Morgunblaðið - 01.11.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
35
hæfa í siðuðum veiðimannasam-
félögum (sjálfhlæðar kaliber 10).
Eg er reiðubúinn að skrifa form-
lega kæru, ef þarf, krefjast
lögreglurannsóknar og tilnefna
vitni. En ég þakka ráðherra svör-
in, sem gefin eru með beztu
vitund, þótt „þessi iðja hafi fyrst
og fremst verið stunduð í kjör-
dæmi hæstvirts ráðherra."
Ráðherra tók aftur til máls og
sagði, að þingmaður ætti að
bragði að fylgja ásökunum sínum
eftir með viðeigandi hætti.
Gjöld af bifreiðum
aldraðra
Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, svaraði fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur varðandi hugsan-
lega lækkun á gjöldum af bifreið-
um öryrkja. Ráðherra sagði það
rétt vera, að fjárhagsnefnd neðri
deildar hefði bréflega farið fram á
að ákvæði 27 tl. 3. gr. tollskrárlaga
um tollívilnanir til handa öryrkj-
um yrði tekin til endurskoðunar
og óskað eftir tillögum þar að
lútandi fyrir 10. október 1980, þ.e.
samkomudag Alþingis. Vegna
mikilla anna í tolladeild fjármála-
ráðuneytisins hefur þó ekki tekizt
að ljúka þessari endurskoðun.
Þess er hinsvegar að vænta, sagði
ráðherra, að lagt verði fyrir Al-
þingi frumvarp til breytinga á
ákvæðum sem varða þetta atriði,
en ekki er tímabært að gefa
ákveðnar yfirlýsingar um það nú, í
hverju væntanlegar breytingar
verða fólgnar.
Jóhanna kvað nauðsynlegt að
boðaðar tillögur kæmu það fljótt
fyrir Alþingi, að afgreiða megi
fyrir næstu úthlutun bifreiða til
öryrkja, sem yrði í febrúarmánuði
nk.
Afurðalán og
útflutningsbætur
Eyjólfur Konráð Jónsson (S) hef-
ur lagt fram svohljóöandi spurn-
ingar til viðskiptaráðherra og land-
búnaðarráðherra.
Um afurðalán:
• 1. Hverjar eru þær reglur, sem
settar hafa verið um greiðslur
rekstrar- og afurðalána beint
til bænda í samræmi við fyrri
mgr. þingsályktunar frá 22.
maí 1979, sem er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að hlutast til um
að settar verði reglur um
rekstrar- og afurðalán land-
búnaðarins, sem tryggi að
bændur fái í hendur þá fjár-
muni sem þeim eru ætlaðir,
um leið og lánin eru veitt."
• 2. Hvernig fyrirhuga bankarnir
að haga greiðslu afurðalána nú
á næstunni?
• 3. Hafa einhverjir erfiðleikar
verið samfara framkvæmd
þeirri, sem Alþingi mælti fyrir
um?
Um útflutningsbætur
og niðurgreiðslur
• 1. Hvað líður athugun þeirri, sem
ríkisstjórninni var falið að láta
fram fara með ályktun Alþing-
is 22. maí 1979 síðari mgr., sem
er svohljóðandi:
„Jafnframt láti ríkisstjórnin
fara fram athugun á því,
hvernig heppilegast sé að
koma við breytingum á greiðsl-
um útflutningsbóta og niður-
greiðslna, þannig að þær nýtist
betur."
• 2. Hefur verið haldið áfram at-
hugunum þeim, sem Stéttar-
samband bænda hóf á fyrri
hluta árs 1979 og gerði grein
fyrir í bréfi til fyrirspyrjanda,
dags. 6. apríl 1979?
• 3. Hefur verið kannað hvort unnt
væri að afnema núverandi
„kvóta-kerfi" með því að beita
þeim aðferðum, sem framan-
greind athugun Stéttarsam-
bands bænda beinist að?
• 4. Hverjar yrðu þær upphæðir
nú, sem fjallað er um í nefndu
bréfi?
Sveigjan-
legur
vinnutími
Þórður Albertsson, Víkingi. Leik-
irnir fór fram á malarvellinum
við Hringbraut, en sá völlur var
þar sem nú eru blokkirnar gegnt
Elliheimilinu Grund. Sneri völl-
urinn í austur og vestur. Kostaði
mikið átak og stórfé að laga
völlinn fyrir heimsókn Dananna,
Mynt
eftir RAGNAR
BORG
ísland — Danmörk 4:1
Crvalslið Reykjavíkurfélaganna og Akademisk Boldklub. Á myndinni eru, taldir frá vinstri til hægri: — Aftari röð: Chr. Bonde, L.
Frederiksen, Friðþjófur Thorsteinsson, A. Nyeborg. Kristján Gestsson, G. Schram, Magnús Guðbrandsson, II. Scharff, Sam. Thorsteinsson,
G. Aaby, óskar Norðmann, R. Hansen, Ernst Petersen, H. Kierulf, H. Bendixen, P. Graae, E. Schwartz (línuvörður). Erik Boas. E. Hansen,
Benedikt G. Waage (dómari). Fremri röð: Stefán ólafsson, Gisli Pálsson, Pétur Sigurðsson. Páll Andrésson, Tr. Magnússon og F. Rosborg.
Er eldri dóttir mín, Anna Elísa-
bet, gifti sig fyrir rúmum þrem
árum, kynntist ég afa brúðgum-
ans og nafna, Magnúsi Guð-
brandssyni. Hann er einn af
þessum gömlu og góðu Reykvík-
ingum, sem allir hafa gagn og
ánægju af að kynnast.
Magnús Guðbrandsson vann
hjá Hinu íslenska Steinolíuhluta-
félagi, svo hjá Landsverzlun Is-
lands og síðan hjá Olíuverzlun
íslands, BP, þar sem hann sá um
innflutning á smurolíu. Eru frá-
sagnir Magnúsar efni í margar
greinar því bæði er, að hann hefir
mörgum kynnst á lífsleiðinni,
hefir gott minni, og kann að segja
frá. En þetta er sem sagt önnur
saga.
Skömmu eftir brúðkaupið var
ég boðinn til þeirra hjóna, Júlíönu
(sem nú er látin) og Magnúsar.
Þar var raðað saman, á smekk-
legan hátt, alls kyns minjagrip-
um, en það var reyndar lítil næla
sem vakti athygli mína. Er ég
forvitnaðist nánar um næluna hjá
Magnúsi sagði hann mér, að hún
hefði verið gjörð í tilefni af því að
AB (Akademisk Boldklub) heim-
sótti ísland 1919. Var þetta merk-
ur íþróttaviðburður og í fyrsta
sinn sem erlent íþróttalið heim-
sótti ísland. Það sem enn var
merkilegra var að Islendingar
unnu Danina í einum leiknum 4:1!
Ég kannaðist þá við söguna því
faðir minn hafði sagt mér frá því
að daginn fyrir leikinn hefðu
Danirnir verið boðnir út í reiðtúr
og hefðu verið að drepast úr
harðsperrum, er þeir léku við
úrval Reykjavíkurfélaganna. Ég
spurði svo Magnús hvernig hann
hefði eignast þessa nælu en hann
svaraði: „Nú ég var í móttöku-
nefndinni og spilaði líka með í
leiknum." Þar sem ég veit að næla
þessi er mjög fágæt, ef til vill er
þetta eina eintakið sem varðveitzt
hefir, langar mig til að skrifa
nokkuð um þessa frægu heimsókn
AB árið 1919 og styðst að sjálf-
sögðu við upplýsingar Magnúsar
Guðbrandssonar. Þeir félagar í
Myntsafnarafélaginu, sem safna
nælum, prjónum og íþrótta-
merkjum geta því farið að leita að
annarri nælu. Þeir eru einhverjir
hörðustu safnarar, sem ég þekki,
og hefir orðið vel ágengt.
í móttökunefnd Islendinga
voru: Egill Jacobsen, formaður,
Ben. G. Waage f.h. ÍSÍ, Sigurjón
Pétursson frá Álafossi f.h. Valla-
sambandsins, Friðþjófur Thor-
steinsson, Fram, Gunnar Schram
KR, Magnús Guðbrandsson Val,
Danir og Reykjavíkurúrvalið og
öllum til undrunar unnu íslend-
ingar 4:1. Það vantaði viðhlítandi
skýringu og Danirnir fóru þá að
gera mikið úr útreiðartúrnum og
að þeir hefðu verið stirðir og stífir
eftir. Magnús Guðbrandsson segir
aftur á móti að það sé ekki rétt.
íslendingarnir voru bara betri.
Það var austan strekkingur og
rigning. Islendingarnir kunnu að
hemja boltann í svona veðri en
Danir ekki. Einfalt mál. Seinasta
leik sinn unnu Danir svo 7:2 aftur
á móti. Reykjavíkurúrvalinu og
Dönum var haldið kveðjuhóf í
Iðnó. Ræðuhöld voru mikil yfir
borðum. Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeti flutti minni konungs.
Kristján Albertsson cand. phil.
fyrir minni danskra stúdenta en
AB var skipað stúdentum svo sem
nafnið bendir til. Guðmundur
landlæknir Björnsson flutti minni
Danmerkur. Leo Frederiksen
þakkaði góðar móttökur. Ernst
Petersen talaði fyrir minni ís-
lands en Kalkar forstjóri fyrir
minni kvenna. Þegar staðið var
upp frá borðum afhenti heimboðs-
nefndin og formaður ÍSÍ dönsku
knattspyrnumönnunum gjafir til
minja um förina. Fengu allir
knattspyrnumennirnir litla aska
sem Stefán Eiríksson hafði skorið
út og í hverjum aski var lítið
flagg. Ennfremur var þeim og
öllum íslendingunum, sem við þá
höfðu keppt, afhentir minnis-
peningar. Magnús Guðbrandsson
fullyrðir að hér sé ekki átt við
næluna því hana hafi eingöngu
þeir fengið, sem í móttökunefnd-
inni voru.
Þessi fyrsta heimsókn erlends
knattspyrnuliðs til íslands 1919
verður áreiðanlega lengi í minn-
um höfð. Margir þeirra sem voru í
móttökunefndinni, eða léku á
móti Dönunum, urðu síðar þjóð-
kunnir menn. Af þeim lifa nú 2,
þeir Gunnar Schram og Magnús
Guðbrandsson. Þjóðsagan um út-
reiðartúrinn og harðsperrurnar
og sigur íslendinga yfir Dönum
mun þó lifa lengst. Silfurnælan og
peningurinn, ef finnst, mun halda
þessum minningum lifandi.
Af Magnúsi Guðbrandssyni er
það svo að segja, að hann er mjög
vel ern þótt hann sé orðinn nærri
85 ára gamall. Hann hefir á þessu
ári látið prenta og gefa út bók
sína Gamanyrði. Þar er að finna
vísur og kvæði sem Magnús hefir
sett saman og Halldór heitinn
Pétursson myndskreytti. Þetta er
afar skemmtileg og læsileg bók,
sem ég skora á menn að kaupa,
gefa og lesa.
8. þáttur
Magnús Guðbrandsson og Ragnar Borg skoða úrklippubók um
heimsókn AB.
Nælan frá heimsókn Akadem-
isk Boldklub til íslands 1919. Á
efri hluta nadunnar er mynd af
Fjallkonunni. Á neðri hluta
nælunnar er letrað Heimsókn
AB 1919. Nælan er silfurlituð,
annað hvort úr silfri eða pletti.
Ekki eru neinir stimplar sem
sýna hvar hún er slegin. Nælan
er 4 sm á hæð og 2,7 sm þar sem
hún er breiðust.
meðal annars var lagður þangað
vegur, en það var ekki eins létt
verk þá og nú. Fyrsta leikinn
unnu Danir gegn Val/Víkingi 7:0,
svo KR með 11:2. Dönunum var
ákaflega vel tekið því þeir léku
fína knattspyrnu, enda bezta lið
Dana og hafði farið víða erlendis
og gengið vel. Ég hefi Séð umsagn-
ir um leikina í Morgunblaðinu frá
þeim tíma. Var óspart grín gert
að okkar mönnum. Einum var til
dæmis ráðlagt að drekka flösku af
Kínalífselexir fyrir næsta leik.
Hann hlyti að skána við það!
Ferdinand Hansen kaupmaður í
Hafnarfirði bauð svo löndum sín-
um og móttökunefndinni til veislu
í Hafnarfirði. Til að skemmta
Dönum leyfði hann þeim að fara á
bak hinum víðfrægu íslensku
hestum. Var riðið úr Hafnarfirði
og suður í Straum og þaðan um
Kaldársel til baka til Hafnar-
fjarðar. Ekki eru þetta margir
kílómetrar. Daginn eftir léku svo