Morgunblaðið - 29.08.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
+
Maöurinn minn,
INGÓLFUR ÞORSTEINSSON,
Granaskjóli 7,
lést 27. ágúst á öldrunardeild Landspítalans.
Guðlaug Brynjólfsdóttir.
f
Eiginkona mín,
VALGERDAR KR. GUNNARSDOTTUR,
fyrrum Ijósmóóir í Bæjarhreppi, Strandasýslu,
Ægisíðu 113, Reykjavík,
lézt miövikudaginn 27. ágúst.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Arnkell Ingimundarson.
+
SIGURBJÓRN HALLDÓRSSON,
frá Háfshjéleigu,
sem andaöist á Borgarspítalanum 26. ágúst veröur jarösunginn
laugardaginn 30. ágúst, athöfnin hefst kl. 2 í Þykkvabæjarkirkju.
Jaröaö verður í Háfskirkjugaröi.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristján Gíslason.
+
útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍSABETAR BJARNADOTTUR,
Sólbergi, Bolungarvík,
veröur gerö frá Hólskirkju laugardaginn 30. ágúst kl. 2.00 e.h.
Pé,ur Jón880n' Fjóla Olafsdóttir,
Ingibjörg J. Jónsdóttir, Guömundur Kr. Jónsson,
Guömundur B. Jónsson, Fríöa Pétursdóttir,
Halldóra Jónsdóttir, Hjalti Einarsson,
Sólberg Jónsson. Lucie Einarsson,
Karifas B. Jónsdóttir, Haukur Tómasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinsemd viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar og stjúpfööur,
SÉRA SIGUROAR KRISTJÁNSSONAR,
Drápuhlíö 8, Reykjvík,
Margrét Hagalínsdóttir,
Agnes M. Siguróardóttir,
Hólmfríóur Siguróardóttir,
Rannveig Sif Siguröardóttir,
Smári Haraldsson.
+
Þakka innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns
míns,
GUÐMUNDAR TÓMASAR GUÐMUNDSSONAR,
frá Hellissandi.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks 4d á Landspítalanum og
útgerðar Skarösvíkur.
Unnur Pétursdóttír.
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim fjölmörgu sem vottuöu
okkur samúö og vinarhug viö fráfall og útför,
MAGNUSAR Á. ÁRNASONAR,
listamanns,
Ágústa Sigfúsdóttir,
Valdís Vífilsdóttir,
Brynja Vífilsdóttir,
Vífill Magnússon.
+
Viö þökkum af alhug samúö og hlýju viö andlát og útför,
AXELS Ó. OLAFSSONAR,
innheimtustjóra Ríkisútvarpsins,
og margvíslegan heiöur sýndan minningu hans.
Þorbjörg Andrésdóttir, Anna Axelsdóttir,
Ólafur Ó. Axelsson, Svana Víkingsdóttir,
Ingibjörg Axelsdóttir, Sæmundur Rögnvaldsson,
Höskuldur og Þorbjörg.
Minning:
Björgvin Sæmunds-
son bœjarstjóri
Fæddur 4. mars 1930
Dáinn 20. ágúst 1980
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi lést 20. þ.m.
Hann varð bráðkvaddur undir
stýri á bifreið sinni á Holtavörðu-
heiði.
Björgvin var fæddur á Akureyri
4. mars 1930, sonur hjónanna
Sæmundar Steinssonar og
Magneu Magnúsdóttur. Hann varð
stúdent frá M.A. 1950 og lauk
fyrrihlutaprófi í verkfræði við
Háskóla Íslands árið 1954. Prófi í
byggingarverkfræði lauk hann í
Kaupmannahöfn árið 1957. Hann
vann um tíma sem verkfræðingur
og rak eigin verkfræðistofu. Bæj-
arstjóri var hann á Akranesi 1962
til 1970, þá varð hann bæjarstjóri
í Kópavogi og gegndi því starfi til
dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona Björgvins
er Ásbjörg Guðgeirsdóttir, bók-
bindara og Guðrúnar Sigurðar-
dóttur.
Börn þeirra eru tvö: Hildisif, 20
ára og Kjartan, 17 ára. Ég kynnt-
ist Björgvin ekki fyrr en 1970 er
hann réðst til okkar sem bæjar-
stjóri í Kópavogi. Þá strax hófst
fjölþætt samstarf okkar að málum
Kópavogsbæjar, á það samstarf
bar aldrei skugga. Á síðasta ára-
tug hefur uppbygging Kópavogs-
bæjar verið ör og því viðfangsefn-
in, sem bæjarstjóri og bæjarstjórn
hefur átt við að glíma margþætt.
Það var okkur Kópavogsbúum
mikið lán að njóta frábærra
starfskrafta Björgvins, eldmóður
hans og áhugi var á stundum með
ólíkindum og hlífði hann sjálfum
sér hvergi. Bær í svo örum vexti
eins og Kópavogur krefst mikillar
árvekni í starfi bæjarstjóra. Verk-
efnin eru mörg, stór og smærri,
sem kalla á úrlausnir, en
framkvæmdageta bæjarins tak-
mörkuð svo velja verður og hafna.
Við slíkar aðstæður kom röggsemi
og glöggskyggni Björgvins ljóst
fram.
Björgvin var og óþrjótandi í að
fitja upp á nýjungum í stjórnsýslu
bæjarins og vann þar mikið og
gott verk og mörg éru sporin sem
hann skilur eftir á þeim vettvangi.
Björgvin var málafylgjumaður
og mikill samningamaður og var
ávallt fljótur að greina kjarna
hvers máls og átti auðvelt með að
setja fram skoðanir sínar skýrt og
skorinort jafnt í sókn sem og í
vörn. Á starfsferli sínum átti
hann mikinn þátt í að tryggja
hagsmuni Kópavogsbúa í bráð og
lengd á fjölmörgum sviðum. Skal
það ekki upptalið hér, en verk
hans tala sínu máli.
Það var athyglisvert og um leið
ánægjulegt að finna hve annt
Björgvin lét sér um hag og
aðbúnað starfsfólks bæjarins. Þar
fylgdust að forustuhæfileikar og
manngæska.
Björgvin hafði einlægan áhuga
á að efla samstarf við nágranna
okkar á Norðurlöndum. Kópavog-
ur er í vinarbæjartengslum við
bæi á öllum Norðurlöndunum, þar
með talið á Álandseyjum, í Fær-
eyjum og Grænlandi. Hann var
óþreytandi í að greiða götu vax-
andi samskipta við íbúa vinabæja
okkar. Mér er kunnugt um að
hana naut mikillar virðingar í
vinabæjunum hjá þeim, sem höfðu
kynnst honum.
Björgvin var mikill starfsmaður
og ósérhlífinn. Það gerðist oft,
þegar unnið var að úrlausn mikils-
verðra mála, að hann tók verkefn-
in með sér heim að kvöldi og kom
morguninn eftir með tillögu að
úrlausn. Þær eru áreiðanlega
margar næturnar, sem hann vakti
heima við vinnu sína.
Mér er vel kunnugt um að
Björgvin gekk ekki ávallt heill
heilsu til starfa, en það var fjarri
honum að kvarta eða hlífa sér. Við
Kópavogsbúar eigum honum mik-
ið að þakka fyrir árangursrík
störf hans fyrir bæjarfélag okkar.
Það var þroskandi og ánægjulegt
að eiga samtarf við slíkan mann-
kosta mann.
Ekki verður Björgvins svo
minnst né starfa hans að ekki
verði getið hans ágætu konu,
Ásbjargar. Hún stóð af alúð og
festu með honum í hverju sem var.
Heimili þeirra bar húsbændunum
fagurt vitni. Gestrisni þeirra
hjóna var einlæg. Þeir eru margir
gestirnir, innlendir og erlendir,
sem eiga hugljúfar minningar frá
heimsókn sinni til þeirra.
Við hjónin þökkum þá traustu
vináttu, sem Björgvin sýndi
okkur. Hann reyndist okkur best
þegar mest á reyndi.
Við vottum Ásbjörgu, börnun-
um og aldurhnignum tengdafor-
eldrum og öðrum aðstandendum
hans okkar dýpstu samúð.
Áxel Jónsson.
Lokaö
frá hádegi í dag föstudag vegna
jaröarfarar
BJÖRGVINS SÆMUNDSSONAR,
bæjarstjóra.
Wilhelm Norðfjörö,
umboðs- og heildverslun,
Hverfisgötu 49, Rvík.
Lokað
vegna jaröarfarar Skúla Steinssonar forstjóra í dag
föstudaginn 29. ágúst frá kl. 12 til kl. 5 e.h.
Sólning h.f.,
Smiöjuvegi 32—34 Kópavogi.
ra Skrifstofur
^ Kópavogskaupstaðar
veröa lokaöar frá kl. 12 á hádegi föstudaginn 29.
ágúst vegna jarðarfarar Björgvins Sæmundssonar
bæjarstjóra.
Bæjarritari
Það voru váleg tíðindi sem
okkur starfsmönnum Kópavogs-
kaupstaðar bárust að morgni hins
20. ágúst sl. Bæjarstjórinn okkar
Björgvin Sæmundsson hafði látist
kvöldið áður á leið í næturstað í
Munaðarnes, þar sem hann dvald-
ist í sumarfríi sínu í öðru af
orlofshúsum Starfsmannafélags
Kópavogskaupstaðar.
Okkur setti hljóða um stund
yfir þessari helfregn. Það var
erfitt að skilja hvernig þetta gat
gerst svona snöggt. Björgvin hafði
kvatt okkur fyrir viku, svo hress
og léttur í lund. Ekki var þarna
„Elli kerlingu" um að kenna því
Björgvin var aðeins fimmtugur að
aldri. Fyrir þá sem ekki þekktu
var þetta óskiljanlegt, en þeir sem
betur vissu áttuðu sig er á leið.
Þarna var að verki leyndur óvinur,
sem verður svo mörgum mannin-
um að fjörtjóni. Þrátt fyrir van-
heilsu hafði Björgvin aldrei látið á
neinu bera né borið sjúkdóm sinn
á torg. Hann vann sinn fulla
starfsdag eins og ekkert hefði í
skorist með atorku og dugnaði
þess manns, sem lætur sér ekkert
mannlegt óviðkomandi.
Þau rúmlega 10 ár sem Björgvin
var bæjarstjóri var samstarf hans
við starfsmenn bæjarins með
miklum ágætum.
Hann gerði sér far um að
fylgjast sem best með öllu og lét
sér annt um starfsfólk sitt. Kom
það m.a. fram í því að ætíð er leita
þurfti til hans með málefni sem
vörðuðu starfsmennina, var hann
boðinn og búinn að veita þá aðstoð
er þurfti og stóð í valdi hans. I
starfi hafði Björgvin reglu á öllum
hlutum og vann að heilindum að
þeim verkefnum sem honum var
trúað fyrir. Hann var fastur fyrir,
en lipur að sama skapi ef því var
að skipta.
Það hafa eflaust verið skiptar
skoðanir um Björgvin Sæmunds-
son eins og aðra dauðlega menn,
en um það eru ekki skiptar
skoðanir að bæjarfélagið okkar
hefur nú orðið að sjá að baki
dugmiklum hæfileikamanni og
góðum dreng.
Þau ár sem Björgvin var bæjar-
stjóri helgaði hann Kópavogi alla
krafta sína og hlífði sér hvergi. Og
þó að einhvers staðar standi, að
maður komi í manns stað, er ekki
örgrannt um að erfitt reynist að
fylla í það skarð sem nú er rofið
við fráfall hans.
Við starfsmenn Kópavogskaup-
staðar kveðjum nú bæjarstjóra
okkar og samstarfsmann og þökk-
um honum samfylgdina, sem var
alltof stutt. Við hefðum svo sann-
arlega kosið að fá að njóta sam-
fylgdar hans lengur.
Ásbjörgu eiginkonu hans og börn-
um þeirra, Hildisif og Kjartani,
vottum við dýpstu samúð okkar og
hryggð.
Að endingu vil ég svo sérstak-
lega þakka Björgvin fyrir sam-
starf okkar þann stutta tíma sem
við unnum saman. Og fyrir þann
hlýhug og þá vinsemd sem hann
auðsýndi mér og fjölskyldu minni
alla tíð.
Fari hann í friði þessi ágæti
drengur, um hann verður aldrei
sagt að hann hafi níðst á því, sem
honum var trúað fýrir.
Björn Þorsteinsson,
íorm. Starfsmanna-
félags Kópa-
vogskaupstaðar.
Hinsta kveðja írá U.m.f.
Breiðablik í Kópavogi.
„Skjott hefur sol bruKÖið sumri.
því séó hef ég fljÚKa
fannhvita svaninn úr sveitum
til sóllanda fegri;**
Jafnvel það sem maður þykist
hafa skynjað að gæti verið í aðsigi
kemur jafn óvænt. Við sem höfum
þekkt Björgvin Sæmundsson og
fylgst með heilsu hans síðustu ár
höfum ekki verið óttalausir um
það sem nú er skeð og þó var erfitt
að trúa því að líf þessa kraftmikla
og skelegga manns héngi á svo
veikum þræði. En þó Björgvin sé
látinn þá lifir minningin um
góðan dreng og félaga. Það er svo
sannarlega margs að minnast frá
þeim árum er Björgvin Sæ-