Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
Alþjóðlegt tónlistar-
námskeið i Reykjavík
I»essa dagana stendur yfir tón-
listarnámskeió í Menntaskóian-
um við Hamrahlíð á vegum Tón-
listarskólans í Reykjavik. Nám-
skeiðið sækir ungt fólk frá öllum
Norðurlöndunum, Evrópu og
Ameríku auk þess er hér staddur
nemandi frá Nýja Sjálandi. Nám-
skeiðið er kennt við aðalstjórn-
anda þess Paul Zukofsky, sem er
heimsþekktur fiðluleikari o«
hljómsveitarstjórnandi. Á fyrsta
námskeiðinu, sem haldið var i
Tónlistarskólanum fyrir þremur
árum voru nemendur 11, en nú
eru þeir um eitt hundrað. Veg og
vanda af þessum námskeiðum
hefur Þorgerður Ingólfsdóttir
tónlistarkennari haft.
Auk Zukofskys leiðbeinir Rob-
ert Aitken nemendum í flautuleik,
en hann er vel þekktur víða um
heim og hefur unnið til fjölda
verðlauna.
skeiði 18 nemendur þar af 11
íslenskir, en hinir kæmu víðsvegar
að.
Leikin voru í gærkvöldi verk
eftir tvö bandarísk tónskáld,
Brant og Colemann, auk þess
frumflutt var verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem hann samdi
sérstaklega fyrir þennan hóp
flautuleikara. Það er sérstakt að
því leyti að hljóðfæraleikararnir
eru staðsettir á meðal áhorfenda
en ekki allir á sviði eins og tíðkast
hefur fram að þessu.
íslendingar
nokkuð sérstakir
Amande Hollins frá Nýja Sjá-
landi, flautuleikari sem hefur
stundað nám við Tónlistarháskól-
ann í Manchester á Englandi,
sagðist hafa frétt af námskeiði
þessu hjá vinkonu sinni. „Ég held
Zukofsky-námskeiðum en hinum
þremur í Englandi.
Ég hef heima hjá mér sænska
stelpu, sem er þátttakandi á nám-
skeiðinu, og leikur á flautu og við
leikum saman annað veifið. Henni
líkar mjög vel vistin hér á landi og
við fórum með hana austur að
Heklu nóttina eftir að fjallið
byrjaði að gjósa."
Kem aftur ef ég
á þess kost
Frank Nesse heitir bassaleikari
frá Ósló og er sendur á námskeiðið
á vegum Tónlistarháskólans þar.
„Ég rakst á tilkynninguna um
þetta námskeið í blaði sem gefið
er út í skólanum. Fyrstu kynni
mín af Islandi voru eldarnir í
Hekla og var sú sjón er þar blasti
við mér tilkomumikil.
Zukofsky hafði ég ekki kynnst
Paul Zukofsky Ljósm. Kristinn.
Robert Aitken leiðbeinir hér flautuleikurum á námskeiðinu.
Paul A. Zukofsky leiðbeinir hér 100 manna hljómsveit námskeiðsins.
í samtali við Mbl. kvað Zu-
kofsky námskeið þetta hafa geng-
ið mjög vel og ætlunin væri að
halda þessu námskeiðahaldi
áfram og þau væru orðin stór liður
í þjálfun íslenskra tónlistarmanna
hér á landi. Þá kvað hann nokkqð
undarlegt að fá hingað erlenda
tónlistarmenn til þess að leika í
sinfóníuhljómsveitinni á sama
tíma og innlendir hljómlistar-
menn verða að fara út fyrir
landsteinana í leit að starfi.
Tilganginn með námskeiði sem
þessu kvað hann vera þann að
veita ungu fólki þá tilsögn og
þjálfun sem það nauðsynlega þarf
á að haida til þess að geta leikið í
kammer- eða sinfóníuhljómsveit.
í stuttu samtali við Mbl. sagðist
Robert Aitken hafa mikla ánægju
af að koma til Islands, og þetta
væri 19. skiptið, en það væri mjög
dýrt að koma hingað. Hann sagði
að þeir íslenskir hljómlistarmenn,
sem hann hefur kynnst séu búnir
miklum hæfileikum, en skorti
reynslu. Þeir þyrftu að leika meira
með hljómsveitum, auk þess sem
hér væri töluvert af hæfileikafólki
í tónlist. Hann sagði einnig að á
sinni könnu væru á þessu nám-
að þetta námskeið sé mjög gagn-
legt og að maður læri mikið á
þessu. Ég fór til náms í Englandi
vegna þess að ég hafði lært það
sem ég gat heima. Á flautu hef ég
æft í tíu ár og ætla mér að halda
því áfram.
Ég sé alls ekki eftir að hafa
komið hingað því ég hef lært
ótrúlega margt og kynnst íslend-
ingum, sem eru margir hverjir
nokkuð sérstakir, að mér finnst."
Zukofsky nám-
skeiðin gagnleg
Birna Bragadóttir er einn
þeirra íslendinga, sem voru . á
námskeiðinu, en hún hefur lagt
stund á flautuleik. „Ég tók kenn-
arapróf fyrir tveimur árum og í
apríl síðastliðnum lauk ég burt-
fararprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Þrisvar hef ég farið á
þriggja vikna námskeið í Englandi
í flautuleik. Þar hafa verið margir
frægir spilarar og kennarar s.s.
Trevor Wye, William Bennet o.fl.
Ég var í fyrsta skipti á Zukofsky
námskeiði sl. ár og lærði ofsalega
mikið og ég tel mig hafa haft
meira gagn af þessum tveimur
mikið fyrir komu mína hingað, en
ég kem hingað aftur ef ég á þess
einhverntíma kost,“ sagði Frank
að lokum.
Kemur í boði
Sibelius-
akademíunnar
Eero Munter er bassaleikari frá
Finnlandi og kemur hingað í boði
Sibeliusarakademíunnar í Hels-
inki. „Ég vissi ekki um þetta
námskeið fyrr en í byrjun júlí, er
ég var spurður hvort ég vildi fara.
Ég held að námskeið sem þetta sé
mjög góð aðferð til þess að æfa
hljómlistarmenn í að leika með
hljómsveit, annars hef ég leikið
með sinfóníuhljómsveitinni í skól-
anum.“ Aðspurður um hvort hann
kæmi hingað aftur sagðist hann
hafa áhuga, en verði hann ekki
styrktur sagðist hann ekki hafa
efni á að koma.
Þórhallur Birgisson hefur lokið
námi í fiðluleik við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og er við nám
í New York. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég tek þátt í þessu
námskeiði og líkar vel. Ég hef
Birna Bragadóttir
Robert Aikten
Frank Nesse t.v. og Eero Munter
Magnús Kristinsson
Þórhallur Birgisson
Svanhildur Óskarsdóttir
Amanda Hollins