Morgunblaðið - 21.11.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
„Hef ekki trú á
niðurfellingu
flugvallaskatts44
MORGUNBLAÐIÐ innti
Steingrím Ilermannsson sam-
gönguráðherra álits á þeim
hugmyndum sem fram hafa
komið hjá ferðaskrifstofum
og fleiri aðilum sem vinna að
ferðamálum að fella niður
flugvallarskattinn.
Steingrímur sagði þetta at-
riði fjárlagamál þar sem
flugvallarskatturinn rennur
til flugvallagerðar. „Ég hef
ekki mikla trú á því að skatt-
urinn verði felldur niður, því
þá vantar nýjan stofn í stað-
inn og mér finnst ekki óeðli-
legt að einhver skattur sé
greiddur í þessu sambandi.
Þakkarávarp
Þakka af alhug öllum þeim sem glöddu mig meö
heimsóknum á afmælisdegi mínum 9. nóvember sl.
og geröu mér daginn ógleymanlegan.
Theódór Friöriksson,
Hraunbæ 100, Rvk.
EVITA HÁRGREIÐSLU- OG SNYRTIVÖRU-
VERZLUN, LAUGAVEGI 41, SÍMI 28828.
Tízkupermanent
Klippingar
Lokkalýsingar
Tökum pantanir fyrir jólin.
Glansvask
Næringarnudd o.fl.
í snyrtivörum
bjóöum vió
hló þekkta,
franska anyrti-
vörumarki
t i lötÁyj
nADlC
PARIS*
ásamt ýmsu
öóru.
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-6. LAUGARDAGA FRÁ 9-1.
Munið
Þórskabarett
alltaf á
sunnudögum
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
Hringið
1í símai
35408
Miðbær:
Laufásvegur frá 2—57.
Þingholtsstræti.
Laugavegur frá 1—33.
„Hjól verðbólgjannar
vinda sig um Island“
— segir Financial Times í fyrirsögn
greinar um efnahagsmál á Islandi
London. 20. nóvember. frá Kinari K. Guðfinnssyni.
„VERÐBÓLGUHJÓLIÐ vindur sig utan um ísland“ er iausleg
þýðing á fyrirsögn Financial Times í ga*r, þar sem fjailað er um
íslenzkt efnahagsiíf í nokkuð ítarlegri grein. Financial Times er
ákaflega virt enskt blað, sem fjallar einkum um efnahagsmái og
nýtur mikiis álits á þeim vettvangi. Höfundur greinarinnar er
William Dullforce, sem fyrir nokkru var í Reykjavík.
í upphafi greinarinnar er vitnað
til Þorsteins Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bands Islands, þar sem hann segir,
að verðbólgan verði 87% að ári
nema ríkisstjórnin grípi í taum-
ana. Blaðið segir þessa viðvörun
Þorsteins Pálssonar lýsa því vel,
að óðaverðbólgan, sjúkdómurinn
sem hrjáir ísland, sé líkleg til að
versna. Ennfremur varpi hún ljósi
á þann vanda, sem ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen sé í.
British Airways
getur ekki borg-
að út laun 1. des.
SAMKVÆMT upplýsingum
IATA, Alþjóðasamtökum flugfé-
laga, er 1980 erfiðasta ár í sögu
farþegaflugsins. Nú berast þær
fréttir, að jafnvel hin stærstu og
stöndugust flugfélög eins og Brit-
ish Airways eiga í slíkum vand-
ræðum, að þau geta engan eginn
staðið við sínar skuldbindingar.
Félagið hefur að undanförnu
selt ýmsar eignir sínar og sam-
kvæmt síðustu fréttum er nú svo
komið, að fyrirtækið getur ekki
greitt starfsmönnum sínum út
laun 1. desember nk.
í greininni er vikið að sögulegri
stjórnarmyndun Gunnars Thor-
oddsen. Sagt er, að árið 1979 hafi
verðlag á neyzluvörum hækkað
um 61%. I stjórnarsáttmálanum
hafi verið kveðið á um, að árið
1982 ætti verðbólgan að vera orðin
svipuð á Islandi og í helztu
viðskiptalöndum okkar. Þegar í
febrúar sl. var ljóst að þetta átti
ekki við rök að styðjast, segir
Financial Times. Þá segir greinar-
höfundur, að gengisfelling sé nán-
ast orðin vani á Islandi. Til
gengisfellingar sé gripið til að
mæta þeim miklu erlendu kostn-
aðarhækkunum, sem stöðugt
verða, og koma hart niður á
útflutningsgreinunum.
STJÓRNARANDSTAÐAN
HEFUR LÍKLEGA
RÉTT FYRIR SÉR
Aðdragandinn að stjórnar-
mynduninni og þær aðferðir sem
Gunnar Thoroddsen viðhafði hafa
skerpt stjórnarandstöðuna, segir
William Dullforce. Stjórnarand-
stæðingar hafa sakað ríkisstjórn-
ina um algjört aðgerðarleysi. Það
er ekki rétt, segir hann, en engu að
síður hefur allur bati í efnahags-
lífinu reynzt skammvinnur. Willi-
am Dullforce fjallar nokkuð um þá
kjarasamninga, sem gerðir hafa
verið, bæði við BSRB og á hinum
almenna vinnumarkaði. Þær
launahækkanir, sem þeir höfðu í
för með sér, segir hann að verði að
skoða í ljósi þess, að rauntekjur
þorra Islendinga, hafa rýrnað um
5—7% á síðasta l'/fe ári. Þessi
kjaraskerðing stafaði af vísitölu-
skerðingu og því að grunnlaun
hækkuðu einungis um 3% á síð-
asta ári.
Þá er í greininni í Financial
Times vikið að því markmiði
ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen
að koma verðbólgunni niður í 42%
á næsta ári. „Til að það megi
takast áætlar Þorsteinn Pálsson
að ríkisstjórnin þurfi að skerða
vísitöluna um fjórðung á næstu 12
mánuðum," segir Financial Times.
Stjórnarandstæðingar, Sjálfstæð-
isflokkur og Alþýðuflokkur, segja
ríkisstjórnina ekki munu hafa
þrek til að grípa til svo víðtækra
ráðstafana, sem muni skerða
lífskjörin. Reynslan sýnir, að
stjórnarandstaðan hefur líklega á
réttu að standa, segir Dullforce.
Þó ríkisstjórnin hafi ekki sýnt
þann vilja sinn í verki á hún
möguleika á ýmsum leiðum að
mati greinarhöfundar. Alþýðu-
bandalagið gæti nýtt sér tengsl
sín í verkalýðshreyfingunni til að
skerða vísitöluna og svo virðist
sem framsóknarmenn séu reiðu-
búnir að halda búvöruverði niðri,
segir blaðið ennfremur. Tækist
þetta, væri ríkisstjórnin í sterkri
stöðu til að ráða við sjómenn út af
launum þeirra, það gæti einmitt
verið unnt að stemma stigu við
kostnaðarhækkunum í fiskiðnað-
inum. Við þessa niðurstöðu sína
bætir Dullforce síðan, að almennt
talað sé fiskiðnaðurinn á Islandi
ekki illa á vegi staddur.
VERSNANDI
ÞJÓNUSTUJÖFNUÐUR
í lok greinarinnar er farið
nokkrum orðum um viðskiptajöfn-
uðinn við útlönd. Vakin er athygli
á því, að halli á viðskiptajöfnuði
verði ekki jafn mikill og spáð var.
Þjónustujöfnuður muni hins vegar
versna vegna erfiðleika Flugleiða.
í fyrra og hitteðfyrra hafi verið
afgangur á viðskiptajöfnuði okkar
við útlönd, en halli á vöruskipta-
jöfnuði síðastliðið ár. Erlend láns-
fjárbyrði hafi aukizt á árinu og er
nú 16% af útflutningstekjum.
Þó að vonir standi til að við-
skiptajöfnuður náist á árinu sé
ekki útlit fyrir, að hallinn á
þjónustujöfnuði lagist. — „Það er
því frekari ástæða fyrir ríkis-
stjórn herra Thoroddsen að taka
efnahagsmálin til athugunar,"
segir William Dullforce orðrétt í
grein sinni í Financial Times.
í lok greinar sinnar segir hann
síðan: „í janúar hyggst ríkis-
stjórnin framkvæma gjaldmiðils-
breytingu, sem fyrir löngu er
orðin tímabær. 100 núgildandi'
krónum verður þá breytt í eina
nýkrónu. Þetta virðist vera kjörið
tækifæri til að gera nú raunveru-
lega atrennu að verðbólgunni."
Síldarbátarnir
aftur komnir á
Reyðarfjörðinn
Eskifirði. 20. nóvembcr.
EFTIR rólegheit yfir síldveiðun-
um hér á Reyðarfirði um nokkurn
tíma, fylltist fjörðurinn aftur af
skipum í dag. Nú í ljósaskiptunum
eru um 20 nótaskip að síldveiðum
rétt úti af Hólmanesinu og voru
þau flest með vinnuljós uppi. Því
má reikna með, að eitthvað hafi
þau verið að fá. Undanfarið munu
skipin hafa verið í Lónsbug og afli
verið heldur tregur.
Um síðustu helgi var síðasta
söltun hér, en þá kom Sigurbára
VE með 1200 tunnur, skipstjóri
Eggert Gíslason. Lagði Sigurbára
upp hjá Auðbjörgu. — Ævar qr.