Morgunblaðið - 21.11.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
31
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Breeler fór á kostum
— er Ármann vann sinn fyrsta sigur
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
ÁRMENNINGAR gætu bjargað sér frá falli úr úrvalsdeildinni i
körfuknattleik þrátt fyrir slæmt gengi liðsins i byrjun mótsins. Liðið
vann nefnilega sinn fyrsta sigur i úrvalsdeildinni i gærkvöldi. Lið ÍS
var bráð Ármenninga og ef tekið er mið af leiknum ættu
Ármenningar að geta unnið ÍS i þeim tveimur leikjum sem liðin eiga
eftir að leika og þannig tryggt sér áframhaldandi setu i deildinni.
Lokatölur i gærkvöldi urðu 67—57, Ármanni i hag. Tölurnar segja
margt um gæði leiksins. en sigur Ármenninga var þó mjög sanngjarn.
En liðið hafði um tima 20 stiga forystu. Baráttan í liði Ármenninga
var aðdáunarverð og fleytti liðinu yfir þennan hjall. Þá átti James
Breeler stórkostlegan lejk, yfirsást varla frákast og skoraði
helminginn af stigum Ármanns. Er Breeler stórskemmtilegur
leikmaður á að horfa i keppni.
Gangur leiksins var í frekar
stuttu máli sá, að Ármann náði
strax forystunni. Komst Ármann í
12—4, en IS minnkaði muninn og
aldrei munaði sérlega miklu allan
fyrri hálfleik. En vitleysurnar sem
þarna sáust voru oft með ólíkind-
um og ekki laust við að margir
hafi hlegið tröllahlátri. Var engu
líkara á köflum, en að liðin hefðu
æft sameiginleg sóknarkerfi, sem
fólust til dæmis í því að Ármenn-
ingur sendi á ÍS-mann, sem síðan
skoraði. Eða öfugt. Þá var allan
leikinn engu líkara en að knöttur-
inn hefði verið smurður með
koppafeiti, því sumum leik-
mönnum reyndist með öllu fyrir-
munað að halda honum eða senda
hann til samherja. En mikilvægi
þessa leiks hefur vafalaust átt
sinn þátt í hvernig þetta gekk allt
fyrir sig. í hálfleik var staðan
síðan 28—27 fyrir Ármanni.
í síðari hálfleik féll leikur ÍS
framan af niður á lægra plan en
nokkurn óraði fyrir að til væri.
Fyrstu 7 mínútur síðari hálfleiks
skoraði liðið aðeins fjögur stig og
þar af skoraði James Breeler tvö
þeirra! Skot Mark Coleman geig-
aði eitt sinn illa, en Breeler barði í
körfuspjaldið og samkvæmt regl-
unum er það bannað og ÍS fékk tvö
stig. Þar með hafði Coleman
skorað 6 stig í leiknum, en aðeins
hitt tvisvar! Ármenningar gengu á
lagið, þeir léku engan snilldar-
körfubolta, en börðust grimmilega
og reyndu að leika af skynsemi.
Þeir sigu fram úr og náðu mest 20
stiga forystu. Sem sagt alger
einstefna um tíma. Ármann komst
í 55—35 og þess má geta, að þessi
35 stig höfðu ÍS-menn skorað á 32
mínútum.
En er hér var komið sögu fóru
Ármenningar eitthvað að dala og
IS skoraði 12 stig í röð. Staðan
breyttist í 55—47 fyrir Ármann,
en síðan ekki söguna meir. Ár-
menningar fóru á ný að svara
fyrir sig og möguleikar ÍS, sem
voru litlir, urðu endanlega að engu
og lokatölur leiksins urðu 67—57
eins og áður segir.
Lið Ármanns var vel að sigrin-
um komið. Leikurinn í heild var
ákaflega slakur, en Ármenningar
voru stórum betra liðið á vellin-
um. Og liðið hefði unnið enn
stærri sigur, ef fáeinir leikmenn
liðsins hefðu leikið af eðlilegri
getu. En allur leikur Ármanns
snérist í kring um James Breeler
og sýndi hann sannkallaðan
snilldarleik. Hann skoraði 34 stig í
leiknum, án þess þó að vera
eigingjarn. í vörninni tók hann
hvert einasta frákast að því er
IS -
Ármann
virtist og með slíkum tilþrifum og
hamagangi að ekki var heiglum
hent að nálgast hann, enda tröll
að vexti. Gaman var einnig að sjá
hvernig hann stýrði Stúdentum
fram og til baka í sókninni, hélt
knettinum og þurfti ekki annað en
að hreyfa hendurnar, þá hlupu
IS-menn eins og höfuðlaus hænsni
um allt. Var Breeler alger yfir-
burðamaður á vellinum. En einn
maður vinnur ekki leik. Hörður
Arnarson komst mjög vel frá
leiknum, vaxandi leikmaður. En
aðrir voru ekki eins afgerandi, þó
allir hafi lagst á eitt. Minna bar á
Davíð Arnari og Valdemar Guð-
laugssyni, svo og öðrum leik-
mönnum. Hjá IS voru ekki aðrir
en Gísli Gíslason og Árni Guð-
mundsson sem virtust boðlegir í
úrvalsdeild. Mark Coleman var
slakur, en hans var meistaralega
gætt af þeim Davíð Arnari og
Herði Rafnssyni, sem skiptust á
um að gæta hans. Tókst það svo
vel, að Coleman skoraði ekki nema
4 stig í fyrri hálfleik. Aðrir í liði
ÍS voru hreinlega lélegir.
STIG ÍS: Mark Coleman 17, Gísli
Gíslason 12, Árni Guðmundsson
11, Ingi Stefánsson 8, Bjarni
Gunnar Sveinsson 6 og Steinn
Sveinsson 2 stig.
STIG Ármanns: James Breeler 34,
Hörður Arnarsson 15, Guðmundur
Sigurðsson 4, Atli Arason 4, Björn
Christiansen, Valdemar Guð-
laugsson, Davíð Arnar og Bern-
harð Laxdal 2 stig hver.
— gg
• Mynd þessi er táknræn fyrir leikinn í gærkvöldi. Bjarni Gunnar er að bisa við körfuskot. en á enga
möguleika að koma knettinum framhjá Breeier. bjósm.. Kmíiia
a
Ullar-
flannelbuxur
satínfóðraðar
Litir: grátt, svart, blátt, milliblátt,
brúnt Ijósgrátt.
Hönnun: Colin Porter.
Verð: Gkr. 33.900.-
Nýkr. 339.
Fást hjá
KARNABÆR
Laugavegi 66 og Glæsibæ
Wzm
Laugavegi 20. Sími frá skiptiboröi 85055
Aus'"- • ' Sími frá skiptiboröi 85055
og umboðsmönnum um land allt.