Morgunblaðið - 21.11.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
29
fyrir 50 árum
„FJÁRHAGSÁÆTLUN Ak-
ureyrarkaupstaðar var sam-
þykkt aí bæjarstjórninni á
þriðjudairinn. Gjoldin eru
áætluð 387.330 og tekjur jafn-
háar. Er þetta 30.000 króna
hækkun frá því i fyrra.
Niðurjöfnun áætluð 216.730
krónur, 1 fyrra 184.450 kr.
Sjerrekstrareignir bæjarins,
vatnsveitan, rafveitan og
höfnin, koma ekki inn á
fjárhagsáætlunina, saman-
lagðar fjárhagsáætlanir
þeirra nema um 250 þús. kr.“
„ANDAMYNDIR af Conan
Doyie.
Mælt er að tekist hafi, eftir
nokkrar tilraunir að taka
mynd af svip Conan Doyle. í
lifanda lifi taldi hann anda-
myndirnar einhverja bestu
(Ignnun fyrir framhaldslífi. í
rannsóknarstofu spiritista i
London hafa nú verið teknar
nokkrar myndir af svip hans.
I viðurvist margra manna. og
undir umsjá þeirra voru þær
framkallaðar. — Greinilegar
myndir komu fram á plötun-
um af hinum framliðna önd-
vegismanni spiritista.“
Alúðarþakkir
til Fóstbræðra
Tvenn hjón úr Heimunum
skrifa 17. nóv.:
„Okkur langar að biðja Vel-
vakanda að koma á framfæri
alúðarþökkum til Fóstbræðra
fyrir einkar ánægjulegt
skemmtikvöld sl. laugardags-
kvöld í félagsheimili kórsins við
Langholtsveg. Skemmtidagskrá-
in sem spannaði rúma tvo tima
var fjölbreytt að vanda. Kórinn
söng fyrst nokkur lög undir
stjórn Ragnars Björnssonar, sið-
an söng Hákon Oddgeirsson ein-
söng við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Kvartett söng
„barbershop“-lög. Allt þetta
vakti mikla ánægju. — Þá voru
ýmis skemmtiatriði sem kórfé-
lagar og konur þeirra sáu um og
var mikið hlegið. Átti stjórnand-
inn, Jón B. Gunnlaugsson, þar
stærstan þátt, enda fór hann á
kostum og ætluðu áhorfendur
sem voru eins margir og húsrúm
leyfði, aldrei að sleppa honum af
senunni. Þetta kvöld var sérlega
ánægjulegt í alla staði og ekki
skemmdi hljómsveitin sem lék
fyrir dansi til kl. 3 e.m. — Sem
sagt allt hjálpaðist að til að gera
skemmtun þessa sem ánægju-
legasta þarna í vistlegu félags-
heimili kórsins. Væri fengur í
því að skemmtun þessi yrði enn
endurtekin, og þá yrði almenn-
ingi gefinn kostur á slíku
kvöldi."
Loöfóöraöir
leður
kuldaskór
Dömu, herra og barna
stæröir í glæsilegu úr-
vali.
VE RZLUNIN
GEísiP"
Reykingar algjörlega bannaðar
Steinunn Ásgeirsdóttir skrifar:
„Ég er nemandi í 8. bekk Hvassa-
leitisskóla og langar mig til þess að
ræða lítillega um það sem einhver
Pétur Snæsson skrifaði í Velvak-
anda í gær. í Hvassaleitisskóla eru
reykingar algjörlega bannaðar og
aðeins örfáir í 7. og 8. bekkjum
reykja. Kennarar hafa yfirleitt
passað mjög vel að ekki sé reykt á
skólatíma og ef þeir sjá nemanda
sem reykir, t.d. í frímínútum, þá er
farið með hann beint til yfirkennar-
ans og nemandinn er rekinn heim í
viku. Ég sem nemandi hef ekki
tekið eftir því að reykt hafi verið á
skólalóðinni í frímínútum. Utan
skólans kemur það engum við þó að
krakkar reyki fyrir framan skól-
ann, en að mínu áliti er þetta alveg
æðislegur skóli.“
Velvakandi hefur gengið úr
skugga um að Pétur þessi Snæsson,
sem Steinunn nefnir í bréfi sínu, er
ekki til. Einhver „brandarakarl"
hefur séð sig knúinn til að hafa
blekkingar í frammi um þetta efni,
svo furðulegt sem það er. Velvak-
andi biður skólastjóra, kennara og
nemendur Hvassaleitisskóla að
virða þetta til betri vegar. Reynt
verður eftir því sem tök eru á að
koma í veg fyrir mistök af þessu
tagi.
lgast
— Þannig er 1. kaflinn lýsing
andans og sköpunar og 2. kaflinn
lýsing drottins og myndunar
(formunar).
Nauðsynlegt að
biðja um skilning
— Síðan fer höfundur tilvitn-
aðrar greinar yfir í 7. kafla 1.
Mósebókar um Flóðið og vill sýna
fram á, að missögn sé á mili 2—3
v. og 8—9 v. miðað við töluna 7+7
og 2+2 í fyrri versunum á móti í
8—9 „kom tvennt og tvennt til
Nóa í örkina, karlkyns, eins og
Guð hafði Nóa“. Þetta þýðir ein-
faldlega, að eitt par kom inn í einu
um dýradyrnar, enda allt miðað
við pörun, eða hve stórar dyr hefði
annars þurft fyrir 7 pör af hinum
hreinu dýrum að ganga samsíða
innum? I enskum Biblíum t.d. er
notast við: „There went in two and
two“ eða „by twos“ o.s.frv.
— Það er nauðsynlegt að biðja
um skilning við lestur Biblíunnar,
sem inniheldur Orð Guðs og þótt
nú sé tími spottaranna þá er
einnig nú sá tími, sem Orðið
verður augljóst og skilningur
manna er að aukast og um leið
hrinur „speki spekinganna" niður
í myrkrið, þaðan sem það, sem
leiðir í villu og svima, er upp
sprottið.
— Allar umræður eru til góðs
og verða til vakningar nú er
ljósfylling tímans nálgast.
Með þökk fyrir birtinguna."
Við vorum látnar
fara okkar leið
Fjórar stöllur. sem ekki komust i
Hollywood. skrifa:
„Við ætluðum að bregða okkur í
Hoilywood á föstudagskvöldið, en
komumst ekki inn. Við erum fæddar
árið 1961 og erum orðnar 19 ára.
Meðan við stóðum í dyrunum komu
stelpur þarna að sem við könnuð-
umst við og eru fæddar 1962. Þær
sögðu bara „nei hæ“ við dyravörðinn
og hann heilsaði á móti: „Gjöriði svo
vel elskurnar.“ En við, langt komnar
á tvítugsaldurinn, vorum látnar fara
pkkar leið aftur. Okkur langar til að
spyrja „herra höfuðsmanninn“
þarna í Hollywood, hvernig á þessu
getur staðið.
Fékk Hollywood
sérstakt leyíi?
Og eitt langar okkur til að spyrja
um í leiðinni í sambandi við kjör
„ungfrú Hollywood“. Sumir kepp-
endanna voru undir lögaldri. Fékk
veitingastaðurinn sérstakt leyfi til
að hleypa þeim inn?“
SIGEA V/öGA í ÁiLVtRAU
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN' ER:
22480
/ A060'