Morgunblaðið - 01.11.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
17
aðrir, sem hugsa eins og hann,
vara sig. Sá dagur kann að vera
skammt undan, það er álit
margra merkra manna, að við
fáum ekki að haga okkur svona
ósæmilega. Að okkur líðist hrein-
lega ekki að bruðla svona með
ágætis mannamat á meðan aðrir
svelta. Og þegar sá dagur kemur,
má hver þakka sínum sæla, sem á
nóg af góðu grasi og búfénað til að
breyta því í mannamat.
„Hagfræðin“ þekkir
enga miskunn
Það er e.t.v. óþarfa linka og
viðkvæmni að kveinka sér, þegar
Ríkisútvarpið slöngvar móðgandi
sleggjudómum J.K. um landbún-
aðinn yfir stritandi bök sveita-
fólksins. Vafalaust er þó, að það
hefur haft slæm og lamandi áhrif
á margan mann í stéttinni, spillt
starfsgleðinni og skert sjálfs-
traustið. Fátt er hættulegra
manni en það að missa trú á gildi
þess, sem hann fæst við og hefur
gert að ævistarfi sínu.
Þó að áhrif af ofstækisfullum
skrifum J.K. væru engin önnur,
eru þau samt illvirki. Bændastétt-
in í landinu hefur að undanförnu
átt í talsverðri sálrænni og reynd-
ar líka fjárhagslegri kreppu,
vegna hastarlegra, nýrra viðhorfa
í framleiðslumálum, sem gengur
þvert á þúsund ára reynslu hennar
sem matvælaframleiðandi. Hún
stendur nú í nokkuð sársaukafull-
um aðgerðum til að komast niður
á betri grundvöll til að vinna á.
Þær aðgerðir eru að bera árangur
og munu ná tilgangi sínum von
bráðar. Af þessum sökum er
stéttin berskjölduð og miður vel
undir búin að mæta tillitslausum
árásum.
En J.K. er ekki að hugsa um
slíka smámuni sem mannlegar
tilfinningar. Hann stendur á ein-
hverju plani ofar öllu slíku. Hann
er að tala „hagfræði" og varðar
ekkert um, hvar eða hvern höggin
hitta.
Öll él birtir um síðir
Af því að ég byrjaði þessa grein
með því að taka líkingu af þeim,
sem situr af sér veður og lætur
sem minnst fara fyrir sér, en
lyftir svo höfði þegar upp styttir
og lítur fram á veginn, þá ætla ég
að enda þetta greinarkorn með því
að slá á bjartari strengi.
Það má vera okkur til hug-
hreystingar, sem störfum að land-
búnaðinum, og væntanlega J.K. til
hugarangurs að sama skapi, að
þrátt fyrir allt er hvergi að sjá
þess minnsta vott að trúin á
framtíð íslensks landbúnaðar sé
að bila, allra síst hjá þeim, sem
mestu máli skiptir, ungu kynslóð-
inni í sveitunum, og reyndar í
bæjum líka. Þvert á móti er góð
eftirspurn eftir bújörðum, og
aldrei hefur verið meiri aðsókn en
nú að eina búnaðarskóla landsins,
sem nú er starfandi. (Þeir verða
aftur tveir næsta ár.)
Þess vegna getum við horft
vongóð fram á veginn, og þess-
vegna höfum við líka efni á að
fyrirgefa og jafnvel gleyma J.K.
og hans gagnslausu og brútölu
umfjöllun um okkur og atvinnuveg
okkar, rétt eins og við fyrirgefum
norðangarranum og gleymum lát-
unum í honum, þegar hann kyrrist
og aftur gerir gott veður.
Tjörn, Svarfaðardal 26.
okt. 1980
Hjörtur E. Þórarinsson.
ólafur örn Arnarson
kotsspítala kom fram á árinu 1977
og 1978. Þessi hækkun á sér því
eðlilegar orsakir og er ekki á
neinn hátt tengd daggjaldakerfinu
sem slíku.
Ein er sú fullyrðing í málflutn-
ingi S.Þ., sem hlýtur að stafa af
ókunnugleika á eðli og starfsemi
spítala. Hann heldur því enn
fram, að hin föstu fjárlög hafi
stuðlaö að fjölgun sjúklinga og
styttingu meðallegutíma á Land-
spítala. Ekki er samt ljóst á hvern
hátt þetta á að gerast, en þessi
fullyrðing er svo fráleit, að ekki
tekur því að ræða hana.
Eitt er það atriði sem bæði
Davíð Gunnarsson og Sigurður
Þórðarson hafa lagt áherslu á, en
það er að samhliða innleiðingu
fastra fjárlaga hafi stjórnun spít-
alans verið bætt. Þetta er vafa-
laust rétt og góð stjórnun er mun
líklegri að leiða til sparnaðar en
föst fjárlög. En þá hlýtur að vakna
sú spurning hvort föst fjárlög séu
nauðsynleg forsenda góðrar
stjórnunar. Og ef svo er, hvort
daggjaldaspítalarnir séu þá allir
meira og minna stjórnlausir.
í þeim umræðum sem fram hafa
farið um þessi mál hafa þeir sem
ekki vilja skilyrðislaust fallast á
ágæti fastra fjárlaga verið sakaðir
um, að vilja ekki spara í rekstri
sjúkrahúsanna (sbr. fyrirsögn S.Þ.
í Morgunblaðinu 25. okt. sl.). Þetta
er að sjálfsögðu fjarstæða. Deilan
stendur eingöngu um það, hvort
hægt sé að ná þessum sparnaði
með fjármögnunarleiðum. Áhrif
fjármögnunar á reksturinn hafa
verið mjög ofmetin og málið al's
ekki svo einfalt sem af hefur verið
látið. .
í umræðuhópi á heilbrigðisþingi
voru þessi mál rædd og í öðrum
þeim hópi sem fjallaði um fjár-
mögnun sjúkrahúsa var komist að
eftirfarandi niðurstöðu:
1) Hópurinn komst að þeirri
niðurstöðu, að ekki væri aðalatrið-
ið hvort heldur sjúkrahus væri
rekin á daggjöldum eða föstum
fjárlögum. Framkvæmdin væru
það, sem skipti máli.
2) Gerð hefur verið tilraun með
föst fjárlög á ríkisspítölunum í 2
ár. Hópurinn telur að óyggjandi
niðurstöður um kosti þess kerfis
fram yfir daggjaldakerfið liggi
ekki fyrir en tilrauninni beri að
halda áfram.
3) Hópurinn telur nauðsynlegt að
framfylgt sé lögum um daggjalda-
nefnd og ákveðið verði með reglu-
gerð þjónustuhlutverk sjúkra-
húsa, hjúkrunar- og dvalarheim-
ila.
4) Nauðsynlegt er að grundvöllur
ákvarðanatöku um fjármál
sjúkrahúsa sé styrktur. Á vegum
þess opinbera komi aðili sem afli
upplýsinga um rekstur og fjármál
sjúkrahúsa. Þessi aðili þarf að
geta gefið hinu pólitíska fjárveit-
ingavaldi þær upplýsingar sem
nauðsynlegar eru til skynsamlegr-
ar ákvarðanatöku.
5) Slíkur aðili gæti verið á vegum
daggjaldanefndar, viðkomandi
ráðuneyta eða sérfróðra aðila, sem
starfa sjálfstætt utan við kerfið.
Rekstur sjúkrahúsa er flókinn
og umræður um þau mál eiga
vafalaust eftir að verða talsverðar
á næstunni, en vonandi snúast
þær um annað og meira en
fjármögnunarkerfi eingöngu. Þar
koma til greina aðrir þættir sem
hafa veruleg áhrif á kostnað, t.d.
miðstýring, stærð sjúkrahúsa,
verkaskipting og fleira.
ólafur örn Arnarson yfirlæknir
Minningargjöf um Ólaf
Stephensen barnalækni
Minningargjöf um ólaf Steph-
ensen barnalækni.
Nýlega gaf Kvenfélagið Hring-
urinn barnadeild Landspitalans
eða Barnaspítala Hringsins, eins
og hann heitir réttu nafni, mynd-
segulband til minningar um Ólaf
Stephensen barnalækni sem þar
hafði unnið í mörg ár en lést í júní
sl. sumar. Með tækinu fylgdu 20
spólur til að safna á efni.
Á barnaspítölum er reynt að
gera sjúklingum lífið sem bæri-
legast meðan á dvölinni stendur
með því að skapa sem bestar
aðstæður til leikja, föndurs, afla
bókakosts við hæfi barna, hljóm-
flutningstækja og verða sér úti
um hvað annað sem gæti orðið
þeim til afþreyingar. Myndsegul-
bandstæki hefur verið ofarlega á
óskalista barnadeildar en fjár-
skortur' verið þar fjötur um fót,
því þetta er dýr búnaður. Gjöf
Hringskvenna kom sér því sér-
staklega vel og síðan tækið var
tekið í notkun hafa börnin aldeilis
notið þess og ekki einungis þau
heldur líka þeir fullorðnu á öðrum
deildum Landspítalans enda þótt
um efni fyrir börn sé að ræða.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem konurnar sýna rausn sína
gagnvart barnadeild Landspítal-
ans. Þær áttu sinn hlut í stofnun
hennar árið 1957 og hafa ætíð
látið sér annt um að hún gæti sem
best þjónað hlutverki sínu. Þær
hafa gefið stórfé til kaupa á
ieikföngum, bókum og rannsókna-
tækjum. Til dæmis gáfu þær, í
tilefni af 75 ára afmæli félagsins,
Barnaspítalanum mörg dýr tæki á
síðasta ári sem nauðsynleg eru til
umönnunar veikra, nýfæddra
barna og leikfangabirgðir sem
endast til nokkurra ára. Andvirði
þessara gjafa ásamt myndsegul-
bandstækinu nemur 7—8 millj.
króna. Konurnar eru ekki gefnar
fyrir að flíka góðgerðarstarfsemi
sinni en ég tel rétt og skylt að
þetta sé gert heyrumkunnugt.
Raunar hefur það oft vakið furðu
hvað konurnar eru duglegar og
geta lagt mikið á sig í starfi sínu
að mannúðarmálum.
Nú ætla Hringskonur að halda
sinn árlega basar laugardaginn 1.
nóvember í Iðnskólahúsinu við
Vitastíg til ágóða fyrir starfsemi
sína. Þar verða á boðstólum margs
konar handunnir munir, kökur,
sem geyma má til jólanna, og
fleira og fleira. Ef að líkum lætur
verður þar að sjá margt eigulegra
og girnilegra hluta.
Víkingur Hreiðar Arnórsson,
yfirlæknir.
Heimilistölvan
Tölvuskóli,
Borgartúni 29,
105 Reykjavík,
sími 25400
Tölvunámskeið
Byrjenda- og framhaldsnámskeið
Námskeiðskynning
hefst í dag sunnudag 5. október kl. 14.00—18.00.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
Þl AIGLÝSIK l'M ALLT
LAND ÞEGAR Þl Al'G-
LA'SIR 1 MORGINBLAÐINI