlason tækni- teiknari f. 19.2. ’56m heitbundin Jóni Þórarni Sverrissyni húsgagnasmið. Halldór Skúlason verkstjóri f. 5.8. ’60, heitbundinn Jónu Ágústu Helgadóttur. Skúli var afburða starfsmaður. Vinnutíma var þá ekki alltaf stillt í hóf ef mikið verkefni var fram- undan. Hann stofnaði fyrirtækið Sólningu h.f. fyrir rúmum 10 árum ásamt Gunnsteini, syni sín- um, og var það í leiguhúsnæði fyrstu árin. En svo var hafist handa um byggingu við Smiðjuveg og fer starfsemin þar nú fram. Þetta er mikið og traust fyrirtæki og hefur viðskipti um land allt. Hann hefur starfað með dugnaði og hyggindum að uppbyggingu þess og hygg ég að hann hafi verið kominn yfir erfiðasta hjallann, þó áfram sé haldið. Skúli var mikill heimilisfaðir og bar mikla umhyggju fyrir fjöl- skyldu sinni. Heimilið var því hans vettvangur og vinnustaður. Hann var áhugamaður um íþrótt- ir, starfaði hjá knattspyrnufélag- inu Val og sat í stjórn Knatt- spyrnudeildar þess félags um skeið. Bar hann velferð félagsins jafnan fyrir brjósti og fylgdist ávallt með störfum þess. Lengi hafa leiðir okkar legið saman, allt frá því að við vorum ungir menn. Heimili okkar eru nátengd. Það mynduðust því sterk vináttusambönd, sem aldrei bar skugga á. Það er því margs að minnast og margs að sakna og þakka. Hann var einstaklega greiðvikinn maður, það þekkjum við best sem kynntumst honum. Alltaf var hann glaður og hress í viðmóti, hvar sem fundum bar saman, hvort það var á heimili hans eða annars staðar. Fjölskylda mín kveður hann með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hann var okkur. „Far |>ú í frifli. FriAur kuAs þi« blessi, hafAu þAhk fyrir allt ok allt.~ Við hjónin sendum konu hans, börnum, systkinum og öðrum að- standendum, okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Björn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.