Morgunblaðið - 21.11.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 21.11.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980 Minning: Helga Jóhannsdótt- ir frá Sveinatungu Fædd 24. apríl 1900. Dáin 11. nóvember 1980. I dag er til moldar borin móður- systir mín Helga Jóhannsdóttir. Hún var fædd 24. apríl árið 1900 í Sveinatungu í Norðurárdal í Borgarfirði, dóttir hjónanna Jó- hanns Eyjólfssonar bónda og al- þingismanns, og Ingibjargar Sig- urðardóttur. Helga var 5 í röðinni af 11 börnum þeirra hjóna. Þrjú þeirra dóu ung, en einnig ólu þau upp bróðurson .Jóhanns. Nú eru þau systkinin frá Sveinatungu öll látin, nema Skúli yngsti bróðirinn sem búsettur er í Kanada, og Jóhann fósturbróðirinn. Systkina- hópurinn frá Sveinatungu bar ávallt með sér, að þau voru skörp og mælsk og hnittin tilsvör þeirra fóru ekki fram hjá neinum. Heið- arleiki, hjartahlýja og trú á ein- staklinginn til sjálfsbjargar var þeirra veganesti úr heimahúsum. Ahrifa æskuáranna gætti jafnt hjá Helgu frænku. Gjafmild var hún og til hinstu stundar bar hún höfðingslund. Bein stóð hún og lét ei bugast hvað sem á hana var lagt. Hún var unglingur aðeins 15 ára þegar fjölskyldan flutti að Brautarholti á Kjalarnesi þá ung falleg, glettin og spaugsöm heima- sæta. Helga giftist EIís Ó. Guð- mundssyni, sem var um árabil skömmtunarstjóri ríkisins. Þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík. Þau eignuðust 2 börn, Ingibjörgu og Guðmund Magnús. Einnig tóku þau sem kjördóttur Helgu Elís dóttur Guðmundar, sem varð þeirra sólargeisli. En dauðinn og sorgin' var tíður gestur hjá frænku minni. Arið 1958 lést Elís eftir stutta legu. Bæði börnin sín missti hún á besta aldri. Guðmundur lést árið 1969 þá 38 ára. Hann lét eftir sig 2 dætur. Helgu Elís, sem áður er minnst. Hún er gift Ævari Agn- arssyni og eiga þau 2 börn. Þau voru þeir einu nákomnu ættingjar sem frænka mín átti hjá sér, enda áttu þau hug hennar allan og hún naut umhyggju þeirra. Elísa dótt- ir Guðmundar bar einnig sérstaka hlýju og umhyggju til ömmu sinnar. Ingibjörg dóttir hennar lést árið 1971 þá aðeins 46 ára frá 6 ungum börnum, þá búsett í Kanada. Það var þung raun fyrir frænku, til hinstu stundar, að sjá af dóttur sinni, en samband þeirra var mjög sterkt. En ömmubörnin í Kanada hafa verið, þrátt fyrir fjarlægðina, sérlega hugulsöm við ömmu sína og gert allt til þess að gleðja hana og styðja. Helga var fróð kona. Bókin var hennar besti vinur og oft minnist ég þess þegar kvæði okkar gömlu þjóðskálda runnu af vörum henn- ar, erindi eftir erindi, en hún var ljóðelsk, eins og hún átti ætt til. Nú ríkir friður og ró yfir frænku, hún hefur fengið hvíldina. Seinustu árin átti hún við heilsu- + Maöurinn minn, LÁRUS GUÐBJARTSSON, Álftamýri 16, andaöist á Landspítalanum 20. nóvember. Jaröarförin tilkynnt síöar. Kristín Sigfúsdóttir. t Hjartkær móöir mín, tengdamóöir og amma, HELGA JOHANNSDOTTIR, trá Sveinatungu, til heimilís að Skúlagötu 74, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, í dag, föstudaginn 21. nóvember kl. 1.30. Helga Elís, Ævar Agnarsson, og barnabörn. Litla dóttir okkar LÍNEY HUYNH HONG LINH Melabraut 36, Seltjarnarnesi, lést 17. nóvember. Bálförin hefur fariö fram. Gunnar Huyn Kien Can Helga Hua Vinh Hiep. + Faöir minn, GUÐMUNDUR KRISTJANSSON, fró Lundi í Grindavík, til heimilis aö Hjallavegi 3, Ytri-Njarövík, veröur jarösunginn laugardaginn 22. nóvember kl. 14.00, frá Ytri-Njarövíkurkirkju. Einar H. Guömundsson. + Þökkum af alhug auösýnda samúö viö andlát og útför, STEFÁNS G. BRYNJÓLFSSONAR. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki á lyfjadeild St. Jósefsspitala í Hafnarfirði. Guðfinna Arnfinnsdóttir, Brynhildur Stefánsdóttir, Magnús Bjarnason, Kjartan Stefónsson, Anna Sigmundsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Kristinn Magnússon, Hallur Stefánsson, Fjóla Haraldsdóttir, Lóa Stefánsdóttir, Guömundur H. Þóröarson, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Sesselja Þóra Veturliðadóttir leysi að stríða. Þá naut hún einstakrar umhyggju og hjálpsemi óviðkomandi konu, sem hér skal þakka sérstaklega. Helga var ein af þeim sem skipaði hinn langa biðlista aldraða Reykvíkinga, sem þurfa á hjúkrunarplássi að halda. Ein af þeirri kynslóð sem ruddi brautina upp úr aldamótunum með elju og þrautseigju, okkur til handa sem nú erum á besta aldri. Eg læt ljóð móður minnar vera mína hinstu kveðju er hún segir: Er hinsti svefninn hjarta stöðvar mitt herra. sál rpin þráir ríkirt þitt í arma þina andinn ffladur flýr. um eilifð sæll i návist þinni býr. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti. Guð blessi minningu Helgu Jó- hannsdóttur. Ingihjörg Bergsveinsdóttir. Fædd 4. júní 1934. Dáin 5. nóvember 1980. Eg ætla með nokkrum orðum að minnast Stellu mágkonu minnar er andaðist að heimili sínu í Bandaríkjunum 5. nóvember síð- astliðinn. Hún hét fullu nafni Sesselja Þóra Veturliðadóttir og var fædd að Hesteyri á Hornströndum. Þar lifði hún sína bernskudaga við stórbrotið landslag og misjafnt veðurfar. Þar voru kaldir og snjóamiklir vetur en svo komu hlýir og yndislegir sumardagar með leiki barna í fjöru og fagurgrónum hlíðum. Hún ólst þar upp hjá foreldrum, systkinum, ömmu og fleira skyld- fólki og vinum. Seinna flutti fjölskyldan burt, fyrst til Bolungarvíkur og síðar til Reykjavíkur. Þegar ég kynntist henni var hún flutt til Reykjavíkur og Hesteyri komin í eyði og eftir það aðeins góð og falleg bernskuminning í huga hennar. Hún var ung, hraust og bjartsýn er hún flutti frá íslandi með manni sínum til að setjast að á fjarlægum stað í Kansas City í Bandaríkjunum árið 1956. Son sinn Reyni tók hún með sér út. Stella eignaðist þrjú börn þar ytra og eru þau nú öll uppkomin. Það var gleði hjá okkur öllum í fjölskyldunni hehnar hér heima þegar hún kom einu sinni í heimsókn með öll börnin. Sambandið við þessa fjölskyldu hefur minnkað með árunum vegna fjarlægðar en þar hafa skipst á skin og skúrir eins og oft vill verða. Fyrir nokkrum árum lenti hún í bílslysi og náði aldrei fullri heilsu eftir það, en slíkt er þungbært fyrir fólk á besta aldri. Oft hefur móðurhugurinn leitað til dótturinnar og barnanna henn- ar í fjarlægu landi. Stella kemur ekki oftar heim til íslands en hún er komin heim þangað sem okkar allra bíður hvíld og friður, að loknu ævistarfi. Við öll, móðir hennar, systkini og fjölskyldur þeirra sendum þakkir yfir móðuna miklu fyrir líf hennar og störf hér heima á æskuárunum og síðar á öðrum slóðum. Blessuð sé minning hennar. Aðalbjörg Baldursdóttir. Hamrahlíð- arkórinn í Ytri-Njarð- víkurkirkju SUNNUDAGINN 23. nóvember verða fyrstu tónleikar vetrar- ins i Y’tri-Njarðvíkurkirkju. Á þessum fyrstu tónieikum mun Kór Menntaskólans við Hamra- hlið flytja kórverk allt frá 16. öld fram til dagsins i dag. innlend og erlend. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð er löngu orðinn landsþekktur fyrir söng sinn. Hann hefur komið fram í út- varpi og sjónvarpi hér og ann- arsstaðar í Evrópu. Kórinn hef- ur tekið þátt í mörkum keppn- um og kóramótum erlendis. Allir kórfélagar eru nemend- ur Menntaskólans við Hamra- hlíð og á hverju ári verða miklar breytingar á kórnum vegna þeirra sem ljúka námi við skól- ann. Á þessu skólaári er kórinn skipaður 58 nemendum á aldrin- um 16—21 árs. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur verið stjórnandi kórsins frá upphafi. Tónleikarnir á sunnudaginn hefjast kl. 15.00. FréttatllkynninK ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Jaröarför ÁSTU KRISTJANSDOTTUR, Vatnsnesvegi 24, Keflavík, fré Holti, fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 22. nóvember kl. 2 e.h. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, látiö Björgunarsveitina Stakk í Keflavík njóta þess. Vandamenn. + Útför fósturföður okkar, ERLENDARJÓNSSONAR, fyrrverandi vegaverkstjóra, Hárlaugsstööum Ásahreppi, fer fram frá Kálfholtskirkju laugardaginn 22. nóvember kl. 2 e.h . Sætaferö veröur frá Umferðamiöstöö kl. 12.00. Kristin Andersdóttir, Astgeir Ingólfsson, Sigurlaug Steingrímsdóttir, Guðmundur Gíslason, og börn. + Innilegt þakklæti til allra, fjær og nær, er sýndu samúö og vinarhug viö andlát og útför mannsins míns, JÓHANNSGUNNLAUGSSONAR, frá Eiði. Berglaug Sigurðardóttir, Þórshöfn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er auösýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og jarðarför, HALLDÓRU S. J ÓNSDÓTTUR, Hafnargötu 46, Bolungarvík. Elísa R. Jakobsdóttir, Ragnar Sveinbjörnsson, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.