Morgunblaðið - 27.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 5 Trésmiðja Austur- lands óskar ef tir greiðslustöðvun FáxkrúAsfirAi. 26. nóvember. TRÉSMIÐJA Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði hefur vegna rekstrarerfiðleika óskað eftir heimild til greiðslustöðvunar við skiptaráðandann í S-Múlasýslu og hefur hann orðið við þeirri ósk. en miklir erfiðleikar hafa verið í rekstri fyrirtækisins að undanförnu. Þá erfiðleika má rekja til endur- iífgunar þess árið 1972, en þá blasti við stövðun á rekstri. Byggðasjóður setti þá fé í rekstur- inn með því skilyrði að Búða- hreppur og Kaupfélag Fáskrúðs- firðinga gerðust eignaraðilar að um 80% hlutafjár. Ráðstöfun þessi bar ekki tilætlaðan árangur þar sem raunverulegum rekstr- argrundvelli var kippt undan fyrirtækinu þar sem ekki var lengur leyft að byggja báta, en það hafði áður verið undirstaðan og sérhæfing fyrirtækisins á því sviði. Síðan hefur fyrirtækið aðallega stundað byggingarstarfsemi, en hún hefur ekki nægt til að standa undir fjármagnskostnaði. Því var gripið til þess ráðs sem á undan er getið til að gera skil við eigendur skulda fyrirtækisins. Þess má geta að áður í áratugaskeíð var þetta eitt af helztu fyrirtækjum staðar- ins og í eigu Einars Sigurðssonar, skipasmíðameistara, sem ávalit hafði traust. Undanfarið hafa 6 manns unnið hjá fyrirtækinu, en jafnvel 25—30 manns hér á árum áður þegar umsvif fyrirtækisins voru hvað mest. — Albert 1 Ferðaskrifstofan UTSÝN Lokahóf á 25 ára afmœlishátíð Utsýnar Hótel sögu, sunnudaginn 30. nóvember 1980 Endahnúturinn á glæsilegum skemmtunum og veizluhöldum hér á landi og erlendis í tilefni 25 ár afmælis ÚTSÝNAR — og nú er ekki valið af verri endanum. Kl. 19.00 Gestir boðnir velkomnir meö blómum, ókeypis smáréttum, ókeypis fordrykk og síðast en ekki sízt ókeypis happdrættismiöa, sem hljóöar upp á ókeypis UTSÝNARFERÐ 1981. Kl. 19.45 hefst girnileg veizla — nú leggja hinir ágætu matreiöslumenn Hótel Sögu sig í líma viö aö kitla bragölaukana. ★ Hárgreiðslu-og snyrtisýning ★ Tízkusýningar: .KARON — samtök sýningarfólks sýna tízkufatnaö frá SONJU og HERRAGARÐ- INUM y Fegurðarsamkeppni: Ungfrú ÚTSÝN 1981 forkeppni — 10 feröaverölaun. Myndasýning: Líf og fjör á suörænum sólarströndum. Video- sýning frá afmælisárinu. * Spennandi getraun: Aöalvinningur ÚTSÝNARFERÐ 1981. ★ Stórbingó: 3 glæsilegar Útsýnarferöir. ★ Dans: Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt hinum sívinsæla Þorgeiri Ástvaldssyni meö diskótekið heldur uppi geysifjöri til kl. 01.00 Muniö aö panta borö hjá yfirþjóni strax í dag. Sími 20221 og 25017 eftir kl. 14. Feröaskrifstofan Útsýn Stækkun möskva og svæðalokanir: Mun minni sókn í yngri árganga Friðrik Soph- usson á Heim- dallarfundi Heimdallur. samtök ungra sjálfstæðismanna i Reykjavik, boðar til fulltrúaráðsfundar i kvöld. um húsnæðismál. Gestur fundarins verður Friðrik Sophusson alþingismaður. og mun hann ræða um viðhorfin i húsnæðismálum og stefnu Sjálfstæðisflokksins i þeim málaflokki. Fundurinn verður haldinn í Valhöll við Háaleitisbraut, og hefst hann klukkan 20.30. Fund- urinn er opinn öllum félögum fulltrúaráðs Heimdallar. Fund- arstjóri er Pétur J. Eiríksson hagfræðingur. ÚTLIT er fyrir að þorskafli á íslandsmiðum fari i eða jafnvel yfir 415 þúsund tonn á þessu ári og eru veiðar útlendinga. Færey- inga, Belga og Norðmanna, tekn- ar inn í dæmið. Þetta kom fram i samtali Mbl. við Sigfús Schopka fiskifræðing, en hann flutti er- indi á Fiskiþingi i fyrradag. Fjallaði Sigfús einkum um frið- unaraðgerðir á síðustu árum og hvern árangur þær hefðu borið. Með stækkun möskva og svæða- lokunum hefur orðið mikil minnk- un sóknar í smáfisk, en hins vegar hverfandi í eldri árganga. Sagði Sigfús, að sóknin hefði minnkað um 78% í þriggja ára fisk og um 35% í 4 ára fisk. Bar hann Fjögur skip með loðnu FJÖGUR skip tilkynntu Loðnu- nefnd afla í gær: Óli Óskars 850, Sæberg 200, Hilmir 700, Keflvík- ingur 320. Gott veður var á miðunum, en bjart var af tungli í fyrrinótt og loðnan stóð djúpt. tímabilið 1971—75 saman við árin 1977—79 við þennan útreikning. — Þessar friðunaraðgerðir hafa í för með sér, að smáfiskur- inn nær að vaxa og skilar þegar litið er til lengri tíma 55 þúsund tonna meiri ársafla. Varanlegur hámarksafrakstur stofnsins er talinn 450 þúsund tonn og þarf því enn að draga úr sókninni til að ná því marki, sagði Sigfús Schopka. Leiðrétting við frétt um Helguvík Vegna fréttar Mbl. sl. laugardag um framkvæmdir við olíugeyma í Helguvík skal það leiðrétt að framkvæmdir munu ekki geta hafist fyrr en árið 1983. Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra kveður misskilnings hafa gætt í fréttinni og ekki verði ljóst fyrr en á næsta ári hvernig fjármögnun verði háttað og í framhaldi af því verði hægt að ákveða hönnunar- og undirbúningsvinnu. Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI 1437 H Heimilisborvél Mótor: 320 wött Patróna: 10 mm Stiglaus hraöabreytir í rofa: 0-2600 sn./mín. Borun: 0-36000 högg/mín. 1417 H. Heimilisborvél Mótor: 420 wött Patróna: 13 mm Stiglaus hraöabreytir í rofa og tvær fastar hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn./min Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta, svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubbur og limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja við borvélina með einkar auðveldum hætti, svonefndri SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð uppfinning SKIL verksmiðjanna. Auk ofan- greindra fylgihluta eru á boðstólum hjólsagarborð, láréttir og lóðréttir borstandar, skrúfstykki, borar, vírburstar, skrúfjárn og ýmislegt fleira sem eykur stórlega á notagildi SKIL heimilisborvéla. Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri gerðir og stærðir af SKIL raf magnshandverkfærum. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI VELJA SKIL Einkaumboö á islandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670 Komiö og skoðið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. Athugið hvort SKIL heimilisborvél og fylgihlutir eru ekki hagnýt gjöf til heimilis ykkar eða vina ykkar. AORIR ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVIK: SIS Byggingavorudeild. Suöurlandsbraut 32. Verslunin Brynja, Laugavegi 29. HAFNARFJÖRÐUR: Rafbuðin. Alfaskeiði 31. KEFLAVIK: Stapafell h/f. ÞINGEYRI: Kaupfelag Dyrfirðinga ISAFJÖRÐUR: Straumur h/f. HÓLMAVIK: Kaupfélag Steingnmsfjarðar. BLONDUOS: Xaupfelag Hunvetninga SIGLUFJORÐUR: Rafbær h/f. AKUREYRI: Verslunin Raforka Handverk. Strandgotu 23. HUSAVIK: Kaupfelag Þingeyinga VOPNAFJÖRÐUR: Kaupfelag Vopnfirðinga EGILSTADIR: Verslunin Skogar SEYÐISFJÖRÐUR: Stalbuðin NESKAUPSSTAÐUR. Eirikur Asmundsson HÖFN: Kaupfelag Austur-Skaftfellinga VIK: Kaupfelag Skaftfellinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.