Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980
19
Alþýðubandalagið haf nar
kauplækkunum sem lið
í efnahagsráðstöfunum
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ telur
nauðsynlegt, að Kripið verði til
„viðtækra efnahagsaðgerða** seg-
ir i stjórnmálaályktun landsfund-
arins, sem lauk á sunnudaginn.
„í þeim efnum ber að leggja
höfuðáhcrzlu á að haft verði
strangt taumhald á verðlags-
þróuninni i landinu, ýmist með
beinum stöðvunaraðgerðum eða
mjög nákvæmum eftirlitsaðgcrð-
um. í þeim efnum leggur Alþýðu-
bandalagið alveg sérstaka
áherzlu á nauðsyn þess að fylgst
verði vandlega með þróun inn-
flutningsverðlags.u
I stjórnmálaályktuninni segir,
að framundan sé veruleg verð-
bólguskriða, sem óhjákvæmilegt
sé að stemma stigu við. Innan
ríkisstjórnarinnar, sem hafi
nauman þingmeirihluta, hafi
komið fram kröfur um einhliða
skerðingu verðbóta á laun, en
Alþýðubandalagið hafni enn sem
fyrr „kauplækkunarleiðinni".
í stjórnmálaályktuninni eru síð-
an talin upp níu „almenn stefnu-
markandi atriði", sem Alþýðu-
bandalagið vill byggja efnahags-
ráðstafanir á; lögð verði höfuð-
áherzla á verðmætaaukningu
framleiðslunnar og fjölbreytni og
að knýja fram sparnað í rekstri.
Núverandi tekjuskiptingu verði
breytt láglaunafólki í hag. Tekin
verði upp áætlanagerð fjárfest-
ingarmála til nokkurra ára í senn.
Innflutnings- og útflutningsverzl-
un verði tekin til rækilegrar
Tillögurnar er bárust 1 samkeppni islenzka álfélagsins unr
veggskildi úr áli. Á sýningu í mötuneyti álverksmiðjunnar
Straumsvík. Ljósm. Mbi. rax<
Höggmyndir steyptar í ál
NÝLEGA voru veitt verðlaun í
ísal-samkeppninni meðal nem-
enda i Handíða- og myndlista-
skólanum um veggskildi úr áli.
Hlutskarpastur varð Pétur
Bjarnason nemandi i högg-
myndadeild, og að verðlaunum
hlýtur hann fjögurra vikna dvöl
i listaborginni Flórenz á Ítalíu.
Veitt voru sjö önnur verðlaun,
að upphæð 250 þúsund hver, og
þar sem einn listamannanna
ungu átti tvo skildi meðal þeirra
sjö er dómnefnd valdi til verð-
iauna, hlaut hann 500 þúsund
krónur.
Að sögn Hans Jetzek hjá Is-
lenzka álfélaginu barst 21 skjöld-
ur í keppnina. Hann sagði að
fyrirmyndirnar væru oft sóttar í
fornsögurnar, einkum víkinga-
tímann. Hann sagði að hugmynd-
in að samkeppninni hefði verið að
örva unga og upprennandi lista-
menn. Islenzka álfélagið keypti
verðlaunaskildina sjö, er verið að
taka af þeim afsteypur til sölu á
almennum markaði.
SKIPSTJÓRI á síldarbát, sem
selur 150 tonn í Danmörku fyrir
4 krónur danskar hvert kíló að
meðaltali, hefur 2,9 milljónir
króna i sinn hlut með orlofi.
Háseti á sama bát hefur hins
vegar 950 þúsund krónur i sinn
hlut. Skipstjóri á nótaskipi, sem
leyfi hefur til að veiða 250 tonn
og landar heima. hefur tæplega
2,8 milljónir króna i sinn hlut og
er þá miðað við 170 krónur á kiló.
Hásetinn hefur hins vegar 950
þúsund með orlofi.
Ólafur Björnsson, sem nú situr
á Alþingi í fjarveru Kjartans
Jóhannssonar, gerði kjör sjó-
manna að umtalsefni á þingi á
þriðjudag. Sagði hann að mánað-
arlaun skipstjóra á loðnuskipi
væru um 7 milljónir króna, en til
grundvallar er lagt, að meðalafli á
úthaldsdag sé 100 tonn. í hlut
skipstjóra koma 6,4% skiptaverð-
mætis, en 2,24% í hlut háseta og
fær hann samkvæmt þessum út-
reikningum 2,4 milljónir króna á
mánuði. Miðað er við verð fyrir
loðnu í sumar og haust, en hafa
ber í huga að skipin verða ekki
endurskoðunar. Rekstur ríkis-
stofnana verði endurskipulagður
og ríkisendurskoðun efld. Banka-
kerfið verði einfaldað. Skattalög-
um og tekjuöflunarkerfi ríkis og
sveitarfélaga verði breytt; skattar
hækki á háum tekjum og miklum
eignum, en lækki á iágum tekjum.
Staðgreiðslukerfi skatta verði tek-
ið upp svo fljótt sem þess er
kostur. Skattaeftirlit verði hert.
Gjöld á brýnum nauðsynjum
lækki, en hækki hins vegar á
munaðar- og eyðsluvörum. Einnig
verði þess gætt að skattleggja
frekar en nú er gert margvísleg
fjármálaumsvif í þjóðfélaginu,
„m.a. hinn stórfellda gróða bank-
anna, sem er skattfrjáls í dag“.
Þá vill Alþýðubandalagið að
vextir verði lækkaðir jafnhliða því
sem unnið sé að minnkun verð-
bólgu. Stjórn peningamála verði
gjörbreytt og lánsfé beint að
framleiðsluaukandi verkefnum og
í þágu markaðrar efnahagsstefnu.
Verðlagseftirlit verði gert virkara
og lögð sérstök áherzla á hert
eftirlit með innflutningsverðlagi.
Iðunn í Hrafnagilshreppi:
„Er þetta ekki
mitt liT frumsýnt
Akureyri, 26. nóv.
LEIKFÉLAGIÐ Iðunn i Hrafna-
gilshr. hefur að undanförnu æft
leikritið „Er þetta ekki mitt líf“
eftir Brian Clark í þýðingu Silju
Aðalsteinsdóttur. Leikstjóri er
Svanhildur Jóhannesdóttir. Lýsingu
hönnuðu Ingvar Björnsson og
Bjarki Arnason.
Hlutverk eru 15, aðalhlutverk leik-
ur Pétur Ó. Helgason í öðrum
hlutverkum eru Úlfar Hreiðarsson,
Svanhildur Jóhannesd., Þuríður
Schiöth, Ragnheiður Gunnbjörnsd.,
Kristinn Jónsson, Hreiðar Hreið-
arsson og fleiri. Leikmynd hönnuðu
Svanhildur Jóhannesdóttir, Hjörtur
Haraldsson og Níels Helgason.
Frumsýning er ákveðin föstudag-
inn 28. nóv. önnur sýning er sunnu-
daginn 30. nóv. sýningarnar hefjast
kl. 9 e.h. Þetta mun vera fyrsta
uppfærsla á þessu leikriti utan
Reykjavíkur. Eins og mörgum er
kunnugt hefur Leikfélag Reykjavíkur
sýnt þetta leikrit tvö undanfarin
leikár við mjög góða aðsókn og
undirtektir.
Þetta er 11. verkefni Leikfélagsins
Iðunnar í Hrafnagilshreppi frá
stofnun þess.
Sv.P.
Sambyggt tæki
með toppgæði
150 tonn af síld seld í Danmörku:
2,9 milljónir í
hlut skipstjóra
nema í um 5 mánuði að Ioðnuveið-
um á þessu ári.
Meðalafli á úthaldsdag hjá
minni skuttogurum er 12,3 tonn og
reikna má með 330—340 úthalds-
dögum hjá þessum skipum á ári.
Ef reiknað er með 140—150 tonna
afla í 12 daga túr fær skipstjóri
1400 þúsund krónur í sinn hlut og
háseti 700 þúsund.
Fundur um
vélflugið
VÉLFLUGFÉLAG íslands held-
ur I kvöld almennan félagsfund i
ráðstelnusal Hótels Loftleiða.
Pétur Einarsson fulltrúi flug-
málastjóra mætir á fundinum, en í
fundarboði segir, að á fundinum
verði einkum og sér í lagi fjallað
um vanda einkaflugsins. Segir í
fundarboði, að ýmsar blikur séu á
lofti og uggur er í einkaflug-
mönnum um framtíð vélflugsins,
„þar sem þjarmað sé að því úr
öllum áttum", eins og segir í
fundarboðinu.
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó sam-
stæöa í „silfur“ eðajg
„brons“ útliti.
Breidd 390 mm. Hæð 746 mm / 373 mm
Dýpt 330 mm.
DOLBY
fyrir betri upptökur.
• Útgangsorka
2x27 Wött
v/4 Ohm.
Reimdrifinn
hálfsjálfvirkur
plötuspilari
m. magnetic
pickup.
Rafeinda
móttökumælir.
• LM, MW
og FM bylgjur.
• Rafeinda
"Topp"
styrkmælir.
SG-1HB
* A1ETAL
Stilling fyrir metal
kassettur.
SHARP CP-1H/HB:
Hátalarar, bassa og diskant (2 way), 25
Watta í „silfur“ eöa „brons“ útliti.
Breidd 220 mm. Hæð 373 mm. Dýpt 18.3 mm. _
Allt settiö, verö kr.: 596.000.-
áf~ HLJÓMTÆKJADEILD
tÍLiil karnabær
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
\
Utsölustaöir: Karnabær Glæsibæ - Fataval Keflavik - Portið Akranesl - Epliö Isafiröi - Álfhóll Siglufiröi
Cesar Akureyri - Hornabær Hornafirði - Eyjabær Vestmannaeyjum - M M h/f Selfossi