Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 33 Torfí Ólafsson: Til varnar bókaverslunum Fyrir nokkrum dögum var sjón- varpað viðræðu um hvort réttlæt- anlegt hefði verið af Félagi ís- lenskra bókaútgefenda að synja versluninni Hagkaup um bóksölu- leyfi. Ég hef orðið þess var í viðtölum við fólk að það hefur ekki til hlítar áttað sig á, hvað hér er á ferðinni. Þess vegna tel ég ástæðu til að gamall bókavinur og við- skiptamaður bókaverslana um langan aldur lýsi sínu viðhorfi til þessa máls. Það sem helst virðist blasa við fólki í þessu máli er að bókaútgef- endur, sem margir séu um leið bóksalar, geti ekki unnt öðrum en sér og sínum mönnum að hafa hagnað af bóksölu. Auk þess muni Hagkaup selja bækur fyrir lægra verð en sérverslanirnar og það sé almenningi í hag. Af nánum kynnum við bókaút- gefendur á undanförnum áratug- um er mér kunnugt um, að bókaútgáfa hér á landi er ekki sá gróðavegur sem margir halda. Utgefendur taka mjög oft til útgáfu bækur, sem þeir vita fyrir- fram að þeir tapa á, en gera það í því skyni að leggja íslenskri rit- mennsku lið og koma á framfæri bókum, sem þeir telja að eigi erindi til fólks, enda þótt þær færi ekki mikla fjármuni í kassann. Undir tapi á bókum eins og þessum standa auðseldari bækur, ýmsir vinsælir reyfarar og bækur sem eftirsóttar eru í það og það skiptið. Þegar útgefandinn tekur handrit til útgáfu, reiknar hann saman útgáfukostnað bókarinnar og giskar á sölumöguleika. Síðan jafnar hann kostnaðinum niður á þann hluta upplagsins, sem hann hyggur að muni seljast, en þau eintök, sem þá eru eftir, eru hans ágóðahluti ef áætlunin stenst. Sá eintakafjöldi, sem ætlaður er til greiðslu útgáfukostnaðar, hefur farið síhækkandi á undanförnum áratugum, en ágóðahluti útgef- andans hefur farið síminnkandi. Astæðan til þess er sú að útgef- endur hafa ekki þorað að hækka bókaverð í samræmi við aðrar hækkanir á vöruverði, þjónustu, launum starfsfólks og innfluttu efni til bókagerðar, því það er auðvitað takmörkum háð, hversu miklu fé menn vilja verja til að kaupa sér bók. Auk þess verða útgefendur að borga tolla af efni til bókagerðar, þar sem aftur á móti innfluttar, erlendar bækur eru ótollaðar. Ríkisvaldið mis- munar því útgefendum bóka, hin- um erlendu í hag. Fari ég ekki rétt með þessi atriði, bið ég bókaútgef- endur vinsamlegast að leiðrétta orð mín. Hagur bókaverslana stendur ekki heldur með neinum blóma, um það er mér vel kunnugt. Bóksalan fyrir jólin er þeirra síldarvertíð en þess utan er sala alvarlegra bóka nánast reytingur, enda ekki við öðru að búast í jafn litlu þjóðfélagi og okkar. En undir þessum treggenga rekstri stendur sala innfluttra tímarita og auð- seldra bóka. Og það eru einmitt auðseldu bækurnar, sem Hagkaup mundi vilja taka til sölu. Og ekki aðeins Hagkaup, heldur allar þær verlsanir sem á eftir þeim kæmu, er þetta leyfi væri veitt, og er sérverslanirnar misstu að veru- legu leyti af sölu hinna auðseldu bóka, ættu þær ekki annarra kosta völ en draga saman seglin og jafnvel hætta störfum. Og þá mundi bóksölufyrirkomulagið komast í það horf sem maður sér víða erlendis; bókagrind úti í horni í matvöruverslununum með auðseldum reyfurum og klámbók- um. Enginn skyldi skilja orð mín svo að ég amist við því að Hagkaup eða aðrar verslanir auki tekjur sínar. Síður en svo. Ég álít að duglegur og hagsýnn kaupmaður megi græða, og meira að segja eigi að græða, því það er allra hagur að fyrirtæki séu vel rekin. Og matvöruverslanirnar mættu fyrir mér selja hvaða varning sem er, einnig bækur, ef sú hætta væri ekki yfirvofandi að dagar sérversl- ananna væru taldir. Ótaldar eru þær ferðir sem ég hef átt í bókaverslanir um dagana og ótal- in eru þau skipti sem sérfrótt fólk í þeim hefur leiðbeint mér og hjálpað, útvegað mér bækur sem ekki voru lengur beinlínis á mark- aðnum, vegna tregrar sölu, fólk sem gaf sér tíma til að gera viðskiptavininum til hæfis og vissi hvað það var að tala um. Þessa þjónustu trúi ég ekki að ég fengi i Hagkaup, þótt ég trúi því fólki sem þar vinnur til alls góðs. Og þar sem ég á erfitt með að sætta mig við að missa þessa góðu þjónustu og þar sem ég veit að bókaverslanir okkar gegna menn- ingarhlutverki, sem aðrir eru ekki færir um að taka að sér með sömu ágætum, bið ég þá sem um þetta Hagkaupsmál eiga að fjalla: Leyf- ið okkur bókavinunum að hafa sérverslanirnar okkar í friði en skerið þær ekki niður við trog með vanhugsuðum ráðstöfunum. Ég vona að í framtíðinni verði ykkar ekki minnst sem þeirra manna er slitu einn helsta burðarþátt ís- lenskrar menningar og mennta. „Vítisveiran ný saga eftir Alistair MacLean VÍTISVEIRAN nefnist spennusaga eftir hinn víðkunna breska höfund Alistair MacLean, sem út er komin hjá Iðunni. Er þetta tuttugasta og fyrsta saga MacLeans sem út kemur á íslensku, en auk þess var gefin út í fyrra bók hans um kaftein Cook. — Efni Vítisveirunnar cr kynnt á þessa leið: „Mordon rannsóknarstöðin á Suður-Englandi er í opinberum skjölum nefnd heilsuverndarstöð. Raunverulegt verksvið stöðvarinnar er aðeins á vitorði örfárra einstakl- inga utan hennar: þar eru framleidd- ir stórháskalegir sýklar til hernað- arnota, nteðal annars vítisveiran, sem engu cirir og engin vörn cr þekkt gegn. Þrátt fyrir óhemju- strangt eftirlit, gerist það, að úr stöðinni er raent öllum birgðum af vítisveirunni og öðru banvænu sýklaeitri og ljóst er, að ræninginn hyggst færa sér í nyt aðstöðu sína til einhverra fáheyrðra óhæfuverka. En Pierre Oavell tekur sér fyrir hendur að reyna að koma í veg fyrir að þessi áform heppnist...“ Vítisveiran er þýdd af Guðnýju Ellu Sigurðardóttur og Örnólfi Thorlacius. Bókin er 245 blaðsíður. Oddi prentaði. Félagar á æfingu inni á Kili fyrir nokkru. Árleg merkjasala Flugbjörgunarsveitarinnar um helgina: „Borgum hærri fjárhæðir í gjöld til ríkisins heldur en við fáum þaðan í styrku segir Ingvar F. Valdimarsson, formaður FBS, sem er 30 ára á þessu ári Ingvar F. Valdimarsson, formaður Flugbjörgunarsvritarinnar. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er 30 ára á þessu ári, og hefur þess verið minnst með ýmsum hætti. Haldin var af- mælisæfing um hvitasunnuna, þar sem boðið var ölium björg- unarsveitum landsins og á næstunni kemur út saga sveit- arinnar. sem Andrés Krist- jánsson, rithöfundur. hefur skráð. í tilefni þessara tima- móta ræddi Mbl. við Ingvar Valdimarsson. formann sveitar- innar. og spurði hann fyrst hver hefði verið hvatinn að stofnun sveitarinnar. „Sveitin var stofnuð upp úr Geysisslysinu fræga á Vatna- jökli árið 1950. Þegar ljóst var, að Geysir var týndur, var kallað- ur saman hópur manna úr flug- inu og hann sendnr til leitar. Þessir menn geröu sér grein fyrir því eftir slysiö, að nauðsyn- legt var, að til staðar væri sérþjálfuð sveit manna, sem gæti brugðið við þegar um flugslys væri að ræða. Þessir menn komu síðan tvisvar sinn- um saman til fundar og stofnuðu Flugbjörgunarsveitina formlega í októbermánuði það ár. f því sambandi má geta þess, að nokkrir þessara frumkvöðla eru enn þann dag í dag í fullu starfi,“ sagði Ing\’ar. „Síðan sveitin var stofnuð hefur mikið vatn runnið til sjávar, og í dag sérhæfir sveitin sig, eða öllu heldur félagar hennar, í ýmsum þáttum er varða björgunaraðgerðir við flugslys og ekki síður í þáttum, sem varða björgunaraðgerðir í fjalllendi. í dag eru liðlega 100 félagar á aðalskrá, sem hægt er að kalla út hvenær sem er, og auk þeirra er svo stór hópur varamanna og eldri félaga, sem hægt er aö kalla í l>egar mikið,“ sagði Ingvar ennfremur. Aðspurður um hvernig æfing- um Flugbjörgunarsveitarmanna væri háttað, sagði Ingvar, að sveitinni vieri skipl í sex aðal- flokka og einn nýbðaflokk. Þess- ir flokkar störfuðu síðan mjög sjálfstætt. Sameiginlegar æf- ingar allru sveitarfclaga cru síðan haldnar að ineðaltaii einu sinni í mánuði. Flokkarnir hitt- ast í annarri hverri viku að staðaldri, en við það hætast svo ýmsar ferðir um helgar. í hvaða þáttum eru menn sérstaklega þjálfaðir? „Það eru nokkur grundvallar- átriði, sem allir félagar sveitar- innar verða að fara í gegnum, eins og skyndihjálp, sjúkraflutn- ingar, fjallamennska, snjóflóða- björgun og fjarskipt.atækni, svo eitthvað sé nefnt. Mjög margir félagar sveitarinnar hafa á und- anförnum árum sótt ýmiss kon- ar fræðslu erlendis og komið síðan heim og miðlað af þekk- ingu sinni. T.d. fara árlega tveir félagar á vikunámskeið hjá björgunarsveitum norska Rauða krossins og margir hafa sótt námskeið í fjallamennsku og snjóflóðavörnum í Austurriki, Sviss og Frakklandi," sagði Ingvar. Starfsemi sem þessi hlýtur aö vera tnjög kostnaðarsöm, hvern- ig fjármagnið þið starfið? „Það er alveg rétt, rekstur á svona sveit er mjög dýr og við höfum mjög takmarkaða mögu- leika til að afla okkur fjár. Okkar eina fjáröflunarleið er sala merkja fyrstu helgina í nóvember ár hvert og það er einmitt um þessa helgi, sem við leitum eftir stuðningi fólks. Raunar er góður stuðningur hins almenna borgara forsendan fyrir því, að hægt sé að halda björgunarsveit sem þessari gangandi. Margur heldur ef- laust, að ríki og bær styðji við bakið á okkur, en þvi fer fjarri. Við borgum mun hærri fjárhæð- ir í ýmiss konar sköttun og gjoldum heldur en viö fáum i styrki frá ríki og bæ. Við verðum t.d. að borga allt upp í 100rf toli af ýmiss konar nevðar- og björg- unartækjum, seni samkvæmt okkar skilningi eru varla luxus- varningur, eins og segir í toll- skránni. I því sambandi hefur verið talað mjög fyrir daufum eyrum þegar farið hefur verið fram á niðurfellingu tolla af ýmiss konar búnaði, sem aug- ljóslega verður ekki notaður í annað en beina björgimarstarf- semi,“ sagði Ingvar. Þá var Ingvar inntur eftir því, hver borgaði brúsann við útköll og hversu mikið venjulegt útkall kostaði í útlögðum kostnaði, fyrir utan vinnutap og annað slíkt. „Við borgum allan kostnað við leitir sem við förum í og það eru engir smápeningar. Ég get nefnt sem dæmi, að við fórum i stystu gerð af útkaili í fyrravetur upp í Bláfjöll. Það var útkall, sem stóð í tæpan hálfan sólarhring. Bara bensínkostnaður í slíku útkalli er milli 100—200 þúsund krónur. Það getur því hver maður gert sér í hugarlund hvað það kostaði ríkið ef það þyrfti að borga þessi útköll að fullu,“ sagði Ingvar. Að síðustu var Ingvar F. Valdirnarsson, formaður Flug- björgunarsveitarinnar, ínntur eftir því hvernig menn gengju í sveitina og hvaða skilvrði þeir þyrftu að uppfylla. „Kröfurnar, sem gerðar eru til umsækjenda eru þær, aö peir seu orðnir 18 ára gamlir, haii ihuga á starfseminni og séu hi..ustir. Þeir, sem hafa áhuga, ge'.a snuið sér tii sveitarinnar hvenær sem er og eru þeir í fyrstu settir i sérstakan nýliðaflokk. Þar starfa þeir alla jafna í 1 ar og ganga i gegnum nokkuð slremb- ið þjálfunarprógram. Standist þeir kröfur þær, sem gerðar eru, og hafa mætt nægilegu vel þennan tíma, eru þeir teknir inn í sveitina, sem fullgildir félag- ar,“ sagði Ingvar að síðustu. — sb.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.