Morgunblaðið - 19.11.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 2 1
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
Samkvæmt kröfum lögmannanna Guðmund-
ar Markússonar hdl, Haraldar Blöndal hdl. og
Péturs Kjerúlf hdl. verða neðangreindir
lausafjármunir seldir í opinberu uppboði sem
haldið verður viö Lögreglustöðina á Hvols-
velli fimmtudaginn 27. nóvember n.k. kl. 16.
Selt veröur: Dráttarvél URSUS 385, árg.
1977 með lyftibúnaði. Sófasett, Svart/hvítt
Philips sjónvarp, og Philips hljómflutnings-
tæki, Candy sjálfvirk þvottavél, og tveir
hestar 5 og 7 vetra.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Sýslumaður Rangárvallarsýslu.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæöi óskast
Einbýlishús — stór íbúð
óskast til leigu
Óska að taka á leigu einbýlishús, raðhús eða
stóra íbúð (helst 6 herb.)
Tilboð sendist Mbl. merkt: „G — 3024“.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M AlíiLYSIR I M ALLT LAND ÞE(iAR
M AIGLYSIR I MORíil'NBLAÐINL'
ýmislegt
Bændur — Hestamenn
Hlaupahesturinn Haukur tapaðist úr girðingu
frá Skálmholtshrauni í Villingaholtshreppi
seinni part ágústmánaöar. Hesturinn er 6
vetra, Ijóssteingrár, meðalstór, fax er ekki
mikið, ójárnaður. Hesturinn er ættaður úr
Borgarfirði, (gæti verði á leið þangað).
Allar ábendingar um ferðir hans eða veru-
stað eru þegnar meö þökkum.
Sigurbjörn Báröarson,
sími 16101 á skrifstofutíma,
á kvöldin 85952.
25 ára stúlka
óskar ettir vinnu % daginn, tyrri
hluta dags. er vön vélritun, en
margt annaö kemur tii greina.
Get byrjaö strax. Uppl. í síma
39802.
23 óra maður
meö verzlunarskólapróf og
reynslu í verzlun- og sölustörf-
um, óskar eftir framtíöarstarfi
meö góöum tekjumöguleikum.
Vinsaml. hringiö í síma 23992.
Bátavél með gír
ógangfær. til sölu Diesel 45 til
50 hö. Vélin selst á mjög góöu
veröi et um staögreiðslu er aö
ræöa. Uppl. í síma 42827.
Fótsnyrting
Tek aö mér fótsnyrtingu í heima-
húsum. Uppl. í síma 30275 á
kvöldin.
Veröbréf
Fyrirgreiösluskrifstofan. Vestur-
götu 17, sími 16223.
□ Gimli 598011207 — 2 frl. atk.
RMR-19-11-20-VS-MF-HT
I.O.O.F. 9 =16211198'4 = Umr.
D Helgafell 598011197 — IV/V
I.O.O.F.
7 =16211198% EU.M.R.XX.
ÚTIVISTARFERÐIR
Föstudagur 21.11.1980. kl.
20.00.
Helgarferð í Þórsmörk á fultu
tungli. Þríhelgar — Maríumessa.
Fararstjóri: Jón I. Bjarnason
Upplýsingar og farseðlar á
skrifstofunni, Lækjargötu 6. Sími
14606.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
Kristniboðssambandið
Sambænastund veröur í Krlstni-
boöshúsinu Betanía. Laufásvegi
13. í kvöld kl. 20:30.
Allir velkomnir.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld miövikudag
19. nóv. Veriö öll velkomin.
Fjölmenniö.
Skíðadeild Ármanns
Boöar til aðalfundar miöviku-
daginn 26. nóvember kl. 20.30 í
Leifsbúö aö Hótel Loftleiöum.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Knattspyrnudeild Í.K.
Framhaldsfundur
deildarinnar veröur haldinn
mánudaginn t. desember kl.
18 00 í húsi félagsins, Fagra-
hvammi
Dagskrá:
1. Reikningar
2 Önnur mál. Stjórnin
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla í Reykjavík
heldur spilakvöld í Domus Med-
ica laugardaginn 2. þ.m og hefst
kl 20 30. Fjölmennum
Skemmtinefndin.
Guðmundur Sigurjóns
son sextugur
Sextugur er í dag Guðmundur
Sigurjónsson meðhjálpari Fagra-
bæ 1 í Reykjavík. Á þessum
tímamótum í ævi hans er mér í
senn ljúft og skylt að senda
honum innilegar afmælisóskir
ásamt þökk fyrir ánægjuríkt sam-
starf og árna honum og fjölskyldu
hans allra heilla og blessunar á
ófarinni ævibraut.
Sumir menn eru þannig af Guði
gerðir að það er hamingja að hafa
kynnst þeim, átt með þeim sam-
leið og við þá samstarf, af því að
þeir áttu ævinlega einhverju að
miðla umhverfi sínu og samtíð og
lögðu ævinlega gott eitt til mála.
Guðmundur er einn slíkra manna
alveg tvímælalaust og betri sam-
starfsmann en hann geta víst fáir
kosið sér.
Það er ekki ætlun mín að gera
með þessari grein einhverja alls-
herjar úttekt á lífi og störfum
Guðmundar Sigurjónssonar. En
þar sem hann hefur um ára-
tugsskeiö verið einn nánasti sam-
verkamaður minn í Árbæjarsöfn-
Ganga til
stuðnings
hungurverkfalli
Coal Island. N Írlandi. 17. nóv. AP.
UM fi þúsund rómverík-ka-
þúlskir fóru í mótmælag,.<ngu
í Coal Island í gær til stuðn
ings sjö skæruliða IRA, sem
nú eru í hungurverkfalli.
Skaruliðarnir krefjast þess
að verða meðhöndlaðir sem
pólitískir fangar.
uði get ég ekki látið hjá líða að
fara nokkrum orðum um störf'
hans fyrir söfnuðinn, svo fágæt-
lega mikil og merk eru þau og
lýsandi fordæmi öllum þeim er
Guðs kristni í landinu vinna og
unna.
Raunverulega er það ævintýri
líkast að starfa með Guðmundi
Sigurjónssyni að safnaðarmálum,
slíkur er áhuginn og ósíngjörn
starfsgleðin.
Þannig getur enginn unnið
nema málefnið sé viðkomandi
harla hugleikið og hjartfólgið.
Þegar ég kom til starfa hjá
Árbæjarsöfnuði fyrir tæplega 10
árum var hann þegar orðinn
meðhjálpari safnaðarins eða allt
frá stofnun hans árið 1968. Guð-
mundur hafði þá um árabil áður
tekið virkan og lifandi þátt í
störfum framfarafélags hverfisins
og verið formaður þess í nokkur
ár. Hann hafði verið hvatamaður
aðýmsu samkomuhaldi fólksinser
í Árbæjar- og Selásblettum bjó,
áður en fjölmenn byggð reis hér í
Árbæjarhverfi, og látið félagsmál
hverfisbúa mjög til sín taka.
Við höfðum ekki starfað saman
lengi er mér varð ljóst, hve
óvenjulega fórnfús félagsmála-
maður Guðmundur Sigurjónsson
var og hvílíkt lán það var söfnuð-
inum, að hann skyldi helga honum
krafta sína. Skemmst er frá því að
segja, að Guðmundur hefur ævin-
lega verið boðinn og búinn til
starfa fyrir söfnuðinn og ávallt
getað fundiö sér tíma þrátt fyrir
starfsannir aðrar. Ýkjulaust má
segja, að Guðmundur hafi verið
með í öllu sem gert hefur verið í
söfnuðinum, ef undan eru skilin
störf kvenfélags sóknarinnar. Og
safnaðarstörfin eru mikil og
margþætt hjá ungum söfnuði, er
byggj a verður upp starfsaðstöðu
alla frá grunni.
Meðhjálparastörfin hefur Guð-
mundur unnið af mikilli alúð og
lotningu fyrir helgiathöfnum
kirkjunnar og ævinlega hefur
hann hvatt safnaðarfólk beint eða
óbeint til þess að sækja kirkju
sína hvar sem hann hefur komið
og þau eru mörg heimilin í
sókninni sem Guðmundur hefur
komið á í ýmsum erindagjörðum
fyrir söfnuðinn svo sem til þess að
selja jólakort bræðrafélagsins. Á
því sviði hefur enginn komist með
tærnar, þar sem hann hefur hæl-
ana, og hann hefur jafnvel selt
fólki kort, eða happdrættismiða og
því um líkt, er afþakkað hafði
þetta hjá öðrum sölumönnum.
Segir það sína sögu um það, hve
ómótstæðilegur maður hann er.
Það stenst enginn Guðmund Sig-
urjónsson er hann fer á stúfana,
og leitar eftir liðveislu safnaðar-
manna.
Meðan á byggingu Safnaðar-
heimilis Árbæjarsóknar stóð, var
að sjálfsögðu mikið fjáröflunar-
starf í gangi og er reyndar enn,
því að nú er bygging veglegs
klukkuturns við Safnaðarheimilið
komin á lokastig. Alltaf, þegar
kallað hefur verið eftir sjálfboða-
liðum til vinnu, hefur Guðmundur
verið fyrstur manna á vettvang og
þótt fyrir kæmi að hann mætti
e.t.v. einn, skeytti hann því engu,
en hélt ótrauður áfram starfi. I
allri fjáröflun til fjárfrekra fram-
kvæmda safnaðarins hefur Guð-
mundur lagt fram óskipta krafta
sína bæði í fjáröflunarnefnd safn-
aðarins og fjáröflunarnefnd
bræðrafélagsins, en allt frá stofn-
un þess félags 1971 hefur hann
verið í stjórn ýmist sem formaður
eða varaformaður, en hina síðar-
nefndu stöðu skipar hann nú. Þá
er Guðmundur einnig fyrsti vara-
maður sóknarnefndar.
Þegar um það er hugsað, hve
árangursrík félagsmálastörf Guð-
mundar Sigurjónssonar hafa ver-
ið, kemur einkum þrennt í hug-
ann. í fyrsta lagi hve viljugur,
ósérhlífinn og fórnfús hann er, svo
sem fyrr er greint frá. í annan
stað er hann þeirri náðargáfu
gæddur að geta komið öllum, er
umgangast hann, i gott skap.
Hann hefur til að bera ríka
kímnigáfu, ávallt hress í bragði,
glettinn og ganiansamur. En gam-
an hans er ævinlega græskulaust,
enda maðurinn svo góðviljaður að
hann leggur jafnan gott eitt til
ntála, og er því sent slíkur maður
sátta og friðar.
En í þriðja og síðasta lagi skyldi
það síst gleymast að Guðmundi
hefði aldrei auðnast að vinna öll
sín margþættu félagsmálastörf,
hefði hann ekki átt góða konu sér
við hlið, Ingu Kristjánsdóttur,
sem ann eins og hann kirkjunni og
vill hag þeirrar stofunar sem
mestan. Hún hefur þá sjaldan
látið sætið sitt vera autt í kirkj-
unni á helgum dögurn, heldur fylgt
bónda sínum dyggilega. Hefur hún
þó iðulega séð næsta lítið af
manni sínum, því að oft kom hann
beint úr vinnu við Reykjavíkur-
höfn, þar sem hann hefur starfað
um langt árabil sem bifreiðar-
stjóri, til þess að skipta um föt og
fara síðan beint út á starfsakur
kirkjunnar, á fund eða í fjáröflun.
Henni er því ekki hvað síst að
þakka, að safnaðarfólk hefur feng-
ið að njóta starfa Guðmundar í
jafnríkum mæli og raun ber vitni
og kirkjan átt í honum þann
hollvin sem þegar er lýst.
Það er ekki lítils virði fyrir
kirkjuna að eiga menn á borð við
Guðmund Sigurjónsson í fremstu
röð starfsmanna sinna, því að með
viðmóti sínu og verkum ber hann
þeirri stofnun fagurt vitni, og
laðar að þeim herra kirkjunnar,
sem hann þjónar í verki af svo
mikilli hollustu.
Ég er forsjóninrti þakklátur
fyrir það að hafa fengið tækifæri
til þess að starfa með Guðmundi
Sigurjónssyni meðhjálpara að
þeim málefnum sem mikilvægust
eru fyrir alla menn. Mættum við í
Árbæjarsöfnuði njóta sem lengst
starfskrafta hans.
Guðs blessun hvíli yfir afmælis-
barninu, heimili hans ng fjöl-
skyldu í bráð og lengd
Lifðu heill.
Guðmundur Þorsteinsson.