Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 11

Morgunblaðið - 27.11.1980, Síða 11
hefur verið svívirt af andstæðing- unum vegna þess að faðir hennar var bæjarstjóri í þorpi sem fylgdi Lýðveldinu. Þótt Hverjum klukkan glymur spegli margan vanda stríðs og dragi upp mynd af því sem raunverulega átti sér stað í borg- arastyrjöldinni spænsku er sagan fyrst og fremst mannleg og harm- ræn í túlkun sinni á ást þeirra Jordans og Maríu. Eins og elsk- enda er siður dreymir þau drauma um framtíðina. En það á ekki fyrir þeim að liggja að komast til Madríd að njóta lífsins. Jordan særist illa í lokabardaganum þeg- ar búið er að sprengja brúna. Hamingju baráttunnar virðist hann þó hafa öðlast því að höfund- urinn skilur við hann með hlaðna hríðskotabyssu og fyrirliða óvin- anna í dauðafæri. Hemingway leitaðist við að skilja Spánverja. Sá skilningur kemur berlega fram í lýsingum ýmissa persóna í Hverjum klukk- an glymur, meðal þeirra skærulið- ans Pablo og fylgikonu hans Pilar. Við sem lásum þessa bók fyrir þrjátíu árum verðum að játa að hún átti sinn þátt í áhuga okkar á Spáni og löngun til að kynnast Spánverjum. Einnig þóttu okkur markverð einkunnarorð bókarinn- ar sótt til John Donne: „Enginn maður er EYLAND, einhlítur sjálfum sér; sérhver maður er brot MEGINLANDSINS, hluti VER- ALDAR." MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 11 15 ára afmæli BARNAKÓR Öldutúnsskóla hélt upp á 15 ára starfsaf- mæli með tónleikum í sam- komusal skólans fyrir stuttu. 15 ár eru ekki langur tími og því ótrúlegt hversu mikið þessi starfsemi hefur verið mótandi fyrir tónlistarlíf ís- lendinga. Ég leyfi mér að fullyrða að starf kórsins er einn af merkari þáttum í skólasögu okkar íslendinga. Það má vera að mörgum þyki ýmsir áberandi þættir í fjöl- miðlun lista og skemmtiefni meiri tíðindi en barnakór- söngur, en allir geta verið sammála um að góður barna- Tónlisl eftir JÓN ÁSGEIRSSON kór sé stórkostleg uppeldis- miðstöð. Þjálfun barna er vandasamt verk og ekki nóg að kunna nóturnar og geta slegið taktinn. Þekking á raddgerð barna, hæfileiki að laða fram eðlilegan söng, leikni í merðferð margvís- legra listaverka á sviði tón- rænnar túlkunar ljóða og þolinmæði, endalaus þolin- manli, er það veganesti er kennari og stjórnandi barna- kórs þarf að hafa í mal sínum, er hann leggur á brattann. Það er ólíkt að starfa með börnum eða full- orðnum því nær öll tæknileg atriði þarf að kenna börnun- um án þess að hægt sé að útskýra þau, nema að mjög litlu leyti. Þarna er að finna enn eina skýringuna á því hvers vegna góðir barnakórar eru fáir til í landinu, þrátt fyrir það að víða sé reynt að halda uppi slíkri starfsemi. Með vaxandi menntun tón- menntakennara á síðari árum Egill Friðleifsson og samstarfi þeirra (barna- kóramót) hefur mikið áunnist og má segja að Egill Frið- leifsson hafi leitt söngkenn- ara til sigurs á þeirri Þraut, er Ingólfur Guðbrandsson fyrstur manna tók að glíma við. Það er ljóst, að það er leiðbeinandinn og sú aðstaða sem hann hefur til að vinna verk sitt, sem ræður úrslitum um árangur, og árangur Egils Friðleifssonar er ekki aðeins frábær, miðaður við aðstæður á Islandi, heldur einnig eins og hann gerist erlendis. Sá skóli sem getur boðið upp á slíka menningarstarfsemi er góður skóli og góður kór gerir ekki aðeins skólann sinn og kennara fræga, heldur er hann einnig sönnun þess, vegna þess hve vel er búið að menntun barna, að í landinu búi gott fólk. Hafnfirðingar (og skólayfirvöld) eiga gim- stein þar sem Öldutúnskórinn er og ef þeim auðnast að hlúa að starfi hans, mun kórinn eiga eftir að bera hróður þeirra víða um heim. Unnendur góðrar tónlistar óska Hafnfirðingum til ham- ingju með þau afrek er börn þeirra hafa unnið á sl. 15 árum og vilja eiga von á enn meiri tíðindum, því ekki er að efa, að bæjarbúum þyki ómaksins vert að nokkru sé til kostað, svo notið verði frægðar af starfi Egils Frið- leifssonar enn um stund. tAUGAVEGl 66; GLÆSIBÆ, AUSTURSTRÆTI 22 ^ Sími frá skiptiborði 85055 Laugavegí 20. Sími frá skiptiboröi 85055 Kvikmyndin URBAN COWBOY meö John Travoltaer nú væntanleg Háskólabíó en fötin frá mmo eru komin í Karnabæjarbúöirnar um land allt KARNABÆR öðrum íremri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.