Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.11.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1980 25 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Til sölu Gömul tímarit og bæklingar. Eimreiöin trá 1920, löunn, And- vari, Rökkur, Gríma, Spegillinn og fl. Uppl. í síma 12203 á kvöldin. Eldhúsborö og pinnastólar úr Vörumarkaöinum til sölu. selst ódýrt. Uppl. í síma 52557. I.O.O.F. 5 = 162112781A = MA. Skemmtilegasta Farfuglakvöldiö á árinu veröur haldiö föstudaginn 28. nóvember kl. 20.30 að Lauf- ásvegi 41. Margt veröur til skemmtunar. Mætum ÖU. Skemmtinefndin. Hjálpræóisherinn Fimmtudag kl. 20.30 almenn samkoma. Lautn. Anne Marie og Harold Reinholdtsen, syngja og tala. Föstudag kl. 11 —17, fataúthlut- un. Samhjálp Samkoma veröur í Hlaögeröar- koti í kvöld kl. 20.30. Bílferö frá Hverfisgötu 44, kl. 20. Allir velkomnir. Samhjálp. Frá Guöspeki- félaginu Áskriftarsimi Ganglera er 39573. í kvöld kl. 21.00 veröur Haraldur Ólafsson meö erindl .Trúarhug- myndir í sambandi viö dýr,“ (Rvíkst.) Hugleiöing kl. 18.10. öllum opiö. Freeportklúbburinn Fundur í Bústaöarkirkju í kvöld kl. 20.30. Kvikmyndasýning. Stjórnin. Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ungt fólk talar og syngur. Kvenfélag Hallgrímskírkju Bazarinn veröur n.k. laugardag 29. nóvember kl. 2 í félagsheim- ilinu. A.D. K.F.U.M. Fundur í kvöld aö Amtmannsstíg 2b, kl.20.30. Starfið í sumar- búöunum. Starfsmenn í Vatna- skógi sjá um fundinn. Allir karlmenn velkomnir. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur í safn- aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Séra Halldór S. Gröndal. r Bridge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Þættinum hefir borist ítarlegt bréf frá Eyjum og birtist það hér á eftir. Því miður vantaði undir- skriftina á bréfið en væntanlega er það frá Sigurgeir Jónssyni og leiðrétta Eyjamenn það ef það er ekki rétt. Um síðustu helgi var spiluð hér í Eyjum Tvímenningskeppni Suðurlands 1980. Alls tóku 14 pör þátt í keppninni, sex frá Vestmannaeyjum, fjögur frá Laugarvatni, þrjú frá Selfossi og frá Bridgefélagi Reykjavíkur kepptu sem gestir þeir Jakob Möller og Hrólfur Hjaltason. Byrjað var á spilamennskunni á föstudagskvöld og spilaðar fimm umferðir það kvöld. Að þeim fimm umferðum loknum voru Vestmannaeyingarnir Jón Hauksson og Pálmi Lórens efst- ir, en á hæla þeim fylgdu Selfyssingarnir Sigfús og Vil- hjálmur. Hafist var handa um spilamennsku kl. 10 á laugar- dagsmorgun, enda var stefnt að því að ljúka mótinu fyrir kvöld- mat sem og tókst. Þeir Jón og Pálmi héldu forystunni allt þangað til þrjár umferðir voru eftir, þá sigu Sigfús og Vilhjálm- ur fram úr og sigruðu nokkuð örugglega. En lokastaðan varð þessi (meðalskor 546). stig Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Pálsson 682 (Bridgefélag Selfoss) Jón Hauksson — Pálmi Lórensson 653 (Bridgefélag Vestmannaeyja) Sigurgeir Jónsson — Bjarnhéðinn Elíasson 597 (Bridgefélag Vestmannaeyja) Jakob Möller — Hrólfur Hjaltason 565 (Bridgefélag Reykjavíkur) Haukur Guðjónsson — Þorleifur Sigurlásson 561 (Bridgefélag Vestmannaeyja) Leif Osterby — Brynjólfur Gestsson 552 (Bridgefélag Selfoss) Helgi Bergvinsson — Hjálmar Þorleifsson 547 (Bridgefélag Vestmannaeyja) Aðrir keppendur náðu ekki meðalskor. Laugvetningar blönduðu sér.ekki í keppnina um efstu sætin að þessu sinni, en árangur Vestmannaeyinga hefur sjaldan eða aldrei verið betri, eða fjögur af sjö efstu sætum. Þó hefur líklega ekkert komið eins á óvart og árangur þeirra Sigur- geirs og Bjarnhéðins, sem hrepptu þriðja sætið án mikillar fyrirhafnar. Þetta er því athygl- isverðara þar sem hvorugur þeirra hefur verið mjög áberandi hvað efstu sætin varðar í keppn- um hingað til og hafa þeir raunar ekki spilað saman í keppni í allmörg ár. Hallast menn helst að því að ástæðan fyrir þessari velgengni þeirra sé sú, að þeir mættu til leiks- með spánýtt kerfi sem reyndist prýðilega í alla staði, þrátt fyrir að vera mjög einfalt í sniðum. Gengur kerfið undir nafninu „Matsstöðvartígullinn" og þykir líklegt til vinsælda. Keppnisstjóri í þessu móti var Sigurjón Tryggvason frá Reykjavík og rækti hann sitt hlutverk með prýði. Nú er hálfnuð aðalsveita- keppni Bridgefélags Vestmanna- eyja en þar er spiluð tvöföld umferð með þátttöku sex sveita. Eftir fjórar umferðir er staðan þessi: Sveit stig Valgeirs Kristinssonar 62 Gestgjafans 48 Sveins Magnússonar 43 Guðlaugs Stefánssonar 23 Friðþjófs Mássonar 21 Einars Friðþjófssonar 15 Tvær síðustu sveitirnar eiga einn leik til góða, þannig að stigatala þeirra getur breytst. Sveit Valgeirs skipa auk hans þeir Anton Bjarnasen, Gunnar Kristinsson, Magnús Grímsson, Ragnar Helgason og Sigurgeir Jónsson. Sveit Gestgjafans skipa þau Hilmar Rósmundsson, Jak- obína Guðlaugsdóttir, Jón Hauksson, Pálmi Lórensson og Sigfús Sveinsson. Og sveit Sveins Magnússonar skipa auk hans þeir Benedikt Ragnarsson, Bjarnhéðinn Elíasson og Leifur Ársælsson. Bridgefélag Kópavogs Fjórða umferð hraðsveita- keppninnar lauk fimmtudaginn 20. nóv. og þrjár efstu skorirnar hlutu: sveit stig Bjarna Péturssonar 778 Sigurðar Vilhjálmssonar 702 Sigríðar Rögnvaldsdóttur 699 Meðalskor 648 stig. Að einni umferð óspilaðri er staða efstu sveita þessi: sveit stig Rúnars Magnússonar 2476 Ármanns J. Lárussonar 2739 Jóns Þorvarðarsonar 2736 Sigurðar Vilhjálmssonar 2693 Jóns Andréssonar 2685 Sverris Þórissonar 2627 Meðalskor 2592 stig. Afmæli BK Líðandi vetur er tuttugasta starfsár Bridgefélags Kópavogs og hefur stjórn félagsins ákveðið að minnast afmælisins með hófi og boðsmóti. Föstudaginn 28. nóv. nk. er öllum núverandi og eldri félög- um boðið til samkomu að Þing- hóli sem hugsuð er með léttu yfirbragði. Mökum félaga BK er sérstaklega boðið og hefst kvöld- ið með félagsvist kl. 20.30 en á eftir verður stiginn dans. Boðsmót BK Um helgina 6. og 7. des. nk. efnir félagið til boðsmóts með þátttöku 32ja para og verður félögum í Reykjavík, Reykjanesi og Selfossi boðið að senda full- trúa sína til mótsins. Mótið verður barometertvímenningur og spiluð 3 spil á milli para. Vegleg verðlaun verða veitt þremur efstu pörunum. Spilað verður að Þinghóli við Hamra- borg í Kópavogi og hefst mótið kl. 13.30. Keppnisstjórar verða Vilhjálmur Sigurðsson og Jóna- tan Líndal. „Harðfengi og hetjulund44 Hrakningasaga Shackletons til Suðurskautslandsins ÚT ER komin hjá bókaútgáf- unni Skuggsjá, Hafnarfirði, bók- in „Harðfengi og hetjulund" eftir Alfred Lansing í þýðingu Hersteins Pálssonar. betta er 7. bókin í bókaflokknum „Ilá- spennusögurnar“. í fréttatil- kynningu útgáfunnar segir m.a.: „Harðfengi og hetjulund fjallar um ótrúlega hrakningaför Sir Ernest Shackletons til Suður- skautsins. Skip hans og sam- fylgdarmanna hans festist í ísn- um, sem að lokum braut skipið, og það sökk. Þá voru leiðang- ursmenn staddir á ísbreiðu, sem var um 2 milljónir ferkílómetra að flatarmáli. Um þessa enda- lausu breiðu urðu þeir að draga báta sína, vistir og persónulegar eigur, ef þeir ætluðu að halda lífi. Fimm léleg tjöld vörðu þessa 28 hrakningsmenn fyrir næðingn- um, og þeim var stöðugt ógnað af háhyrningum og sæhlébörðum. Samt kom þeim aldrei til hugar að gefast upp — og sízt af öllum foringjanum Sir Ernest Shackie- ton. Forystuhæfileikar hans mót- uðu sundurleita sveit í einhuga fylkingu, sem heppnaðist það, sem öllum virtist óframkvæman- legt.“ AK.I.YSIM.ASIMINN KR: 22480 JRorgxmbleötí) BANKASTRÆTI 7 • AÐALSTRÆTI 4 . 7.128 EKTAGÓÐ KAUP! Vcgna mjög hagstæðra innkaupa gctum við boðið þcssar úrvals ullarblússur (twced) frá Van Gils á aðcins 34.000kr Litir: grátt, grænbrúnt, dökkbrúnt Stærðir: 46-56

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.