Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 48
41
1 GRUnDIG I LITTÆKI
100.000 kr. staögr. afsláttur eöa 300.000 kr. útborgun. Gildir um öll littæki. GRUNDIG vegna gæöanna.
| u ISCO H L
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
Fisklöndun á (irundarfirði.
l.jóMn. Mhl. RAX.
Gjöf Helgu og Sigurliða til menningarmála:
Brunabótamat eigna
rúmar 3560 milljónir
Gæzluvaróhalds krafizt yfir
yfirmönnum á einum Fossanna:
Taldir haf a stolið
saltfiski og selt
f yrir smyglgóss
RANNSÓKNARLÖGREGLA rikis-
ins Kerði í gær kröfu um að tveir
yfirmenn á einum Fossa Eimskipa-
félaKs íslands yrðu úrskurðaðir í
Ka/luvarðhald á meðan rannsókn
færi fram á meintum þætti þeirra i
stuldi á talsverðu maijni af blaut-
verkuðum saltfiski. sem seldur var
i Marokko ok andvirðið notað til
kaupa á smyKlKossi. Dómarinn i
sakadómi Reykjavikur tók sér um-
huKsunarfrest til hádeKÍs i dag.
Málavextir eru þeir að skipið
sigldi til Grikklands með saltfisk.
Kaupendur saltfisksins vildu ekki
taka við hluta af sendingunni þar
sem þeir töldu saltfiskinn lykta illa.
Var ákveðið að skipið kæmi með
gallaða saltfiskinn aftur til Islands.
Þegar skipið kom til landsins vant-
aði hluta af saltfiskinum og sögðu
yfirmenn skipsins að honum hefði
verið hent fyrir borð.
Við leit í skipinu fannst töluvert
magn af áfengi og tóbaki, sem
smygla átti í land, m.a. 96% spíritus.
Viðurkenndu tveir skipverja að eiga
smyglið. Grunsemdir munu hafa
vaknað um fjármögnun kaupanna á
smyglinu og við yfirheyrslur hafa
komið fram játningar í málinu hjá
þremur skipverjum, matsveini, 1.
stýrimanni og 2. vélstjóra. Sögðu
þeir að skipið hefði á heimleiðinni
komið við í hafnarborginni Ceuta í
Marokkó, sem Spánverjar ráða. Þar
hefði saltfiskurinn, sem ekki skilaði
sér hingað verið fluttur frá borði og
hann seldur og smyglgóssið keypt
fyrir andvirðið.
Grunur leikur á því að skipstjór-
inn og 1. vélstjóri eigi einnig aðild að
þessu máli en þeir hafa harðlega
neitað. Hefur verið óskað eftir því
við sakadóm að þeir verði úrskurðað-
ir í gæzluvarðhald.
Erla Jónsdóttir deildarstjóri hjá
RLR tjáði Mbl. í gærkvöldi að ekki
lægi fyrir hve mikið magn af salt-
fiski væri um að ræða.
UM ÞESSAR mundir er unnið að
skiptum á dánarbúi hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar kaupmanns. Eins
ok fram hefur komið í Mbl. var
það vilji þeirra hjóna, að nettó-
andvirði eignarhluta þeirra í
Silla ok Valda skyldi varið til
menningarmála á sviði leiklistar,
málaralistar, sönglistar og raun-
visinda. Þegar fyrirtækinu Silli
og Valdi var skipt árið 1977 milli
Valdimars Þórðarsonar og Helgu
Jónsdóttur komu sex fasteignir i
hennar hlut og nemur samanlagt
brunabótaverð húsanna rúmlega
3.561 milljónum króna. Lang-
stærsta eignin er verzlanamið-
stöðin Glæsibær i Reykjavik.
Þessar fasteignir verða auglýstar
til sölu á næstunni og andvirðinu
varið eins og að framan greinir.
I fréttatilkynningu, sem Mbl.
barst í gær frá skiptaforstjórum
dánarbúsins, kemur fram, að
nettó-eignarhluta þess í Silla og
Valda verður varið sem hér segir:
25% renna til Listasafns íslands,
sem nú stendur í byggingafram-
kvæmdum. 25% renna til Islenzku
óperunnar, og skal öllu framlag-
inu varið til að koma upp söng-
ieikahúsi til flutnings á óperu-
Sigurliði Kristjánsson.
verkum. 25% gangi til Leikfélags
Reykjavíkur sem framlag þess til
byggingar Borgarleikhúss. 25%
ganga til tveggja sjóða, 12,5% til
hvors, en þeir eiga að styrkja
stúdenta í raunvísindanámi og
nýjungar í læknisfræði.
Auk þess ánöfnuðu þau hjón
ríkissjóði íbúðarhús sitt, Laufás-
Helga Jónsdóttir.
veg 72 í Reykjavík, og jörð sinni
Ásgarði í Grímsneshreppi, Árnes-
sýslu skiptu þau milli þriggja
aðila, Hjartaverndar, Reykjavík-
urborgar og Skóræktar rikisins
með ákveðnum kvöðum.
Sjá „Gjöf
aílra alda“
aldarinnar ef ekki
á bls. 23.
Listasafn íslands:
Afþakkaði nær 600 mál-
verk úr dánarbúinu
LISTASAFN íslands hefur af-
þakkað tæplega 600 málverk,
sem hjónin Ileíga Jónsdóttir og
Sigurliði Kristjánsson ánöfnuðu’
safninu i erfðaskrá. Hins vegar
hefur safnið þegið 25% af and-
virði eigna dánarbús þeirra
hjóna í fyrirtækinu Silli og Valdi.
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Vilmundur hafnar Sighvati
vegna „undirmála“ hans
SIGIIVATUR Björgvinsson
flutti á flokksþingi Alþýðu-
flokksins í gær ræðu um nauð-
syn þess, að með kosningunum i
dag yrði „átakatímahili" Al-
þýðuflokksins að ljúka. Vil-
mundur Gylfason svaraði ræðu
Sighvats, sagði hana árásar-
ræðu á Magnús II. Magnússon,
sem hefði orðið Vilmundi seinni
til varaformannsframboðs af
því að hann væri „seinn að
hugsa“ og kvaðst fráhiðja sér
slíkan stuðning, sem ræða Sig-
hvats hefði átt að vera. Búið var
að loka mælendaskrá og lögðu
forsetar það i vald fundarins.
hvort Sighvatur fengi að gera
athugasemd og var það sam-
þykkt. Kvaðst Sighvatur harma
það, ef menn skildu ra*ðu hans
sem stuðning við annan vara-
formannsframhjoðandann en
til hnekkis hinum. Ilann hefði
aðeins verið að flytja flokks-
þinginu raddir úr sinu kjör-
dæmi um að menn varðveittu
einingu flokksins. Vottaði Sig-
hvatur háðum frambjóðendum
sitt fyllsta traust.
í umræðum um skýrslur,
reikninga og lagabreytingar
gerði Sighvatur Björgvinsson að
umræðuefni „stöðugar umhleyp-
ingar í okkar pólitísku veðráttu"
sem væru farnar að valda Al-
þýðuflokknum alvarlegum af-
leiðingum og grafa undan
trausti meðal þeirra, „sem ráða
því alfarið, hvort Alþýðuflokkur-
inn getur orðið stór flokkur eða
hopar ofan í smáflokk aftur." „Á
flokksþingi okkar nú er enn
blásið til átaka ... Á morgun
göngum við til afgreiðslu þeirra
mála. En þar með verður þessu
átakatímabili að vera lokið ...
Gerum það ekki að reglu í
Alþýðuflokknum að forystu-
menn hans þurfi stöðugt að
berast á banaspjótum hvort sem
þeir vilja eða vilja ekki. Gerum
það ekki að reglu í Alþýðu-
flokknum að flokksfélögin verði
vettvangur látlausra burtreiða
og sérhver samkoma flokks-
manna eins og veizla í höll
Goðmundar konungs á Glæsi-
völlum."
„Hér fara undirmál," sagði
Vilmundur. Sagði hann það rétt
Magnúsar að hafa boðið sig fram
gegn sér til varaformanns og
báðir væru þeir það „sjóaðir", að
þeir gætu tekizt í hendur að
kosningum loknum. „Ef þetta er
stuðningur við mig, þá hafna ég
honum alveg. Ég veit að þetta
hefur átt að vera drengskapar-
bragð við mig, en ég hafna
þessum stuðningi. Sighvatur tal-
ar kraftmikið, en hugsar eins og
kerling," sagði Vilmundur. Sagð-
ist hann bara svara í sömu mynt
og aðrir töluðu, en hann væri
bara á yfirborðinu. „Þar til
kosningum er lokið á þessu þingi
verður umræðan full af undir-
málum," sagði Vilmundur.
Hann sagði Sighvat hælast um
af þreföldun fylgis á Vestfjörð-
um síðan 1974 og vissulega væri
staða Sighvats í þingflokknum
sterk með réttu. „En þegar ég
hlustaði á Sighvat, rann það upp
fyrir mér, að Alþýðuflokkurinn á
Vestfjörðum fór ekki að stækka
fyrr en Karvel kom í hann,“
sagði Vilmundur.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson
hrl., einn þriggja skiptaforstjóra
dánarbúsins sagði í samtali við
Mbl. í gærkvöldi að Listasafnið
hefði ekki talið sig hafa tök á að
þ'Kgja gjöfina. Hefðu málverkin
þá gengið til lögerfingja þeirra
hjóna, sem eru 11 að tölu.
I fréttatilkynningu frá skipta-
forstjórunum í gær kemur fram
að í safninu voru tæplega 270
málverk eftir Sigurliða sjálfan.
Stór hluti safnsins eru myndir
eftir Matthías Sigfússon en aðrar
myndir eru eftir ýmsa þjóðkunna
málara, lifandi og látna.
Morgunblaðinu er kunnugt um
að að allmörg verk úr dánarbúinu
eru komin í sölu hjá Klausturhól-
um við Laugaveg. Éru það myndir
eftir Sigurliða, Matthías, Jóhann-
es Kjarval og ýmsa aðra.
Uppboði á Karli
Marx frestað
AUGLÝSINGU um uppboð á mót-
orbátnum Karli Marx gat að líta
i dagblöðunum i vikunni. Karl
Marx átti að bjóða upp i Sand-
gerðishöfn sl. fimmtudag kl.
16.00.
Er Mbl. leitaði frétta hjá Sig-
urði Halli Stefánssyni, sem sjá
átti um uppboðið fyrir hönd sýslu-
manns Gullbringusýslu, hvort
boðið hefði verið í Karl Marx og
þá hversu mikið, sagði hann að
samkomulag hefði náðst um að
fresta uppboðinu um mánuð. Karl
Marx sleppur því undan hamrin-
um í bili.