Morgunblaðið - 29.08.1980, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
MOBÖíJN-Vv^
KAfpinu S
«! -r*^_
-r.
' .' •'L__.
'i.J’á
GRANI GÖSLARI
ásí er.
... <k) þurfa ekki
að kvíða ein-
mana komandi
degi.
'we 805
Ék keypti hann af eskimóa — á
förnum vegi. — Hann ók átta
gata tryllitæki.
Fyrirspurn
óperuunnanda
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
„ X3>
AH.I VSlNí. \
SIMINN KK:
22480
COSPER
8585
«*€0
SK COSPER
Hann skyldi þó ekki vera þyrstur?
Guðrún Á. Simonar söngvari
skrifar:
„Eg hringdi í Velvakanda vegna
fyrirspurnar óperuunnanda — af
hverju íslenskir óperusöngvarar
syngju aldrei óperur í útvarpið.
Hann nefndi t.d. Mariu Markan,
Guðmund Jónsson og mig.
Stúlka sem gegndi í síma Vel-
vakanda tók viðtalið við mig og til
þess að vera viss um að allt
kæmist til skila spurði ég hana
hvort hún hefði ekki segulbands-
tæki. Mér til undrunar svaraði
hún því neitandi.
• Veitir ekki af
að hafa segulband
Ég hélt að þáttur eins og
Velvakandi ætti að hafa svona
græjur, ekki veitir af, eins og kom
á daginn í viðtalinu við mig.
Stúlkan fullvissaði mig um að allt
kæmist til skila, en þvi miður varð
allt brenglað, þegar það kom í
biaðinu og mér lögð í munn orð
eins og „óhvetjandi". Er þetta orð
til í íslensku máli? Spyr sá sem
ekki veit.
Ég hringdi daginn eftir og
talaði við stúlkuna og sagði, að ég
væri mjög óánægð. Hún sagði
bara, að ég skyldi skrifa til
Velvakanda, því að hún væri að
fara til útlanda. Þannig afgreiddi
hún málið, og baþ mig einu sinni
ekki afsökunar!
• Innlenda efnið
geymt en því
erlenda fleygt
Jæja, nú ætla ég að skrifa hið
rétta í þessu máli.
Áður fyrr voru óperur fluttar
beint af leiksviði í gegnum útvarp-
ið, og allir, sem áttu segulbands-
tæki, gátu tekið upp eftir vild.
Þessu var hætt, en ekki veit ég
hver var ástæðan. Því miður eiga
þeir ekki nema e.t.v. 1—2 óperur
og einhverja búta úr óperum,
þessu var öllu fleygt eða það
týndist. Ef íslenskir söngvarar
sungu prógrömm með innlendu
eða erlendu efni, þá var það
innlenda geymt, en erlendu efni
yfirleitt hent í ruslakörfuna, ef ég
má taka svo til orða.
• „Einhver“ góð-
viljaður lofaði
okkur að eiga
sumt af þessu
Sumt af þessu innlenda efni
,var ágætt, en annað var bara rusl.
Stundum vorum við beðin um að
syngja lög eftir ýmsa, sem kölluðu
sig tónskáld, en lítið skemmtilegt
að syngja. Ég gerði lítið af því, en
það gerðu aðrir söngvarar og það
ku hafa verið vel borgað. ísienskir
söngvarar hafa sungið í útvarpið
mikið af erlendum lögum og aríum
frá fyrstu tíð, en flestu hefur því
verið komið fyrir kattarnef.
Stundum hefur „einhver" góðvilj-
aður í útvarpinu lofað okkur að
eiga sumt af þessu.
• Magnús hefur
sungið meira en
Fuglinn í f jörunni
T.d. er til prógramm með
Magnúsi Jónssyni, allt aríur, eitt
Bfl
téi-n
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTAHF
Vinabæjamót í
Nokia í Finnlandi
í SUMAR var haldið vinabæjarmót í Nokia í Finnlandi. Mættir voru
fulitrúar allra vinabæjanna en þeir eru Blönduós — Horsens —
Moss — Karlstað og Nokia. Fulltrúarnir voru bæði frá norrænu
félögum viðkomandi bæja og sveitarstjórnum. Mótið hófst með
kynningarfundi síðdegis komudag. Iðnaðarbærinn Nokia, sem telur
23.G12 íbúa liggur norð-vestur af Helsinki.
Hann var hluti af hinu forna
Birkala héraði, sem skiptist eftir
árið 1922 í norður og suður
hlutann. Norður-Birkala varð
kaupstaður árið 1937 og ári
seinna var nafninu breytt í
Nokia.
í dag er bærinn, sem er um 15
km frá Tammerfors mikill iðnað-
arbær með stærstu gúmmíverk-
smiðju á Norðurlöndum og timb-
uriðnaði svo eitthvað sé nefnt.
Þess vegna er hann oft kallaður
„Græni iðnaðarbærinn".
Bærinn er í hraðri uppbygg-
ingu, þar sem stór og fullkomin
iðnskóli er í byggingu. Þar er
einnig nýbyggð fullkomin heilsu-
gæslustöð, sundhöll og bókasafn
og bera allar þessar byggingar
vott um snilli Finna á sviði
byggingarlistar.
Var fulltrúunum einnig sýnt
stórt elliheimili.
Mörg mál voru rædd varðandi
samskipti þessara vinabæja og
samþykkt m.a. að skiptast á
heimsóknum og koma á ungl-
ingaskiptum.
Síðasta daginn gróðursettu
fulltrúarnir vináttutré, svokall-
aða „Birkala-björk“, á einu aðal-
svæði bæjarins, sem tákn vináttu
og vaxandi samskipta í framtíð-
inni.
Undanfarna mánuði hefir sýn-
ing á teikningum 10—11 ára
barna frá öllum vinabæjum verið
haldin á hinum Norðurlöndunum
við mjög góða aðsókn.
I ráði er að sýningin verði
haldin á Blönduósi í haust.
Voru móttökur allar eins og
best verður á kosið. Fulltrúi
Blönduóss á vinabæjarmótinu
var sr. Árni Sigurðsson, formað-
ur Norræna-félagsins á staðnum.
Sr. Árni Sigurðsson gróðursetur vináttutré i Nokia. Sr. Árni er
formaður Norræna-félagsins á Blönduósi.