Morgunblaðið - 29.08.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1980
29
VELVAKANDI
SVARARí SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
af því besta, sem Magnús hefur
sungið. Nú er Magnús eigandi að
þessu prógrammi, Útvarpið þarf
ekki lengur að nota það. Þar er til
nóg af plötum með erlendum
tenórum sem ekki þarf að borga
fyrir afnot af. En Magnús hefur
sungið fleira en Fuglinn í fjör-
unni!
• Þýskur söngvari
fær það en
íslenskur ekki
Ég get ekki séð neitt sem
réttlætir það, að þýskur söngvri
fær að syngja frönsk lög í útvarp-
ið, en íslenskur söngvari fær það
ekki. Okkar erlendu prógrömmum
er fleygt eftir fyrstu notkun.
• Góður og
framsýnn maður
tók þær upp
Ég hef að láni tvær óperur,
Þessir hringdu . . .
• Púkk frábært
Atli örn hafði samband við
Velvakanda og bað fyrir kveðjur
og þakklæti til Sigrúnar Valbergs-
dóttur og Karls Agústs Úlfssonar,
stjórnenda þáttarins Púkk, sem
hefur verið á dagskrá hljóðvarps á
mánudagskvöldum. — Mér finnst
það miður að eiga ekki lengur von
á þessum þætti, og þar ber margt
til. Stjórnendurnir eiga þar auð-
vitað stærstan hlut, þeir hafa
aldrei leyft sér að kasta til
höndunum við undirbúning þátt-
anna; þeir hafa talað gott mál,
skipulagt sinn tíma á ferskan og
oft smellinn hátt og vandað efnis-
val og efnismeðferð. Sigrún og
Karl höfðu stjórn á hlutunum og
blönduðu frjálslega saman gamni
og alvöru, tónlist og tali. Það
verður vandaverk að taka við af
þeim og gera þætti sem jafnast á
við Púkk og eru samboðnir ungu
fólki, sem gerir kröfur um eitt-
hvað meira en diskó.
„La Bohéme" og „Tosca“. Það var
góður og framsýnn maður, sem
tók þær upp beint frá útvarpinu.
Ég veit af fleirum, sem gerðu hið
sama. Þökk sé þeim fyrir það!
• Hafði hljóm-
sveitina í
hendi sér
Það væri hægt að nefna fleiri
óperur, sem til eru, t.d. „II Trova-
tore“ og „Don Pasquale". Ég held
að ég hafi aldrei heyrt Sinfóníu-
hljómsveitina leika eins vel og í
„La Bohéme". Það var Rino Cast-
agnino, sem stjórnaði. Hann hafði
hljómsveitina alveg í hendi sér.
Það er mikið kraftaverk.
• Hrein „mafía“
fyrir íslenska
söngvara
Það má nefnilega segja það
sama um sinfóníuhljómsveit og
sagt er um einsöngvara, að hver
um sig heldur að hann sé stór-
veldi.
Ef þeir flyttu óperur með ís-
lenskum söngvurum, þá þyrftu
þeir að borga okkur, ég tala nú
ekki um Sinfóníuhljómsveitinni,
sem er hrein „mafía“ fyrir ís-
lenska söngvara.
Sumir söngvarar eiga bönd með
söng sínum við undirleik hljóm-
sveitarinnar. Það gengur erfiðlega
að ræða við ráðamenn þar, í því
skyni að fá leyfi til að gefa út
plötu. Þetta yrði aldrei gróði, en
góðar heimildir um íslenska
söngvara, hvað þeir hafa gert og
geta ennþá.
• í hálfgerðu
fangelsi með
okkar söng
Af því að ég fór að skrifa, þá
er þetta orðið lengra en símtalið.
Því miður erum við í hálfgerðu
fangelsi með okkar söng. Við
íslenskir söngvarar förum ekki út
í langt nám til að syngja eingöngu
íslensk lög, þó að þau séu góðra
gjalda verð.
Ég vona að íslenskir söngvarar
fari að vakna af sínum „Þyrnirós-
arsvefni", ég þar á meðal, og geri
eitthvað í þessum málum.
• Ættum að fá
minnst hálftíma
Það er einkennilegt, að þó að
við eigum tvo starfandi söngvara
hjá Ríkisútvarpinu, hefur sama og
ekkert gerst í máli okkar. Það er
þáttur í útvarpinu, sem heitir
„Islenskir einsöngvarar og kórar“,
hann var á kvöldin, stundum í
15—20 mín. Oft komust ekki að
nema tvö lög, því að þá þurftu
leikarar að ganga fyrir og koma
sínu leikriti að. Af hverju þurfum
við að vera með kórum? Þeir ættu
að vera í sér þætti. Við ættum að
fá minnst hálftíma þátt, og ef
einsöngvari syngur einsöng með
kór, eins og kemur fyrir, þá er
ekkert annað en að tilkynna það
um leið og söngvarann. Það á alls
ekki að blanda þessu saman. Nú er
búið að breyta þessu 1 morgunmál-
ið. Vonandi fáum við að vera í
friði með hálftíma-prógramm, þar
sem eingöngu koma fram íslenskir
einsöngvarar.
Það er mikið hægt að skrifa um
ástand í íslenskum söngmálum, ég
vona að þetta sé byrjunin til hins
betra.“
• Athugasemd
Velvakandi biður Guðrúnu Á.
Símonar velvirðingar á mistökum
þeim sem hún nefnir í tilskrifi
sínu og kann þá skýringu helsta að
svona mikill ferðahugur hafi verið
búinn að grípa sumarstúlkuna
sem ansaði.
Utsala
Kjólar frá 12.000- Nýtt og fjölbreytt úrval af
kvöldkjólum í öllum stæröum, hagstætt verö. Trimm-
gallar frá kl. 12.000- Dömupeysur frá kr. 2.000- Úrval
af ódýrum skólapeysum. Mussur frá kr. 8.000-
Jakkapeysur og vesti í úrvali.
Fatasalan, Brautarholti 22,
inngangur frá Nóatúni.
Seljasókn
Stuðningsfólk séra
Úlfars Guðmunds-
sonar í Seljasókn.
Skrifstofan í
FáksheimHinu
v/Breiðholtsbraut
verður opin
kl. 17—22
laugardag kl. 13—20
sunnudag kl. 9—23
og þá verður kaffi og opiö hús í Fáksheimilinu
Kosið verður á sunnudaginn 31.
ágúst í Ölduselsskóla kl. 10—23.
Símarnir eru:
39790 og 29791
Stuðningsfólk
HÖGNI HREKKVlSI
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu kvennaskákmóti
Búdapest í Ungverjalandi í vor
kom þessi staða upp í skák
sovézka stórmeistarans Kozlov-
skaju. sem hafði hvítt og átti leik,
og Klimovu, Tékkóslóvakíu.
21. d5! (Ef nú 21. ... exd5 þá 22.
e6+) Hxcl. 22. IIxcl - Dxd5, 23.
IIc7+ - Kg8, 24. Dcl - Hd8. 25.
Dh6 - Hd7, 26. Hc8+ - Hd8 27.
Rg5! og svartur gafst upp.