Morgunblaðið - 27.11.1980, Page 1
40 SÍÐUR
265. tbl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ekkja Maos i vitnastúkunni i PekinK-
Ekkja Maos
„veit ekkert“
IVkintí. 2fi. nóv. — AP.
EKKJA Maos. JianK Quin«. svaraði þrákelknisleKa .,ók veit ekki" ok
kom sér undan að svara þeirri áka'ru í rcttarholdunum í Peking í da>?.
að hún hefði varpað sök á Den>? XiaopinK, sem nú er valdamesti maður
í Kína. Ilún hlýddi síðan á nokkur vitni. sem soköu að ásökunin va ri
rétt.
Gamall herforingi játaði jafn-
framt, að hann hefði tekið þátt í
Percy
í Kreml
Moskvu. 2fi. nóv. — AP.
VÆNTANLEGUR formaður
utanríkisnefndar öldunga-
deildar Bandaríkjaþings.
Charles Percy, átti i dag
þriggja tíma fund með
Leonid Brezhnev, forseta
Sovétríkjanna. betta er
fyrsti fundur handariskra
og sovézkra valdamanna í 16
mánuði.
Percy kvaðst hafa haft
„náið samráð“ við Ronald
Reagan nýkjörinn forseta um
ferðina til Moskvu. Hann
sagði, að Brezhnev hefði veitt
honum „vissar fullvissanir",
sem færðu „von um framtíð-
ina, samskipti Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna og heim-
inn.“
Umfjöllun Izvestia um
heimsóknina virðist lýsa
þeirri afstöðu Rússa, að þeir
séu reiðubúnir til góðra sam-
skipta við nýju stjórnina og
nýkjörið þing, þótt grunnt
hafi verið á því góða með
Reagan og Kremlverjum til
þessá.
Fundurinn var lengri en
Brezhnev á almennt með er-
lendum gestum og sá mikil-
vægasti í sambúð Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna síðan
Rússar réðust inn í Afganist-
an.
samsæri í Shanghai 1971 um að
myrða Mao.
Sex hinna 10 sakborninga hafa
borið vitni og ekkja Maos varð
fyrst til að sýna mótþróa, þótt
félagi hennar úr „fjórmenninga-
klíkunni", Zhang Chunqiao, neit-
aði að taka við eintaki af ákær-
unni, en hann á eftir að bera vitni.
Hinir fjórmenningarnir, Wang
Hongwen og Yao Wenyuan, hafa
borið að Jiang Qing hafi kallað
klíkuna til fundar í október 1974
til að senda Wang á fund Maos
með aðdróttunum um, að Deng
reyndi að hrifsa völdin.
Aðspurð hvort hún hefði boðað
fundinn sagði hún fyrst „nei“, og
þegar spurningin var ítrekuð
bætti hún við „ég veit ekki".
Aðspurð hvað rætt hefði verið á
fundinum sagði hún: „Ég veit það
alls ekki, hvernig á ég að vita hvað
var rætt.“
Dómsforseti skipaði að bókað
yrði, að hún hefði „neitað stað-
reyndum". Wang var aftur kallað-
ur fyrir og endurtók að hún hefði
sent hann út af örkinni til að
„varpa sök“ á Deng.
Sýrlenzkt
lið ógnar
Beirút. 2fi. nóv. AP.
SÝRLENDINGAR hafa flutt
fyrsta hrynva'dda herfylki sitt.
um 12.000 hermenn, til Dera, rétt
norðan við jórdönsku landamær-
in samkvæmt skýrslum frá vest-
rænum diplómötum.
Jórdanir hafa svarað með því að
senda herlið að sýrlenzku landa-
mærunum samkvæmt fréttum frá
Amman. Sýrlenzkir fjölmiðlar
hafa gagnrýnt leiðtogafund Araba
í Amman síðan fundur utanríkis-
ráðherra þeirra hófst í síðustu
viku. Aðalstjórnarmálgagnið í
Damaskus sakar Hussein konung
um að dusta rykið af átta ára
gamalli áætlun um sameiningu
vesturbakkans og Jórdaníu, til að
ná sams konar samningi við Ron-
ald Reagan og Anwar Sadat við
Jimmy Carter.
Annað uppg jör í
aösig i í Póllandi
Varsjá. 2fi. nóv. AP.
UPPGJÖR var í aðsigi í dag milli pólsku stjórnarinnar og óháðra
verkalýðsfélaga. sem boðuðu verkföll í fyrirtækjum umhverfis
höfuðborgina. allt frá stáliðjuverum til hifreiðaverksmiðja og
ríkisleikhússins. ef sjálfhoðaliðinn Jan Noarozniak prentari yrði ekki
látinn laus og gengið yrði að öðrum kröfum.
í Washington ítrekaði banda-
ríska utanríkisráðuneytið í kvöld,
að Bandaríkin mundu forðast
hverjar þær ráðstafanir, sem
gætu torveldað tilraunirnar til að
leysa verkamannaólguna í Pól-
landi, og skoraði á Sovétríkin að
gera slíkt hið sama.
Gripið verður til algerrar
vinnustöðvunar í nokkrum stórum
pólskum verksmiðjum, en annars
staðar munu verkföll takmarkast
við ákveðnar deildir. Zbigniew
Bujak, leiðtogi Samstöðu í Varsjá,
sagði að „verkfallsviðbúnaður"
yrði boðaður á öllu Varsjársvæð-
inu, ef stjórnin sleppti ekki Nar-
ozniak og sendi ekki nefnd til
Ursus-vörubílaverksmiðjanna til
að semja um aðrar kröfur fyrir
BOÐSKAPUR FRÁ ÍRAN — Sendiherra Alsírs í íran, Abdelkar-
im Gheraib (t.v.) við komuna til Washington ásamt starfsmanni
bandaríska utanríkisráðuneytisins. Sendiherra Alsírs hjá Samein-
uðu þjóðunum er á bak við lögregluþjóninn.
Ný orðsending
í gísladeilunni
Hashiniíton. 2fi. nóv. — Al’. írsku sendimennirnir hafa rætt í
bRÍR alsírskir milligöngu- nokkra daga við íranska emb-
menn afhentu í dag trúnaðar- ættismenn í Teheran.
boðskap frá íran til bandaríska í Beirút sagði forseti íranska
utanríkisráðuneytisins og þar þingsins Hashemi Rafsanjani,
með hófst ný lota tilraunanna að ef Bandaríkjamenn gengju að
til að hjarga bandarísku gíslun- hluta skilmálanna væri hægt að
um, en sagt er að tilraunirnar sleppa hluta gíslanna. Hann
geti tekið langan tíma. kvað írani ekki skilja bandarísk
Utanríkisráðuneytið vildi ekk- lög, en vænta þess að þeir leystu
ert segja um viðræðurnar við vandamál, sem þeir hefðu sjálfir
alsírsku fulltrúana að öðru leyti valdið.
en því, að þær hefðu verið Leiðtogi islamska lýðveldis-
gagnlegar. Þeir munu biðja um flokksins, Ayatollah Mohammed
nánari skýringar á tillögum Beheshti, sagði í Teheran að
þeim sem Warren Christopher Bandaríkjamenn „hefðu ekki
varautanríkisráðherra afhenti í gert allt sem í þeirra valdi
Algeirsborg fyrir 16 dögum. Als- stæði“ til að mæta skilyrðunum.
hádegi á morgun.
Margar verkfallsnefndir ráð-
gera þó vinnustöðvanir frá kl. 6
f.h. og í sumum deildum Ursus,
stáliðjuversins í Varsjá og í FSO-
bílaverinu hófust verkföll í dag.
Flutningaverkamenn í Varsjá
hyggja á verkfall á hádegi á
morgun.
Verkamenn í ýmsum verksmiðj-
um og fyrirtækjum á höfuðborg-
arsvæðinu hafa flutt matvæli,
ábreiður og aðrar birgðir á vinnu-
staði út af verkföllunum. Bændur
hafa dreift eplum í Ursus-verinu
og vörubílar hafa verið skreyttir
rauðum og hvítum merkjum sem á
stendur „Með Ursus-verkfalls-
mönnum“.
Ástandið í Póllandi hefur ekki
verið jafnalvarlegt síðan hætt var
við verkfall eftir úrskurð hæsta-
réttar 10. nóv. Verkfallshættan
skyggir á samninga stjórnarinnar
við flutningaverkamenn, sem fóru
í viðvörunarverkföll í Varsjá og
Gdansk. Fallizt var á tillögur
Samstöðu, samningar voru undir-
ritaðir í dag og hætt var við
járnbrautarverkfall um allt land.
Narozniak var handtekinn á
föstudaginn, sakaður um að
ljóstra upp um ríkisleyndarmál.
Degi áður fann lögregla leyniskjal
í skrifstofu Samstöðu með lýsing-
um á aðferðum til að áreita og
lögsækja andófsmenn og „andsós-
íalistísk öfl“.
Jarðskjálfti
í S-Ameríku
BoKota. 2fi. nóv. AP.
JARÐSKJÁLFTI varð á landa-
mærum Venezúela og Kólombíu í
dag og minnst 30 slösuðust í
borginni Cucuta. Tveir kirkju-
turnar og eitt hús hrundu og
rúmlega 10 hús löskuðust sam-
kvæmt fréttum frá borginni.
Jarðskjálftinn mældist 5,2 stig
á Richterskvarða og átti upptök
sín 354 km norðaustur af Bogota.
Cucuta er 402 km norðaustur af
Bogota.
„Fólk hljóp út á göturnar í
ofsahræðslu, grét og hrópaði,“
sagði fréttamaður í samtali. Raf-
magn fór af í helmingi borgarinn-
ar og símasambandslaust varð við
þann borgarhluta.
Loftárásirnar við
Persaflóa harðna
Beirút. 2fi. nóv. AP.
ÍRANIR ok írakar stóAu fyrir
einhverjum hörðustu loftárásunum
í Persaflóastríðinu í dag og sögðu
frá gífurlegri eyðileggingu og
miklu manntjóni á báða hóga.
íranir gerðu hörðustu loftárás-
ina til þessa á borgina Kirkuk í
Norður-írak, einum degi eftir að
áreiðanlegar heimildir hermdu að
Írakar va'ru aftur byrjaðir að dæla
olíu eftir leiðslu til Miðjarðarhafs.
Þeir sögðu, að kviknað hefði í níu
eldsneytisgeymum, sem gætu fyllt
eina milljón tunna. Irakar staðfestu
árásina og sögðu að þrír óbreyttir
borgarar hefðu beðið bana og 26
særzt.
Irakar sögðu að íranskar flugvél-
ar hefðu einnig ráðizt á Kúrdahér-
uðin Suliemnaiyeh og Salaheddin
norðan við Kirkuk og níu írakar
hefðu beðið bana og 38 særzt. Þeir
sögðu, að tvær íranskar þotur hefðu
verið skotnar niður í loftbardaga og
viðurkenndu að ein írönsk þota
hefði hrapað vegna bilunar.
I tilkynningu Irana segir, að tvær
olíudælustöðvar, leiðslumannvirki
og flugstöð hafi e.vðiiagzt i árásinni
á Kirkuk. Iranir sögðu, að trakar
hefðu gert loftárás á Khorramabad,
þar sem aðaltorgið væri þakið
fórnarlömbum og hótel, nokkrar
verzlanir og bílar hefðu orðið fyrir
sprengjum. írakar kváðust hafa
hæft hernaðarskotmörk.
Bæði íranar og trakar sögðu að
sex daga fallhlífaliðaorrusta héldi
áfram á hálendinu í Vestur-lran
fyrir ofan þjóðvegina til Bagdad.